Morgunblaðið - 14.01.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.01.1996, Blaðsíða 18
Fyrstu drög að skipulagningu miðhálendis — —— Islands liggja nú fyrir og um þessar mundir eru héraðsnefndarfulltrúar sveitarfélaga að yfírfara drögin. Ekki þýðir það þó að öllu sé að verða lokið. Tvisvar til viðbótar á eft- ir að sýna ný og endurbætt drög og kynna hagsmunaaðilum. Því næst verður skipulag- ið auglýst og þá geta menn enn gert athuga- semdir. Guðmundur Guðjónsson hitti Stef- án Thors hjá Skipulagi ríkisins á dögunum og fræddist um hvemig mál hafa gengið fyrir sig. SÍÐSUMARS 1997 stendur til að Skipulag ríkisins sendi endanlegt skipulag til staðfestingar umhverf- isráðherra og þá á málið að heita að vera í höfn. En forsaga þessa máls hófst á Alþingi 199Í-92. Þá var lagt fram til laga frumvarp um stjórn skipulags- og bygging- armála á miðhálendi íslands. í frumvarpinu var m.a. stungið upp á því að umhverfisráðherra léti gera tillögu að mörkum hálendis- ins og að skipuð yrði sérstök stjómarnefnd sem færi með um- rædd mál á svæðinu. Frumvarpið fékk óblíðar viðtök- ur. „Þessu var illa tekið,“ segir Stefán Thors, „þingmenn og sveitarstjórnir veltu sér upp úr þessu. Meginmótmælin fólust í því að verið væri að taka hálendið alfarið af sveitarfélögunum, en þau hafa einmitt þennan gamla nýtingarrétt. Einnig var mikið gagnrýnd ímynduð lína sem dreg- in var upp um mörk á milli heima- landa og afrétta. Þessar móttökur urðu til þess að ráðherra, Eiður Guðnason, dró frumvarpið til baka“. Þess í stað var árið 1993 skeytt ákvæði til bráðabirgða við skipu- lagslög 19 frá 1964 sem gerði kleift að mynda sérstaka sam- vinnunefnd til að vinna tillögu að skipulagi miðhálendisins. Sam- kvæmt lögum þessum skipuðu Á KORTINU má sjá fjórþætta skiptingu miðhálendisins sem unnið hefur verið út frá. Afmörkun mibhálendisins vegna svæbaskipulags héraðsnefndirnar sem land eiga að hálendinu, 12 talsins, hver um sig einn fulltrúa, en umhverfisráð- herra lagði til formanninn. Þetta gerði gæfumuninn, því lögin sem fyrir voru veittu öllum sveitarfélögum sem land áttu að hálendinu rétt til að leggja til tvo fulltrúa. Alls eru það 40 sveitarfé- lög og því hefði verið um 80 manna nefnd að ræða og ólíklegt að nefnd af þeirri stærðargráðu gæti nokkru .sinni lokið við jafn flókið og viðkvæmt mál og skipu- lagningu hálendis landsins. I árslok voru héraðsnefndirnar síðan búnar að tilnefna sína menn og ráðherra Snæbjörn Jónsson fyrrverandi vegamáiastjóra til for- mennsku. Ef haldið er aðeins áfram að rekja gang mála, þá var ráðgjaf- ar- og skipulagsvinnan boðin út. Skipulag ríkisins sá um það og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.