Morgunblaðið - 14.01.1996, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 14.01.1996, Blaðsíða 30
. 3.0 SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ BJORG JÓHANNESDÓTTIR + Björg Sigurrós Jóhannesdóttir fæddist á Holta- stöðum í Langadal, Austur-Húnavatns- sýslu, 6. ágúst 1899. Hún lést á Hjúkrun- arheimilinu Skjóli 28. desember síð- astliðinn og fór út- förin fram frá Ás- kirkju 4. janúar. ÁLLT frá upphafi Löngumýrarskóla hef- ur nafn Bjargar Jó- hannesdóttur handa- vinnukennara frá Móbergi í Langadal verið ótjúfanlega tengt þeim stað. Þegar vinkona hennar og samkennari Ingibjörg Jóhanns- dóttir ákvað að stofna húsmæðra- skóla á Löngumýri fylgdi Björg henni frá húsmæðraskólanum á Staðarfelli norður í Skagafjörð. Á Löngumýri kenndi hún handavinnu í 23 ár, og var Ingibjörgu stoð og stytta í öllu starfi. Vinátta þeirra var fágæt. Saman fluttust þær til Reykjavíkur þegar starfi þeirra á Löngumýri lauk 1967. Þær bjuggu sér heimili á Reynimel og uppskáru eins og til var sáð. Nemendur þeirra sýndu þeim ræktarsemi og um- hyggju og gamlir vinir og nýir nutu gestrisni þeirra. Síðustu árin bjuggu þær á Skjóli og báru hag þess heimilis mjög fyrir brjósti. Ég minnist Bjargar fyrst þegar ég kom í heimsókn á Reynimelinn, þessarar kviku eldri konu með bjart bros og mikla þjónustulund. Far- sælum kennsluferli var lokið og heimilisstörf á gestkvæmu heimili nöfðu tekið við. Björg studdi starf- semi Löngumýrarskólans bæði efnalega og andlega. Gott þótti mér ávallt að vita til bæna þeirra vinkvenna fyrir mér og starfinu hér. Björg var létt og kvik á fæti, þar til Elli kerling yfirbugaði krafta hennar, en sinu góða minni, skörpu hugsun og reisn hélt hún fram í andlátið. Síðast sáumst við á aðfangadag. Kraftar hennar voru ekki miklir, en þó fór svo að hún komst með hjálp vina á jólamessuna á Skjóli. Ég veit að það gladdi hana mjög. Meðan ég stóð við snerist hinn sívakandi hugur hennar aðallega um sameiginlega vinkonu okkar sem ekki er alveg heil heilsu. Svona var Björg, alltaf með áhuga fyrir velferð vina sinna. En árin voru orðin mörg og lík- aminn farinn að kröftum. Hún þráði að Iosna úr viðjum hans og fékk þá ósk uppfyllta að hverfa inn í dýrð jólánna hjá þeim Guði sem hún treysti fyrir sér og öllu sínu. Löngumýrarskóii stendur í stórri þakkarskuld við Björgu fyrir öll hennar velunnu störf og gjafir, en þó fyrst og fremst fyrir elsku henn- ar til hans. Guð blessi minningu Bjargar Jóhannesdótt- ur. Margrét K. Jónsdóttir. Þann 28. desember síðastliðinn andaðist gagnmerk kona og góður þjóðfélagsþegn á hjukrunarheimilinu Skjóli. Aldur hennar var orðinn 96 ár og nær 5 mánuðir að auki. Stundum gleymast slík gamalmenni, einkum ef þau hafa um nokkur ár dvalið á stofnun, fjarri ys þjóðlífsins. En þetta átti ekki við um Björgu, vin- konu mína. Við útför hennar troð- fylltist Áskirkja af fólki á ýmsum aldri. Þetta sannfærði mig enn einu sinni um það, sem ég hef reyndar vitað lengi, að Björg átti miklum vinsældum að fagna, sem entust ' áratugum saman. Björg S. Jóhannesdóttir var fædd 6. ágúst 1899. Hún var Húnvetning- ur að ætt og uppruna og kenndi sig alltaf við Móberg í Langadal, þar sem hún ólst upp. í munni okkar vina hennar var hún aftur á móti oftast nefnd Björg frá Löngumýri. Þar hafði hún um áratugi staðið við hlið Ingibjargar, stofnanda og skólastjóra húsmæðraskólans, vin- sæl af nemendum og ákaflega vel verki farin. Vinátta þessara tveggja kvenna var einlæg og traust, svo ólíkar sem þær þó voru. Ingibjörg var hugsjónakona. Oft var hægt að undrast, hve langt hún komst með takmörkuð fjárráð og hugsjónaeld- inn nær einan að vopni. Björg var aftur á móti afar raunsæ, stóð traustum fótum á jörðinni og var líkust kletti, sem ekkert gat hagg- að. En báðar unnu þær af miklum heilindum og sjálfsafneitun fyrir skólann sinn og nemendahópinn, sem þar var hveiju sinni. Þegar árin verða mörg að baki, hættir sumum kennurum til að staðna í starfi í stað þess að afla sér víðtækari menntunar en fyrir hendi var í æsku þeirra. Á starfs- ferli sínum lagði Björg mikla áherslu á að sækja ýmiss konar námskeið. Það sem hún lærði þar notfærði hún sér síðan í kennslu sinni. Enda var handavinna nemenda hennar bæði fjölbreytt og falleg. Öll vinna lék i höndum hennar, hvort sem um sauma, smíðar eða eitthvað annað var að ræða. Sjálf á ég ýmsa hluti, sem hún gaf mér og bera merki um smekkvísi hennar og hagleik. Kynni okkar hófust á Löngumýri, þó að ég væri ekki nemandi hennar þar. í önnum og vanda dagsins var gott að eiga hana að vini og ráðgjafa. Er starfstímanum á Löngumýri lauk, fluttu þær vinkonumar hingað til Reykjavíkur. Stuttur spölur var ANDRÉS KJERÚLF + Andrés H.G. Kjerúlf fædd- ist 30. mars 1905 í Sauð- haga í Vallahreppi á Fljótsdals- héraði. Hann lést 4. janúar sl. á Dvalarheimili aldraðra, Borg- arnesi, og fór útförin fram frá Reykholtskirkju 13. janúar. FLESTIR eiga sem betur fer góðar minningar frá æsku sinni, sjálfur átti ég hamingjuríka æsku. Á þess- ari stundu vil ég segja nokkur orð um afa minn, sem reyndist mér svo . vel og var óijúfanlegur hluti af lífí mínu. Hann var ekki aðeins góður og skemmtilegur karl, heldur hafði hann marga kosti sem myndu prýða hvem mann og bæta sérhvert þjóð- félag. Vinnusamari manni hef ég aldrei kynnst, hann var alltaf að. I seinni tíð átti hann um 50 ær og hugsaði um þær af alúð. Hver kind ” átti að sjálfsögðu sitt nafn. Nafnið tengdist gjarnan eiginleikum eða atvikum í lífí viðkomandi, svo sem Elding, Grána, Jöklakolla og Móru- dóttir. Það er vandi að umgangast sauðfé, sagði afi minn oft ef honum fannst ég ekki nógu nærgætinn. Þegar afi hafði sinnt eigin búi og heimilisstörfum fór hann og aðstoð- aði aðra, föður minn, Svein Björns- son og fleiri. Hann eyddi miklum tíma í Snorragarðinum, sérstaklega á vorin við að Iagfæra og undirbúa gróðurinn fyrir sumarið. Aldrei man ég eftir því að afi ræddi um kaup eða peninga en ég veit að eitt sinn hætti hann í verkefni því það var of mikið borgað fyrir það að hans mati. Afi minn var ekki efnahagslega auðugur maður en nægjusamari og hamingjusamari mann veit ég tæpast um. Hann eyddi litlu en var alls ekki nískur, hafði nóg fyrir sig og meira þurfti hann ekki. Afi var skemmtilega hreinskilinn og hikaði MINNINGAR þá milli heimilis míns og þeirra, enda áttum við Björg mörg spor þar á milli. Ingibjörg var þá nær blind en Björg enn vel sjáandi, svo að hún var tíðari gestur á heimiii mínu. Tilefnið var þá oftast að gera mér einhvem greiða. Báðar þessar konur vom mjög trygglyndar. Þess hef ég notið í ríkum mæli. Meðan Björg hafði enn góða sjón og starfskrafta, lá hún ekki á liði sínu, ef hún taldi að gott málefni þyrfti á stuðningi hennar að halda. Þegar ég, ásamt fleiri konum, annaðist fundi fyrir telpur á vegum Kristniboðsfé- lags kvenna, þar sem meðal annars var unnið að margs konar föndri, stóð ekki á aðstoð Bjargar, er ég nefndi það mál við hana. Hún kom hvem föstudag í misjöfnu vetrar- veðri. Fjölhæfni hennar naut sín vel í því starfí, sem hún sinnti með mik- illi fómfysi og gleði. En það vom líka einu laun hennar. Þegar aldur færðist yfir, sjónin dapraðist og sjúkdómar og ellihrörn- un setti mark sitt á líkama hennar, tók þessi sterka og starfsama kona því vel eins og öllu öðru, sem mætt hafði á lífsleiðinni. Hún kvartaði aldrei, sagði alltaf að sér liði vel. Aðeins einu sinni lét hún þau orð falla við mig í trúnaði, að sér þætti erfiðast að þurfa á öllum sviðum að vera háð hjálp annarra. En svo bætti hún við, að hjáipin væri veitt af fúsleik og með glöðu geði. Ég skildi hvað hún átti við og sagði, að auðvitað væri þetta ný reynsla fyrir hana sem alla ævi hefði þjónað og hálpað öðrum. Þó að líkami Bjargar hrörnaði og parkinsonveikin léki hana grátt, hélt hún andlegu heilbrigði og minni til hinstu stundar. Hún vissi ná- kvæmlega hvar hver einstakur smá- hlutur var, þó að hún væri blind. Og hún mundi allt, sem gerðist dag- lega. Þegar Ingibjörg andaðist síðastliðið vor, brá Björgu mikið við. Ingibjörg hafði fótavist og var vön að sitja inni í herbergi Bjargar. Þannig höfðu þær ánægju af návist hvor annarrar. Þessa síðustu mán- uði urðu því dagarnir langir hjá Björgu minni. Ég fann þá sárt til þess, að heilsu minni var þannig farið, að ég gat ekki heimsótt hana til að stytta henni stundir. Þegar ég reyndi að tala við hana í síma, átti hún erfitt með að ná í símtólið, nema einhver væri inni í herberginu henni til aðstoðar. Síðast þegar ég kom til hennar, viku áður en hún dó, gerði ég mér ljóst að hveiju stefndi. Við kvödd- umst með hlýju eins og ávallt. Sein- ustu orðin, sem hún hvíslaði voru: „Þakka þér fyrir allt.“ Það er ég sjálf, sem hef ástæðu til að þakka, þakka vináttu og trú- festi hennar, þakka fyrirbænir og margs konar aðstoð, meðan hún hafði krafta til. Björg var sönn fyr- irmynd á mörgum sviðum. Þolgæði, fómarlund og tryggð einkenndu líf hennar til hinstu stundar. Ég þakka Guði fyrir að hafa kynnst henni og átt hana að vini í nær hálfan fjórða áratug. Lilja S. Kristjánsdóttir. ekki við að láta skoðanir sínar í ljós. Að góðra sveitamanna sið hafði hann ýmislegt út á nágrann- ana að setja, sérstaklega ef honum þótti menn ekki nógu vinnusamir. Eftir heilablóðfallið 1987 lá hann á dvalarheimilinu í Borgarnesi. Auðvitað var skelfilegt að maður sem var alltaf á ferðinni skyldi verða rúmfastur, en hann var and- lega hress og fylgdist að vanda vel með öllu. Þegar við heimsóttum hann var hægt að ræða við hann um allt milli himins og jarðar. Afi uppveðraðist allur þegar hann heyrði að íris væri að læra hjúkrun- arfræði og ræddi ávallt við hana um efnafræði en hana hafði hann lært á Hvanneyri fyrir um 70 árum. Hann var mjög ern allt framundir það síðasta. Þegar nákomnir ætt- ingjar falla frá finnur maður að það deyr partur af manni sjálfum. Vonandi get ég miðlað áfram ein- hverjum hluta af öllu hinu góða er þú hafðir fyrir mér, vertu sæll, afi minn. Guðmundur Ingi Kerjúlf. KJARTAN GUÐJÓNSSON + Kjartan Guðjónsson fæddist í Heydal, Bæjarhreppi, Strandasýslu, 2. desember 1911. Hann lést á heimili sínu aðfaranótt gamlársdags og fór útförin fran frá Bústaðakiiju 5. janúar. Á VORDÖGUM síðasta árs gátu stúdentar frá MA 1935 minnst 60 ára stúdentsafmælis síns. Þá var um 22 manna hóp að ræða. En á afmælisdaginn 1995 voru 15 horfn- ir yfir móðuna miklu. Sjö voru þá enn við lýði. En nokkrum mánuðum síðar hafði einn til viðbótar safnast til feðra sinna og mæðra. Á gaml- ársdag 1995 barst mér svo frétt um að Kjartan Guðjónsson hefði lokið sínu lífshlaupi. Hinn 17. úr hópnum hafði þar með kvatt þennan heim. Nú eru því aðeins fímm eftir af stúdentunum frá MA 1935. Það er því sigið á seinni hluta þessa hóps og þeirra kveðjustund örugglega á næsta leiti. Klukkan glymur þeim brátt og sá árgangur verður þá úr sögunni í þessum heimi. Þessir síð- ustu eru nú orðnir aldnir að árum og skynja nálægð hvíldarinnar sem góða lausn undan ásókn ellinnar. Sé litið til baka á æskunnar ár á ævinnar hallandi degi, þá virðist svo stutt síðan við lékum okkur að stráum. Gleymdum stað og stund. Horfðum hugfangnum augum upp í stjömustirndan himin og létum okkur dreyma um óvænt, ókomin ævinnar ævintýri. En þau hafa í raun orðið minni í sniðum en skyldi. Þó hefur sitthvað farið vonum fram- ar. En nú er ævitíminn eyddur og dagur kominn að kveldi. Vísa með heitinu „Það var eitt kvöld“ eftir Jón Helgason kemur skyndilega í hugann; Það var eitt kvöld að mér heyrðist hálfvegis barið. Ég hlustaði um stund og tók af kertinu skarið. Ég kallaði fram og kvöldgolan veitti mér svarið: Hér kvaddi Lífíð sér dyra og nú er það farið. Við stöndum nú í áþekkum hug- renningasporum og skáldið. Dags- verki okkar er lokið eða því sem næst. Kominn er tími tii að taka af kertinu mínu og þínu skarið. Störf Jóns vora mikil og fjölþætt en okk- ar eru lítillar gerðar og við hörmum gildisleysi þeirra. En gjört er gjört og verður ekki aftur tekið. Leiknum er lokið og yfir litlu að miklast. Ekki var of vel á spilunum haldið. Nöfn okkar á spjöldum sögunnar vel flestra lítt greinileg og brátt útmáð með öllu. Stúdentahópurinn frá MA 1935 er þó ekki verri en margir aðrir. Langt í frá. Hann hefur í heild og hver einstakur lagt sinn skerf af mörkum til gagns landi og þjóð. Eijað langan dag og í mörgu snúist og nokkru til leiðar komið. Hann bar með ýmsum hætti svip síns skóla og naut þroskagjafanna þar. Ávaxt- aði sitt pund ekki verr en gengur og gerist og skilaði sínu hlutverki eftir bestu getu. Er tilefni til að krefjast meira? Einn traustur og góður starfs- maður úr þessum hópi hefur nú eins og árið 1995 liðið í aldanna skaut og kemur ekki til baka. Hann leysti sínar landfestar í árslok, þá er dag- inn var aðeins tekið að lengja og hóf siglingu með nýju ári inn á svið nýrrar tilveru. Kjartan varð 84 ára 2. des. sl. Heilsa hans hafði verið bágborin síðasta árið og honum var ekkert að vanbúnaði. Hann var ættaður úr Strandasýslu af góðu bergi brot- inn. Bóndasonur frá Heydal í Bæjar- hreppi. Átti sem fleiri frá þessum tíma við fremur þröngan kost að búa. Af miklum dugnaði, vinnusemi og einbeitni hóf hann skólagöngu í M.A. Naut hann í því sambandi sér- stakrar og ómetanlegrar fyrir- greiðslu sæmdarhjónanna Sigurðar Stefánssonar, prests og síðar vígslu- biskups, á Möðruvöllum í Hörgár- dal, og konu hans Maríu Ágústs- dóttur. Bar Kjartan af þeim sökum ætíð til þeirra einstakan þakkarhug. Þau voru og honum alla tíð tryggir vinir og velunnarar. En Sigurður Guðmundsson skólameistari greiddi götu hans á þeirra fund. Kjartan varð svo einn stúdentanna, er út- skrifuðust vorið 1935. Að því loknu vann hann við kennslu- og skrifstofustörf. Var kaupfélagsstjóri á Eskifirði og síðar Borðeyri. Árið 1947 varð hann skrif- stofustjóri hjá Ofnasmiðjunni hf. Reykjavík og gegndi því starfi óslit- ið nokkuð fram yfír aldursreglutak- mörk. Vinnuveitendur hans lýstu því yfír, þá er hann varð sjötugur, að hann mætti vinna eins lengi og heilsa framast leyfði. Þeir mundu ekki segja honum upp störfum. Þá er Kjartani fannst orku sinni tekið að hnigna sagði hann sjálfur upp. Hann vildi ekki láta neinn tapa á sinni vinnu. Forstjóri fyrirtækisins lét svo ummælt við undirritaðan: „Kjartan var öðlingsmaður, vel lið- inn af öllum, traustur og öruggur starfsmaður." Öll sín störf vann Kjartan af sér- stakri samviskusemi, ósérhlífni, dugnaði og árverkni. Hann lá aldrei á liði sínu. Naut því virðingar og trúnaðar hjá atvinnuveitendum sín- um. Þeim var fullljóst, að þar fór traustur og gagnhollur starfsmaður. Kjartan var og prýðilegur skóla- bróðir og félagi. Hann brást ekki trúnaði og var einkar fús að rétta þeim hjálpandi hönd ef svo bar und- ir og þörf krafði. Hann var maður friðsamur, tillitsgóður og óáleitinn. Fylgdist vel með því sem gerðist. Hafði sig lítt í frammi. Var frekar hlédrægur og hið mesta prúðmenni. Hann var vinur vina sinna og dreng- ur góður. Árið 1939 kvæntist Kjartan Matt- hildi Pálsdóttur frá Staðarhóli á Akureyri, mikilli prýðis- og ágætiskonu. Hún átti ættir að rekja í Svarfaðardal. Var sambúð þeirra hin besta. Þau eignuðust tvo syni, Halldór og Gunnar. Ég leit svo til að hjónaband þeirra hafi verið eink- ar farsælt og ég vissi að konan var Kjartani mjög hjartkær. Á síðastliðnu sumri heimsótti ég þau hjónin að hinu myndarlega heimili þeirra að Fossheiði 18, Sel- fossi, og fékk viðtökur góðar. Þá voru rifjaðar upp gamlar minningar frá MA, sumar kátbroslegar, því enn var hægt að leika á létta strengi. Nú eru þau tækifæri að baki. Páll Árdal hefur rétt að mæla þá hann segir: Að hryggjast og gleðjast hér um fáa daga, að heilsast og kveðjast, það er lífsins saga. Minningarnar lifa meðan enn var- ir dagur og heilinn gegnir sínu starfí viðhlítandi. Kjartani var þá orðið ljóst að kvöld var fyrir stafni og hann gat af heilum huga tekið undir með Matthíasi Joc- humssyni: Ég fel í forsjá þína guð faðir sálu mína því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma ðll bornin þín svo blundi rótt. Við stúdentarnir frá MA vorið 1935, farnir og ófamir, kveðjum nú góðan og tryggan vin og félaga. Þökkum honum ágæt störf og ein- stök kynni, drengskap og hollustu frá því að leiðir lágu saman. Við óskum honum nú fararheilla á veg- ferðinni til nýrrar tilveru á sviðum hækkandi sólar. Konu hans og niðjum vottum við dýpstu samúð. Heimilið var Kjartaní alltaf mikils virði og þangað leitaði löngum hugur hans og hjarta. F.h. samstúdenta frá MA 1935, Eiríkur Pálsson frá Ölduhrygg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.