Morgunblaðið - 14.01.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.01.1996, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR 112 einstaklingar bíða eftir skurðaðgerð á baki á Landspítala Um tveggja ára bið eftir að komast í aðgerð að óbreyttu HUNDRAÐ og tólf manns bíða nú þess að kom- ast í bakskurðaðgerðir á Landspítala og er bið- tíminn um tvö ár að sögn Halldórs Jónssonar jr., yfirlæknis á bæklunarlækningadeild. í Morg- unblaðinu var fyrir fáeinum dögum rætt við ungan Keflvíking sem beðið hefur í hálft annað ár eftir aðgerð og liðið margvíslegar kvalir af þeim sökum. Um er að ræða spengingu á baki, allt frá hálshrygg, bijósthrygg og lendhrygg. Landspít- alinn getur gert tvær aðgerðir á viku þannig að minnsta kosti þarf heilt ár til að hreinsa upp biðlista, að því tilskildu að enginn bætist við og frídagar og sumarleyfi raski ekki aðgerðafjölda. „Að undanfömu hefur biðtíminn verið tvö ár, því að rétt nýlega erum við famir að geta gert tvær aðgerðir á viku, eða frá því í haust. Frá janúar 1993 gátum við aðeins gert eina aðgerð á viku eða 45 yfir árið,“ segir Halldór. Ástæður þessa eru m.a. að framkvæma þarf aðrar aðgerðir, ekki er til nægilegt aðgerðar- pláss, auk þess sem torvelt er, að sögn Hall- dórs, að krefjast forgangs fyrir þessar aðgerðir umfram aðrar. Hver aðgerð kostar rúmlega 600 þúsund krónur. Aðgerðin mun ódýrari hér „Erlendis kosta þessar aðgerðir þó mun meira, og ég spara hálfa milljón á hveija aðgerð með því að gera hana á Landspítalanum í stað þess að senda sjúklinga til Uppsala þar sem ég starf- aði áður. Fyrir þremur ámm gerði ég aðgerðir á íslendingum þar, og þá var reiknað út að kostnaðurinn næmi einni milljón króna til 1.200 þúsund króna.“ Hann kveðst gera ráð fyrir að Keflvíkingurinn ungi komist f aðgerð í sumar, sem jafngildir tveggja ára bið, en á meðan er hann óvinnufær auk þess sem hann hefur verið undir læknis- hendi vegna þjáninga í baki. Halldór segir að misjafnt sé eftir eðli skaðans hvort aðgerð á baki skili fullkomnum árangri, en margir verði þó nær alheilir eftir. Hægt að stytta listann Halldór segir að til að stytta biðtímann niður í eitt ár þurfi fjárveitingu upp á 25 milljónir króna og hafi þegar verið send tillaga þess efn- is til heilbrigðisráðuneytis. Hann segist halda við þá reglu að röð manna á biðlistum fari eftir því hvenær þeir leituðu eftir aðstoð, og einu undantekningar frá því sé þegar fólk sé í hættu á að lamast enda um bráðatilfelli að ræða. Reynslan undanfarið ár sýnir, að sögn Hall- dórs að núverandi aðgerðafjöldi haldi listanum í horfi, þ.e. einn kemur inn í stað þess sem hverf- ur af lista. „Með því að fá þetta fé helminga ég listann og held honum þannig áfram. Og þótt árs bið sé óforsvaranleg er hún illskárri en tvö ár.“ Morgunblaðið/Sverrir ELDURINN I íbúðinni á Flyðrugranda er talinn hafa komið upp í sófa í stofunni og logaði glatt í honum þegar slökkvilið kom á vettvang. Vel gekk að ráða niðurlögum hans. Talsvert tjón í eldsvoða Tíföldun á verði rækjukvóta VERÐ í heild á varanlegum afla- heimildum hefur farið hækkandi frá því sala á þeim var heimiluð árið 1991. Verð á þorskkvóta hefur t.d. farið úr 180 krónum í um 5Ó0 krónur. Miklar sveiflur hafa verið á verði á leigukvóta. Sem dæmi má nefna að leiguverð á rækjukvóta hefur tífaldast frá árinu 1991. Það hefur farið úr 7 krónum upp í 75 krónur. Leiguverð á ýsu var aftur á móti í 30 krónum árið 1991, en hefur fallið niður í allt að eina krónu í lok fískveiðiára þegar útséð hefur verið um að kvótinn næðist. í byijun þessa fískveiðiárs var verðið 10 krónur, en það hefur hækkað í 12 krónur síðan þá. ■ Verðþróun kvóta/8 -----♦ ♦ ♦----- Fréttatím- um Stöðvar 2 fjölgað STÖÐ 2 vinnur nú að áætlunum um að fjölga útsendingum frétta- tíma og er gert ráð fyrir að stuttir fréttatímar verði sendir út á há- degi, klukkan 16 og 18, auk þess sem fréttaþátturinn 19:19 muni hefjast með yfírliti frétta klukkan 19. Aðalfréttatíminn verður eftir sem áður klukkan 19.30. Magnús E. Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri markaðs- og kynn- ingardeildar Stöðvar 2, segir þess- ar áætlanir enn á undirbúnings- stigi en þær séu liður í lengingu útsendingartíma. Útsendingar á hádegi „Þetta verða ekki ítarlegir fréttatímar, heldur stuttir þættir sem fara yfir það helsta eins og þekkt er víða úr sjónvarpi erlend- is,“ segir hann. „Við hefjum út- sendingar daglega á hádegi frá og með 1. febrúar þannig áð þetta er liður í því að auka þjónustuna." Magnús kveðst gera ráð fyrir að fjárveiting til fréttastofu Stöðv- ar 2 verði aukin, auk þess sem búast megi við fjölgun frétta- manna, en ótímabært sé að skýra ítarlega frá þeirri hlið mála þar sem málið sé enn í vinnslu. ELDUR kom upp í íbúð í fjölbýlis- húsi á Flyðrugranda í gærmorgun. Einn maður var í íbúðinni og var hann fluttur á slysadeild ásamt tveimur nágrönnum og lögreglu- manni, sem höfðu reynt að slökkva eldinn. Þegar slökkvilið kom á staðinn á ellefta tímanum logaði glatt í sófa í stofunni. Vel gekk að slökkva eldinn og tóku slökkviliðs- menn síðan til við að reykræsta. Töluverður reykur var í íbúðinni, reykur hafði komist inn í aðrar íbúðir á jarðhæð og eitthvað upp stigaganginn. Samkvæmt upplýs- ingum slökkviliðs varð töluvert tjón á íbúðinni, þar sem eldurinn kom upp, vegna elds, reyks og sóts. Fjórir á slysadeiid Lögreglan var komin á staðinn á undan slökkviliði og var að reyna að slökkva eldinn ásamt nágrönn- um. íbúinn var kominn út á svalir og var hann þegar fluttur á slysa- deild vegna gruns um reykeitrun. Tveir nágrannar og einn lögreglu- maður voru síðan einnig fluttir á slysadeild. Samkvæmt upplýsingum læknis á slysadeild mun reykeitrunin ekki hafa verið alvarleg. Leigubílstjóri gerði slökkviliði viðvart um eld við Laugaveg 60 í gærmorgun. Þegar slökkviliðið kom á staðinn logaði í mottu fyrir utan húsið og í bfúsa sem í virtist vera eldfímur vökvi. Að sögn varð- stjóra hafði logað það mikið að ytra gler í tvöföldum rúðum var sprungið og einhver reykur hafði komist inn þannig að nauðsynlegt reyndist að reykræsta. Stefnulaust skipu- lag orkumála ► Skipulagsbreytingar í orkumál- um eru ofarlega á baugi eftir að samningar tókust um orkusölu vegna stækkunar álversins í Straumsvík. Iðnaðarráðherra telur skipulag orkumála stefnulaust og borgaryfirvöld hafa óskað eftir við- ræðum við meðeigendur að Lands- virkjun um framtíðarskipulag fyr- irtækisins. /10 flKaf“ kveður Shin Bet ►ísraelar tóku nokkra áhættu með því að ráða af dögum „Verk- fræðinginn", sprengjusérfræðing Hamas-hreyfingarinnar. /12 Hálendið skipulagt ►Fyrstu drög að skipulagningu miðhálendis Islands liggja nú fyr- ir. /18 Hvað dreymir fóstur? ►Brynjar Karlsson eðlisfræðingur er að leggja lokahönd á mælitæki sem veitir upplýsingar um ástand barna í móðurkviði. /20 Smáskammtalækn- ingar dugðu ekki ►í Viðskiptum og atvinnulífi á sunnudegi er rætt við Óskar Þórð- arson, framkvæmdastjóra Skag- strendings, um umskiptin í rekstri fyrirtækisins. /22 B________________________ ► 1-32 Ég á allan sjón- deildarhringinn ►Eyjan Knarrames á Mýrum er heimur út af fyrir sig. Þar er ekki hávaðinn, kröfugerðin eða mengun af breiðstrætum. Þareru ábúend- urnir, Stella og bræður hennar þrír, Eiríkur, Erlendur og Guð- mundur. /1 Hvíti plastkjólinn ►Ung Reykjavíkurmær, Alda Guðjónsdóttir, fékk fyrir nokkru verðlaun fyrir saumaskap sinn. /4 Ljósmyndir Snorra Snorrasonar í 40 ár ► Aila sína tíð hefur Snorri Snorrason, fyrrverandi flugstjóri, verið heillaður af ljósmyndun. Um þessar mundir eru fjörutíu ár síðan Morgunblaðið keypti og birti fyrstu myndina frá Snorra. /12 Duttum í lukkupottinn ►Eftir nær 50 ár í myndlistinni létu Gestur og Rúna langþráðan draum rætast nú í haust. Þau lögðu upp á eigin spýtur i ferð til Japans. /18 BÍLAR ► 1-4 Bílasafn Henry Fords ►í Dearborn þar sem standa bíl.a- verksmiðjur Ford, höfuðstöðvar og tilraunasvæði, er að finna merki- legt safn bíla. /2 Reynsluakstur ► Nýr skutbíll eða langbakur af gerðinni Hyundai Elantra er kynntur þessa helgi hjá Hyundai umboðinu. /4 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Skák 40 Leiðari 26 Fólk (fréttum 42 Helgispjall 26 Bíó/dans 44 Reykjavíkurbréf 26 fþróttir 48 Minningar 30 Útvarp/sjónvarp 49 Myndasögur 38 Dagbók/veður 51 Bréf til blaðsins 38 Gárur 8b Ídag 40 Mannlífsstr. 8b Brids 40 Kvikmyndir lOb Stjörnuspá 40 Dœgurtónlist 12b INNLENDAR FI ÉTTIR: 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-6 Samkomur vegna Súðavíkurslyss SÚÐVÍKINGAR minnast þess á þriðjudag, 16. janúar, að þá verð- ur ár liðið frá snjóflóðinu mann- skæða í Súðavík. Af þessu tilefni verður einnig samkoma í Dóm- kirkjunni kl. 20.30. Blysför og bænastund í Súðavík verður farin blysför frá skólanum og niður á flóða- svæðið þar sem verður stutt bænastund. Tímasetning hefur ekki verið ákveðin. Að kvöldi þriðjudagsins verður helgistund í kirkjunni. Lýs milda ljós Á samkomurtni í Dómkirkjunni verður í tali og tónum minnt á það sem til huggunar hefur orðið á þeim tíma sem liðinn er síðan hinn hörmulegi atburður varð. Dagskránni hefur verið valin yfír- skrift sem sótt er í sálminn Lýs milda ljós eftir sr. Matthías Joch- umsson. Inga Backman sópran, Guðný Guðmundsdóttir fíðluleik- ari, Gunnar Kvaran sellóleikari, Marteinn H. Friðriksson orgelleik- ari og Dómkórinn munu flytja trúarlega tónlist af ýmsu tagi. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson dóm- kirkjuprestur flytur hugleiðingu og sr. Karl Valgarður Matthíasson sóknarprestur flytur ritningarorð og bæn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.