Morgunblaðið - 11.06.1995, Blaðsíða 22
22 B SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ1995
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNUA UGL YSINGAR
Leikskólakennarar
óskast
Leikskólinn Gefnarborg í Garði er einkarekinn
tveggja deilda leikskóli sem vantar leikskóla-
kennara sem fyrst. Bæði heils- og hálfsdags-
störf koma til greina.
Upplýsingar veita rekstraraðili eða leikskóla-
stjóri í síma 422 7166.
Starfsmaður óskast
í 50% starf á skrifstofu Sjálfsbjargar Reykja-
vík og nágrennis.
Kröfur eru gerðar um að starfsmaður geti
unnið sjálfstætt að tölvubókahaldi félagsins
og við almenn skrifstofustörf.
Umsóknir berist fyrir 19. júní á skrifstofu
félagsins, Hátúni 12.
Móttaka/afgreiðsla
Tryggingafélag í borginni óskar að ráða reyk-
lausan starfskraft til starfa sem fyrst. Vinnutími
frá kl. 8.30 til kl. 16.30. Framtíðarstarf.
Starfssvið: Símavarsla, ritvinnsla, innfærsla
og útsending reikninga, svara almennum
upplýsingum og skyld störf. Tölvuþekking,
snyrtimennska og góð framkoma er nauð-
synleg.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu okkar til 17. júní.
Guðni Iónsson
RÁÐGIÖF & RÁÐNINCARÞIÓNUSTA
HÁTEIGSVEGI7,105 REYKJAVÍK, SÍMI5-62 13 22
Þórshöfn
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarforstjóri óskast til starfa við
Dvalarheimilið Naust á Þórshöfn.
Hjúkrunarforstjóri er einnig yfirmaður öldrun-
armála hjá sveitarfélaginu og vinnursem slík-
ur að stefnumótun í málaflokknum ásamt
sveitarstjórn.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma
468 1220/468 1275eða468 1221 á kvöldin.
Umsóknir sendist Sveitarstjóranum á Þórs-
höfn, Langanesvegi 16a, 680 Þórshöfn.
Sveitarstjórinn á Þórshöfn
Reinhard Reynisson.
Laus störf
Kópavogsbær óskar eftir fólki til starfa í nýju
sambýli fyrir aldraða, sem hefur starfsemi í
júlí. Starfsreynsla í umönnun aldraðra nauð-
synleg.
Um er að ræða vaktavinnu, 3-4 stöðugildi.
Ennfremur er óskað eftir starfsmanni í eldhús.
Upplýsingar gefur yfirmaður öldrunardeildar
í síma 554-5700 mánudag til föstudags frá
kl. 9-11.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Félags-
málastofnunar Kópavogs og bera að skila
þangað umsóknum í síðasta lagi 20. júní nk.
Starfsmannastjóri.
„Au pair“ - London
Óskum eftir „au pair“ (sem ekki reykir) til
að gæta 11/2 árs gamals drengs í eitt ár frá
og með miðjum júlí.
Enska og íslenska töluð á heimilinu.
Nánari upplýsingar í síma 557 2381.
Leikskólinn Hlíð
óskar eftir að ráða leikskólakennara með
sérkennslu sem meginviðfangsefni.
Til greina kemur að ráða þroskaþjálfa eða
fólk með aðra uppeldismenntun.
Staðan er laus frá miðjum ágúst eða eftir
nánara samkomulagi.
Upplýsingar gefur undirrituð
í síma 566 7375.
Leikskólastjóri.
Starfsmaður óskast
Vegna aukinna umsvifa leitar Epal að starfs-
manni í verslun sína.
Leitað er að ábyrgum, skipulögðum og sjálf-
stæðum starfsmanni, sem fyrst og fremst
sæi um sölu og pantanir á húsgögnum
og lömpum.
Um er að ræða fullt starf.
Skriflegar umsóknir sendist Epal fyrir
16. júní nk.
cpal
Faxafeni 7,
101 Reykjavík.
Hjúkrunarfræðingar
DEILDARSTJÓRI óskast sem fyrst til starfa
á hjúkrunardeild 4-B. Heimilismenn eru
þrjátíu en verið er að skipta deildinni í tvær
einingar, aðra fyrir heilabilaða. Uppbyggjandi
starf er fyrir höndum.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í
síma 565 3000.
Fótsnyrtifræðing
vantar til afleysinga, tímabilið 19. júní til 24. júlí.
Nánari upplýsingar gefur forstöðukona í síma
565 3000.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Leikhússtjóri
Starf leikhússtjóra Leikfélags Reykjavíkur í
Borgarleikhúsi 1996-2000 er hér með aug-
lýst laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst nk.
Nýr leikhússtjóri tekur formlega við stjórn
hússins 1. september 1996 en miðað er við
að hann hefji undirbúning næsta leikárs
1. janúar 1996.
Umsóknir berist til stjórnar Leikfélags
Reykjavíkur ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf umsækjenda.
Leikhúsráð
Leikfélags Reykjavíkur.
Sölumann
vantar strax í heilsdagsstarf í innréttinga-
deild okkar.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynsíu í
teikningum innréttinga og sé vanur sölumaður.
Þarf að vera glaðlegur og þjónustulipur.
Umsóknum skal skila skriflega til IKEA,
Holtagörðum, c/o Hulda Haraldsdóttir,
fyrir 15. júní.
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
Öllum umsóknum svarað.
Skólastjórastaða
Heimilisiðnaðarfélag íslands auglýsir lausa
stöðu skólastjóra við Heimilisiðnaðarskól-
ann. Um er að ræða 50% starf. Ráðningar-
tími er frá 1. september 1995.
Umsækjandi þarf að hafa menntun í handíð-
um og þekkingu á íslensku handverki.
Reynsla við kennslu og stjórnun æskileg,
einnig tölvu- og málakunnátta.
Umsóknarfrestur er til 15. júlí 1995. Umsókn
þurfa að fylgja upplýsingar um menntun og
fyrri störf og skal skilað til afgreiðslu Mbl.
merktum: „Skólanefnd - laus staða - 4176“.
Tæknimaður
- sölumaður!
Sölumaður, sem hefur þekkingu á forritun,
jafnframt rafeindatækjum, óskast.
í boði er starf, sem krefst frumkvæðis og
markaðsþekkingar ásamt því að hafa gaman
af umgengni við viðskiptavini og leysa úr
vandamálum.
Vinnan er tengd uppsetningu og viðhaldi á
forritum ásamt tölvutengdum vörum.
Æskilegt er að þekking sé á strikamerkjum
og uppsetningu tækja fyrir strikamerkingar.
Þeir, sem vildu kynnast starfi þessu, eru vin-
samlegast beðnir að senda umsóknir til af-
greiðslu Mbl. fyrir 16. júní nk., merktar:
„A - 82“.
Öllum umsóknum verður svarað.
Veitustjóri
Bæjarveitna Vestmannaeyja
Stjórn Bæjarveitna Vestmannaeyja auglýsir
stöðu veitustjóra Bæjarveitna Vestmanna-
eyja lausa til umsóknar.
Bæjarveitur Vestmannaeyja er sjálfstætt fyr-
irtæki í eigu Vestmannaeyjabæjar, sem sér
um rekstur hitaveitu, rafveitu, vatnsveitu og
sorpbrennslu.
Umsækjendur þurfa að vera verkfræðingar
eða tæknifræðingar eða hafa sambærilega
menntun og hafa reynslu af stjórnunarstörf-
um. Ráðið verður í starfið frá 1 .desember nk.
Umsóknarfrestur er til 1. júlí nk.
Umsóknir, er tilgreini menntun og fyrri störf,
skulu sendar stjórn Bæjarveitna Vestmanna-
eyja, Tangagötu 1, 900 Vestmannaeyjum,
merktar: „Umsókn um starf veitustjóra."
Nánari upplýsingar veita Guðjón Hjörleifsson,
bæjarstjóri og stjórnarformaður Bæjarveitna,
eða Eiríkur Bogason, veitustjóri.
Stjórn Bæjarveitna Vestmannaeyja.