Morgunblaðið - 10.10.1995, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 10.10.1995, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1995 JtttfrgisttMiifrií STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRí RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. BYRí SEGL IÐNAÐARINS KÓNGUR vill sigla en byr ræður, segir fornt orðtak. Næstliðin ár hefur stöðugleikinn í íslenzku efna- hagslífi gefið farsældarbyr í segl iðnaðariris. Langleið- ina í 25 þúsund manns, eða um nítján af hverju hundr- aði vinnandi manna, starfa við iðnað. Árlegur útflutning- ur iðnaðarvöru nemur yfir tuttugu milljörðum króna. Iðnaðurinn veltir meir en hundrað milljörðum króna á ári. Verði stöðugleikinn varðveittur standa líkur til þess að iðnaðurinn styrki enn stöðu sína. Það er vel. Auðlind- ir sjávar virðast fullnýttar og landbúnaður framleiðir langt umfram eftirspurn. Þjóðin verður því að stærstum hluta að sækja bætt lífskjör og fjölgun starfa til ann- arra greina, eins og ferðaþjónustu og iðnaðar; orkuf- reks iðnaðar og ekki síður almenns iðnaðar. Reynslan báðum megin Atlantsála sýnir að baráttan gegn atvinnu- leysi hefur skilað hvað beztum árangri á vettvangi meðalstórra og lítilla fyrirt'ækja. Vaxtarbroddar íslenzks iðnaðar, sem tíundaðir voru á degi iðnaðarins, segja víða til sín: í byggingar- og innréttingariðnaði, tölvubúnaði, veiðarfæragerð, máln- ingariðnaði, prentiðnaði, plastgerð, matvælaframleiðslu o.s.frv. Haldist stöðugleikinn, sem gefur farsældarbyr- inn í segl atvinnulífsins, og lækki raunvextir, sem líkur standa til, vex hlutur iðnaðarins áfram - í atvinnu- og lífskjörum þjóðarinnar. Það er hlutverk stjórnvalda að búa atvinnulífinu viðunandi rekstrar- og samkeppnisgrundvöll. Uppsvei- flan í iðnaði síðustu misseri sýnir að það hefur tekizt að hluta til. Þessum árangri má ekki glutra niður. Hon- um þarf að fylgja eftir, m.a. með því að draga enn frek- ar úr ríkissjóðshallanum og opinberri lánsfjáreftirspurn. Við getum og, hvert og eitt og sameiginlega, aukið byrinn í segl iðnaðarins og atvinnulífsins með því að beina viðskiptum okkar að íslenzkri framleiðslu. Með því að kaupa íslenzkt stuðlum við að meira atvinnuör- yggi og hraðari uppbyggingu í samfélagi okkar. STAMANDIBÖRN DEILUR INNAN stjórnkerfisins valda því, að börn sem stama fá ekki nauðsynlega aðstoð til að vinna bug á þessu talmeini. Biðlistar verða æ lengri á meðan stjórnkerfið deilir um, hver skuli borga brúsann, ríkið eða sveitarfélögin. Tryggingastofnun ríkisins vísar mál- inu frá sér, þar sem stam eigi sér ekki líffræðilegar orsak- ir. Þessi málsmeðferð er öllum hlutaðeigandi til vansa. Engin haldbær skýring hefur fengizt á stami, sem um 4% barna og 1% fullorðinna þjást af. Miklar rannsóknir hafa farið fram á orsökunum án þess að ótvíræð niður- staða hafi fengizt. Hins vegar hafa sífellt betri leiðir fundizt til að ráða bót á vandanum. „Gríðarlega mikil- vægt er að grípa fljótt inn í, þegar barn byrjar að stama,“ segir Benedikt Benediktsson, formaður Málbjargar, fé- lags um stam. Um þetta eru allir talmeinafræðingar sammála. Stamandi barn þjáist af hræðslu, skömm og verður fyrir einelti í skóla. Afleiðingin er félagsleg ein- angrun. Verði ekki gripið til fyrirbyggjandi aðgerða, strax á leikskólaaldri, skapast vítahringur og afleiðingin getur orðið óbætanleg fötlun, sem hefur áhrif á allt líf þess sem stamar. Menntamálaráðuneytið tók að sér að leysa úr brýn- ustu þörf stamandi barna með um 2 milljóna kr. fjárveit- ingu á ári. Stuðningnum var hætt 1. júlí sl. vegna niður- skurðar í ráðuneytinu. Ríkisvaldið vísar á sveitarfélögin, sem telja að ríkinu beri að greiða kostnaðinn. Þetta ástand er gjörsamlega óviðunandi og ekki boð- legt. Höggva verður á hnútinn og ákvarða, hvar málefni stamandi barna eigi að vera í stjórnkerfinu. Ekki er um þær fjárhæðir að tefla, að neinum úrslitum ráði í opinber- um íjármálum. Að sjálfsögðu er brýn nauðsyn á niður- skurði útgjalda, en þegar haft er í huga, hversu miklu ráðamenn þjóðarinnar verja t.d. í risnu og ferðakostnað, þá ætti þeim ekki að verða skotaskuld úr því að finna þær fáeinu milljónir sem til þarf. MORGUNBLAÐIÐ HINN 19. júní 1991 flutti frú Vigdís Finnbogadóttir ávarp á Bessastöðum þar sem hún skýrði frá. þeirri ákvörðun að gefa áfram kost á sér til embættis forseta íslands kjörtímabil það sem hófst 1. ágúst 1992. „Fari svo að ég gegni þessu starfi í fjögur ár enn, þá verða þau ekki fleiri. Það skal ég segja. Þá held ég að ég sé búin að vinna það sem ég vildi vinna og get unnið. Þá er ég komin á réttan aldur til að draga mig í hlé, eins og aðrir þegnar þjóðfélagsins," sagði hún á blaðamannafundi, en frásögn af hon- um birtist í Morgunblaðinu 20. júní, aðspurð hvort hún hygðist géfa kost á sér aftur að því kjörtímabili loknu. Því má ljóst vera að ákvörðun henn- ar nú er ekki ný af nálinni og þarf ekki að koma á óvart, þótt svo að hún hafí allt undanfarið ár fengið fjölmarg- ar áskoranir þess efnis að endurskoða þá ákvörðun og gefa kost á sér til alda- móta. Nýtur mikils stuðnings í forsetakosningunum árið 1980 var kjörsókn 90,5% og hlaut Vigdís 33,6% greiddra og gildra atkvæða, þ.e. 43.616 Islendingar völdu hana til embættis. í forsetakosningunum 1988 var þetta hlutfall 92,7% greiddra atkvæða, sem þýðir að 117.292 atkvæðisbærra ís- íendinga lýstu yfir trausti sínu á for- ystu hennar. í nýlegri skoðanakönnun Gallups kom fram að liðlega 72% lands- manna vildu að Vigdís gegndi starfínu áfram, þannig að enginn þarf að velkj- ast í vafa um hug þorra landsmanna í garð áframhaldandi setu hennar. Þessi sterki stuðningur kann að hafa vakið spumingar í huga forseta um réttmæti ákvörðunarinnar. I því sambandi má hafa hug- fast að forseta hafði borist flöldi áskorana, undirskrifta- listar og óskir um að hún héldi áfram, og virtust ein- dregnir stuðningsmenn hennar almennt telja að hún gæti endurskoðað ákvörð- un sína eins og ekki er óalgengt að menn geri við svipaðar aðstæður. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins kom það hins vegar aldrei til greina af hálfu Vigdísar. Forseti hafi talið mat sitt árið 1991 afar raunsætt og ekki haft hug á að sitja fimm kjörtímabil. „Stuðningurinn hefur glatt Vigdísi en engu breytt um ákvörðunina eins og fram hefur komið. Ég hefði viljað að hún sæti lengur en get sætt mig við ákvörðunina, þvi að starfið er miklu víðtækara en flestir gera sér grein fyr- ir og það er mikið álag að vera stöðugt í sviðsljósinu í rúman hálfan annan áratug. Forseti er í embætti sínu nótt sem nýtan dag og getur raunverulega aldrei um fijálst höfuð strokið, þó svo að Vigdísi hafí liðið vel í embætti og verið farsæl í því starfi," segir trún- aðarvinur. Forseti leit því samkvæmt heimildum Morgunblaðsins alltaf á árið 1996 sem fasta viðmiðun, enda væri þá fjórða kjörtímabili lokið, sem væri nægjanlega langur tími fyrir þjóð að hafa sama forseta og einnig fyrir þann sem gegn- ir embættinu. Hún hafi viljað rækta hefðina og bijóta ekki það blað að vera lengur en forverar hennar í emb- ætti. Aldrei var því spuming um hvort niðurstaðan þar að lútandi yrði birt, heldur hvenær. „Forseti ræddi ákvörð- un sína við allmarga en hefur samt undrast það sjálf, að því ég tel, hvað hún hefur getað treyst mikilli þag- mælsku vegna þessa, því að enginn sagði neitt þótt margir hafí krafíð þessa einstaklinga um svar, bæði þeir sem vildu þrýsta á hana um að sitja áfram og þeir sem voru forvitnir um hvort forsetaskipti yrðu á næsta ári,“ sagði aðili sem stendur forseta nærri. Vildi ljúka skyldum áður Auðséð er að þegar forseti ræðir það við sína trúnaðarmenn að nú fari að líða að tilkynningu, er umræða þess efnis vart eða ekki hafin í þjóðfélag- inu. „Vigdís ræddi ákvörðunina við þá sem henni standa næstir í vor og sum- ar. í kjölfarið veltu menn vöngum um hvenær væri við hæfí að tilkynna þessa ákvörðun, sem tengdist m.a. því að ástæða væri til að bíða þess að hún lyki helstu embættisskyld- um sínum á erlendri grund, meðal annars heimsókninni til Kína. Umræðurnar í kjölfar hennar leiddu til þess mats hjá mörgum, að einhver tími yrði að Iíða í milli, þannig að ekki liti út eins og hún væri að tilkynna um þetta vegna þess misskilnings sem upp kom í sam- bandi við heimsóknina," segir hollvinur forseta. Aldrei hafi hins vegar hvarflað að forseta að setning Alþingis gæti þótt of óþægilega nærri umræðunni um Kínafórina. Vettvangurinn og tíminn væri hentugur, meðal annars til að lýðræðiskjörnir þingmenn þjóðar- innar væru ekki að fregna ákvörðunina í fjölmiðlum eða á skotspónum. Vigdís hefur, að forverum sínum í embætti ólöstuðum, átt með vali sínu að á áherslum einn stærstan þáttinn í að móta forsetaembættið í þeirri mynd sem þjóðin þekkir. Hún hefur verið gíæsilegur fulltrúi íslenskrar menning- ar á erlendri grundu, og gert gríðar- legt gagn þar í íslands þágu, kannski meira en landsmenn gera sér almennt grein fyrir. í fáum orðum sagt, ást- sæll forseti. „Hún er nær þjóðinni en fyrri forsetar, þótt ég leggi engan dóm á störf þeirra og hefur komið íslandi á landakortið erlendis og einnig orðið mjkið ágengt hér heima,“ segir aðili nákominn forseta og bendir m.a. á þátttöku Vigdísar í umræðum um hvort enska eða danska eigi að vera fyrsta tungumál í kennslu í grannskólum i því samhengi. „Vigdís hefur átt þátt í að móta þankagang almennings um margt, ekki síst unga fólksins." „An þess að hallað sé á forvera henn- ar I embætti, hefur hún breytt því og sett á það eigin stíl og ég held að flest- ir geti verið sammála um að hún hafí sómt sér vel í embættinu og staðið sig á allan hátt eins og best verður á kos- ið,“ segir maður lítillega tengdur emb- ættinu, beðinn um að lýsa ferli Vigdís- ar í einni setningu. Illa grunduð gagnrýni Verk forseta hafa til þessa ekki veitt tilefni til ákúra eða eiturörva af því tagi sem tíðkast í heimi stjórnmála og dægurmálaumræðu. Ummæli hennar í nýliðinni Kínaför vöktu hins vegar hörð viðbrögð og neyddu hana til svars, sem birtist á síðum Morgunblaðsins. Sumir viðmælendur mínir telja að upphafs- menn þeirrar gagnrýni hafi viljað finna höggstað á embættinu og orðið nokkuð ágengt, þar sem hvorki þeir né viðtak- Vill beita kröftunum víðar en nú
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.