Morgunblaðið - 10.10.1995, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 10.10.1995, Blaðsíða 56
0 MORGUNBLADID, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(SCENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1995 YERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Hugsanlega þarf að fjarlægja skála FÍ á Hveravöllum Ekkí gert ráð fyrir skál- anum á aðalskipulagi EKKI er gert ráð fyrir nýrri skála Ferðafélags íslands á Hveravöllum í aðalskipulagi fyrir Svínavatnshrepp í A-Húnavatnssýslu og segir Páll Sigurðsson, forseti Ferðafélagsins, að allar horfur séu á að sú starf- semi sem félagið hefur verið með á Hveravöllum lamist og reyndar sé alls óvíst að henni verði haldið uppi í einhveijum mæli til frambúðar. Elísabet og Sigursteinn. * Islenzkir dansarar efstir í London ELÍSABET Haraldsdóttir og Sigursteinn Stefánsson lentu í öðru sæti í gærkvöldi í dans- keppni í London í flokki 12-15 ára. I keppninni, sem nefnist „Night of 100 stars“, keppa sex pör sem eru að áliti dómnefndar bestu dansaramir í sínum aldurs- flokki. Þetta var þriðja keppnin sem Elísabet og Sigursteinn tóku þátt í á þremur dögum og sigr- uðu þau í tveimur og urðu í öðru sæti í þeirri þriðju. Elísabet og Sigursteinn sigr- uðu í fyrstu keppninni, London Open, á laugardag og íslensk pör lentu einnig í öðru og þriðja sæti. Brynjar Örn Þorleifsson og Sesselía Sigurðardóttir náðu öðru sæti og Benedikt Einarsson og Berglind Ingvarsdóttir þriðja sæti. Á sunnudaginn kepptu pörin aftur í keppni sem heitir Imper- ial og sigruðu Sigursteinn og Elísabet þar einnig. í fimmta sæti urðu Benedikt Einarsson og Berglind Ingvarsdóttir og í sjötta sæti urðu Brynjar Örn Þorleifs- son og Sesselía Sigurðardóttir. íslenzku keppendurnir halda áfram keppnisferðalaginu fram eftir vikunni. í landakeppni, sem fram fór á sunnudagskvöld, urðu íslenzku pörin í þriðja sæti, á eftir Bretum og Rússum, og Finnar voru í fjórða sæti. Ferðafélag íslands hefur um margra áratuga skeið rekið að- stöðu fyrir ferðmenn á Hveravöll- um. Félagið reisti þar skála fyrir um 60 árum og annan árið 1980. Að auki hefur félagið komið upp baðpotti við hliðina á eldri skálan- um, bifreiðastæði, salemishúsi og tjaldstæði. Skálaverðir á vegum Ferðafélagsins hafa sinnt þjónustu við ferðamenn yfir sumarmánuð- ina. Fyrir nærri þremur árum var gert aðalskipulag fyrir Svínavatns- hrepp. Páll segir að skipulagið geri ráð fyrir að nýi skálinn, bif- reiðastæðið og salernishúsið hverfi, en eftir því sem hann kom- ist næst megi gamli skálinn og baðpollurinn standa. Páll segir að skipulagið hafi verið gert og stað- fest án nokkurs samráðs við Ferða- félagið. Skipulagið hafi hins vegar verið auglýst í Lögbirtingablaðinu eins og lög gera ráð fyrir, en fé- lagsmenn Ferðafélagsins hafi ekki tekið eftir því fyrr en búið var að staðfesta skipulagið í umhverfis- ráðuneytinu. Hann segist líta á það sem hvert annað slys að þetta skyldi fara í gegn óbreytt því Ferðafélagið hefði að sjálfsögðu mótmælt því harðlega ef það hefði haft vitneskju um málið. Nú er unnið að gerð deiliskipu- lags fyrir Hveravallasvæðið á grundvelli aðalskipulagsins. Ferða- félagið hefur gert margvíslegar athugasemdir við drög að deili- skipulagi. Páll segir hins vegar að staða félagsins til að veijast tillög- um um að skáli félagsins verði fjar- lægður sé erfið. Búið sé að stað- festa aðalskipulag og því ljóst að sú starfsemi sem Ferðafélagið komi til með að vera með á Hvera- vollum sé alfarið komin undir vel- vilja eða duttlungum stjórnenda Svínavatnshrepps. Ósk um stöðuleyfi Ferðafélagið fór í sumar fram á við hreppsnefnd Svínavatnshrepps að hún veitti svokallað stöðuleyfi fyrir núverandi aðstöðu félagsins í allmörg ár. Sveitarstjómin vísaði erindinu til bygginganefndar hreppsins til umsagnar og þar er málið enn. Páll segir að ef erindi félagsins um stöðuleyfi verði hafn- að myndi félagið kæra málið til umhverfisráðuneytisins og jafn- framt verði hafðir uppi fyrirvarar um frekari kröfugerð af hálfu fé- lagsins síðar ef skipulagsaðgerðir komi til með að skerða hagsmuni þess. í nýju aðalskipulagi fyrir Svína- vatnshrepp er gert ráð fyrir að byggð verði þjónustumiðstöð við þann stað sem skáli Ferðafélagsins stendur á nú. I sumar voru settar upp stikur þar sem þjónustumið- stöðinni er ætlað að rísa. Gáfu nýja síld HAGKAUP og fiskbúðin Sæ- björg stóðu sameiginlega að kynningu á ferskri síld á bíla- plani Hagkaups í Skeifunni I gær. Þar gat almenningur nálg- ast uppskriftir á síld og fengið ferska, heila síld gefins. Birgir Guðmundsson hjá Sæbjörgu seg- ir að margir vilji fá síldina heila og flaka hana og leggja í krydd- lög sjálfir. Birgir segir að ný síld sé ekki oft á boðstólum og því hafi menn viljað bjóða fólki að komast yfir slíkt hráefni í tilefni þess að síldveiðar eru hafnar af fullum krafti. Hagstofa íslands birtir vísitölu neysluverðs fyrir októbermánuð Verðbólguhraðinn 5% síðustu þijá mánuðina VERÐBÓLGUHRAÐI á íslandi síð- ustu þijá mánuðina á mælikvarða vísitölu neysluverðs hefur verið 5% og hefur ekki mælst jafnmikill síð- ustu tvö árin. Þórarinn V. Þórarins- son, framkvæmdastjóri Vinnuveit- endasambands íslands, segir að þetta sé þörf áminning til stjóm- valda og Benedikt Davíðsson, for- seti Alþýðusambands íslands, segir að hækkunin síðustu þijá mánuði sé hættumerki. Vísitala neysluverðs, sem Hag- stofan reiknar út og birt var í gær, hækkaði um 0,5% milli mánaðanna september og október og það er fy'órði mánuðurinn í röð sem mánað- arleg hækkun visitölunnar er vem- lega meiri en þijú misserin þar á undan. Þessi hækkun vísitölunnar jafngildir 5,7% verðbólgu á heilu ári, en síðustu sex mánuði hefur visitalan hækkað um 3,6% umreikn- að til árshækkunar og hækkunin síðustu tólf mánuðina er 2,4%. Margt sem þrýstir á samtímis Benedikt Daviðsson, forseti ASI, segir að hækkun vísitölunnar síðustu Vísitala neysluverðs 1993-95 Breyting síðustu þrjá mánuði reiknuð til árshækkunar 8 '" Okt.’95 5,0% 19 9 3 P 9 9 4 19 9 5 J A J 0 A J 0 J A J 0 þijá mánuði sé úr takt við það sem reiknað hafí verið með. Þama séu viss hættumerki á ferðinni, eins og hann hafí áður bent á. Að hluta til kunni þó að vera tímabundnir þættir sem valdi þessari hækkun, en þetta séu engu að síður vísbendingar til manna um að vera á varðbergi. Aðspurður hvort kjarasamningar kunni að vera i hættu vegna þessara verðlagshækkana sagðist Benedikt ekki vilja draga neina ályktun af þessari mælingu í þvi sambandi „en það er hins vegar mjög margt sem þrýstir nú á samtimis,*1 sagði Bene- dikt. Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, sagði að fram- kvæmdastjóm VSÍ hefði séð ástæðu til að álykta um verðlagsmál fyrir tæpum tveimur mánuðum síðan, þar sem lýst hafi verið sérstökum áhyggjum vegna verðlagsþróunar og brýnt hafí verið fyrir stjómvöldum að grípa til ráðstafana einkum að því er varðaði matvælaverð, enda væri það á verksviði stjórnvalda að skapa skilyrði fyrir verðmyndun meðal annars á matvælamarkaði. Þórarinn sagði að í kjarasamning- unum væri miðað við það að verð- bólga hér á samningstímabilinu í heild yrði áþekk því sem gerðist í viðskiptalöndunum. í því fælist að verðbólga á þessu tveggja ára samn- ingstimabili mætti ekki fara umfram 7-8%. Það yrði þvi jafnt að horfa fram og aftur í timann þegar þetta væri metið og spár VSÍ um 2-2,5% verðbólgu á árinu virtust ætla að ganga eftir, þannig að þróunin á árinu í heild væri út af fyrir sig ekki áhyggjuefni. Erfitt að skýra verðlag á sveppum með sólarleysi Þórarinn sagði að þetta sýndi hins vegar að ábendingar VSÍ gagnvart stjórnvöldum um að nauðsynlegt væri að grípa til aðgerða til að auka samkeppni á matvælamarkaði hefðu verið mjög tímabærar fyrir sex vik- um þegar þær voru settar fram. „Við horfum á það að í þessari verð- mælingu eru enn að koma fram hækkun vegna hækkunar á græn- metisverði. Eg hef heyrt forsætis- ráðherra skýra verðlag á grænmeti með slæmu tíðarfari. Það má eiga við um einhveija hluti, en það er erfitt að skýra verðlag á sveppum með sólarleysi í sumar,“ sagði Þór- arinn. ■ Um 5% verðbólga/16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.