Morgunblaðið - 03.12.1995, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 03.12.1995, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1995 B 9 HEFNDIR OG HUGREKKI Hugleiðing um Heiðarvígasögu eftir Örlyg Siguijónsson ORÐTAKIÐ „að launa einhveijum lambið gráa“ er vafalítið eitt þeirra orðtaka sem mest er í notkun í íslensku nútímamáli. Upphaf- ið má rekja til Heiðarvigasögu, sem talin er vera rituð um miðja 13. öld. Að mati Bjarna Guðnasonar prófessors mun sagan vera rit- uð af kennimanni í þeim tilgangi að lægja ófriðaröldur Sturlungaald- ar í guðs nafni. ristin og heiðin gildi takast á í Heiðar- vígasögu, annars vegar með fyrir- gefningu að leiðar- ljósi og hins vegar hefnd og víga- ferli. í upphafi sögunnar segir af bræðrunum Vermundi og Styr, sem nefndur er Víga- Styr. Vermundur fær berserki tvo að gjöf, sem reynast honum full erfiðir í rekstri vegna skapsmuna þeirra og fyrirferð- ar. Vermundur fær því bróður sinn til að þiggja þá að gjöf því hann telur víst að berserkirnir muni betur þrifast hjá þeim manni sem ærin verk hafa handa slík- um bolum. Verkin þau felast fyrst og fremst í mannvígum og þar sem Víga-Styr á sökótt við ýmsa sveitunga sína tekur hann við berserkjunum og Vermundur andar léttar. Ber- serkirnir kætast harla yfir vist- inni þjá Víga-Styr, einkum er þeir fá verkefni við hæfi, en það er að taka hús á Þorbirni nokkr- um kjálka að næturlagi og drepa hann. Það er ekki að ósekju sem les- endur fyllast fyrirlitningu á Styr þegar hann ríður með berserkina til þessa verks, því hann heldur sér til hlés þar til Þorbjöm er orðinn vígamóður og lítt skaðleg- ur. Styr heggur Þorbjörn svo banahögg með lítilli fyrirhöfn án þess að leggja sjálfan sig í hættu. Slikar em aðferðir Styrs og Ijóst að engin hetja er hér á ferð held- ur fyrirlitleg og andfélagsleg skepna. Yfirgangur Styrs vex og hann gengur um hér- uð, myrðandi á báðar hendur og bætir eng- in manntjón. Lög ná ekki yfir hann þar sem hann nýtur fullt- ingis ríkra manna og mága, svo fáir þora að veita honum mót- spyrnu. Til sögunnar er nefndur Þórhalli á Jörva sem skýtur skjólshúsi yfir Einar nokkurn, sem er á flótta undan Styr. Um síðir nær Styr til Einars og drepur hann, en skikkar Þór- halla til að veita sér beina hve- nær sem er í refsingarskyni fyr- ir að aðstoða Einar. Að lokum ofbýður Þórhalla yfirgangur Styre svo mjög að hann hyggur á búferlaflutninga en er eltur uppi af Styr og mönnum hans og lætur lífið í hetjulegri vörn við ofurefli. Grípum nú niður í framhaldið hér til hliðar þar sem segir frá Gesti, syni Þórhalla og merkilegri viðureign hans við föðurbana sinn: Örlygur Siguijónsson að leynir sér ekki að viðureign hins pasturslitla Gests og ójafnaðar- mannsins Styrs, minnir lesendur á að með hug- rekkið að vopni auðnast mönnum að sigrast á ýmsum hindrunum, þó torsótt virðist í fyrstu. Hugrekkið hefur verið mik- ilsmetin dygð í vestrænni sið- fræði allt frá dögum forn- grísku heimspekinganna. Ef við föllumst á þá túlkun, að samskipti Gests og Styrs eigi sér skírskotun til baráttu góðs og ills, eða kristni og heiðni með andstæðum gildum, hvernig getur þá Gestur verið sannverðugur fulltrúi kristn- innar ef hann brýtur fimmta boðorðið sem lýtur að banni við manndrápum? Kennir þessi sögukafli lesendum það að sá sem drepur mann eigi aðdáun skilda fyrir hugrekki? Samræmist það ekki frekar kristnum siðaboðskap að fyr- irgefa óvinum? í þessu tilliti má gefa gaum að tilgangi sið- legrar breytni. Undantekn- ingar frá ströngustu siðaregl- um eru forsvaranlegar því aðeins að markmið með þeim séu nægilega háleit. í þessu samhengi má benda á að þótt Platón í Ríkinu viðurkenni Iygi fráleitt sem dygð heldur hann því fram að stjórnend- um ríkisins leyfist að segja ósatt því aðeins að það sé í þágu ríkisins. Undantekning- ar frá fimmta boðorðinu „Þú skalt ekki mann deyða“ eru á svipaðan hátt réttlætanleg- ar ef þær eru í þágu lands og lýðs. Sum manndráp eru guði þóknanleg eins og þegar Davíð drap Golíat. Það er því ekki ósennilegt að viðureign þeirra Gests og Styrs sé af- sprengi sögu Davíðs og Gol- íats, eins og Bjarni Guðnason prófessor hefur fyrir satt í riti sínu „Túlkun Heiðarvíga- sögu“. Að gera undantekningar Þórhalli lét tvö börn eftirsig. Hét annað Gesturen annað Áslaug. Voru þau bæði ung þá faðirþeirra var veginn. Varð þvíeigi að eftirmálum oglíða nú svo tímar. Gestur var smár vexti og seinþroska og þóttiþvímönnum lítil þreks von að honum. Kom nú sá bóndi aðJörva sem Þorleikur hét oghélt hann samt uppigistingu við Styr. Óx þar Gestur upp með honum. Eftir nokkur misseri ber svo við að bænd- ur tveir í Borgarfirði sunnan Hvítár verða missáttir af hestagöngu. Hét annarHalIdór er bjó á Fetjubakka. Hinn hét Höskuldur erbjó á næsta bæ. Hestar Halldórs gengu oft íhögum Höskuldar. Og eitt sinn er þeir höfðu gjört þarnokkurn usla varð Höskuld- ur afar reiður og hljóp heim á bæ Halldórs og illyrtist við hann. Var við sjálft búiðþeir myndu berjast en Höskuldur drepa hestana því þeir gengju sér til óhelgis. Styr varmíkill vinur Halldórs. Hann skaut þessu máli undir hans gjörð og því sam- þykktist hinn. Sendir Halldór boð vestur Styr vin sínum um haustið að semja þessa deilu þeirra á millum. Styrsegist koma vilja en verða þó að bíða þess að vatnavextir minnki ogísa leggi. Ferhann nú að heiman um veturnætur. Fylgir honum Þorsteinn sonur hans sem þá var fullorðinn að aldri ognokkru menn fleiri. Gistir hann á Jörva sem hann varfyrri vanurþáhann fersuður um. Tekur Þorleikur vel viðhonum ogyfír borðum mælti hann: „Það virðist mönnum aðþú hafir fyrir litlar sakir vegið Þórhalla. Stóð hann þér jafnan fyrirkosti og vissu allir að sú sök erþú felldir á hann var af einfeldni hans en engri tilverknan. Nú eru börn hans ung og munaðarlaus eftir. Væri því höfðingsskapur að hugga þau ínokkru. “ Styrsegist vilja sjá sveininn. Erhann nú leiddur fyrir Styr og líst honum sveinninn smár í augum sér og óvænlegur til hefnda. Styr mælti: „Eigi hefeg bætt víg mín hingað til dags og verður það nú hið fyrsta sinn sem egþað gjöri. í sumar sögðu grið- konur mínar þar véra hrútlamb eitt, grátt að lit, ullarrýjað, er eigi vildi þrífast. Nú sýnist mér það rétt á komið að sveinn þessi hafi lambið í föðurgjöldin en eigi mun hann frekara þurfa afmérfá. “ Þorleikur mælti: „Þetta er hvorki góð- mannlega né höfðinglega mælt oghefði eg annarra orða vænt afþér. Ersveininum lít- il huggun íþessum svörum. “ Styr biður hann aðþegja og segir honum muni hentast að skipta sér ekki afþessu. Muni svo hljóta að standa sem hann mælt hefur. Þorleiki þykir ráðlegast að fella þessa ræðu. [...]. 9. Gestur situr nú hugsi um sittmál. Var hann lítill að vexti og frár á fæti. Geymdi hann fjár fóstra síns. Dagþann er von var Styrs sat hann að fé og skefti öxi sína. Varð þá sá viðburður að blóðdropar nokkrir féllu á skaftið. Hann kvaðþá vísu. Kemur hann heim síðan og hittir systur sína úti og segirhenni frá. Hún segir sérþyki líkast að einhverjum tíðindum gegni og vildi hún þaðkæmi niður í maklegum stað. Hann kvað enn vísu. Þá þau eru þetta að mæla ber þarmenn aðgarði. Eru það Styr og fylgdarmenn hans. Höfðu þeir vöknað íHítará en Styrhafði skúaðan hest og var þvíeigi votur. Frost var um daginn. Varþeim beini gjörður, dregnar af þeim brækur og skóklæði og kyndur eldur upp. Styr sat við eldinn. Þar hafði veriðhöfð soðning um daginn ogstóðu hitukatlar utar á gólfínu sem soð varí. Ás- laug systir Gests rekur þar í brækurnar og ber út á vegg. Eldahúsið varsvo lagað að handraðar voru innan veggja svo ganga mátti á milli þeirra og veggjanna á baki mönnum. Tvær dyr voru á húsinu. Lágu aðrar út og voru það laundyr. Förunautar Styrs segja að sparaður sé eldiviðurinn. Hleypur Gestur út ogsópar saman því eldiviðarsorpi sem hann finnur, ber inn fullt fang og kastar öllu á eldinn ogjafnskjótt öðru fangi. Lýsturþá upp mikl- um reyk ogsvælu íhúsin. Hleypur Gestur þá í handraðana kring á bak til við Styr og heggur með öxi af öllu afli íhöfuð honum bak við eyrað hægra megin svo í heila stóð og mælti: „Þar launaði eg þér lambið grá, “ hleypur út laundyrnar og skellirílás. En Styr hnígur fram á eldinn. Hleypur Þorsteinn undir hann ogþá hann sér að hann erhöggvinn til bana og örendur hleyp- ur hann útogþeir allir saman eftir Gesti. Gesturrennur undan allt aðHítará. Áin var rend og rann í streng á milli. En með því Gestur var frár þá stekkur hann yfir ána. Förunautar Styrskomast sumir á miðja Ieið og snúa heim aftur. Þykirþeim illt að etja berum fótum viðklakann en Þorsteinn renn- ur allt að ánni. Stendur Gestur öðrumegln og varnar honum yfir að komast. SérÞor- steinn að fjandmaður sinn stendur hinumeg- in og vofíryfir höfði sér. Erþar vogun til að ráða. Hitt er og hætta að hlaupa áána og snýr við það aftur. frá mikilvægum siðareglum krefst heilbrigðrar dóm- greindar þar sem mat er lagt á afleiðingar þess að aðhafast eða aðhafast ekki. Erindi þessa hluta Heiðarvígasögu við nútímalesendur er því ekki hvað síst fólgið í hvatningu til að skerpa dómgreindina og leggja sjálfstætt mat á hvers kyns aðstæður með mikilvæg- ar reglur, skráðar sem óskráð- ar að leiðarljósi. Menn munu halda áfram að launa hver öðrum lambið gráa, þó vonandi með aðferðum vit- rænnar orðræðu frekar en mannvígum. Megi það verða til að minnast hins hugrakka Gests og hugrakkra hetja á öllum tímum. Höfundur er B.A. í íslensku og heimspeki. S a rn eining eða Frummælendur verða: Margrét Frímannsdóttir, Alþýðubandalagi, Jóhanna Sigurðardóttir, Þjóðvaka, Kristín Ástgeirsdóttir, Kvennalista, Sighvatur Björgvinsson, Alþýðuflokki, Benedikt Davíðsson, ASÍ og Ögmundur Jónasson, BSRB. Fundarstjóri Atli Rúnar Halldórsson. S a m vinna Opinn fundur á vegum Alþýðubandalagsins í Reykjavík með fulltrúum stjórnarandstöðuflokkanna og verkalýðshreyfingarinnar mánudaginn 4. desember kl. 20.30 í Ársal Hótel Sögu. Allir velkomnir. Stjórn ABR.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.