Morgunblaðið - 19.11.1995, Side 10
10 B SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR
Hverjar verbajólamyndir kvikmyndahúsannaf
ÍSLENSK jólamynd;Mar-
ía Ellingsen og Baltasar
Kormákur fara með aðal-
hlutverkin í Agnesi en
hér eru þau á töku-
ÍSLENSKT tal; úr „Pocahontas."
Agnes og fíond
UM ÞETTA leyti á hveiju ári er Ijóst orðið hveijar verða
jólamyndir kvikmyndahúsanna í Reykjavík og er úrvalið
kræsilegra nú en oft áður. Ein íslensk jólamynd, Agnes
í leikstjórn Egils Eðvarðssonar, verður að öllum líkindum
frumsýnd í bæði Laugarásbíói og Stjörnubíói á annan í
jólum, James Bond verður í jólaham frá og með 15.
desember og Disney teiknimyndin „Pocahontas" verður
frumsýnd með íslensku tali á annan í jólum svo fátt eitt
sé nefnt.
Agnes er með Maríu
Ellingsen og Baltasar
Kormáki í aðalhlutverkum
og rekur atburði þá sem
leiddu til síðustu opinberu
aftökunn-
ar á ís-
landi.
María
leikur titil-
hlutverkið
en Baltas-
eftir Arnald ar leikur
Indriðoson Natan
Ketilsson.
Snorri Þórisson er fram-
leiðandi og kvikmynda-
tökumaður en síðast þegar
hann og Egill unnu saman
að bíómynd gerðu þeir sál-
fræðitryllinn Húsið. Það
var árið 1983. Handritið
skrifa Jón Ásgeir Hreins-
son og Snorri.
„Goldeneye", nýjasta
Bondmyndin, verður
bæði í Sambíóun-
um og Háskóla-
bíói. Fæðing
hennar hefur ver-
ið óvenju stremb-
in. Sex ár eru síð-
an Timothy Dal-
ton lék síðast
njósnara hennar
hátignar en nú er
Pierce Brosnan tekinn
við hlutverkinu og
ætti að geta haldið
því einhver ár
enn. Kalda
stríðinu er
lokið en samt
er hægt að
finna þijóta í
Rússlandi
sem búa yfir
Bond;
Brosnan í
hlutverki
njosnara
hennar há-
tignar.
stórkostlegum glæpa-
áformum.
Önnur stórmynd Sam-
bíóanna um jólin er teikni-
myndin „Pocahontas". Hún
er ijórða Disneymyndin
sem Sambíóin talsetja á
eftir Aladdín, Konungi
ljónanna og Hundalífi en
með aðalhlutverkin í ís-
lensku útgáfunni fara
Hilmir Snær Guðnason og
Valgerður Guðnadóttir.
Leikstjóri er Örn Árnason.
Myndin verður einnig sýnd
með ensku tali og íslensk-
um texta.
Nýjasta gamanmynd
Hugh Grants, Níu mánuð-
ir, verður aðaljóiamynd
Regnbogans. Hún er byggð
á franski mynd með sama
nafni en amerísku útgáf-
una gerir Chris Columbus,
sem áður leikstýrði Aleinn
heima myndunum. Níu
mánuðir segir frá ungum
manni sem stendur frammi
fyrir því að skuldbinda sig
fyrir . lífstíð. Myndin var
frumsýnd vestra í kjölfar
stefnumóts Grants við
gleðikonu í Los Angeles en
það hafði aðeins góð áhrif
á aðsóknina.
Aðrar jólamyndir verða
m.a. gamanmyndin „Santa
Clause“ með Tim Áilen í
Sambíóunum, „Carringt-
on“ og franska myndin
„Farinelli" í Háskólabíói og
tölvuleikjamyndin „Mortal
Kombat" í Laugarásbíói.
Ævintýramyndin „The
Indian in the Cupboard"
verður sýnd í Stjörnubíói
en hún er um ungan dreng
og lítinn plastindjána sem
vaknar til lífsins og munu
tæknibrellurnar í henni
vera mjög góðar.
Áramótamyndir njóta
sívaxandi vinsælda og bíó-
in hafa undanfarin misseri
lagt áherslu á að bjóða
uppá sérstakar myndir um
áraskiptin. í Sambíóunum
má búast við framhalds-
myndinni „Ace Ventura 2“
með Jim Carrey eða „Ass-
assin“ með Sly Stallone og
í Háskólabíói er jafnvel von
á „Strange Days“ um ára-
mótin enda sannkölluð ára-
mótamynd.
Nautn sýnd í
Sambíóunum
NÝ ÍSLENSK stuttmynd
hefur verið frumsýnd
í Sambíóunum og er sýnd á
undan bandarísku gaman-
myndinni „Mad Love“. Hún
heitir Nautn og er framleidd
af fyrirtæki sem kallast Kjól
og Anderson.
Eigendur þess, Sigurður
Kjartansson og Stefán Árni
Þorgeirsson, eru höfundar
myndarinnar og þriðji eig-
andinn, Baldur Stefánsson,
er framleiðandi. Með aðal-
hlutverkin fara Daníel Ág-
úst, Emilíana Torrini,
Magnús Jónsson, Heiðrún
Anna Bjömsdóttir, Hafdís
Huld og Kjartan Guðjóns-
son.
Myndin er rúmlega 15
mínútur að lengd og fjallar
um ástfangið par í Reykja-
vík, Hlyn og Hlín. „Þetta
er friðelskandi fólk, sam-
rýnt og samheldið og það
ólfsdóttir fór á kostum, til
Skýjahallarinnar með Kára
Gunnarssyni og Társ úr
steini með Bergþóru Ara-
BENJAMÍN dúfa eftir dóttur og nú sfðast Benjamín
Gísla Snæ Erlingsson dúfu þar sem fjórir ungir
undirstrikar það sem komið strákar bera uppi söguna.
hefur í Ijós undanfarin miss- Sturla Sighvatsson, Gunn-
eri að íslenskir barnaleikarar ar Atli Cauthery, Sigfús
geta skapað eftirminnilegar Sturluson og Hjörleifur
persónur undir styrkri stjórn Bjömsson leika söguhetjur
og em fengur íslenskum bíó- myndarinnar sem stofna
myndum. Þær hafa að tals- riddarareglu Rauða drekans.
verðu ieyti snúist um börn í Allir standa þeir sig frábær-
stómm og litlum hlutverkum lega vel og það er ekki síst
allt frá Svo á jörðu sem á þeim að þakka hversu vel
himni, þar sem Álfrún Örn- myndin er heppnuð.
ÍBÍÓ
ÍSLENSK stuttmynd;
úr Nautn.
kemur við kaunin á mörgum
sem verða á vegi þeirra. Við
skyggnumst inn í líf þeirra
eina helgi og sjáum hvernig
samferðafólk þeirra verður
úti í þeim samskiptum,"
sagði Sigurður í samtali við
Morgunblaðið. „Ástin er
aldrei langt undan hjá Kjól
og Anderson sama hvað
þeir taka sér fyrir hendur."
MBreski leikstjórinn Mich-
ael Lindsay- Hogg, sem
eitt sinn gerði sjónvarps-
þættina „Brideshead Re-
visited“, hefur lokið við
mynd sem heitir „Frankie
Starlight“ og er með Matt
Dillon og Anne Parillaud
í aðalhlutverkum ásamt
Gabriel Byrne. Myndin
segir af ungum syni Pa-
■ rilláud sem skrifar bók um
víðáttur geimsins og er
strax tekið sem undrabarni.
MNýjasta mynd féiaganna
Woody Harrelsons og
Wesley Snipes, „Money
Train“ eða Peningalestin,
er frumsýnd vestra í þess-
um mánuði. Leikstjóri er
Joseph Ruben (Stjúpfað-
irinn) en myndín greinir
frá tveimur löggum í New
York sem taka uppá því
að ræna peningasendingu.
Síðast léku leikaramir
saman í körfuboltamynd-
inni Hvítir geta ekki troð-
ið, sællar minningar.
MEinhver besta mynd um
upphaf eyðniplágvnnar
sem gerð hefur verið heitir
„Longtime Companions“.
Leikstjóri hennar, Norman
René, og handritshöfund-
ur, Craig Lucas, hafa sent
frá sér nýja mynd með Miu
Farrow í aðalhlutverki og
er það þriðja myndin sem
hún leikur í frá skilnaðin-
um við Woody Allen. Hún
heitir „Reckless" og er
gamanmynd um mann sem
játar fyrir konu sinni að
hafa ráðið leigumorðingja
til að myrða hana.
séð Vatnaveröld Kevin
Costners og 5.000 höfðu séð
gamanmyndina Glórulaus.
Næstu myndir Háskóla-
bíós em „The War“ með
Costner, fyrsta desember
frumsýnir bíóið „Innocent
Lies“ með Steven Dorf og
verður framleiðandinn, Sim-
on Perry, viðstaddur frum-
sýninguna og svo kemur
nýja Bondmyndin, „Golde-
neye“, 15. desember og
verður einnig í Sambíóun-
um. Aðrar myndir sem
sýndar verða um jólaleytið
í Háskólabíói eru „Farin-
elli“, „Carrington“ og „The
Priest".
Framtíðartryllirinn
„Strange Days“ verður að
líkindum áramótamynd
bíósins en „The American
President" kemur einnig
fljótlega í janúar.
Brandarakarlar í Bretlandi
FUÓTLEGA í janúar; Michael Douglas
í „The American President".
22.000 höfðu
séð Apollo 13
ALLS höfðu um 22.000 Tom Hanks í aðalhlutverki
manns séð geimferða- eftir síðustu helgi.
myndina Apollo 13 með Þá höfðu 22.000 manns
FYRSTA kvöld Tommys sem skemmtikraftur
eða'brandarakarl í Las Vegas er alger hörm-
ung. Hann er niðurlægður á sviðinu fyrir framan
föður sinn, þjóðkunnan skemmtikraft, og í kjölfar-
ið flýr hann yfir hafið til Bretlands eða nánar
tiltekið Blackpool. Þar er hann fæddur og hann
hyggst byggja feril sinn upp að nýju á þeim slóð-
um.
Þannig er sagan í nýjustu mynd Peter Chei-
som, „Funny Bones“ eða Brandarakarlar sem
gerð er í samvinnu Breta og Bandaríkjamanna.
Chelsom, sem síðast gerði „Hear My Song“, hef-
ur hlotið lof gagnrýnenda fyrir myndina og brand-
ararnir í henni þykja með mestu ágætum. Oliver
Platt fer með hlutverk Tommys en grínkóngurinn
Jerry Lewis leikur föður hans. Oliver Reed fer
einnig með lítið hlutverk.
FYNDINN; Oliver
Platt í „Funny Bones“.