Morgunblaðið - 03.12.1995, Blaðsíða 12
12 B SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MENNINGARLÍF íra stendur
með miklum blóma: Þjóð-
skáldið Seamus Heaney
hreppti Nóbelinn fyrir ljóða-
gerð um daginn og kvik-
myndagerð eyjaskeggja hefur
blómstrað meira en annarra
Evrópuþjóða hin síðari ár.
írskar bíómyndir hafa raðað
á sig Óskarsverðlaunum enda
hafa írskir leikstjórar sent frá
sér hvert stórvirkið á fætur
öðru án þess að kosta til þess
miklum ijármunum. Tveir
fremstu leikstjórar írsku upp-
sveiflunnar eru Jim Sheridan,
höfundur Vinstri fótarins og
í nafni föðurins, og Neil Jord-
an, sem vinnur talsvert í
Hollywood en gerir sínar
bestu myndir á heimaslóðum
eins og „The Crying Game“.
Mynda þeirra er beðið með
eftir-
KVIKMYNDIR
væntingu og nú hefur Neil
snúið aftur á heimaslóðir með
nýjasta verki sínu, „Michael
Collins", ævisögulegri mynd
sem er írskari en kartöflur.
TITILL herinar er nafnið á
þjóðhetju íra sem uppi
var á öndverðri öldinni og tók
virkan þátt í sjálfstæðisbar-
áttu þjóðarinnar á miklum
umrótstímum. Bíómynd um
ævi Collins hefur lengi verið
í burðarliðnum í Bandaríkjun-
um og hafa nöfn eins og Kev-
in Costner og Michael Cimino
verið nefnd í tengslum við
slíka framleiðslu en það þurfti
íra til að fá
/Hver var Michael Collins?
Neil Jordan
á heimaslóöum
Eamon Deianey höfundi sög-
unnar „The Casting of Mr.
O’Shaughnessy", sem fjallar
um mann svo gagnteknum
af Collins að hann reynir að
herma allt eftir honum sem
hann gerði. „Margir aðrir á
þessu tímabili voru frem-
ur litlausir, helgi-
slepjulegir, góðir
kaþólikkar, töluðu
alltaf írsku.“
Myndin verður
tilbúin til sýninga
í vor.
eftir Arnald
Indriðason
son, sem er
eins og sjálfskipaður í hlut-
verkið, og Julia Roberts, sem
Ieikur unnustu hans.
Collins fæddist árið 1890
og tók þátt í páskauppreisn-
inni svokölluðu gegn Bretum
árið 1916. Hann varð yfir-
maður njósnadeildar Sinn
Fein og var einn af samn-
ingamönnunum um
sjálfstjóm S-írlands.
Hann var myrtur á
besta aldri, aðeins 31
árs gamall, af nánum sam-
starfsmanni sínum og vini
þótt enn sé þráttað um hver
í raun þrýsti á gikkinn. Hann
var myrtur í uppþotunum sem
fylgdu í kjölfar samnings um
skiptingu N-írlands í norður
og suður milli kaþólikka og
mótmælenda.
Með önnur hlutverk í
myndinni fara Aidan Quinn,
Stephen Rea, sem leik-
ur í flestum myndum
leikstjórans, og Alan
hjólin til að Rickman, sem leikur Eamonn
snúast. De Valera, Bro-
Myndin er oklyn-írann
tekin í Du- sem varð for-
blin og með seti írska lýð-
aðalhlut- veldisins. „Ég vona
verkin fara þeir fari ekki að sýna
Liam Nee- Collins í alltof rómantísku
ljósi,“ er haft eftir írska sagn-
fræðingnum Catherine
Shannon. „Þjóðernisróman-
tíkin í kringum hann er mik-
il, einfaldlega af því hann var
myrtur, það er ágætt skjól í
því. Hver veit hvaða framtíð
hann hefði átt? Það er svona
eins og að spyija hvað gerst
hefði ef Kennedy forseti hefði
lifað.“ Hann virðist hafa. átt
meira sameiginlegt með
Kennedy en dapurleg endalok
„Hann var úngur
myndarlegur og hæfí-
lega kærulaus,“
er haft eftir
rithöfund-
SAGAN
af Coll-
ins; Julia
Roberts
og Liam
Neeson í
„Michael
Collins.“
UNýjasta mynd Dustins
Hoffmans heitir „Am-
erican Buffalo“ og
byggist á samnefndu
ieikriti eftir David Ma-
met. A1 Pacino átti að
leika í myndinni en komst
ekki tii þess. Hún segir
af tveimur smákrimmum
sem hafa í hyggju að
ræna verðmætu mynt-
safni. Leikstjóri er Mic-
hael Corrente.
■Bre.sk/' leikstjórinn
Mike Figgis hefur sent
frá sér nýja mynd með
Nicolas Cage og Elisa-
beth Shue í aðalhlut-
verkum. Hún heitir
„Leaving Las Vegas“
og er byggð á sögu eftir
John O’Brien sem fjallar
um drykkjumann á bar-
flakki í Las Vegas; minnir
nokkuð á Mickey Ro-
urke í Barflugu
Bukowskis.
UÁstralski leikstjórinn
John Duigan gerði síðast
Sírenurnar en hefur nú
lokið við myndina „The
Journey of August
King“ með Jason Patric
og Thandie Newton í
aðaihlutverkum.
ULíklega mun grínleik-
arinn Jim Carrey ieika í
mynd sem ber heitið Tru-
manþátturinn einhvem-
tíma á næstunni. Leik-
stjóri hefur ekki verið
ráðinn en Peter Weir
kemur sterkiega til álita.
Myndin segir af trygg-
ingamanni sem kemst að
því að líf hans er gaman-
þáttur í sjónvarpinu - í
bókstaflegri merkingu.
SÝND á næstunni; Ke-
anu Reeves í „A Walk
in the CIouds“.
25.000
hafa séð
Frelsis-
hetjuna
ALLS hafa um 25.000
manns séð Frelsishetj-
una með Mel Gibson í Regn-
boganum og Háskólabíói.
Þá hafa rúmlega 2.000
manns séð teiknimyndina
Leynivopnið, 6.000 Að yfir-
lögðu ráði og 4.000 myndirn-
ar Ofurgengið og Krakka.
Gamanmyndin Níu
mánuðir með Hugh
Grant er jólamynd bíós-
ins og hefjast sýningar
um miðjan mánuðinn.
Fljótlega á næsta ári
verða svo sýndar myndir
eins og „A Walk in the
Clouds“, „The Scarlett
Letter" með Demi Moore,
„The Neon Bible“, „Journey
of August King“, „City
Hall“ með A1 Pacino
„The Crossing
Guard" með
Jack Nichol-
son og Borg
hinna týndu
barna, svo
fáeinar séu
nefndar.
GUS VAN Sant er
einn athyglisverð-
asti leikstjóri Bandaríkj-
anna en mistækur nokk-
uð eins og sannaðist
rækilega á þeirri mögn-
uðu þvælu „Even Cow-
girls Get the Blues“.
Nýja myndin hans heitir
„To Die For“ og hefur
fengið fína
dóma og dágóða aðsókn.
Með aðalhlutverkin
fara Nicole Kidman,
Matt Dillon og Jaquin
Phoenix, yngri bróðir
Rivers. Handritið gerir
háðfuglinn Buck Henry
en Columbia Pictures
dreifir myndinni
Kidman fær einkar
góða dóma í hlutverki
hortugrar stelpukindar
sem einsetur sér að
verða fræg og beitir
hvaða meðulum sem er
í þeim tilgangi; enginn
er nógu ómerkilegur til
að hún sofi ekki hjá hon-
um til að komast í sviðs-
Ijósið. Matt Dillon þykir
einnig góður í hlutverki
eiginmanns hennar.
Myndin þykir glimrandi
satíra á frægðardraum-
inn og sjónvarpsheiminn
og þykir Gus hafa náð
sér mjög á strik eftir
síðustu mistök.
FRÆGÐARDRAUM-
URINN; Dillon og Kid-
man í „To Die For.“
FANGINN og nunnan;
Penn og Sarandon í
„Dead Man Walking".
Dauður
maður
eftir
Robbins
LEIKARINN og leikstjórinn
Tim Robbins sendir frá sér
nýja mynd í jólamánuðinum
sem heitir „Dead Man Walk-
ing“ og er með eiginkonu
hans, Susan Sarandon, og
Sean Penn í aðaihlutverkum.
Robbins gerði áður pólitísku
ádeiluna „Bob Roberts“ og
leit á timabiií út fyrir að vera
nýr Orson Welles.
Hann skrifar einnig hand-
rit myndarinnar, en Dauður
maður segir af nunnu og
dauðadæmdum fanga. Fang-
inn hefur beðið nunnuna um
að bjarga sér frá því að
lenda í rafmagnsstólnum.
Til að ná fram hinu
_ sanna raunsæi er
myndin tekin eins
og heimildarþátt-
ur fyrir sjónvarp,
sem minnir nokk-
,:;v> uð á frásagnar-
stílinn í „Bob Ro-
I berts“, og sagt er
f að bæði Penn og
| Sarandon sýni frá-
I bæran leik.
ISLENSKA bíómynd-
in Agnes í leikstjórn
Egils Eðvarðssonar
verður jólamynd í ár
og Draumadísir Ásdís-
ar Thoroddsen verður
að líkind.um frumsýnd
fljótlega á næsta ári.
Þar með hafa ekki
færri en átta íslenskar
bíómyndir verið frum-
sýndar á þessu ári. Þær
eru, auk_ þessara
tveggja: Á köldum
klaka eftir Friðrik Þór
Friðriksson, Ein stór
fjölskylda eftir Jóhann
Sigmarsson, Einkalíf
eftir Þráin Bertelsson,
Tár úr steini eftir Hilrn-
ar Oddsson, Nei, er
ekkert svar eftir Jón
Tryggvason og
Benjamín dúfa eftir
Gísla Snæ Erlingsson.
Aldrei áður hafa
jafnmargar íslenskar
bíómyndir verið frum-
sýndar á jafn skömm-
um tíma. Aðsóknin hef-
ur verið æði misjöfn og
þær sjálfar misjafnar
að gæðum en engu að
síður má segja að nú
ríki einstakt blóma-
skeið í ísienskri kvik-
myndagerð, sem á sér
ekki hliðstæðu í annars
fátæklegri kvikmynda-
sögu landsins.