Morgunblaðið - 10.10.1995, Blaðsíða 1
I
I
64 SÍÐUR B
230. TBL. 83. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Bosníustjórn kennir Rússum um frestun vopnahlés
Gasi ekki komið á
í Sarajevo í tíma
Sangevo. Reuter.
FYRIRHUGUÐU vopnahléi, sem
hefjast átti í Bosníu kl. 23 í gær-
kvöldi að ísl. tíma, var frestað í
gærkvöldi. Er ástæðan sú að skil-
yrði sem Bosníumenn settu fyrir
vopnahléinu, um að rafmagni og
gasi yrði komið á að nýju í borg-
inni, voru ekki uppfyllt.
Atlantshafsbandalagið, NATO,
hóf að nýju loftárásir á stöðvar
Serba í gær í hefndarskyni fyrir
tvær sprengjuárásir þeirra á
óbreytta borgara í norðurhluta Bos-
níu á sunnudag sem kostuðu fimmt-
án manns lífið. Harðir bardagar
geisuðu í Bosníu í gær og lét norsk-
ur friðargæsluliði lífið er Serbar
vörpuðu sprengju nærri stöðvum
Sameinuðu þjóðanna í Tuzla.
Það var yfirmaður starfs Samein-
uðu þjóðanna í Bosníu, Antonio
Pedauye, sem tilkynnti að vopna-
hléinu hefði verið frestað. Hvatti
NATO gerði
sprengjuárásir á
stöðvar Serba
hann stríðsaðila til að draga úr
bardögum.
Bosníu-Serbar rufu gas- og raf-
magnsleiðslur til Sarajevo í apríl
sl. Gas fá Bosníumenn frá Rússum.
Liggur gasleiðslan um Ungverja-
land og er teppt þar sökum deilu
Rússa, Bosníumanna og Serba, að
sögn Ungveija.
Ráðherra í Bosníustjórn, Hasan
Muratovic, kenndi hins vegar Rúss-
um um frestunina á vopnahléinu
þar sem þeir hefðu ekki staðið við
það að opna fyrir gasleiðslurnar í
tæka tíð, eins og samið hefði verið
um í síðustu viku.
Rússar kváðust í gærkvöldi hafa
skrúfað frá gasleiðslunum og að
gasið myndi berast til Sarajevo ein-
hvern tíma í nótt. Þá hefur raf-
magni verið komið á í borginni.
Sögðu bandarískir embættismenn
að stríðsaðilar hefðu fallist á að
eiga fund í Sarajevo í kvöld.
Loftárásir NATO
NATO tilkynnti í gær að gerðar
hefðu verið loftárásir á neðanjarð-
arbyrgi Bosníu-Serba nærri Tuzla
og það eyðilagt. Þá stóðu harðir
bardagar í gær í norðvesturhluta
Bosníu á milli bosníska stjórnar-
hersins og Serba. Var talið að
stjórnarherinn hefði náð bænum
Mrkonjic Grad af Bosníu-Serbum.
Hann liggur við mikilvæga flutn-
ingaleið skammt frá vígi Serba í
Banja Luka.
■ Bosníu-Serbar/18
Reuter
KONUR í Sarajevo sópa sporvagnateinana á „Leyniskyttutröð" sem svo hefur verið nefnd í borg-
inni. Verja franskir friðargæsluliðar íbúa borgarinnar fyrir leyniskyttum.
Köttur á faraldsfæti
KÖTTURINN Rastus hefur
ferðast yfir 250 þúsund kíló-
metra ásamt velunnara sínum,
Max Corkill, á Deluxe Sunbeam-
þjóli þess síðarnefnda. Stendur
Rastus jafnan á stýri hjólsins
og starir óhræddur fram á við,
prýddur hjálmi og hlífðargler-
augum er félagarnir ferðast um
sveitir Nýja-Sjálands. Corkill
tók Rastus að sér fyrir átta
árum en kötturinn hafði þá
flækst inn á samkomu mótor-
hjólamanna.
Einn fórst í lestarslysi í Arizona
Grunur leikur á
um hryðjuverk
Tí li A/\m v Rmilnt*
EINN farþegi beið bana og 100
slösuðust þegar farþegalest fór út
af sporinu í eyðimörk í Arizona í
gær. Alríkislögreglan FBI sagðist
í gær hafa sannanir fyrir því að
ekki hefði verið um óhapp að ræða
og að ýmislegt bendi til þess að
um hryðjuverk hafi verið að ræða.
Að sögn yfirvalda fannst raf-
magnssnúra sem vafíð hafði verið
um teinana þar sem lestin fór út
af, auk þess sem tveir bréfmiðar
fundust nærri slysstað. Að sögn
lögreglustjórans á staðnum stóð á
þeim að skemmdarverkið væri
„hefnd fyrir Waco og Ruby Ridge“
en í báðum tilfellum var um umsát-
ur FBI að ræða.
Líta margir hægrimenn á þau
sem dæmi um það hvernig hið opin-
bera kúgi almenna borgara og
svipti þá stjómarskrárbundnum
réttindum sínum, t.d. hvað varðar
byssueign. Bendir allt til þess að
lítt þekktur öfgahópur sem nefnir
sig „Syni Gestapó“ hafí staðið að
baki skemmdarverkinu.
Teinarnir vom losaðir á sex til
níu metra kafla og hafði raf-
magnssnúran verið notuð til að
gera viðvörunarkerfi óvirkt.
Tólf farþegavagnar voru í lest-
inni, sem var á leið frá Miami til
Los Angeles. Slysið varð kl. 1.30
að nóttu til að staðartíma og lentu
þrír vagnar, veitingavagn og tveir
svefnvagnar ofan í gljúfri. 248 far-
þegar voru í lestinni og slösuðust
100 manns, þar af 30 alvarlega.
Einn starfsmaður um borð fórst.
Yfirmaður herliðs Rússa í Tsjetsjníju enn í lífshættu eftir banatilræði í Grosní
Rússar fresta
fr iðaraðger ðum
Douglas-
Home
látinn
London. Reuter.
ALEC Douglas-Home, sem var
forsætisráðherra Bretlands
1963-1964, lést á sveitasetri
sínu í Skotlandi í gær, 92 ára
að aldri. Douglas-Home var af
gamalli aðalsætt en afsalaði sér
lávarðstitlinum til að geta tekið
við af Harold Macmillan forsæt-
isráðherra 1963.
Douglas-Home var utanríkis-
ráðherra 1960-1963. Hann tók
við stjómarforystunni í eitt ár
en íhaldsmenn töpuðu síðan
fyrir Verkamannaflokknum
1964. Douglas-Home varð á ný
utanríkisráðherra 1970-1974.
S AMNIN GAMENN Rússa í
Tsjetsjníju ákváðu í gær að fresta
aðgerðum sem hafa að markmiði
afvopnun og fækkun herliðs í
Kákasushéraðinu en yfirmaður
herliðs Rússa á staðnum, Anatolíj
Romanov, særðist lífshættulega í
sprengjutilræði í Grosní sl. föstu-
dag. Að sögn Mer/ax-fréttastof-
unnar rússnesku andmæltu fulltrú-
ar Tsjetsjena í nefnd, sem á að sjá
um framkvæmd friðaraðgerða,
þessari ákvörðun og töldu að öll
seinkun á aðgerðum gæti gert illt
verra.
Sandor Meszaros, sem fer fyrir
sendinefnd Öryggis- og samvinnu-
stofnunar Evrópu, ÖSE, í Grosní
harmaði tilræðið gegn Romanov.
„Þetta var hryðjuverk gegn manni
sem beitti sér ákaft fyrir friðsam-
legri lausn á deilunni, manni sem
vildi að friðarsamningur yrði undir-
ritaður,“ sagði Meszaros.
Báðir aðilar kenna ofstækis-
mönnum úr röðum hinna um tilræð-
ið. Romanov liggur milli heims og
helju á sjúkrahúsi í Moskvu þar sem
Borís Jeltsín forseti ræðir nú næstu
skref í málum Tsjetsjníju við ráð-
gjafa sína. Ráðherrar í ríkisstjórn-
inni hvöttu hann til þess á föstu-
dagskvöld að lýsa yfir neyðarlögum
í Tsjetsjníju en samningafulltrúar
Tsjetsjena benda á þá erfíðleika sem
slíkar aðgerðir myndu valda. Meðal
annars yrði þeim sjálfum gert erfitt
um vik að mæta á samningafundi.
Stríð með nýjum hætti
Movladi Udugov, aðalfulltrúi
Tsjetsjena, fullyrti í gær að sömu
aðilar og reyndu að myrða Rom-
anov hefðu ráðist á tvö þorp Tsjetsj-
ena um helgina og myrt a.m.k. 30
manns. „Þetta er í fullu samræmi
við áætlanir þeirra sem vilja spilla
fyrir samningum um málefni heij-
anna og stuðla þannig að því að
aftur hefjist umfangsmikið stríð,“
sagði hann í samtali við Interfax.
„Stríðinu í Tsjetsjníju er ekki lokið
... öðru nær, það er byijað aftur
með nýjum hætti.“
Talsmenn Rússa neituðu því að
rússneski herinn bæri ábyrgð á
umræddum árásum og auk þess
hefði Udugov ýkt tölu fallinna. í
öðru tilvikinu hefðu Tsjetsjenar átt
upptökin, þeir hefðu skotið á bíla-
Iest Rússa og fellt einn mann. Inter-
fax hafði eftir talsmanni rússneska
hersins að í hinu tilvikinu hefðu
flugvélar gert árás á þorp en þær
hefðu ekki verið rússneskar. Ekki
er ljóst. hvaða vélar hefðu annars
getað verið að verki á þessum slóð-
um.