Morgunblaðið - 03.12.1995, Side 14

Morgunblaðið - 03.12.1995, Side 14
14 B SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ URTÓNLIST Ljúfir vorboðar Úlfur, Markús, Ragnar og Magnús. KÓSÝJÓL MEÐAL þeirrra sveita sem einna mesta athygli hafa vakið undanfarin misseri er Unglingahljómsveitin Kósý. Það var því mörgum fagnaðarefni þegar spurðist að væntanleg væri hljómplatan Kósý jól. Unglingahljómsveitin Kósý er skipuð þeim Ulfi, Markúsi, Ragnari og Magnúsi og hefur starfað í rúmt ár. Talsmaður sveitar- innar segir hljómsveitina hafa komið saman í samræmi við þann draum allra ungmenna að stofna hljómsveit „og kom- ast í bransann, verða frægir og fá viðtöl við sig birt opin- berlega. Svo höfum við þessa sérstöku sýn á tónlistina sem virðist falla í kramið. Ég held að það hafi enginn farið grát- andi af tónleikum hjá okkur.“ Kósý hefur leikið á ýmsum sérkennilegum stöðum, „er enda sérkennileg hljómsveit og leikur á sérkennileg hljóð- færi“. Sem dæmi um hug- myndaflug hljómsveitarmeð- lima hélt hún útgáfutónleika sína í Vinabæ og veitingar voru ekki af verri endanum, jólaöl og flatkökur með hangi- kjöti. „Kósý er bæði alþjóðleg og þjóðleg, því við tökum til að mynda lög eftir hann Lennon MacCartney og Vil- hjálm Vilhjálmsson, svo dæmi séu nefnd, segja má að hún sé þjóðlega alþjóðleg." Kósýplötu bar á góma fyr- irvaralítið, að sögn, „við lét- um undan kröfu almennings". Fleiri plötur eru í bígerð, því hljómsveitin hyggst gefa út plötu fyrir hveija árstíð, vor- plötu, sumarplötu og þar fram eftir götunum. BITTE NÚ BORGARDÆTUR kvöddu sér hljóðs með stæl fyrir tveimur árum; sendu frá sér breiðskífu og fóru með hana víða. Nú er önnur skífa þeirra komin út, Bitte nú, og Iíkt og sú fyrri upp full með ís- lenskum útgáfum þekktra laga frá fjórða og fimmta áratugnum. Andrea Gylfadóttir stofn- aði Borgardætur á sín- um tíma og fékk til liðs við sig þær Berglindi Björk Jón- asdóttur og Ellen Kristjáns- dóttur. Hún segir það hafa revnst þjóðráð að bíða með plötu, enda yfrið nóg að gera í kjölfarið. Þegar svo var tími kominn til að taka upp aðra plötu völdu þær stöllur lög á hana með góðum fyrirvara. „Við völdum lög frá svipuð- um tíma og á fyrri plötuna," segir Andrea, en höfundar laganna eru margir helstu dægurlagasmiðir stríðsár- anna. Að lagavalinu loknu j fengu þær Friðrik Erlings- son til að semja íslenska texta við þorra laganna, en textaýiga einnig Ragn- heiður Ásta Pétursdóttir og Einar Thoroddsen, einn texta hvort. Andrea J| segir íslenskunina skipta máli, „landinn vill íslenska texta" segir hún Upptökustjórn og út- setningar voru í höndum Eyþórs Gunnarssonar sem einnig leikur á píanó, en ýmsir aðrir koma við sögu á plöt- unni, þar á meðal gestasöngvarar. Ragnar Bjarnason, Bubbi Morthens og Kristján Kristjáns- son. m KEFLVÍSKA rokk- sveitin Deep Jimi and the Zep Creams tókst hið ómögulega á sínum tíma, komst á samning þjá bandarískri útgáfu og virtust allir vegir færir. Uppúrslitnaði af ýmsum orsökum og sveitarmenn sneru heim til íslands von- ríkari hljómsveitarinnar væri öli, en íyrir skemmstu sendi hún frá sér nýja breiðskífu. Rjómsveitin kemur Lnú fram með nýju nafní og styttra, heitir einfaldlega Deep Jimi, aukinheldur sem tón- listin er frjálsiegri og meíra um tilraunir r að sögn bassa- þá félaga meðal ars hafa tekið sér til að ná áttum e ævintýrið vestan hafs sem hafí vissulega endað með einskonar brotlendingu. „Við byrjuðum svo að æfa í sumar og semja á fullu,“ segir hann „og fríið var því hið besta mál.“ Björn segir að vissu- lega hafí komið til tals að slíta samstarfinu, en nýútkomin piata sanni að það sé töiu- vert eftir í samstarfinu enn, „hljómsveitin er enn að þroskast og þróast. Það var gaman að bytja aftur, okkur líður eins og við séum að byija á núllpunkti, erum miklu frjálsari.“ Af hverju þurfti tvö ár til? Gleðifólk Kristjáns KRISTJÁN Kristjánsson, sem alþjóð þekkir sem KK, komst í fremstu röð íslenskra tónlistarmanna á undraskömmum tíma, sendi frá sér metsöluskíf- ur og tók þátt í að gera Þrúgur reiðínnar að einu umtalaðasta leikverki síð- ustu ára. Á þarsíðasta ári sendi hann frá sér breið- skífuna Hótel Færeyjar, en síðan hefur lítið frá honum heyrst, utan að eitt lag heyrðist nokkuð í útvarpi í sumar. Fyrir skemmstu kom svo út fjórða breiðskífa Krist- jáns, sem heitir Gleðifólk- ið. Kristján segir að hann hafi byrjað á piöt- unni fyrir rúmum tveimur árum, en ekki komist ýkja áleiðis. „Ég var að setja saman plötu án þess að vera með plötu í mér,“ segir hann og kímir. „Þegar kom að því að fara að taka upp var ég einfald- lega ekki með plötu í höndunum að mér fannst og ákvað því, í góðu sam- ráði við útgáfuna, að taka mér lengri tíma.“ Hann segist þó eiga þó nokkuð af lögum sem hann hafí ekki tekið upp að þessu sinni, enda þótti honum þau ekki passa á plötuna. Eyþór Gunnarsson vann plötuna með Kristj- áni, sá um upptökustjórn og útsetningar að mestu Gg Kristján segir að þeirra si.mstarf hafi verið einkar ánægjuiegt. „Það var engin pressa og allt gekk eftir Arna Matthíasson Gleðlmaður Kristján KK Kristjánsson. ljúflega fyrir sig,“ segir hann, en sjálfar upptökur gengu hratt fyrir sig eftir að lagasafnið var tilbúið. Meðal þeirra sem koma við sögu má nefna Ellen Kristjánsdóttur, Gunn- laug Briem, sem sá um trommuleik að mestu, Dan Cassidy fiðluleikara og bassaleikarana Þorleif Guðjónsson, Tómas M. Tómasson og Pálma Gunnarsson. Sérstakur gestur plötunnar er Haf- þór „Súkkat“ Ólafsson, sem á einn texta og syng- ur hann að auki. Athygli vekur að sama iagið er tvívegis á plöt- unni, í eilítið breyttri mynd, og Kristján segir þá skýringu á því að þeir Eyþór hafi ekki getað gert upp við sig hvor út- gáfan væri betri, „og þar sem það er nóg pláss á geisladisknum ákváðum við að láta það fljóta með. Það passar reyndar af- skaplega vel að hafa það nálægt upphafi plötunnar og svo sem síðasta lag.“ Kristján hugðist halda útgáfutónleika í Loftk- astalanum í kvöld, en lenti í bílslysi í Borgarfirði. Þó hann hafi sloppið furðu vel úr þeim hremmingum er ljóst að ekkert verður af frekara tónleikahaldi hjá honum á árinu. OÐSKÚLPTÚRAR ÍRSKA söngkonan Enya er senni- lega ein söluhæsta söngkona rokksögunnar, þó ekki hafi nafn hennar borið eins hátt og margra sem hæst láta. Fyrir skemmstu kom út þriðja breiðskífa henn- ar, The Memory of Trees. ■ynr sjö árum kom út breiðskífan Shep- herd Moons, önnur breiðskífa Enyu, sem hefur selst í átta milljón- um eintaka. Næsta plata kom út 1991 og hef- ur selst í níu milljónum ein- taka, þar af fjórum milljón- um í Bandaríkjunum þar einum, sem platan sat 199 vikur á vinsældalista. Á plötunni nýju nýtur Enya aðstoðar flestra þeirra sömu og unnu með henni hinar fyrri plötur tvær, en þó er hún frábrugðin að því leyti að hún leikur nú sjálf á öll hljóðfæri og söng allar raddir. Tónlistin er fjölradd- aðir hljóðskúlptúrar eins og forðum, með myrka texta og torræða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.