Morgunblaðið - 14.01.1996, Page 1
88 SÍÐUR B/C
ll.TBL. 84.ÁRG.
SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, kom fyrst við á herflugvelli Bandaríkjahers í Aviano á Ítalíu á leið sinni til Bosníu.
Tóku hermenn og fjölskyldur þeirra vel á móti honum og hér er hann með hvítvoðung í fanginu. Vegna mikillar þoku í Tuzla
í Bosníu var næsti áfangastaður Clintons Taszar í Ungverjalandi en þess var beðið, að veðrið batnaði.
Ekkiúr
að aka
EFTIRFARANDI fjarskipti áttu sér
nýlega stað hjá bandaríska sjóhern-
um:
1: Viltu gera svo vel að breyta stefn-
unni um 15 gráður í norður til að
komast hjá árekstri.
2: Ég legg til, að þú breytir ÞINNI
stefnu um 15 gráður í suður til að
komast hjá árekstri.
1: Ég er skipstjóri á bandarísku her-
skipi. Ég endurtek: Breyttu ÞINNI
stefnu.
2: Nei, ég segi enn einu sinni: Breyttu
ÞINNI stefnu.
1: ÉR ER SKIPSTJÓRI Á FLUGMÓÐ-
URSKIPINU ENTERPRISE, STÓRU,
BANDARÍSKU HERSKIPI.
BREYTTU STEFNU ÞINNI TAFAR-
LAUST!
2: Ég er vitavörður. Vertu svo vænn
að breyta stefnunni áður en það verð-
ur um seinan.
Falla frá öll-
um pólitísk-
um kröfum
Moskvu, Pervom^jsk^ja. Reuter.
TSJETSJENSKU skæruliðarnir, sem
halda enn um 100 gíslum í rússneska
sjálfstjórnarlýðveldinu Dagestan,
hafa fallið frá öllum pólitískum kröf-
um ög fara nú fram á það eitt að fá
að komast óhultir aftur til Tsjetsjníju.
Hafa þeir boðist til að sleppa konum
og börnum en konur, sem áttu eigin-
menn í gíslahópnum, kváðust ekki
mundu fara án þeirra.
Viðræður stóðu enn í gær við
skæruliðana en fátt benti til, að nok-
kurrar niðurstöðu væri að vænta.
Fjölmennt, rússneskt herlið hefur
umkringt skæruliðana en þeir hafa
hótað að skjóta gíslana fái þeir ekki
að halda áfram ferðinni til Tsjetsjníju.
Skæruliðarnir hafa nú krafist þess,
að stjórnmálamenn, erlendir blaða-
menn og fulltrúar hjálparstofnana
fari með þeim yfir til Tsjetsjníju til
að öruggt sé, að þeir komist þangað
heilir á húfi. Hafa þeir meðal annars
nefnt þá Alexander Lebed hershöfð-
ingja og Grígory Javlínskíj, leiðtoga
Jabloko-flokksins, en báðir ætla að
gefa kost á sér í forsetakosningunum
í Rússlandi á sumri komanda. Rússar
segja hins vegar, að skæruliðar verði
að sleppa gíslunum án skilyrða.
Borís Jeltsín, forseti Rússlands, er
eins og á milli steins og sleggju í þessu
máli. Hefur hann heitið að gera allt
til að bjarga gíslunum en segir jafn-
framt, að skæruliðunum verði refsað
harðlega.
Bill Clinton í skyndi-
för til Tuzla í Bosníu
Taszar. Reutcr.
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, hélt
áleiðis til Bosníu í gær en varð að lenda á
herflugvelli í Ungveijalandi vegna mikillar
þoku í Tuzla, höfuðstöðvum bandaríska her-
liðsins í Bosníu. Kom ferðin flestum á óvart
enda var ekki greint frá henni fyrirfram af
öryggisástæðum. Staldraði Clinton við í þijár
klukkustundir í Taszar meðan þess var beð-
ið, að þokunni létti í Tuzla, og að því búnu
hélt hann ferðinni áfram.
Clinton kom fyrst til herflugvallar í Aviano
á Italíu en fór þaðan með herflutningaflug-
vél til Tuzla. Hnitaði vélin nokkra hringi yfir
flugvellinum þar en vegna þess hve lágskýjað
var og mikil þoka var horfið þaðan og lent
á gömlum herflugvelli Varsjárbandalagsins í
Taszar í Ungveijalandi. Hefur Bandaríkjaher
afnot af honum nú vegna friðargæslunnar í
Bosníu.
Framlag til friðar
í Taszar ávarpaði Clinton nokkur hundruð
fagnandi hermenn og sagði, að hann vissi,
að þeir væru þjálfaðir til að beijast til sigurs
í stríði og væru öllum fremri í því.
„Nú hafið þið öðru hlutverki að gegna.
Ekki að heyja stríð, heldur að hjálpa fólki,
sem er örmagna eftir margra ára blóðbað,
að halda friðinn. Ykkur mun takast það og
framlag ykkar í Bosníu mun skilja á milli
ófriðar, sem hefst aftur, og friðar, sem nær
að festa rætur,“ sagði Clinton.
Clinton sagði við fréttamenn, að hann
væri ánægður með framkvæmd friðarsamn-
inganna um Bosníu þrátt fyrir sprengjuárás-
ina á sporvagn í Sarajevo og átökin milli
Króata og múslima í Mostar. Með tilliti til
hatursins, sem ríkti milli þjóðarbrotanna,
hefði friðargæslan gengið vel.
Ræðir við Izetbegovic og Tudjman
Fyrirhugað er, að Clinton hitti Alija Izet-
begovic, forseta Bosníu, í Tuzla en þaðan
mun hann halda til Króatíu til viðræðna við
Franjo Tudjman, forseta landsins.
Bandarísku hermennirnir í Taszar fögnuðu
Clinton mjög innilega og hann hitti einnig
ungverska hermenn, þar á meðal Imre Mesz-
tegnyei undirofursta.
„Þetta er hápunkturinn á mínum her-
mennskuferli," sagði Mesztegnyei á eftir.
Stefnulaust
skipulag
orkumála
HVAÐ
FÓSTUR
20
VIDSKIPnAIVINNUIÍF
Á SUNNUDEQl
22
Smáskammtalækningar
hefðu aldrei dugað
EGA
a£éatt
SJÓNDEILDARHRINGINN