Morgunblaðið - 11.06.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ1995 B 23
ATVI NNU/\ UGL YSINGAR
Leikskólakennarar
Leikskólinn Undraland á Flúðum óskar eftir
leikskólastjóra í 1 ár, þ.e. frá og með 1. ágúst
1995. Einnig vantar leikskólakennara.
Skriflegum umsóknum skal skila á skrifstofu
Hrunamannahrepps fyrir 1. júlí 1995.
Nánari upplýsingar veitir oddviti
í síma 486 6617.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa við
Sjúkrahúsið á Seyðisfirði frá og með 1. sept.
nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Sjúkrahúsið á Seyðisfirði er 26 rúma sjúkra-
hús með 6 stöðugildi hjúkrunarfræðinga.
Sjúkrahúsið er í nýlegu húsnæði, þar sem
öll aðstaða til hjúkrunar og umönnunar er
mjög góð.
Aðalviðfangsefnin eru á sviði öldrunarhjúkr-
unar, en einnig er fengist við margskonar
medicinsk vandamál, bæði bráð og langvar-
andi.
Næturvaktir hjúkrunarfræðinga eru í formi
bakvakta, heima.
Hafir þú áhuga á skemmtilegu en oft krefj-
andi starfi, hafðu þá samband við Þóru
(hjúkrunarforstjóra) í síma 472 1406, sem
gefur nánari upplýsingar.
Sjúkrahús Seyðisfjarðar.
„Au pair“ óskast
Þroskuð stúlka, reyklaus, eldri en 20 ára,
óskast til New Jersey, USA, nálægt New York,
frá 30. júlí. Sérherbergi. Afnot af bíl.
Upplýsingar gefur Jóhanna Sveinbjörnsdóttir
í síma 9019083596527.
Viðskiptafræðingur
Ert þú viðskiptafræðingur af endurskoðunar-
og reikningshaldssviði eða einstaklingur
með sambærilega menntun?
Vilt þú starfa hjá framsæknu fyrirtæki, sem
nýtir nútíma tækni og stjórnunarhætti til að
ná settum markmiðum?
Þú þarft að hafa haldgóða tölvukunnáttu,
eiga auðvelt með að tileinka þér nýjungar
og eiga gott samstarf.
Þú verður að geta hafið störf fljótlega.
Starfið er fólgið í:
- Innflutningi og erlendum samskiptum hon-
um tengdum.
- Tollskýrslugerð (EDI-samskipti við tollinn).
- Samskiptum við flutningsaðila.
- Umsjón með birgðabókhaldi.
- Aðstoð við fjárhagsbókhald.
- Skýrslugerð í samvinnu við aðalbókara.
Ef þú ert áhugasamur kvenmaður eða karl-
maður, þá er þetta tækifærið þitt.
Gríptu tækifærið og skilaðu inn umsókn til
afgreiðslu Mbl., merkta: „M - 1705“,
eigi síðar en mánudaginn 19. júní.
Starfsmaður á lager
Ásbjörn Ólafsson hf. óskar eftir að ráða
starfsmann á lager. Viðkomandi þarf að vera
á aldrinum 30-45 ára. Framtíðarstarf. Vin-
samlegast sendið inn umsóknir með upplýs-
ingum um aldur, menntun og fyrri störf til
Mbl. merkt: „M-11160". Athugið, ekki er
tekið á móti umsóknum í síma.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI
Ljósmóðir
Sumarafleysingar
FSÍ óskar að ráða nú þegar Ijósmóður til
sumarafleysinga. Bakvaktaskylda.
Föst staða Ijósmóður
Einnig leitar FSÍ að Ijósmóður í fasta stöðu
frá 1. júlí nk. Bakvaktaskylda skiptist milli
þriggja Ijósmæðra.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
456 4500 á dagvinnutíma eða heimasíma
456 4228.
FSI er nýtt, vel búið sjúkrahús sem þjónar norðanveröum Vestfjörð-
um. Við veitum skjólstæðingum okkar alla almenna þjónustu á sviði
skurð- og lyflækninga, öldrunarlækninga, fæðingarhjálpar, slysa- og
áfallahjálpar og endurhæfingar. Starfsemin hefur verið í stöðugri
sókn á undanförnum árum. Er það fyrst og fremst að þakka metnað-
arfullu starfsfólki, nýjum og góðum tækjabúnaði, fyrirmyndar vinnu-
aðstöðu og ánægðum viðskiptavinum. Starfsmenn FSÍ eru rúmlega
90 talsins. Fæðingar eru um 100 á ári.
Ferðamálafulltrúi
Ferðamálafulltrúi óskast til starfa hjá Mark-
aðs- og atvinnumálaskrifstofu Keflavíkur -
Njarðvíkur - Hafna.
Starfið:
★ Stefnumótun, ráðgjöf, áætlanagerð.
★ Uppbygging og skipulagning ferðaþjón-
ustu.
★ Upplýsingaöflun, gagnabankar, styrkum-
sóknir.
★ Samskipti við hagsmunaaðila.
Hæfniskröfur:
★ Háskólamenntun æskileg.
★ Reynsla og þekking á ferðaþjónustu.
★ Góð tölvukunnátta æskileg.
★ Góð málakunnátta nauðsynleg.
Leitað er að einstaklingi, sem er tilbúinn að
takast á við krefjandi verkefni af alúð og
samviskusemi. Búseta á Suðurnesjum verð-
ur skilyrði.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Markaðs- og atvinnumálaskrifstofu - Fitj-
um - 260 Njarðvík, fyrir 30. júní nk.
Atvinnumálaráðgjafi
Atvinnumálaráðgjafi óskast til starfa hjá
Markaðs- og atvinnumálaskrifstofu Kefla-
víkur-Njarðvíkur-Hafna.
Starfið
★ Stefnumótun, áætlanir, markaðsrann-
sóknir.
★ Uppbygging og nýsköpun í atvinnumálum.
★ Upplýsingaöflun, gagnabankar, styrkum-
sóknir.
★ Samskipti við viðskiptaaðila.
Hæfniskröfur
★ Háskólamenntun æskileg.
★ Reynsla óg þekking á atvinnumálum.
★ Góð tölvukunnátta æskileg.
★ Góð málakunnátta nauðsynleg.
Leitað er að einstaklingi, sem er tilbúinn að
takast á við krefjandi verkefni af alúð og
samviskusemi. Búseta á Suðurnesjum verð-
ur skilyrði.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Markaðs- og atvinnumálaskrifstofu - Fitj-
um - 260 Njarðvík, fyrir 20. júní nk.
ffl
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Óskum að ráða leikskólakennara eða annað
uppeldismenntað starfsfólk í leikskólann
Klettaborg v/Dyrhamra, s. 567-5970.
Þá vantar matartækni í leikskólann Sæborg
v/Starhaga, s. 562-3664.
Einnig vantar matartækni, leikskólakennara
og leikskólakennara með táknmálskunnáttu
í leikskólann Sólborg v/Vesturhlíð, s.
551-5380.
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leik-
skólastjórar.
Leikskólar Reykjavíkurborgar eru reyklausir
vinnustaðir.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 552-7277.
BORGARSPÍTALINN
Skurðlækningadeild A-4
Hjúkrunarfræðingar!
Staða aðstoðardeildarstjóra á skurðlækn-
ingadeild A-4 er laus til umsóknar frá 1.
ágúst 1995. Deildin er almenn skurðlækn-
ingadeild. Aðstoðardeildarstjóri stjórnar og
ber ábyrgð á hjúkrun á helmingi deildarinnar
undir stjórn deildarstjóra. Umsóknarfrestur
er til 1. júlí 1995.
Hjúkrunin á deildinni er krefjandi og fjöl-
breytt og gerir kröfur til reynslu og færni
þeirra hjúkrunarfræðinga sem þar starfa.
Deildin er rekin að formi til sem tvær eining-
ar, en mikil áhersla er lögð á samstarf og
samvinnu milli eininganna.
Einnig eru lausar stöður hjúkrunarfræðinga
á skurðlækningadeildum spítalans.
Nánari upplýsingar veita Herdís Herberts-
dóttir, deildarstjóri í síma 569 6542 og Gyða
Halldórsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri í
síma 569 6357.
Framkvæmdastjóri
Óskum eftir að ráða framkvæmdastjóra til
starfa hjá Flutningamiðstöð Suðurlands á
Selfossi.
Starfssvið: Skipulagning og uppbygging fyrir-
tækisins. Dagleg stjórnun með áherslu á mark-
aðssetningu og öflun viðskiptasambanda.
Við leitum að drífandi og framsæknum manni.
Reynsla af stjórnunarstörfum, markaðsmálum,
fjármálum og bókhaldi. Menntun á sviði við-
skipta, tækni eða verkfræði æskileg.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar
„Framkvæmdastjóri 230“ fyrir 17. júní nk.
Við Hæstarétt íslands eru tvær
stöður lausar til umsókna:
1. Staða löglærðs
aðstoðarmanns
dómara
Umsækjendur skulu hafa lokið embættis-
prófi í lögfræði með 1. einkunn og hafa
reynslu af dómstörfum.
Staðan er veitt til tveggja ára.
2. Staða fulltrúa
(ritara)
Umsækjendur þurfa að hafa góða kunnáttu
í íslensku og ritvinnslu.
Ráðið er í þessar stöður frá 1. september nk.
Umsóknir sendist skrifstofu Hæstaréttar
fyrir 1. júlí nk.
Nánari upplýsingar veitir hæstaréttarritari,
Erla Jónsdóttir, í síma 551 3936.