Morgunblaðið - 10.10.1995, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MINNING
t
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma
og langamma,
JÓNA V. GUÐJÓNSDÓTTIR,
áður á Grettisgötu 48B,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu 6. október.
Ólafur G. Karlsson, Guðrún Anna Árnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir mín,
t
RENATHE KETILS
hárgreiðslumeistari,
lést í Danmörku 5. október.
Útförin fer fram 12. október.
Edda Petersen,
Kværslokke 5,
Kværs,
DK-6300 Grásten,
Danmörku.
t
Ástkær faðir okkar, fósturfaðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
SIGURÐUR EIÐSSON
bóndi,
Hreiðarstaðakoti,
Svarfaðardal,
andaðist á heimili sínu aðfaranótt föstu-
dagsins 6. október.
Jarðarförin auglýst síðar.
Synir, fósturbörn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir
okkar og tengdafaðir,
BENEDIKT GUNNARSSON
fyrrv. framkvæmdastjóri,
Vallarási 5,
sem lést 30. september, verður jarð-
sunginn frá Árbæjarkirkju í dag, þriðju-
daginn 10. október, kl. 13.30.
Hólmfríður Valdemarsdóttir,
Einar Benediktsson, Ásgerður Jónasdóttir,
Sveinn Benediktsson, Arnhildur Árnadóttir
og fjölskyldur.
t
Bróðir okkar,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
Laugateigi 19,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Áskirkju föstu-
daginn 13. október kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
systkini hins látna.
t
Ástkær sonur minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÁRNI JAKOBSSON
rafvirkjameistari,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju
fimmtudaginn 12. október kl. 13.30.
Þóra Guðmundsdóttir,
Þóra Bryndis Árnadóttir, Jónas Þ. Guðmundsson,
Sverrir Árnason,
Birgir Rafn Árnason, Sigurdis Jónsdóttir,
Haukur Árnason, Sigrún Sigurðardóttir,
Hafdís Erla Árnadóttir, Mikael J. Jónsson
og barnabörn.
BENEDIKT
GUNNARSSON
+ Benedikt Gunn-
arsson, fv. fram-
kvæmdasfjóri,
fæddist á Saurbæ í
Grundarþingum 26.
júní 1921. Hann lést
á Ólafsfirði 30. sept-
ember síðastliðinn.
Foreldrar Bene-
dikts voru Gunnar
Benediktsson,
prestur, rithöfund-
ur og kennari, f.
9.10. 1892 á Við-
borði á Mýrum, d.
26.8. 1981 í Reykja-
vík, og Sigríður
Gróa Þorsteinsdóttir, f. 31.8.
1891 í Reykjavík, d. 7.9. 1982 á
Akureyri. Gunnar og Sigriður
skildu 1931. Seinni kona Gunn-
ars var Valdís Halldórsdóttir,
kennari. Seinni maður Sigríðar
var Tryggvi Helgason. Albræð-
ur Benedikts voru Þorsteinn
Gunnarsson (látinn) og Styrmir
Gunnarsson. Systkini Bene-
dikts, samfeðra, Heiðdís Gunn-
arsdóttir, Halldór Gunnarsson.
Eftirlifandi sambýliskona
hans er Hólmfríður
Valdemarsdóttir,
húsmóðir, f. 11.9.
1925 á Húsavík í
S-Þing. Fyrri kona
Benedikts var Ólaf-
ía Guðjónsdóttir, f.
21.8. 1918, hár-
greiðslumeistari.
Þau skildu. Þeirra
sonur er Sveinn
Marteinn, f. 29.11.
1953, Sonur Bene-
dikts fyrir hjóna-
band er Einar Bene-
diktsson, f. 28.6.
1945, móðir hans er
Hulda Einarsdóttir, Eyrarlandi,
Eyjafjarðarsveit. Fyrsta kona
Einars var Júlía Sigurjónsdóttir
9g eiga þau tvo syni. Þau skildu.
Ónnur kona Einars var Oddný
Snorradóttir og eiga þau þijú
börn. Þau skildu. Sambýliskona
Einars er Asgerður Jónasdóttir.
Fyrri kona Sveins var Dúfa
Skarphéðinsdóttir og eiga þau
tvo syni. Þau skildu. Sambýlis-
kona Sveins er Arnhildur Arna-
dóttir og eiga þau eina dóttur.
BENEDIKT er dáinn. Þessa frétt
fengum við á sunnudaginn 1. okt.
sl. og okkur setti hljóð. Benedikt
hafði búið í sambýli við móður okk-
ar frá árinu 1989 og það var okk-
ur, bömum Hólmfríðar Valdemars-
dóttur, mikil gleði að vita til þess
að þeim leið báðum vel saman. Allt-
af var gott að sækja mömmu og
Benedikt heim og var alltaf mikil
kátína og líflegar umræður um fólk
og málefni. Benedikt var búinn að
Crfisdrukkjur
IraiGAPi-inn
Slmi 555-4477
ERFIDRYKKJUR
P E R L A N sími 562 0200
vera að vinna að miklu áhugamáli
sínu, ættfræðinni, og var með rit
um foreldra sína í smíðum er hann
lést. Mikla ánægju hafði hann af
þessu áhugamáli sínu og var alltaf
tilbúinn að grípa til bóka sinna og
fletta upp upplýsingum er hann
hafði hugboð um einhver tengsl við
viðmælendur sína.
Benedikt var mikill útivistarmað-
ur og hafði gaman af því að ferð-
ast, ekki síst um eigið land. Móðir
okkar fór víða með honum, bæði
innanlands og til útlanda og má
segja að hún hafi ekki ferðast eins
mikið um ísland og umheiminn og
eftir að hún hóf sambúð með Bene-
dikt. Nú í byijun september sl. var
móðir okkar, Hólmfríður, 70 ára
og var henni haldið hóf af því til-
efni. Benedikt var þar manna kát-
astur og sáum við þar glöggt hversu
náin og mikilvæg þau voru orðin
hvort öðru. Engan grunaði þá að
stutt væri í hinstu för Benedikts
og er okkur og öllum sem hann
þekktu mikill missir að honum. En
um leið munum við einnig hinar
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
dóttir, systir, tengdamóðir og amma,
RÓSA KRISTÍN JÓNSDÓTTIR,
lést á heimili sínu þann 6. október sl.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 13. október kl. 13.30.
Sigurður Indriðason,
Steinunn Sigurðardóttir, Árni Bjarnason,
Jón G. Sigurðsson, Sigrún Sigurgeirsdóttir,
Sigurður U. Sigurðsson, Þórdís Jónsdóttir,
Sigríður Kristinsdóttir,
Sigurjóna Jónsdóttir,
Sóley Guðmundsdóttir, Kristinn Einarsson
og barnabörn.
góðu stundir og ánægjulegu sem
við höfum átt í návist hans.
Starfsferill Benedikts var um
margt athygliverður og fjölbreytt-
ur. Hann starfaði við rekstrarráð-
gjöf og framkvæmdastjórn hjá ýms-
um fyrirtækjum og stofnaði nokkur
fyrirtæki sem hann starfaði við.
Má þar nefna ráðgjafafyrirtækið
Hannarr sf., Tölvar hf. og verk-
fræðistofuna Virkir hf. Hann var
framkvæmdastjóri framkvæmda-
nefndar um „hægri umferð“ vegna
breytingarinnar í umferðinni 1968.
Hann starfaði hjá Orkumálastofnun
1946-1962 og síðan hjá norska fyr-
irtækinu Industrikonsulent a.s.
1962-66 og rak útibú þeirra hér á
landi. Framkvæmdastjóri Þörunga-
verksmiðjunnar hf á Reykhólum var
hann 1988-9 og fluttist þá til
Reykjavíkur að nýju og starfaði
fyrir Byggung svbf og vann einnig
ötullega að málefnum aldraðra.
Benedikt hafði lúmskt gaman af
því að stinga niður penna og taka
fyrir eitt og annað og birtust oft
eftir hann skemmtilegar og kjarn-
yrtar kjallaragreinar á síðum DV
(sem oft urðu tilefni líflegra um-
ræðna í heimsóknum okkar til hans
og mömmu).
Þó að samvera Benedikts og
móður okkar yrði ekki löng, sköpuð-
ust góð tengsl við hann og ijöl-
skyldu hans. Þeirra missir, þeirra
sorg, er okkar missir og okkar sorg.
Nú þegar Benedikt er horfinn á
braut, lifum við í trúnni á að hann
sé kominn til betri heims og hvíli í
návist Guðs.
Sonum Benedikts, Einari og
Sveini, og fjölskyldum þeirra, systk-
inum Benedikts og nánustu ættingj-
um öllum sendum við innilegar sam-
úðarkveðjur. Guð blessi ykkur og
veiti ykkur styrk.
Elsku mamma, Guð blessi þig
og veiti þér styrk. Minning Bene-
dikts lifir björt í hjörtum okkar
allra.
Börn Hólmfríðar
Valdemarsdóttur og
fjölskyldur þeirra.
Elsku Benedikt.
Ég þakka þér fyrir allar þær
samverustundir sem við áttum á
meðan þú varst á meðal okkar, og
þá hamingju og gleði sem þú færð-
ir ömmu minni og okkur öllum.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem.)
Elsku amma, Sveinn, Einar og
aðrir aðstandendur, Guð styrki okk-
ur á þessum sorgartímum.
Benedikt Gunnarsson, þín minn-
ing lifir að eilífu.
Ástarkveðjur,
Oddrún Ýr.
Erftáfjkkjm'
Safnaðarheinúli
Háteigskirkju h
Sími! Ájf 331 1399 1 % Sf |
I" !■■- ' ... ' ■ ........ ' 1
LCGSTGINAR
Granít s/f
HELLUHRAUN14
220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI: 565 2707 FAX: 565 2629