Morgunblaðið - 13.10.1995, Síða 26
26 D FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MIKIL SALA
VANTAR EIGNIR
3ja herb. í vesturbæ.
Raðhús í Fossvogi.
NATTURUPARADIS
Við Vatnsendablett er til sölu 225 fm
einb. sem er kj., hæð og ris, endurbyggt
að mestu leyti. Mörg svefnherb. ogsto-
fur. Mjög stór lóð og miklir mögul. t.d.
fyrir hestamenn eða skógræktarfólk.
VESTURBÆR - KÓP.
Mjög gott og fallegt hús á tveimur hæðum
sunnan megin í Kóp. 4-5 svefnh. Miklir
möguleikar, t.d. tvær íb. Fallegur garður
og góður bílskúr. Sanngjarnt verð.
SKÓLAGERÐl - KÓP.
Einstal^lega fallegt parh. á tveimur
hæðum ca 161 fm auk bílsk. Allt húsið er
endurn. á smekklegan hátt. Laufskáli.
Flísar á gólfum. Parket. 4 svefnh., nýtt
baðh. Falleg lóð.
RÉTTARHOLTSVEGUR
Gott raðh., tvær hæðir og kj. ca 110 fm. 3
svefnh., stofa. Sérgarður. Áhv. 3,5 millj
húsbr. Verð 8,2 millj.
ÁLFHÓLSVEGUR - KÓP.
Stórt endaraðh., tvær hæðir og kj. og stór
bílsk. 3 svefnh., 2 stofur. Mögul. á séríb. í
kj. Húseignin er mikið endurn. Eignaskipti
möguleg.
BRU
EIGNAMIÐLUN
g5333 444
SKEIFAN 19, 4. h. - FAX 588 3332
STEINÞÓR ÓLAFSSON
JÓN MAGNÚSSON hrl.
I FJÓLUGATA
Var að fá mjög skemmtilega 127 fm Ib. á
I 1. hæð í þríbýli. 3 svefnherb. og 2 stofur.
Mikið endurn. Bílsk.
. NÁLÆGT MIÐBÆNUM
Var að fá stóra íb. 3-5 svefnherb. 2 stórar
stofur. Svalir í suður og norður.Stórt eldh.
' Saunabað og sérþvottah. íb. m. mikla
mögul.
3JA-4RA
VESTURBÆR
) Var að fá mjög góða 90 fm endaíb. á 2.
hæð. 3 svefnherb. Stór stofa. Parket. Verð
| 7,6 millj.
, HAFNARFJÖRÐUR
' Góð 4ra herb. endaíb. ca 100 fm á 2.
. hæð. 3 svefnh. Stór stofa og borðstofa.
) Nýl. baðherb. Bílskréttur.
ALFTAMYRI
Góð 3ja-4ra herb. íb. á 1. hæð (ekki
jarðh.). 2-3 svefnh., stór stofa. Suðursv.
Miklir mögul.
BERJARIMI
Ný ónotuð falleg og vel skipul. íb. í litlu
fjölb. 2 svefnh., björt stofa. Parket og
flísar. Stæði í bílageymslu.
ÞINGHOLTIN
Góð 3ja herb. sérh. m. slípuðum gólfpanel.
Stórt eldh., tvö svefnherb. Góð áhv. lán.
2JA HERB.
HRAUNBÆR
Góð 60 fm íb. á 1. hæð. Stórt svefnh.
Sérgaröur. Skipti mögul. á stærri eign.
HJARÐARHAGI
Var að fá stóra íbúð á 3. hæð. Stórt svefnh.,
stofa og suðursv. Mjög fallegt útsýni.
KARLAGATA
Óvenju snytil. og góð einstakl.íb. á jaröh.
Nýir gluggar og gler. Nýtt baðherb. og
nýstands. eldhús. Parket og flísar á gólf-
um. Verð aðeins 3,8 millj.
KRUMMAHÓLAR
Mjög vönduð og góð íb. m. parketi. Stæði
í bílageymslu. Frystigeymsla. Gott útsýni.
LAUGATEIGUR
Var að fá mjög góða 70 fm íb. á jarðh. í
eftirsóttu hverfi. Stór stofa og svefnherb.
Sérinng.
VALLARÁS
Var að fá sérstakl. góða íb. á 5. hæð í
lyftuh. Stórt svefnherb. og góð stofa.
Suðursv.
iKBB
| FRÓÐENGl
" Mjög fallegar 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir til
, 'afh. strax. Afh. fullb. m. vönduðum innr.
I en án gólfefna. Bílskúrar geta fylgt.
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-18 OG LAUGARDAGA KL. 11-14
Lagnafréttir
Hvers vegna ekki
gólfhiti?
Hitakerfí í gólfi hefur marga kosti segír
Sigurður Grétar Guðmundsson í umfjöllun
sinni í dag. Gólfhiti er heldur ekki nýjung
því Rómverjar notuðu bæði heitt loft og
heitt vatn til að hita gólf í hýbýlum sínum.
GÓLFHITAKERFI eru nær alltaf lögð úr plaströrum.
GÓLFHITI er ein af mörgum teg-
urídum hitakerfa, sem byggjast á
heitu vatni sem varmagjafa, þó er
það ekki eingöngu vatnið sem flytur
varmann; að lokum tekur loftið við
honum og færir hann til okkar,
hvort sem í húsinu er gólfhiti, ofna-
kerfí eða önnur vatnshitakerfí.
Vatn hefur lengi verið notað sem
hitaberi og þau stærstu vatnshita-
kerfín eru ekki gjörð af manna
völdum, nærtækast er að hugsa til
hitakerfisins, sem heldur lífi í mönn-
um og skepnum hérlendis, Golf-
straumsins.
1 Gólfhiti er heldur engin nýjung,
Rómveijar notuðu bæði heitt loft
og heitt vatn til að hita gólf í hýbýl-
um sínum.
En hvað er það þá við gólfhitann
sem gerir hann eftirsóknarverðan?
Lítum á nokkur atriði.
1. Gólfhiti er lághitakerfi, hiti
vatnsins fer yfírleitt ekki upp fyrir
45 gráður, því lægri hiti sem er á
hitakerfínu því minna hitatap þar
sem um beina leiðni er að ræða því
þó veggir og gólf séu vel einangruð
verður alltaf eitthv^rt hitatap. Það
má líkja hitastreyminu út úr hús-
skrokknum við rennandi vatn i
skurði; því meiri sem hallinn er því
hraðari verður straumurinn, því
meiri munur á hitastigi á vatninu
í hitakerfínu og hitastiginu úti, því
meira hitatap.
2. Hitanemi líkamans er í fótun-
um, það getur þú sannreynt i heita
pottinum, farðu í heitasta pottinn,
hitinn er nánast óbærilegur, en
hvað gerist ef þú lyftir fótunum upp
úr vatninu?
Hitinn verður miklu bærilegri,
nákvæmasti hitanemi líkamans,
fæturnir, skynja ekki lengur hita
vatnsins.
Og það er ekki út í hött að segja
að í húsnæði með gólfhita er hægt
að hafa hitastigið nokkru Iægra,
en þar sem önnur hitakerfi eru
notuð. Þetta kemur til af því að
heitasti flöturinn, gólfíð, er við hita-
nemana, fæturna, hitinn verður
miklu jafnari í rýminu, það er ekki
svo mikill munur á hita við gólf og
loft, ekki eins mikill munur og við
önnur hitákerfi.
Semsagt, lægri hitakostnaður.
3. Gólfhitinn getur mýtt hita,
sem önnur hitakerfí ráða ekki við,
Sums staðar hérlendis eru volgrur,
þar sem umtalsvert af vatni seytlar
stöðugt upp á yfirborðið svona
20-40 stiga heitt.
Slíkt vatn er erfitt að nýta til
upphitunar í ofnakerfum, en getur
verið kjörið i gólfhita.
í hverskonar byggingar
Fram til þessa hefur gólfhiti aðal-
lega verið notaður í stærri bygging-
ar, iðnaðarhúsnæði og þó nokkrar
kirkjur, en minna í íbúðarhúsnæði.
Lítum nánar á atvinnuhúsnæði,
t.d. flugskýli eða verkstæði fyrir
stórar vinnuvélar.
Þegar flugvél eða skurðgrafa er
færð í eða úr húsi þarf að opna
stórar dyr, víðar og háar, þetta
verður að gera hvernig sem viðrar
og á hvaða árstíma sem er. Það er
óhjákvæmilegt að hitatap verður
mikið og fýrst eftir að dyrum hefur
verið lokað er kalt í húsinu og það
sem verra er; það liggur kalt loft-
teppi á gólfínu og teygir sig nokkuð
upp á við, svosem eins og eina
mannhæð, einmitt þar sem starfs-
mennirnir eru.
En sé hitakerfið í gólfinu vinnur
það fljótt á gólfkuldanum, fljótar
en nokkurt annað hitakerfi, tví-
mælalaust til hagræðis starfsmönn-
um og til verndunar heilsunni.
Það fer ekki mikið fyrir gólfhita-
kerfí, þú sérð það ekki, fínnur að-
eins fyrir þægilegum áhrifum þess.
En það er margs að gæta við
hönnun og lögn gólfhitakerfis, yfir-
borðshiti gólfsins á ekki að fara upp
fyrir 28 gráður þvi þá fara „hita-
nemarnir “ að mótmæla, „vicfviljum
ekki standa á svona heitum fleti“.
Það er hægt að nota gólfhita þó
parkett sé á gólfum eða teppi, en
taka verður tillit til þess í upphafi.
Það er hins vegar spurning hvort
kötturinn fæst til að fara út, það
er svo þægilegt að liggja malandi
á gólfinu.
Opið frá kl. 9 til 9 alla virka daga, frá
kl. 11-5 laugard. og sunnud.
Ef þú átt 2ja eða 3ja herb. íbúð þá hef ég kaupandann - staðgreitt
- hringdu strax!
2ja herb. — Sólvallagata. 53 fm sérbýii á 2. hæð. útb. um 1,6
millj. Afb. 20 þús. á mán. án vaxtabóta.
2ja herb. - Skipasund. 67 fm íb. í kj. Sérgarður. Útb. 1,7 millj. Afb.
22 þús. á mán. án vaxtabóta.
3ja herb. Hef tvær góðar í Vesturbæ með bílskýlum. Létt afborgun.
Ekkert greiðslumat.
3ja herb. — Hafnarfjörður. 70 fm sérhæð við góðan garð fyrir
börnin. Þar er útb. á árinu 1,7 millj. Afb. 16 þús. á mán. án vaxtabóta.
3ja-4ra herb. við Hvassaleiti. 105 fm fyrir vandláta sem eru
að minnka við sig og vilja taka húsgögnin með sér. Útb. 4 millj.
á árinu, eftlrstöðvar 20 þús. á mán.
Einbýli — Garðabæ. Um 150 fm hæð + 40 fm bílskúr á Flötun-
um. Minni íbúð óskast upp í.
Um 150 frn einb. Óskast. Kaupandinn bíður hér.
Þú færð alla ráðgjöf, aðstoð og upplýsingar um fleiri
eignir sem eru á skrá - hringdu bara!
Finnbogi Kristjánsson,
löggiltur fasteignasali,
Síðumúla 1, 2. hæð. Fax 533-1314.
sími 533-1313.
FASTEIGNASALAN Berg hefur til sölu þetta hús á Egilsstöðum
og á það að kosta 10,9 millj. kr.
Einbýlishús til sölu
á Egilsstöðum
HJÁ fasteignasölunni Bergi er til
sölu 133,7 fermetra einbýlishús á
Egilsstöðum. Eigninni fylgir 40 fer-
metra bílskúr. Verðhugmynd er
10,9 millj. kr.
„Húsið skiptist í stofu, borðstofu,
eldhús, snyrtinu og gestasnyrtingu
og fjögur svefnherbergi," sagði 01-
afur Jóhannsson hjá Bergi. „Þegar
gengið er inn um aðaldyr er komið
inn í flísalagða forstofu, til annarr-
ar handar er gott unglingaher-
bergi, á hina hönd er gestasnyrting.
Stofan og borðstofan er ein heild,
þar eru gólf parketlögð, loft er pan-
elklætt svo og einn veggur í borð-
stofu. Svefnherbergisgangur er
parketlagður, þar eru hjónaherbergi
og tvö barnaherbergi, snyrting er
öll flísalögð, bæði gólf og veggir,
sturta, baðkar og ný innrétting.
Eldhús er með góðum borðkrók og
fallegri viðarinnréttingu. Gengið er
um bakdyr inn þvottahús og þaðan
gengt inn eldhús og svefnherbergis-
gang. Stétt fyrir utan húsið er
steypt og með hitlalögnum, sólskýli
er við húsið og garðurinn er vel
ræktaður og fallegur.
Bílskúrinn er stór, upphitaður
með góðu vinnuborði, heitu og
köldu vatni og hurðin er með sjálf-
virkum opnara.
Eigninni er vel við haldið og er
í góðu standi. Verðhugmynd er
10,9 millj. kr. Skipti á séreign í
Reykjavík koma til greina svo og
minni eign á Egilsstöðum.
Lúxuseldhús
í ÞETTA eldhús er ekkert til
sparað. Allar innréttingar og öll
tæki af dýrustu tegund. Elda-
vélaborðið fyrir miðju er einkar
glæsilegt. Innréttingarnar eru
allar úr hinum vönduðustu efn-
um. Hönnun og framleiðsla frá
danska fyrirtækinu Multiform.