Morgunblaðið - 19.11.1995, Síða 22
22 B SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIN N U A UGL YSINGAR
Kvöld- og helgar-
vinna
Okkur vantar sölufólk í kvöld- og helgarvinnu.
Upplýsingar í síma 562 3550 frá kl. 18.30-
22.00 mánudaga og þriðjudaga.
Lyfjakynnir
Óskum eftir að ráða til starfa lyfjafræðing,
hjúkrunarfræðing eða starfskraft með
menntun og reynslu á heilbrigðissviði.
Um er að ræða lyfjakynnisstarf fyrir danska
fyrirtækið NOVO NORDISK. Helstu lyfin sem
framleidd eru hjá Novo Nordisk eru á sviði
innkirtlafræði, ýmis hormónalyf ásamt tauga-
. og geðlyfjum.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, skal senda til:
Pharmaco
Hörgatúni 2, 210 Garðabæ
og þurfa þær að berast í síðasta lagi föstu-
daginn 17. nóvember.
Forstöðumaður
Sýslusafns Austur-Skaftafellssýslu
Laus er staða forstöðumanns Sýslusafns
Austur-Skaftafellssýslu á Hornafirði frá 1.
janúar 1996 nk.
Sýslusafnið skiptist í bæjar- og héraðsbóka-
safn, héraðsskjalasafn, byggðasafn, lista-
safn og náttúrugripasafn. í starfinu felst
áætlunargerð og dagleg stjórnun stofnunar-
innar. Einnig umsjón með útgáfu ársritsins
Skaftfellings og fleira.
Forstöðumaður Sýslusafnsins er jafnframt
starfsmaður Menningarmálanefndar Austur-
Skaftafellssýslu.
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingi með
háskólapróf í bókasafnsfræði, sagnfræði eða
skyldum greinum.
Nánari upplýsingar veita Sturlaugur Þor-
steinsson, framkvæmdastjóri Sýslunefndar
Austur-Skaftafellssýslu, í síma 478 1500 og
Gísli Sverrir Árnason, forstöðumaður Sýslu-
safns Austur-Skaftafellssýslu, í síma
478 1850.
F.h. Sýslunefndar,
Sturlaugur Þorsteinsson.
Byggingar-
verkfræðingur
Opinbert fyrirtæki óskar að ráða byggingar-
verkfræðing til starfa.
Starfið
Áætlanagerð, undirbúningur og umsjón með
framkvæmdum.
Hæfniskröfur
Leitað er að sjálfstæðum og skipulögðum
einstaklingi með góða samstarfshæfileika
sem hefur tileinkað sér vönduð vinnubrögð.
Tungumálaþekking nauðsynleg.
Hér er um að ræða gott framtíðarstarf í
góðu starfsumhverfi.
Nýútskrifaðir byggingarverkfræðingar
koma sterklega til greina.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Auður
Bjarnadóttir frá kl. 9 til 12.
Vinsamlegast sendið umsóknir til Ráðgarðs
hf. merktar: „Byggingarverkfræðingur" fyrir
25. nóvember nk.
RÁÐGARÐURhf
SnjÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
FURUGERÐI 5 108 REYKJAVÍK 0 533 1800
Endurskoðun
Óskum eftir að ráða viðskiptafræðing af end-
urskoðunarsviði til starfa á skrifstofu okkar
á Akureyri.
Starfið felur m.a. í sér vinnu við endurskoðun,
bókhald og skattamál félaga og einstaklinga.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Þórir
Ólafsson, löggiltur endurskoðandi,
sími 462 5609, Akureyri.
Umsóknir sendist skrifstofunni, Geislagötu 12,
Akureyri, fyrir 27. nóvember.
Endurskoðunarmiðstöðin
Coopers & Lybrand hf
Löggiltir endurskoöendur
Frá Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkurumdæmis
Vegna forfalla vantar kennara í eftirtalda
skóla:
Húsaskóla: Tónmenntakennara í 60% starf
og frá 1. desember alm. kennara út skólaár-
ið (enskukennsla á unglingastigi og yngri
barna kennsla 1/1 staða).
Árbæjarskóla: Handmenntakennara (saumar).
Breiðagerðisskóla: íþróttakennara og alm.
kennara (11 ára börn).
Hamraskóla: Alm. kennara (unglingastig).
Hólabrekkuskóla: Kennara í stærðfræði
(1/1 staða).
Nánari upplýsingar veita skólastjórar
viðkomandi skóla.
Reykjavík, 17. nóvember 1995.
Fræðslustjóri Reykjavíkurumdæmis.
Vörustjórnun
Leiðandi íslenskt iðnfyrirtæki í matvælaiðn-
aði óskar eftir að ráða vöruferilstjóra
(Logistics-manager).
Starfið felst í stjórnun og framtíðarskipulagn-
ingu á heildarvöruflæði fyrirtækisins; það er
samhæfing innkaupa.framleiðslu, lagerhalds
og dreifingar ásamt samskiptum við innlenda
og erlenda birgja.
Leitað er að vel menntuðum einstaklingi með
rekstrarverkfræðilega menntun eða sam-
bærilega. Starfið krefst haldgóðrar þekkingar
á rekstrar- og vörustjórnun.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
afgreiðslu Mbl., merktar: „N - 1350“, fyrir
1. desember. Farið verður með allar umsókn-
ir sem trúnaðarmál.
Töl vu na rf ræði ng u r
- verkfræðingur
Laust er til umsóknar starf tölvunarfræð-
ings/verkfræðings við tölvudeild Flugmála-
stjórnar. Starfssvið er hugbúnaðargerð, við-
hald og umsjón með tölvukerfum stofnunar-
innar. Aðallega er um að ræða vinnu við
rauntímakerfi notuð við flugumferðastjórn.
í umsókn skal greint fá reynslu og þekkingu
á sviði stýrikerfa, forritunarmála, samskipta-
staðla og netkerfa. Góð enskukunnátta er
skilyrði fyrir ráðningu.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist Flugmála-
stjórn fyrir 1. desember 1995.
Nánari upplýsingar eru í síma 569 4206.
Flugmálastjórn.
Kennari
Kennara vantar við Grunnskólann á Raufar-
höfn frá og með 1. janúar.
Kennslugreinar: Stærðfræði í 6.-10. bekk,
kristnifræði og samfélagsfræði í 1 .-10. bekk.
Niðurgreidd húsaleiga. Flutningsstyrkur
greiddur.
Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 465 1241
og 465 1225.
MENNTASKOLINN
í KÓPAVOGI
Frá Mennta-
skólanum í Kópavogi
Menntaskólinn í Kópavogi auglýsir stöðu
kennara í viðskiptagreinum (bókfærslu og
hagfræði) á vorönn. Einnig 14 stundir í tölvu-
fræði og 12 stundir í þýsku.
Umsóknarfrestur er til 30. nóvember.
Nánari upplýsingar veitir skólameistari
í síma 554 3861.
Skólameistari.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Síðumúla 39-108 Reykjavík - Sími: 588-8500 - Fax: 568-6270
Hefur þú áhuga á að
vinna með börnum
eða unglingum?
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar óskar
eftir að ráða fólk sem hefur áhuga á mannleg-
um samskiptum til starfa við eftirfarandi
verkefni:
Tilsjónarmaður/persónulegur ráðgjafi
Um er að ræða hlutastarf sem felur í sér að
hafa tilsjón með börnum og unglingum 20-40
tíma á mánuði. Starfið felur í sér stuðnings-
hlutverk við barn eða foreldra (skv. 21. gr.
laga nr. 58/1992 um vernd barna og ungl-
inga) og fer vinnan fram bæði utan og innan
heimilis barnsins.
Leitað er að fólki með áhuga á málefnum
barna og er æskilegur aldur umsækjenda
25 ára og eldri. Lágmarksaldur umsækjenda
er 20 ár.
Nánari upplýsingar veitir Harpa Sigfúsdóttir,
féiagsráðgjafi í fjölskyldudeild Félagsmála-
stofnunar, í síma 588 8500.
ISAL
Tölvunarfræðingur
- verkfræðingur
Óskum eftir að ráða tölvunarfræðing eða
verkfræðing með reynslu í tölvumálum til
vinnu í steypuskála til 2 ára. Starfið felst í
umsjón með tölvukerfum og þróun fram-
leiðsluforskrifta í steypuskála. Um er að
ræða fjölbreytilegt starf sem snertir bæði
tölvur og rekstur.
Nánari upplýsingar veitir Björn Jónsson í
steypuskála í síma 560 7000 alla virka daga
frá kl. 11.00-12.00.
Umsóknir óskast sendar til ISAL, pósthólf
244, 222 Hafnarfjörður, eigi síðar en
30. nóvember 1995.
Umsóknareyðublöð fást hjá Bókaverslun
Eymundssonar, Austurstræti, Mjódd og
Kringlunni, Reykjavík, og Bókabúð Olivers
Steins, Hafnarfirði.
íslenska álfélagið hf.