Morgunblaðið - 13.10.1995, Qupperneq 30
30 D FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
SUÐURLANDSBRAUT 10
SÍMI: 568 7808 FAX: 568 6747
Opið virka daga 9:00 -18:
Helgar 12:00 - 14:00
VANTAR - VANTAR
6 SVEFNHERB. eða 2ja Ibúða
hus. Fjársterkur kaupandi hefur
beðið okkur um að finna hús með
eftirfarandi eiginleikum:
★ Gott hús.
★ í Garfarvogi.
★ 6 svefnherb. eða 2ja ib. hús.
FROSTAFOLD - GLÆSIL.
80 fm á jarðh. Skipti mögul.
KRÍUHÓLAR - GOTT V.
40 fm gott útsýni.
EFSTASUND - GÓÐ ÍB.
50 fm i tvibýli. Garður.
JÖRFAB. - GÓÐAR INNR.
65 fm mjög góð íb.
SNORRABRAUT- 55 ÁRA
OG ELDRI
64 fm í lyftuh.
KAMBSVEGUR - RVÍK
60 fm. Gott verð.
KARLAGATA - GÓÐ ÍB.
51 fm. Ýmsir möguleikar.
MIÐBÆR
40 fm. Sérinng.
KÓP. - HAMRABORG
60 fm. Laus strax.
BÁRUGATA - FRÁB. V.
75 fm. Allt nýtt.
FOSSVOGUR
87 fm. Glæsil. ib.
VÍKURÁS - STÓRGL.
85 fm. Frábærar innréttingar.
LAUGAVEGUR - FRÁB.
50 fm. Góðar innréttingar.
SELT. - AUSTURSTR.
80 fm með bílskýli.
HF. - ÁLFHOLT
93 fm. Tilb. til innr.
KÓP. - KJARRHÓLMI
75 fm. Suðursvalir.
VESTURB. - DUNHAGI
85 fm með 25 fm bílsk.
MARÍUB. - FRÁB. ÚTS.
85 fm. Topp innréttingar.
HÁALEITISBRAUT
122 fm með 22 fm bílskúr.
HÁVALLAGATA - JARÐH.
93 fm. Góðar innréttingar.
SELTJ. - TJARNARBÓL
106 fm með 20 fm bílskúr.
KÓP. - NÝBÝLAVEGUR
85 fm með 40 fm bílskúr.
KÓP. - BORGARHOLTS-
BRAUT
Risíbúð með bilskúr. Laus.
HF. - FAGRIHVAMMUR
106 fm. Glæsilegar innréttingar.
BUGÐULÆKUR - M.
BÍLSK.
Vorum að fá í sölu í þessu glæsil.
húsi mjög góða 120 fm neðri
sérhaeð ásamt bílsk. 3 svefnherb.,
nýl. eldhús, parket og flísar. Skipti
mögul. á 3ja herb. ib. á svipuðum
stað.
LAUGARNESVEGUR
125 fm hæð og kjallari.
SAFAMÝRI - SKIPTI
134 fm með 24 fm bílskúr.
KÓP. - HOLTAGERÐI
115 fm með 34 fm bilskúr.
HAFNARFJÖRÐUR
154 fm neðri sérh. með bilsk.
JtíoiEiSHíISl
HF. - MIÐVANGUR
Mjög gott ca 150 fm endaraðh. með
vönduðum innr. Skipti mögul. á minni
eign á stór Höfuðborgarsvaeðinu.
KÓP. - LANGABREKKA
2JA ÍBÚÐA HÚS
Vorum að fá i sölu mjög vel með farið
ca 180 fm parh. ásamt góðum 34 fm
bílsk. Gott útsýni. Góð eign. Skipti
mögul.
RAUÐAGERÐI - 2 ÍB. HÚS
250 fm með bílsk. Góðar innr.
JÖKLAFOLD - GLÆSIL.
150 fm með 40 fm bílsk.
GEITLAND - GOTT HÚS
200 fm með 28 fm bílsk.
STAÐARBAKKI - VEL
STAÐSETT
165 fm með bílsk.
BÚLAND-ENDARAÐH.
200 fm með 25 fm bílskúr.
HÁBÆR - Á EINNI HÆÐ
147 fm með 32 fm bílskúr.
AUSTURGERÐI
331 fm með 25 fm bilskúr.
BAKKASEL - SKIPTI
236 fm með 20 fm bílskúr.
VESTURBÆR -
FROSTASKJÓL
279 fm með innb. bilsk.
KÓP. - KASTALAGERÐI
137 fm með 28 fm bílskúr.
KÓP. - ÁLFAHEIÐI
113 fm með bílskúr.
SELTJ. - EIÐISMÝRI
202 fm með 30 fm bílskúr.
a n n a ð
GRENSÁSVEGUR
- ATVINNUHÚSN.
Til sölu eða leigu mjög gott atvhúsn.
með góðum gluggum við þessa
fjölförnu götu. Tilvalin fyrir verslanir.
Nánari uppl. veitir Brynjar.
Það er sölutími
Ef þú ætfar að selja NÚNA TALAÐU
VIÐ OKKUR
Það hafa OKKAR viðskiptavinir
sannreynd
Hátún - litli risinn á markaðnum.
FRANSSON lögg.fost. soli, HILMAR VALDIMARSSON
LÁRUS H. LÁRUSSON ^
FJÁRFESTING
í FASTEIGN ER TIL
FRAMBÚÐAR íP
Félag Fasteignasala
SIIJIMHK
■ SÖLUUMBOÐ - Áður en
fasteignasala er heimilt að bjóða
eign til sölu, ber honum að hafa
sérstakt söluumboð frá eiganda
og skal það vera á stöðluðu
formi sem dómsmálaráðuneytið
staðfestir. Eigandi eignar og
fasteignasali staðfesta ákvæði
söluumboðsins með undirritun
sinni á það. Allar breytingar á
söluumboði skulu vera skrifleg-
ar.í söluumboði skal eftirfar-
andi koma fram:
■ TILHÖGUN SÖLU - Koma
skal fram, hvort eignin er í
einkasölu eða almennri sölu, svo
og hver söluþóknun er. Sé eign
sett í einkasölu, skuldbindur
eigandi eignarinnar sigtil þess
að bjóða eignina aðeins til sölu
hjá einum fasteignasala og á
hann rétt til umsaminnar sölu-
þóknunar úr hendi seljanda,
jafnvel þótt eignin sé seld ann-
ars staðar. Einkasala á einnig
við, þegar eignin er boðin fram
í makaskiptum. - Sé eign í al-
mennri sölu má bjóða hana til
sölu hjá fleiri fasteignasölum
en einum. Söluþóknun greiðist
þeim fasteignasala, sem selur
eignina.
■ AUGLÝSINGAR - Aðilar
skulu semja um hvort og hvern-
ig eign sé auglýst, þ.e. á venju- .
legan hátt í eindálki eða með
sérauglýsingu. Fyrsta venjulega
auglýsing í eindálki er á kostnað
fasteignasalans en auglýsinga-
kostnaður skal síðan greiddur
mánaðarlega skv. gjaldskrá
dagblaðs. Oll þjónusta fast-
eignasala þ.m.t. auglýsing er
virðisaukaskattsskyld.
■ GILDISTÍMI - Tilgreina
skal hve lengi söluumboðið gild-
ir. Umboðið er uppsegjanlegt
af beggja hálfu með 30 daga
fyrirvara. Sé einkaumboði
breytt í almennt umboð gildir
30 daga fresturinn einnig.
■ GREIÐSLU STAÐUR
KAUPVERÐS - Algengast er
að kaupandi greiði afborganir
skv. kaupsamningi inn á banka-
reikning seljanda og skal hann
tilgreindur í söluumboði.
■ ÖFLUN GAGNA/SÖLU-
YFIRLIT - Áður en eignin er
boðin til sölu, verður að útbúa
söluyfirlit yfir hana. Seljandi
skal leggja fram upplýsingar
um eignina, en í mörgum tilvik-
um getur fasteignasali veitt
aðstoð við útvegun þeirra skjala
sem nauðsynleg eru. Fyrir þá
þjónustu þarf að greiða, auk
beins útlagðs kostnaðar fast-
eignasalans við útvegun skjal-
anna. I þessum tilgangi þarf
eftirfarandi skjöl:
■ VEÐBÓKARVOTTORÐ-
Þau kosta nú 800 kr. og fást
hjá sýslumannsembættum.
Opnunartíminn er yfirleitt milli
kl. 10.00 og 15.00. Áveðbókar-
vottorði sést hvaða skuldir (veð-
bönd) hvíla á eigninni og hvaða
þinglýstar kvaðir eru á henni.
■ GREIÐSLUR - Hér er átt
við kvittanir allra áhvílandi
lána, jafnt þeirra sem eiga að
fylgja eigninni og þeirra, sem á
að aflýsa.
■ FASTEIGNAMAT - Hér
er um að ræða matsseðil, sem
Fasteignamat ríkisins sendir öll-
um fasteignaeigendum í upp-
hafi árs og menn nota m.a. við
gerð skattframtals. Fasteigna-
mat ríkisins er til húsa að Borg-
artúni 21, Reykjavík sími
614211.
■ FASTEIGNAGJÖLD -
Sveitarfélög eða gjaldheimtur
senda seðil með álagningu fast-
eignagjalda í upphafi árs og er
hann yfirleitt jafnframt
greiðsluseðill fyrir fyrsta gjald-
daga fasteignagjalda ár hvert.
Kvittanir þarf vegna greiðslu
fasteignagjaldanna.
■ BRUNABÓTAMATS-
VOTTORÐ - Vottorðin fást
hjá því tryggingafélagi, sem.
eignin er brunatryggð hjá. Vott-
orðin eru ókeypis. Einnig þarf
kvittanir um greiðslu brunaið-
gjalda. Sé eign í Reykjavík
brunatryggð hjá Húsatrygging-
um Reykjavíkur eru brunaið-
gjöld innheimt með fasteigna-
gjöldum og þá duga kvittanir
vegna þeirra. Annars þarf kvitt-
anir viðkomandi tryggingarfé-
lags.
■ HÚSSJÓÐUR - Hér er um
að ræða yfirlit yfir stöðu hús-
sjóðs og yfirlýsingu húsfélags
um væntanlegar eða yfirstand-
andi framkvæmdir. Formaður
eða gjaldkeri húsfélagsins þarf
að útfylla sérstakt eyðublað
Félags fasteignasala í þessu
skyni.
■ AFSAL - Afsal fyrir eign
þarf að liggja fyrir. Ef afsalið
er glatað, er hægt að fá ljósrit
af því hjá viðkomandi sýslu-
mannsembætti og kostar það
nú kr. 100. Afsalið er nauðsyn-
legt, því að það er eignarheim-
ildin fyrir fasteigninni og þar
kemur fram lýsing á henni.
■ KAUPSAMNINGUR - Ef
lagt er fram ljósrit afsals, er
ekki nauðsynlegt að leggja fram
ljósrit kaupsamnings. Það er því
aðeins nauðsynlegt í þeim tilvik-
um, að ekki hafi fengist afsal
frá fyrri eiganda eða því ekki
enn verið þinglýst.
■ EIGNASKIPTASAMN-
INGUR - Eignaskiptasamn-
ingur er nauðsynlegur, því að í
honum eiga að koma fram eign-
arhlutdeild í húsi og lóð og
hvernig afnotum af sameign og
lóð er háttað.
■ UMBOÐ — Ef eigandi ann-
ast ekki sjálfur sölu eignarinn-
ar, þarf umboðsmaður að leggja
fram umboð, þar sem eigandi
veitir honum umboð til þess
fyrir sína hönd að undirrita öll
skjöl vegna sölu eignarinnar.
■ YFIRLÝSINGAR - Ef sér-
stakar kvaðir eru á eigninni s.
s. forkaupsréttur, umferðarrétt-
ur, viðbyggingarréttur o. fl.
þarf að leggja fram skjöl þar
að lútandi. Ljósrit af slíkum
skjölum fást yfirleitt hjá við-
komandi fógetaembætti.
■ TEIKNINGAR - Leggja
þarf fram samþykktar teikning-
ar af eigninni. Hér er um að
ræða svokallaðar byggingar-
nefndarteikningar. Vanti þær
má fá ljósrit af þeim hjá bygg-
ingarfulltrúa.
■ FASTEIGNASALAR - í
mörgum tilvikum mun fast-
eignasalinn geta veitt aðstoð við
útvegun þeirra skjala, sem að
framan greinir. Fyrir þá þjón-
ustu þarf þá að greiða sam-
kvæmt Viðmiðunargjaldskrá
Félags fasteignasala auk beins
útlagðs kostnaðar fasteignasal-
ans við útvegun skjalanna.
KAIPIvMHK
■ ÞINGLÝSING - Nauðsyn-
legt er að þinglýsa kaupsamn-
ingi strax hjá viðkomandi sýslu-
mannsembætti. Þaðer mikil-
vægt öryggisatriði. Á kaup-
samninga v/eigna í Hafnarfirði
þarf áritun bæjaryfirvalda áður
en þeim er þinglýst.
■ GREIÐSLUR - Inna skal
allar greiðslur af hendi á gjald-
daga. Seljanda er heimilt að
reikna dráttarvexti strax frá
gjalddaga. Hér gildir ekki 15
daga greiðslufrestur.
■ LÁNAYFIRTAKA - Til-
kynna ber lánveitendum um
yfirtöku lána. Ef Byggingar-
sjóðslán er yfirtekið, skal greiða
fyrstu afborgun hjá Veðdeild
Landsbanka íslands, Suður-
landsbraut 24, Reykjavík og til-
kynna skuldaraskipti um leið.
■ LÁNTÖKUR - Skynsam-
legt er að gefa sér góðan tíma
fyrir lántökur. Það getur verið
tímafrekt að afla tilskilinna
gagna s. s. veðbókarvottorðs,
brunabótsmats og veðleyfa.
■ AFSAL - Tilkynning um
eigendaskipti frá Fasteignamati
ríkisins verður að fylgja afsali,
sem fer í þinglýsingu. Ef skjöl,
sem þinglýsa á, hafa verið und-
irrituð samkvæmt umboði, verð-
ur umboðið einnig að fylgja með
til þinglýsingar. Ef eign er háð
ákvæðum laga um byggingars-
amvinnufélög, þarf áritun bygg-
ingarsamvinnufélagsins á afsal
fyrir þinglýsingu þess og víða
utan Reykjavíkur þarf áritun
bæjar/sveitarfélags einnig á af-
sal fyrir þinglýsingu þess.
■ SAMÞYKKIMAKA - Sam-
þykki maka þinglýsts eiganda
þarf fyrir sölu og veðsetningu
fasteignar, ef fjölskyldan býr í
eigninni.
■ GALLAR - Ef leyndir gall-
ar á eigninni koma í ljós eftir
afhendingu, ber að tilkynna selj-
anda slíkt strax. Að öðrum kosti
getur kaupandi fyrirgert hugs-
anlegum bótarétti sakir tómlæt-
is.
GJALDTAKA
■ ÞINGLÝSING - Þinglýs-
ingargjald hvers þinglýst skjals
er nú 1.000 kr.
■ STIMPILGJALD - Það
greiðir kaupandi af kaupsamn-
ingum og afsölum um leið og
þau eru lögð inn til þinglýsing-
ar. Ef kaupsamningi er þing-
lýst, þarf ekki að greiða stimpil-
gjald af afsalinu. Stimpilgjald
kaupsamnings eða afsals er
0,4% af fasteignamati húss og
lóðar, þ. e. 4.000 kr. af hverri
milljón.
■ SKULDABRÉF - Stimpil-
gjald skuldabréfa er 1,5% af
höfuðstóli (heildarupphæð)
bréfanna eða 1.500 kr. af hverj-
um 100.000 kr. Kaupandi greið-
ir þinglýsingar- og stimpilgjald
útgefinna skuldabréfa vegna
kaupanna, en seljandi lætur
þinglýsa bréfunum.
■ STIMPILSEKTIR - Stimp-
ilskyld skjöl, sem ekki eru
stimpluð innan 2ja mánaða frá
útgáfudegi, fá á sig stimpilsekt.
Hún er 10% af stimpilgjaldi fyr-
ir hveija byijaða viku. Sektin
fer þó aldrei yfir 50%.
■ SKIPULAGSGJALD -
Skipulagsgjald er greitt af ný-
reistum húsum. Af hverri bygg-
ingu, sem reist er, skal greiða
3 %o (þrjú pro mille) í eitt sinn
af brunabótavirðingu hverrar
húseignar. Nýbygging telst
hvert nýreist hús, sem virt er
til brunabóta svo og viðbygging-
ar við eldri hús, ef virðingarverð
hinnar nýju viðbyggingar nem-
ur 1/5 af verði eldra hússins.
Þetta á einnig við um endurbæt-
ur, sem hækka brunabótavirð-
ingu um 1/5.