Morgunblaðið - 11.06.1995, Síða 20
20 B SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ1995
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIN N U A UGL YSINGAR
Frá Fræðslustjóra
Vesturlands-
umdæmis
Umsóknarfrestur um eftirtaldar áður auglýst-
ar stöður grunnskólakennara framlengist til
20. júní 1995:
Grunnskólann í Ólafsvík:
almenn kennsla, handmennt, heimilisfraeði.
Heiðarskóla Leirársveit:
mynd- og handmennt.
Laugargerðisskóla Snæfellsnesi:
íþróttir, raungreinar.
Grunnskólann á Hellissandi: kennsla yngri
barna, íþróttir, líffræði, samfélagsfræði.
Grunnskólann Grundarfirði:
kennsla yngri barna.
Grunnskólann f Stykkishólmi:
almenn kennsla.
Laugaskóla Dalasýslu:
almenn bekkjarkennsla.
Umsóknir berist til skólastjóra viðkomandi
skóla, sem ásamt fræðslustjóra gefur allar
nánari upplýsingar.
Fræðslustjóri Vesturlandsumdæmis.
Akureyrarbær
Staða jafnréttis- og fræðslufulltrúa
Akureyrarbæjar er laus til umsóknar
Starfið er tvíþætt, annars vegar er um að
ræða stjórnun, umsjón og skipulagningu
fræðslu og endurmenntunar starfsmanna og
stjórnenda Akureyrarbæjar og hins vegar að
vinna að framgangi Jafnréttisáætlunar Akur-
eyrarbæjar og öðrum jafnréttismálum innan
bæjarkerfisins og í bæjarfélaginu öllu skv. lög-
um um jafnan rétt og stöðu kvenna og karla.
Krafist er háskólamenntunar, reynslu og
þekkingar á sviði fræðslu- og jafnréttismála
svo og reynslu af stjórnun og skipulagningu.
Umsækjendur þurfa einnig að hafa góða
hæfni í samskiptum, eiga auðvelt með að tjá
sig í ræðu og riti á íslensku og hafa gott vald
á ensku og/eða skandinavísku.
Akureyrarbær hefur haft forystu meðal
sveitafélaga á sviði jarfnréttismála og hlaut
fyrstu viðurkenningu Jafnréttisráðs árið 1992
fyrir vel unnin störf.
Akureyrarbær hóf að starfa samkvæmt sér-
stakri jafnréttisáætlun árið 1989 og þar var
fyrst ráðinn jafnréttis- og fræðslufulltrúi
1991. Ný jafnréttisáætlun var samþykkt í lok
árs 1993 og gildir hún til loka árs 1997. Þar
er áhersla lögð á tvíþætt verksvið jafnréttis-
fulltrúans sem er að vinna að framgangi
áætlunarinnar bæði innan bæjarkerfisins og
gagnvart bæjarbúum.
Akureyrarbær hefur einnig haft forystu í
fræðslumálum og er nú verið að vinna að
undirbúningi þriggja ára þróunarverkefnis
um nám í starfi hjá Akureyrarbæ. í því verk-
efni mun jafnréttis- og fræðslufulltrúi gegna
veigamiklu hlutverki.
Hjá Akureyrarbæ starfa hátt á annað þúsund
konur og karlar við fjölbreytt störf. Það er
m.a. hlutverk fræðslufulltrúa að stuðla að
því að starfsfólk og stjórnendur geti verið í
sífelldri þróun, sífelldu námi í starfi.
Ráðningin er tímabundin til fjögurra ára.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Akur->
eyrarbæjar og STAK.
Umsóknarfrestur er til 23. júní nk.
Umsóknum skal skila til starfsmannastjóra,
Geislagötu 9, 600 Akureyri, á sérstökum
eyðublöðum sem fást þar.
Nánari upplýsingar hjá jafnréttis- og fræðslu-
fulltrúa og starfsmannastjóra í síma
462 1000.
Bæjarstjórinn á Akureyri.
Kennarar
- Siglufjörður
Um leið og við óskum nýútskrifuðum kennur-
um hjartanlega til hamingju með áfangann
auglýsum við eftir kennurum að Grunnskóla
Siglufjarðar á næsta skólaári.
Meðal kennslugreina eru almenn kennsla,
samfélagsfræði, náttúrufræði, sérkennsla og
heimilisfræði. Við skólann er sérdeild og
framhaldsdeild. Á næsta skólaári mun skóla-
nefnd hefja aðlögun að væntanlegri yfirtöku
bæjarins á öllum rekstri grunnskólans með
þátttöku kennara og foreldra.
Siglufjarðarkaupstaður greiðir flutnings-
kostnað, útvegar húsnæði og greiðir húsa-
leigustyrk.
Á Siglufirði er öll almenn þjónustustarfsemi
og góð tómstunda- og íþróttaaðstaða. Þar
eru m.a. nýlegt íþróttahús, eitt besta skíða-
svæði landsins, öflugur tónlistarskóli, nýr
leikskóli, gott sjúkrahús, auk mjög fjölbreyti-
legs félagslífs.
Upplýsingar um starfið veita bæjarstjóri í
síma 467 1700 og 467 1171 (heima) og
skólastjóri í síma 467 1184. Björn Valdimars-
son, bæjarstjóri og formaður skólanefndar,
verður einnig til viðtals á skrifstofu
Sambands íslenskra sveitarfélaga, Háaleitis-
braut 11, Reykjavík, sími 581 3711,
nk. þriðjudag kl. 10-14.
Grunnskóii Siglufjarðar.
Tæknival
Tœknival hf. er 12 ára gamalt framsœkid
tölvufyrirtœki med u.þ.b. 100 starfsmenn og veltan á
síöasta ári var yfir milljarö ísl. króna. Fyrirtœkió
býöur viöskiptavinum sinum heildarlausnir i iónaói,
sjávarútvegi og verslunarrekstrL Vegna enn
aukinna umsvifa óskar Tæknival hf. eftir aó ráóa 3
starfsmenn til vióbótar í þjónustudeild fyrirtækisins.
3 TÆKNIMENN I
ÞJÓNUSTUDEILD
ENN AUKUM VIÐ UMSVIFIN OG
LEITUM ÞVI AÐ duglegum og framsýnum
einstaklingum sem hafa áhuga á netstýri-
kerfum og eru tilbúnir að leggja sig fram í
krófúhörðu og líflegu starfsumhverfi.
HÆFNISKRÖFUR eru að umsækjendur séu
með tæknimenntun og/eða haldbæra reynslu
af Novell netkerfum. Áhersla er lögð á
fagleg og skipulögð vinnubrögð, þægilega
framkomu auk dugnaðar og eljusemi í starfi.
1 BOÐI ERU áhugaverð störf hjá öflugu og
framsæknu fyrirtæki með góðan liðsanda.
Gerð er krafa um að starfsmenn Ijúki CNE-
prófi innan 12 mánaða frá ráðningu.
Vinsamlega athugið að fyrirspurnum varðandi
ofangreint starf verður eingöngu svarað hjá
STRA Starfsráðningum hf. Umsóknum skal
skilað fyrir mánaðarmót.
Umsóknareyðublöð eru fyrirliggjandi á skrif-
stofunni, sem opin er frá kl.10-16, cn viðtalstimar
eru frá kl. 10-13.
\ / Starfsrábningar hf
I Sudurlandsbraut 10 • 5. hced ■ 108 Reykjavík
ST
RA
Simi: 588 3031 ■ Fax: S88 3010
Cuðný Harbardóttir
Húsvörður
óskast í hlutastarf í fjölbýlishúsi.
Afnot af 3ja herbergja íbúð sem greiðsla.
Umsóknir, ásamt upplýsingum, sendist af-
greiðslu Mbl., merktar: „K - 15812“, fyrir
20. júní nk. Öllum umsóknum verður svarað.
®eal
—Ferðaskrifstofa
Bókhald -almenn
skrifstofustörf
Óskum eftir starfsmanni með starfsreynslu
og/eða menntun í færslu og meðferð bók-
haldsgagna. Nauðsynlegt er að viðkomandi
hafi alla almenna þekkingu til merkingar bók-
haldsgagna, færslu þeirra í tölvukerfi og frá-
gangs. Einnig þarf viðkomandi að hafa þekk-
ingu á útreikningi launa og færslu þeirra í tölvu-
keyrðu launabókhaldi ásamt því að geta sinnt
öðrum almennum skrifstofustörfum.
Umsækjandi þarf að vera stundvís, traustur,
skipulagður og geta unnið sjálfsætt. Um er
að ræða heilsdags framtíðarstarf og þarf
viðkomandi að geta hafið störf í byrjun júlí.
Rétt er að taka fram að vinna er mikil yfir
sumartímann og því þörf á að taka orlof út
yfir vetrartímann. Reyklaus vinnustaður.
Skrifleg umsókn óskast send ásamt með-
mælum og upplýsingum um fyrri störf/nám
fyrir 25. júní 1995 til Ferðamiðstöðvar Aust-
urlands - Starfsmannahald, Stangarhyl 3a,
P.O. Box 9088, 129 Reykjavík.
FERÐAMiÐSTÖÐ AUSTURLANDS HF.
Stangarhyl 3a, Reykjavík.
Eitt ár
Bandank|unum
er reynsla
sem þú býrá að
alla ævi
Síðastliðin 5 ár hafa mörg hundruð íslensk ung-
menni farið á okkar vegum til Bandaríkjanna
til eins árs dvalar við nám og störf.
Og ekki að ástæðulausu, því
engin önnur samtök bjóða
eins góða, örugga og
ódýra þjónustu.
• Allar ferðir fríar.
• 32.000 krónur í vasapeninga á mánuði.
• 5 daga námskeið í Washington D.C. í
skyndihjálp og uppeldisfræðum.
• 32.500 krónu styrkur til að stunda nám
að eigin vali.
• Einstök tilboð á ferðum um Bandaríkin
t.d. á vegum Trek America.
... ogsíðast en ekki síst
"BRING A FRIEND"
Þú þarf ekki lengur að kvíða því að vera án
vinanna í heilt ár - taktu einn með þér.
AuPair Homestay U.S.A. eru einu samtökin
sem bjóða vinum að sækja um saman og dvelja
hjá fjölskyldum á sama svæði.
Erum að bóka í brottfarir íjúlí, ágúst, seþtember,
október og nóvember.
AuPAIR
VISTASKIPTI & NÁM
ÞÓRSGATA 26 101 REYKJAVÍK SlMI 562 2362 FAX 562 9662
ISAMSTARFI MEÐ VIÐURKENNDUM MENNINQARSAMTÖKUM I AUSTURRlKI.
BANDARlKJUNUM. BRETLANDI. DANMÖRKU. FINNLANDI. FRAKKLANDI.
HOLLANDI, iTALlU, NOREGI, SPÁNI, SVlpJÓÐ OQ ÞÝSKALANDI.