Morgunblaðið - 14.01.1996, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.01.1996, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Umboðsmaður Alþingis segir ákvörðunarrétt liggja í ráðuneytinu Kvartað yfir ráð- stöfun ríkisjarða UMBOÐSMAÐUR fjallaði nýlega um erindi vegna ríkisjarðarinnar Skriðuklausturs. UMBOÐSMAÐUR Aiþingis telur að fylgja beri þeirri reglu að auglýsa opinberlega ríkisjarðir sem lausar eru til leigu hveiju sinni. Þá telur hann að landbúnaðarráðuneytinu beri, með vísan til jarðalaga og stjórnsýslurétt- ar, að taka ákvörðun um, fyrir hönd ríkisins, hveijum ríkisjörð verður byggð. Þannig verði ráðuneytið að velja á milli umsækjenda á grund- velli málefnalegra sjónarmiða. Ráðu- neytið geti leitað álits sveitarstjórna hveijum rétt sé að byggja jörð, en því sé ekki skylt að gera það. Eftir að ráðuneytið hefur tekið ákvörðun um hveijum skuli byggja ríkisjörð beri að leggja þá ráðstöfun fyrir sveitarstjórn og jarðanefnd til sam- þykktar eða synjunar. Þá bendir Umboðsmaður á að hlut- verk landbúnaðarráðuneytisins, að koma fram fyrir hönd ríkisins sem eiganda jarða og að vera æðsti úr- skurðaraðili um ákvarðanir sveit- arstjórna og jarðanefnda um ráðstaf- anir jarða, geti verið ósamrýmanleg þegar um ríkisjarðir er að ræða. Er því beint ti! landbúnaðarráðherra og forsætisráðherra að taka þetta til sérstakrar athugunar. Umboðsmaður Alþingis sendi frá sér tvö álit 4. janúar síðastliðinn sem bæði varða kvartanir aðila vegna afgreiðslu landbúnaðarráðuneytisins og annarra stjómvalda á umsóknum um leigu og/eða kaup á ríkisjörðum. Ýmsir annmarkar á afgreiðslu Fyrra málið (993/1994) varðar aðila (A) sem ásamt tveimur sonum sínum falaðist eftir leigu á tiltekinni ríkisjörð, X. Höfðu þeir gengið frá drögum að samningi við fyrri ábú- anda um kaup á húsum og rekstri á jörðinni. Landbúnaðarráðuneytið ákvað að ganga til samninga við A eða umsækjanda G um leigu á jörð- inni. Sveitarstjóm hreppsins og jarðanefnd sýslunnar veittu ekki samþykki sitt fyrir því að A og syn- ir hans eða G fengju jörðina X en samþykktu þess í stað að byggja hana öðrum aðilum (B og C). A kærði ákvörðun sveitarstjómar og jarðanefndar ti! landbúnaðarráðu- neytisins, en ráðuneytið staðfesti ákvörðunina. Umsækjandi A kvart- aði hinn 21. janúar 1994 yfir ákvörð- un landbúnaðarráðuneytisins ti! um- boðsmanns Alþingis. Umboðsmaður telur ýmsa ann- marka á afgreiðslu landbúnaðar- ráðuneytisins á málum sem varða umsókn A um að fá ríkisjörðina X til leigu. Það eru tilmæli umboðs- manns Alþingis til ráðuneytisins að „það taki til athugunar, með hvaða hætti það getur rétt hlut A vegna ákvarðana um byggingu jarðarinnar X, ef eftir því verður leitað af hálfu A.“ Skriflegur rökstuðningur æskilegur Álit umboðsmanns Alþingis 1025/1994 íjallar um mál tveggja einstaklinga í Fljótsdalshreppi. Hinn 21. febrúar 1994 leituðu þeir til umboðsmanns og báru fram kvörtun yfir athöfnum landbúnaðarráðuneyt- isins. Þessir aðilar höfðu sótt um kaup eða leigu á ríkisjörð í því skyni að sameina hana jörð sem þeir bjuggu á. Sveitastjórn samþykkti ekki þessa ráðstöfun ríkisjarðarinnar. Þá sóttu þessir einstaklingar um að fá ríki- sjörðina Skriðuklaustur leigða og hafnaði sveitarstjóm því einnig. Umboðsmaður Alþingis telur að landbúnaðarráðuneytið hefði átt að ganga eftir nánari skriflegum rökst- uðningi sveitarstjómar varðandi höfnun hennar á að téðum umsækj- endum yrði byggð ríkisjörðin og að jarðirnar tvær yrðu sameinaðar. Umsækjendumir töldu sig síðar hafa fengið munnlegt vilyrði land- búnaðarráðuneytisins fyrir Skriðu- klaustri. Engu að síður hefði ráðu- neytið tekið ákvörðun um að byggja öðrum jörðina. Að mati umboðs- manns Alþingis gáfu svör jarða- nefndar Norður-Múlasýslu og sveit- arstjómar Fljótsdalshrepps varðandi ráðstöfun á Skriðuklaustri landbún- aðarráðuneytinu sérstaka ástæðu til að ganga eftir því að jarðanefnd og sveitarstjóm tækju skýrt af skarið um hvort hafnað væri ráðstöfun ráðuneytisins á Skriðuklaustri og færðu þá fram rök sem lægju til grundvallar þeirri niðurstöðu. Verðþróun á kvóta frá 1991 Kvótaleiguverð á rækju tífaldast HEIMILT var að flytja varanlegan kvóta á milli skipa frá 1. janúar 1991. í fyrstu var hann verðlagður eftir þorskígildum, en frá og með fiskveiðiárinu 1991 til 1992 var farið að verð- leggja hveija tegund fyrir sig. Líklega eru fáir jafn vel inni í verðþróun á kvóta síðan þá og Björn Jónsson sem unnið hefur að kvót- amiðlun hjá LÍÚ. Að hans sögn hefur verð á varanlegum kvóta í heild farið hækkandi. Hann segir að ekki sé framboð á neinni tegund til sölu. Öll viðskipti sem fari fram felist í afla- skiptum vegna þess að menn séu að reyna að hag- ræða hjá sér. Hver hefur verðþróun verið á varanlegum kvóta frá 1991? „Þorskur hélst í 180 til 190 krón- um þar til í júní 1994. Þá steig verðið og er núna um 500 krón- ur. Ýsa hefur lækkað úr 175 krón- um í 115 krónur. Ufsi hefur verið í 60 krónum. Verð á karfakvóta var um 80 krónur fram í maí 1995, en þá hækkaði verðið og er núna í 160 krónum. Grálúðan hefur verið á 160 krónur og skar- koli á um 120 krónur. Rækja hélst á óbreyttu verði eða 85 krónum þar til í septem- ber 1994. Þá hækkaði verðið og er nú 340 krónur. Síld seldist á 12 krónur þar til í febrúar 1995 að verðið hækkaði og er í dag 28 krónur. Verð á humri er 2.100 krónur. Loðnan hefur verið á svip- uðu verði allan tímann. 1% af loðnukvótanum hefur verið metið á 60 milljónir." Hvað með verðþróun á leigukvóta í þorski? „Leiguverð á þorski var um 40 krónur þar til að það hækkaði í 75 krónur fiskveiðiárið 1993 til 1994. Nú er það í 90 til 95 krón- um.“ Er það raunhæft verð? „Menn hlaupa ekki til og kaupa mikið magn af kvóta þegar verð er svona hátt, enda er nóg fram- boð þessa stundina. Á þessu ári stefnir í að verð haldist í rúmum 90 krónum og við verðum að áætla að það sé raunhæft verð ef menn ganga að því. Við verðum að ætlast til að aðgerðir manna stjórnist af skynsemi. í mörgum tilfellum leigja menn þorskkvóta vegna þess að hann slæðist með í veiðum á öðrum tegundum. _______________ Einnig leigja fisk- vinnslustöðvarnar kvóta. Þá geta þær samið við útgerðarmenn um að skip þeirra landi hjá sér og lagt þeim til kvóta á móti. Ég get nefnt önnur dæmi þar sem þetta borgar sig. Stór fiskur gefur mikið í veiðum á saltfiski og línutvöföldun ekki síður. Einn- ig getur þetta borgað sig fyrir menn sem eiga litla báta skuld- lausa og veiða sjálfír. Þótt þeir leigi kvótann á 90 krónur renna 30 krónur af söluandvirðinu beint til þeirra. Þetta getur ekki átt sér stað á stærri skipum. Þá er gert upp samkvæmt kjarasamningum og enginn um borð sættir sig við að róa á 30 krónum." Hvernig hefur verðþróun á leigu- kvóta verið í öðrum tegundum? „Leiguverð á ýsu var áður rúm- ar 30 krónur allt árið, en síðari ár hefur það verið 7 til 8 krónur, en farið niður í 1 krónu í lok fisk- veiðiára þegar útséð hefur verið Björn Jónsson ►Björn Jónsson er fæddur 29. júní 1941 og lauk prófi úr Stýrimannaskólanum 1961. Hann var skipstjóri frá 1964 þar til hann hóf störf í sjávar- útvegsráðuneytinu 1983. Hann var yfirveiðieftirlitsmaður frá 1986 til 1991, en frá 1. janúar 1992 hefur hann unnið við kvótamiðlun hjá LÍÚ. í því felst ráðgjöf og aðstoð í kvótavið- skiptum útvegsmönnum að kostnaðarlausu. Eiginkona Björns er Erna Nielsen, forseti bæjarstjórnar á Seltjarnarnesi. Þau eiga þijú börn. um að kvótinn næðist ekki. Á þessu fiskveiðiári byrjaði það í 10 krónum og er komið í 12 krónur. Það byggist á því að úthlutunin var minnkuð á milli ára og menn eru bjartsýnir á að ekkert af ýsu- kvótanum falli niður. Verð á ufsa var um 20 krónur þar til það hrundi í 3 krónur í lok árs 1992 til 1993. Eftir það hefur verðið verið í 6 til 8 krónum í upphafi árs en hrunið í 1 krónu í lok árs þegar varð ljóst að kvót- inn næðist ekki. í dag er hann leigður á 6 til 6,50 krónur og ef veiði glæðist ekki lækkar verðið. Verð á karfa var um 19 krónur þar til í fyrra að það hækkaði í 24 krónur og í dag er það 36 krónur. Það skýrist af því að minna er úthlutað af aflaheimild- um í karfa og sjávarútvegsráðu- neytið hækkaði stuðul- inn úr 0,46 í 0,8 sem gerir hann dýrari í teg- undatilfærslu. Grálúðuverð hefur verið um 38 krónur þar til í fyrra. Þá hrundi það úr 30 krónum í 3 til 4 krónur í lok fiskveiðiársins. Verðið í dag er 36 krónur og fer hækkandi vegna þess að úthlutunin var minnkuð um 33%. Verð á skar- kola hefur verið um 20 krónur, en lækkað alltaf í lok hvers fisk- veiðiárs. Leiguverð á rækju var 7 krónur árið 1991. Það var komið upp í 20 krónur í byijun síðasta fisk- veiðiárs, en stökk þá upp í 75 krónur. Það verð hefur haldist á þessu ári, en ef veiðin verður áfram góð má búast við að það hækki jafnvel upp í 80 til 85 krón- ur. Síldarverð var lengi vel 2,70 krónur en er núna 6,90 krónur. Loðnukvóti hefur ekki náðst und- anfarin ár þannig að hann hefur verið leigður á 40 til 70 aura, en flesta mánuði ársins hefur engin eftirspurn verið eftir loðnu. Leiga á humri hefur verið á bilinu 280 til 330 krónur." Þorskverð helst líklega í 90 krónum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.