Morgunblaðið - 03.12.1995, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1995 B 11
MAIMNLÍFSSTRAUMAR
ÁN ÞRÖSKULDA/Stafa ekkifordómar afvanþekkinguf
Alþjóðadagurfatlaðra
Innilegar þakkir til ykkar allra, sem glöddu
mig með blómum, skeytum og gjöfum.
Sérstakar þakkir til samstarfsfólks og Ijósmœðr-
anna sem gerðu 29. nóvember mér ógleyman-
legan.
Jóhanna Hrafnfjörð.
ALÞJÓÐADAGUR fatlaðra haldinn hátíðlegnr í Háskólabíói.
ÖLL höfum við einhveija for-
dóma, missterka og á ólíkum svið-
um. Kynþáttfordómar eru aðeins
brot af qllum þeim fordómum sem
okkur hrjá. Fordómar gagnvart út-
lendingum, konum, fötluðum eða
gömlum eru nokkrir stórir flokkar.
Við getum líka haft fordóma gegn
hluta af framangreindum hópum,
t.d.: „Æ. þessir Svíar eru svo stíf-
ir“; „þessar kvennréttindakonur,
eru allar gamlar og ljótar," eða:
„Sjá þessa höltu aumingja!"
A
Eg hef stundum velt því fyrir
mér hvort menn setji tröppur
á hús til að hindra hreyfihamlaða
í að fara þar út og inn og hvort
það séu ekki vissir fordómar fólgn-
ir í þvf að hafa
salernisdyr 10 til
20 sm þrengri en
aðrar dyr í íbiíð-
inni. Að ég ekki
tali um þrengslin
sem höfð eru þar
fyrir innan!
Þegar ég finn
að ég hef komið
mér upp einhverjum fordómum,
reyni ég að skoða hug minn og finna
hvers vegna. Undantekningarlaust
hef ég áttað mig á að fordómar
mínir stafa af vanþekkingu á við-
komandi. En því er ekki að neita,
að stundum festist maður í einhverj-
um hugmyndum án þess að gera
sér grein fyrir að um fordóma sé
að ræða. Maður finnur alls konar
rök máli sínu til stuðnings, en
gleymir að skoða hlutina frá sjónar-
hóli þeirra sem standa hinum meg-
in við lækinn.
Nú eru það ferlimál, sem ég er
að ræða hér og því rétt að skoða
hlutina í því ljósi. Hús sem stía •
sundur fjölskyldum og vinum eru
ekki verð þess að kallast híbýli.
Híbýli manna eiga fyrst og fremst
að veita skjól, sameina fólk en ekki
skilja suma eftir úti í kuldanum.
Það er því furðulegt að menn og
konur sem eytt hafa stórum hluta
lífsins í að læra að byggja hús,
skuli ekki geta byggt hús sem henti
ÖLLUM.
Fyrir fáeinum dögum kom ég í
nýtt félagsheimili úti á landi. Planið
var lagt lausamöl og nær útilokað
að komast þar áfram í hjólastól.
Fyrir framan útidyrnar voru tvær
tröppur, en skábraut svo hægt var
að komast að útidyrunum, en þá
tók við hár þröskuldur. Þegar inn
var komið sá ég að gólfið var á
tveim pöllum og skábraut upp á
þann efri, glæsilegt! Hér var líka
salerni ætlað fötluðum, en vantaði
stoðir, auk hinna hefðbundnu karla-
og kvennasalerna. Var þá ekki allt
í þessu fína? - Ekki aldeilis! Nær
allar dyr í húsinu voru ótrúlega
þröngar, eða aðeins um 60-65 sm!
Kunningi minn einn, gjörsamlega
ófatlaður, sagði eitt sinn, að allir
arkitektar og byggingameistarar
ættu, auk hins hefðbundna náms,
að vera eitt ár í hjólastól og vinna
eitt ár í öskunni. Síðan bætti hann
við: „Og svo á að skjóta tíunda
hvern, hinum til viðvörunar." Hér
höfum við eina gerð fordóma og
ekki þá bestu. En er þetta ekki
rökrétt svar við því fálæti og þar
með fordómum sem þessir aðilar
sýna þeim sem ekki hafa fulla
hreyfigetu eða sinna þeim störfum
sem ekki eru hátt skrifuð í þjóðfé-
laginu?
í dag, 3. desember, er alþjóða-
dagur fatlaðra, skipaður af Samein-
uðu þjóðunum. í tilefni af deginum
er Sjálfsbjörg með fjölskylduhátíð
í Háskólabíói kl. 14 og koma þar
fram heimsþektir skemmtikraftar á
íslandi, s.s. Bubbi, KK, Laddi og
þrír Spaugstofufélagar. Þarna verð-
ur fyrirtækjum, sem þess hafa ósk-
að og staðist úttekt, veittar viður-
kenningar fyrir gott aðgengi. Þrenn
verðlaun verða veitt í samkeppni
um leikþætti, sem fjalia um aðgeng-
is- og ferlimál fatlaðra, auk þess
sem þátturinn sem hlýtur fyrstu
verðlaun verður leiklesinn. Þáttur-
inn sem hlýtur önnur verðlaun verð-
ur leiklesinn af félögum úr Leikfé-
lagi Akureyrar á skemmtun í tilefni
af deginum á KEA í dag kl 17.
Háskólabíó er ekki byggt með
tilliti til fatlaða, en hefur verið lag-
fært á margan hátt, sett stólalyfta
r stóra salinn og lagfært aðgengi
að austanverðu. Sviðið er enn mjög
óheppilegt fyrir hreyfíhamlaða, en
hvað er ekki hægt að gera ef viljinn
er fyrir hendi? Areiðanlega verður
haldið áfram að lagfæra húsið, ef
dæma má af áhuga þeirra sem þar
stjórna um þessa mundir.
eftir Guómund
Maqnússon
Kenningar
J~Celga Cf^jeturss
um lífið,
voru langt á undan
samtíma þekkingu
Helgi
Pjeturss
Efþú vilt vita
hvab bera mun hœst
i heimspeki og vísmdindum
á komandi árum,
þá er þetta bókin jýrir þig
Eg þakka af heilum hug alla þá vinsemd, er
mér var sýnd á 75 ára afmœli mínu 21. nóvem-
ber með heimsóknum, simtölum, skeytum og
gjöfum og ekki síst dóttur minni og fölskyldu
hennar fyrir alla fyrirhöfn og veisluhöld
Guð blessi ykkur öll.
Vilborg Guðmundsdóttir,
Hlífll, ísafirði.
Samhjdlp kvenna (j?
Opið hús
Kaffikvöld á aðventu.
Samhjálp kvenna, stuöningshópur kvenna sem farið hafa f aðgerð og/eða
meðferð vegna brjóstakrabbameins, hefur „opið hús’ í Skógarhlfð 8,
húsi Krabbameinsfélagsins, þriðjudaginn 5. des. kl. 20.30.
Gestur kvöldsins: Sr. Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur Ríkisspítala, flytur erindi.
„Lífiö er eins og aðventan."
Kaffiveitingar«Allir velkomnir.
Fæst í öHum helstu hljómplötuverslunum landsins.
’ðaðir silfur- og gullskartgripir.
Ný Iína -frábœrt verð!
THECHAN GE GROUP
THE CHANGE GROUP
ICELAND EHF
HÖFUM OPIÐ 7 DAGA VIKUNNAR
Önnumst allt sem viðkemur almennum
gjaldeyrísskiptum.
Seljum gjaldeyri án þóknunar.
Vinsamlegast pantið til öryggis.
Veríð velkomin!
Gjaldeyrisskiptistöðin
Change Group lceland ehf.,
Upplýsingamiðstöð ferðamála, Bankastræti 2
(Torfunni).
Nánarí upplýsingar veittar í síma 5523735.