Morgunblaðið - 10.10.1995, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1995 43
STJÓRN Félags íslenskra háskólakvenna.
Félag íslenskra háskólakvenna
Astir í Is-
lendingasögum
VETRARSTARFSEMI Félags ís-
lenskra háskólakvenna er hafin og
verður bryddað upp á ýmsum nýj-
ungum og farið inn á nýjar brautir.
Félag íslenskra háskólakvenna
og Kvenstúdentafélag íslands held-
ur fyrsta félagsfund vetrarins mið-
vikudaginn 11. október í Þingholti,
Hótel Holti, þar sem Jón Böðvars-
son, íslenskufræðingur og ritstjóri,
mun flalla um Ástir í íslendingasög-
um. Hefst fundurinn kl. 18 með því
að félagskonur borða saman fiski-
súpu með nýbökuðu brauði. Að er-
indinu loknu mun Jón kynna fyrsta
námskeið vetrarins þar sem fjallað
verður um stöðu konunnar í þjóðfé-
laginu fyrr á öldum. Námskeiðið
verður undir stjórn Jóns Böðvars-
sonar og Kolbrúnar Bergþórsdótt-
ur, bókmenntafræðings, stendur
yfir fjögur mánudagskvöld og byij-
ar 23. október nk.
Nýtt 2ja kvölda námskeið í
stjórnun með Eygló Eyjólfsdóttur,
fyrrverandi konrektor í Mennta-
skólanum í Hamrahlíð og nýskipuð-
um skólameistara, byijar 18. októ-
ber. Allir eru velkomnir á námskeið-
in meðan húsrúm leyfir en fyrirfram
skráning er hjá stjórnarkonum.
Ný stjórn tók við í félaginu 22.
febrúar sl. en hana skipa: Geirlaug
Þorvaldsdóttir, formaður, Margrét
Sigurðardóttir, varaformaður,
Brynja Runólfsdóttir, gjaldkeri,
Ásdís Guðmunsdóttir, ritari, Áslaug
Ottesen, ritari við útlönd og Kristín
Njarðvík og Ragnheiður Ágústs-
dóttir meðstjórnendur.
Nýr bæklingur um
geðheilbrigði
ALÞJÓÐLEGI geðheilbrigðisdagur-
inn er í dag. Geðhjúkrunarfræðing-
ar á íslandi vilja stuðla að bættri
geðheilsu og hafa nú frumkvæði
að útgáfu bæklings um geðheil-
brigði, í samvinnu við Rauða kross-
inn.
Segja má að lítið hafi verið fjall-
að um forvamir í geðheilbrigðismál-
um en markmiðið með þessum
bæklingi er að vekja fólk til um-
hugsunar um eigið geðheilbrigði.
í bæklingnum er m.a. bent á eft-
irfarandi: „Þegar talað er um geð-
heilsu dettur mörgum í hug geð-
sjúkdómar. En geðheilsa er annað
og meira en að vera laus við geð-
sjúkdóma. Geðheilsa snýst um: 1.
Tilfinningar þínar gagnvart sjálfum
þér, 2. Tilfinningar þínar gagnvart
öðrum, 3. Hvernig þú tekst á við
kröfur lífsins.“
Rauði kross íslands hefur kostað
Morgunblaðið/Ásdís
ÚLFHILDUR Grímsdóttir og
Herdís Hólmsteinsdóttir, í
stjórn fagdeildar geðhjúkrun-
arfræðinga, með bæklingana.
útgáfu þessa bæklings og mun hon-
um verða dreift á heilsugæslustöðv-
ar, á sjúkrahús, í lyfjaverslanir og
til ýmissa opinberra aðila.
Yfirlýsing
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Bimi Valdimars-
syni, bæjarstjóra og formanni al-
mannavamamefndar Siglufjarð-
ar:
„í frétt Morgunblaðsins 8.
október er því ranglega haldið
fram að almannavarnamefnd
Siglufjarðar hafi gagnrýnt seina-
gang við gerð snjóflóðahættumats
fyrir Siglufjöð. Almannavarnar-
nefndin hefur fullan skilning á
því að hér er um mjög vandasamt
og tímafrekt verkefni að ræða og
mikilvægt að vinna það á sem
bestan hátt. Yfirfara þarf allar
eldri heimildir um snjóflóð og taka
tillit til nýrra upplýsinga og því
er eðlilegt að gerð hættúmatsins
taki töluverðan tíma.
Hins vegar er það rétt sem fram
kemur í frétt blaðsins að undirrit-
aður hefur gagnrýnt að nú, sjö
mánuðum eftir að lögum um ráðn-
ingu snjóeftirlitsmanna var
breytt, skuli ekki hafa verið ráðið
í þær stöður.
Það hefur t.d. legið ljóst fyrir
frá því í sumar að ráða þyrfti
nýjan mann til þessara starfa á
Siglufirði, þar sem upplýsingar
um ráðningarkjör látu ekki fyrir
þá. Nú er kominn sá árstími þeg-
ar alla veðra er von og á síðasta
ári féll t.d. snjóflóð við Siglufjörð
í desember. Áð mínu mati ætti
því að vera búið að ráða og þjálfa
snjóeftirlitsmann fýrir bæinn nú.“
FRÉTTIR
800 fengu Kínó-vinning
Fundur um
geðheil-
brigðismál
HEILBRIGÐIS- og tiyggingamála-
ráðherra, Ingibjörg Pálmadóttir,
hefur ákveðið að gera 10. október
að alþjóðadegi geðheilbrigðis á ís-
landi í samræmi við áskorun alþjóða-
sambands geðverndarfélaga. Af
þessu tilefni gangast Geðlæknafélag
Islands, Geðhjálp og Geðverndarfé-
lag íslands fyrir almennum fundi
um geðheilbrigðismál þennan dag
kl. 20.30 í Eirbergi á Landspítalalóð.
Að loknu ávarpi ráðuneytisstjóra
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins, Páls Sigurðssonar, verða
haldin tíu mínútna erindi um geðheil-
brigðismál. Lárus Helgason, yfir-
læknir, og Högni Óskarsson, geð-
læknir, fjalla um geðlækningar á
sjúkrahúsum og einkalækningastof-
um. Margrét Þorgrímsson, formaður
Geðhjálpar, fjallar um Geðhjálp, Jón
G. Stefánsson, yfirlæknir, formaður
Geðverndarfélags íslands, um geð-
vernd og Hannes Pétursson, yfir-
læknir um vísindalegar rannsóknir
á geðsjúkdómum. Að loknum fram-
söguerindum verða fyrirspurnir og
umræður. Fundarstjóri verður Tóm-
as Helgason, prófessor.
Erindi um
Kristnihald
undir Jökli
FÉLAG íslenskra fræða boðar til
fundar í kvöld, þriðjudag, kl. 20.30
í Skólabæ við Suðurgötu.
Þar mun Wilhelm Friese, áður
prófessor í norrænum fræðum í
Túbingen, flytja erindi um Kristni-
hald undir Jökli eftir Halldór Lax-
ness.
Friese er einkum þekktur fyrir
brautryðjendaverk sitt um norrænar
barrokkbókmenntir. Hann hefur
auk þess skrifað fjölda greina um
íslenskar nútímabókmenntir og bók-
menntir annarra Norðurlandaþjóða.
Nú í haust kom út rit eftir hann
um skáldsögur Laxness. Friese mun
flytja erindi sitt á þýsku en umræð-
ur geta farið fram á ensku eða
dönsku.
Að lokinni dagskrá gefst mönnum
kostur á léttum veitingum. Fundur-
inn er öllum opinn.
Málþing um
umhverfismál
MÁLÞING verður haldið í Norræna
húsinu í kvöld, þriðjudaginn 10.
október kl. 20.30. Málþingið er
lokaáfangi í viðamiklu umhverfis-
verkefni sem Ungmennafélag ís-
HAPPDRÆTTISLEIKURINN
Kínó, sem íslensk getspá rekur,
fékk góðar viðtökur síðastliðinn
laugardag, að því er segir í frétt
frá fyrirtækinu.
Laugardagurinn var fyrsti
söludagurinn í Kínó og seldust
rúmlega 5 þúsund þátttökumið-
ar. Um kvöldið var dregið úr
vinningstölum dagsins og fengu
rúmlega 800 manns vinninga,
misjafnlega háa. Dregið er í Kínó
alla daga vikunnar nema sunnu-
daga og eru vinningstölur birtar
lands hefur staðið fyrir á árinu 1995
í samstarfi við umhverfisráðuneytið,
Samband íslensþra sveitarfélaga og
Bændasamtök íslands.
Umhverfisráðherra, Guðmundur
Bjarnason, ávarpar þingið og sam-
kvæmt dagskrá verður þar fjallað
um umgengni við landið m.a. um
þátt bænda til að bæta umgengni
við náttúruna, umhverfísvernd með
lagasetningu, áhrif nútímans á um-
gengni við náttúruna, dæmi um
árangur í umhverfismálum, niður-
stöður Umhverfisverkefnis UMFÍ,
Náttúruvemdarár Evrópu 1995 o.fl.
Málþingið er opið öllu áhugafólki
um umhverfismál og er aðgangur
ókeypis.
Edda Borg á
Kringlukránni
TRÍÓ Eddu Borg leikur á Kringlu-
kránni miðvikudagskvöldið 11.
október.
Edda Borg hefur sungið djass í
mörg ár ásamt því að syngja popp
með sinni eigin hljómsveit. A efnis-
skrá Eddu em þekkt djasslög, göm-
ul og ný, í útsetningu tríósins. Með
Eddu leika þeir Bjarni Sveinbjörns-
son kontrabassaleikari og Bjöm
Thoroddsen gítarleikari. Uppákom-
an hefst kl. 22 og stendur fram
yfír miðnætti.
samdægurs í Sjónvarpinu um
klukkan 19.30.
Forsvarsmenn eignaraðila ís-
lenskrar getspár keyptu miða í
Kínó'á laugardaginn og á mynd-
inni afhendir Hallveig Andrés-
dóttir hjá ísl. getspá Olöfu Rík-
harðsdóttur, formanni Öryrkja-
bandalags íslands, Þóri Jóns-
syni, formanni UMFÍ, og Ellert
B. Schram, formanni ÍSÍ, Kínó-
miða skömmu áður en sölustöð-
um var lokað.
Konungur
ljónanna á
myndbandi
ÞRIÐJUDAGINN 10. október kemur
á markað ein vinsælasta kvikmynd
ársins á íslandi og ein vinsælasta
mynd allra tíma, Konungur ljónanna
eða The Lion King eins og hún heit-
ir á frummálinu, segir í frétt frá
Sambíóunum.
Kvikmyndin kemur bæði út í ís-
lehskri útgáfu með talsetningu og á
frummálinu með islenskum texta.
Báðar eru útgáfurnar vel unnar og
skarta frægum leikurum, í ensku
útgáfunni eru það m.a. þeir James
Earl Jones, Matthew Broderick, Jon-
athan Taylor Thomas og Jeremy
Irons sem fara á kostum og íslensk-
ir kollegar þeirra eru m.a. Laddi,
Sigurður Siguijónsson, Felix Bergs-
son, Pétur Einarsson og Jóhann Sig-
urðarson. Tónlistin í myndinni er
samin af Elton John og um söngtext-
ana sér Tim Rice. Leikstjóri íslensku
talsetningarinnar var Randver Þor-
láksson en upptökustjóri Júlíus Agn-
arsson.
-leikur að lasra! e
______jj
Vinningstölur 9. okt. 1995
17-18*22*23-25-26*30
_______Eldri úrslil á símsvara 568 1511
VINNINGSTÖLUR LAUGARDAGINN 07.10.1995 |
J3)(Í7) iflfF
(2l)(3l) M4)
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1 ■ 5 af 5 3 677.860
*-PIÚS ^ 114.990
3. 4af 5 127 4.680
4. 3 af 5 2.294 530
Heildarvinningsupphæð: 4.347.730
i /{ÉðlMO)
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
Verslanir .
og menning í miðju
heimsborgarinnar Hamborgar.
Verslunarhverfi, leikhús, barir og veitingahús eru í gönguleið.
Þú færð alltaf hlýjar móttökur ó hótelinu okkar.
Notfærðu þér sértilboð okkar fyrir íslendinga ó tímabilinu:
Haust
r
vetur
'95-’96
Tveggja manna herbergi ------
m. sturtu/WC: 150 DM,
morgunverðarhlaðborð innifalið
Einstaklingsherbergi
m. sturtu/WC: 100 DM,
morgunverðarhlaðborð innifalið
Pontaðu þér herbergi stox hjó:
Hotel Metro Merkur,Homborg,
sími: 00 49 40 24872111
Fox: 00 49 40 240284
Bremer Reihe 12-14/20099 Hamburg/Germany