Morgunblaðið - 10.10.1995, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.10.1995, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Alþýðusamband Norðurlands segir forsendur kjarasamninga brotsnar Samningum verði sagt upp svo þeir verði lausir um áramót FORSENDUR kjarasamninga eru brostnar að mati þings Alþýðusambands Norðurlands, en það skorar á launanefnd landssambanda ASÍ að segja upp öllum kjarasamningum aðilarfé- laganna fyrir 1. desember næstkomandi þann- ig að samningar verði lausir 31. desember 1995. Sterk undiralda „Það er virkilega sterk undiralda í hreyfing- unni um þessar mundir, fólk er mjög óánægt,“ sagði Valdimar Guðmarsson, sem kjörinn var formaður Alþýðusambands Norðurlands á þinginu, sem spáði því að til átaka myndi koma í vetur, breyttu sjórnvöld ekki afstöðu sinni til mikilla muna, „en það bólar bara ekkert á neinum slíkum vilja,“ sagði Valdimar. ' Oánægjan sem braust fram við launa- hækkanir æðstu embættismanna ríkisins var dropinn sem fyllti mælinn, að sögn Valdimars, en frá þeim tíma hafi fjárlagafrumvarp verið lagt fram sem ekki hafi aukið ánægju manna. „Menn eru ekki sáttir við margt sem þar kem- ur fram, þannig að óánægjan hefur ekki minnk- að,“ sagði hann. í ályktun þingsins kemur fram að í kjara- samningunum sem undirritaðir voru í febrúar hafi verkalýðssamtökin náð því fram að lægstu laun hækkuðu lítillega umfram hærri kaup- taxta. „Það var trú samtakanna að aðrir samn- ingar sem fylgdu í kjölfarið yrðu gerðir til launajöfnunar í landinu. Sú hefur ekki orðið raunin. Meginmarkmið samninganna hefur runnið út í sandinn. Nær allir samningar sem gerðir hafa verið eftir 21. febrúar hafa verið um meiri hækkanir til þeirra sem meira höfðu fyrir,“ segir í ályktun um kjaramál. Forsendur samninganna séu því brostnar og leggur þing- Morgunblaðið/Kristján FULLTRÚAR á þingi Alþýðusambands Norðurlands telja forsendur kjarasamninga frá í febrúar brostnar og skora á launanefnd landssambanda ASI að segja þeim upp þannig að þeir verði lausir um áramót. ið til að þeim verði sagt ,upp þannig að þeir verði lausir um næstu áramót. „Grundvallarkrafa við nýja samningagerð um næstu áramót á að vera sú að krefjast eingöngu verulegrar hækkunar lægstu launa, ásamt fullri tryggingu fyrir því að sá kaupmátt- ur sem um er samið, haldi,“ segir einnig í álykt- un Alþýðusambands Norðurlands. Óróleiki á vinnumarkaði Valdimar sagði að vissulega liti út fyrir óró- leika á vinnumarkaði í vetur, en hann tryði ekki fyrr en á reyndi að stjórnvöld kæmu ekki til móts við verkalýðshreyfinguna í þessu máli, svo hún yrði ekki neydd út í harðar aðgerðir eftir áramót. Verkalýðsfélög hvött til að auka samstarf Morgunblaðið/Kristján FORMANNSSKIPTI urðu á þingi Alþýðusambands Norðurlands um helgina, þegar Valdimar Guðmarsson formaður Verkalýðsfé- lags Austur-Húnavatnssýslu til hægri tók við af Guðmundi Omari Guðmundssyni formanni Félags byggingamanna í Eyjafirði. Tónlistarfélag Akureyrar Nýtt starfs- ár að hefjast NÝTT starfsár Tónlistarfélags Akureyrar hefst með aðalfundi þess á morgun, miðvikudaginn 11. október á sal Tónlistarskólans á Akureyri kl. 20.30. Fyrirhugað er að efna til fimm tónleika á starfsárinu og verða þeir fyrstu 29. október í Safnaðar- heimili Akureyrarkirkju þar sem félagarnir Kuran Swing, Szymon Kuran, Björn Thoroddssen, Olafur Þórðarson og Bjami Sveinbjöms- son flytja gömul og ný lög. í jan- úar verða ljóðatónleikar þar sem Michael Jón Clarke baritónsöngv- ari og Richard Simm koma fram og í mars leika þær Helga Brynd- ís Magnúsdóttir og Guðrún Þórar- insdóttir á tónleikum. Rut Ingólfs- dóttir flytur einleiksverk á fjórðu tónleikunum en á þeim síðustu munu þeir Jón Þorsteinsson og Gerrit Schuil flytja ljóðasöngva. Tónlistarfélag Akureyrar er opið öllu áhugafólki, en þeim sem áhuga hafa á að ganga í félagið' er bent á Mögnu Guðmundsdóttur í Heiðarlundi 6f. ENGAR ákvarðanir voru teknar um sameiningu verkalýðsfélaga á Norðurlandi á þingi Alþýðusam- bands Norðurlands, AN sem haldið var á Illugastöðum í Fnjóskadal og lauk um helgina, en félögin hvött til að taka upp viðræður um málið. Fyrir þinginu lá tillaga skipulags- nefndar AN um að fækka verka- lýðsfélögum úr 27 í 5 og yrðu þau starfandi eftir svæðum, eitt í Þin- geyjarsýslum, eitt í Eyjafirði, eitt í Skagafirði, eitt í Húnavatnssýslum og eitt á Siglufirði. Fulltrúar á þingi AN voru ekki á eitt sáttir um þessa tillögu, en andstaða kom einkum fram frá sjó- mönnum og verslunarmönnum. Samþykkt var á þinginu að hvetja aðilarfélög sambandsins til að skoða betur tillögur skipulagsnefndar sem um þessi mál. Sem skref að því markmiði hvatti þingið aðildarfé- lögin til að hefjast nú þegar handa um skipulagsbreytingar með því að taka upp viðræður um aukið sam- starf og eða sameinginu. * „Það kom mér ekki á óvart að tillögumar voru ekki samþykktar," sagði Valdimar Guðmarsson ný- kjörinn formaður Alþýðusambands Norðurlands. „Það er flestir sam- mála um að félögin eru óþarflega mörg á svæðinu, en ég á von á að þetta muni gerast hægt og rólega. Það gerist ekki með valdboði að ofan, félögin verða að finna hjá sér þörf sjálf." Forstöðumaður atvinnuskrifstofu Tólf nm- sóknir um stöðuna ALLS bárust tólf umsóknir um starf forstöðumanns at- vinnuskrifstofu Akureyrar- bæjar en nöfn umsækjenda fengust ekki uppgefin. Forstöðumaður starfar í umboði atvinnumálanefndar og verða umsóknirnar teknar fyrir á fundi hennar í dag, þriðjudag. Guðmundur Stef- ánsson, formaður atvinnu- málanefndar, segir að stefnt sé að því að ráða í stöðuna sem fyrst. Ráðningartími er til 15. júní 1998 og eins og segir í auglýsingu um stöð- una, er möguleiki á fram- haldsráðningu. , Hallgrímur Guðmundsson, lét af starfi forstöðumanns um síðustu mánaðamót og frá þeim tíma var Berglind Hall- grímsdóttir, ráðin í stöðuna til bráðabirgða, eða næstu 2-3 mánuði. Ekki húsa- leigubætur Ákvörðunin hörmuð LEIGJENDASAMTÖKIN harma þá ákvörðun bæjar- ráðs Akureyrar að greiða ekki húsaleigubætur á næsta ári, þar sem um mikið rétt- lætismál sé að ræða. Samtökin er sammála bæj- arráð um að aðferð ríkis- valdsins við framkvæmdina sé röng, en stefna þeirra sé að komið verði á einu hús- næðisbótakerfi og nota megi núverandi reglur um greiðslu vaxtabóta og líta á greidda leigu sem afborgun af láni. Vara 'samtökin við hugmynd- um um að færa húsaleigu- bætumar alfarið til sveitarfé- laganna og skora á bæjar- stjórn Akureyrar að beita sér í málinu svo bæturnar megi koma fólkinu að gagni hvar sem það býr. Sýning Páls framlengd MÁLVERKASÝNING Páls Sólness í Ketilhúsinu, Gróf- argili, verður framlengd til 15. október næstkomandi. Páll stundaði listnám við Skolen for Brugskunst í Kaupmannahöfn 1978-1982 og var búsettur þar um ára- bil, hélt einkasýningar og tók þátt í samsýningum. Hann sýndi á Akureyri 1984 og á ísafirði 1990. Á sýningunni í Ketilhúsinu em 11 olíumálverk, flest máluð á Akureyri á þessu ári. Sýningin er opin daglega frá kl. 14.00 til 18.00. Fyrirlestur á mömmumorgni SIGRÚN Sveinbjörnsdóttir, sálfræðingur flytur fyrirlest- ur á opnu húsi fyrir foreldra með ung börn á morgun, miðvikudaginn 11. október en það stendur frá kl. 10.00 til 12.00.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.