Morgunblaðið - 14.01.1996, Side 6
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. JANUAR 1996
ERLENT
Vandi Clinton-hjónanna
Forsetafrúin
sökuð um lygar
BANDARÍSKU forsetahjónin stinga saman nefjum. Hillary
Clinton var mjög virk í stefnumótun eiginmanns síns. Hún
hefur þó breytt mjög um stíl og leggur nú meiri rækt við
hefðbundið hlutverk forsetafrúar í Hvíta húsinu.
^BAKSVIÐ
BILL Clinton Bandaríkja-
forseti hefur sótt mjög
í sig veðrið á undan-
fömum mánuðum á
stjórnmálasviðinu, hann hefur
unnið mikilvæga varnarsigra á
repúblikönum í innanlandsmálum.
Bandaríkin hafa loks tekið það
frumkvæði í alþjóðamálum sem
bandamenn þeirra lýstu svo lengi
eftir. Þrátt fyrir þetta er framtíð
forsetans ótraust og það er vegna
óveðurskýja sem nú hrannast upp
í einkalífinu. Þau helstu eru kennd
við Whitewater og svonefnt Trav-
elgate; í þeim báðum er Hillary
Clinton forsetafrú mjög í sviðs-
ljósinu.
Svo getur farið að forsetinn
verði fyrsti maðurinn í æðsta
embætti Bandaríkjanna sem verði
að svara spumingum í réttarhöld-
um vegna ásakana um kynferðis-
lega áreitni. Kona að nafni Paula
Jones hefur sakað hann um að
hafa leitað á sig. Hin málin áður-
nefndu geta þó reynst miklu
hættulegri og ljóst þykir að Hill-
ary Clinton hafi sagt ósatt um
þátt sinn í þeim báðum. Lögfræði-
kostnaður vegna þessara mála og
rannsókna í tengsium við þau er
orðinn svo mikill að talið er að
hjónin stefni jafr.vei í gjaldþrot.
Clinton-hjónin eru grunuð um
að hafa misnotað aðstöðu sína á
ríkisstjóraámm Clintons í Arkans-
as til að hagnast með ólöglegum
hætti á fasteignaviðskiptum.
Spilling í Arkansas er alræmd og
stjórnmál þar talin gruggugri en
í flestum fylkjum landsins. Félagi
hjónanna í þessum viðskiptum,
James McDougal, átti Madison
Guaranty, sparisjóð sem varð
gjaldþrota og kostaði það skatt-
greiðendur 60 milljónir dollara,
nær fjóra milljarða króna.
Einnig hefur komið fram að
Hillary Clinton virðist samkvæmt
innanhússkjölum í Hvíta húsinu
hafa beitt sér fyrir því að fólk er
annaðist skipulag ferðalaga fyrir
starfsfólk forsetaembættisins var
rekið á vafasömum forsendum. í
staðinn voru ráðnir kunningjar
forsetahjónanna frá Arkansas.
Forsetafrúin hafði áður vísað því
á bug að hún hefði skipt sér af
málinu sem nefnt er Travelgate
með vísan til Watergate-málsins
er felldi Richard Nixon af forseta-
stóli. Það þykir einkenna bæði
málin að skjöl, sem rannsóknarað-
ilar vilja fá í Hvíta húsinu, reyn-
ast stundum ekki fáanleg fyrr en
seint og um síðir.
„Fá að kenna á því“
Árið 1993 fannst aðstoðar-
ráðgjafí forsetans í lögfræðilegum
efnum og gamall íjölskylduvinur,
Vincent Foster, látinn í skemmti-
garði í Washington. Var talið lík-
legt að hann hefði skotið sig þótt
margt þætti undarlegt við málið.
Skjöl á skrifstofu hans voru fjar-
lægð þegar sömu nótt og ekki
afhent fyrr en nokkruin dögum
síðar. Vaknaði grunur um að þar
hefðu leynst gögn um White-
Andstæðingar Bills
Clintons Bandaríkja-
forseta og eiginkonu
hans, Hillary Rodham
Clinton, hafa árum
saman gert sér mat úr
grunsemdum um aðild
jeirra að fjármálaspill-
ingu. Það er farið að
syrta í álinn þegar dag-
blaðið The New York
Times birtir leiðara þar
sem tekið er undir
gagnrýnina og heilindi
forsetafrúarinnar
dregin í efa
water-málið sem forsetahjónin
hefðu álitið að gætu orðið sér
hættuleg.
Stórblaðið The New York Tim-
es, sem lengi hefur þótt hliðhollt
demókrötum, birti nýlega leiðara
og einnig grein eftir dálkahöfund-
inn William Safíre þar sem fjallað
er um forsetafrúna og ásakanir á
hendur henni.
í leiðara The New York Times
segir að rannsókn öldungadeildar-
innar á Whitewater-málinu, sem
nýlega var hafín á ný, sýni vel
vandann sem forsetinn og stjóm
hans eigi við að stríða. Kjarni
þess sé að forsetahjónin reyni að
hindra að sannleikurinn verði
leiddur í ljós. Stanslaus undan-
brögð og óviðurkvæmileg afskipti
þeirra af rannsókn málsins grafí
undan trausti almennings á Clint-
on og eiginkonu hans.
„Við vitum ekki enn hvað verið
er að reyna að fela í Hvíta hús-
inu. Ef til vill mun sérstakur sak-
sóknari [sem skipaður var i þess-
um málum] geta svarað því að
einhveiju leyti síðar á árinu. Það
sem við vitum með vissu er að í
fyrri rannsóknum hafa Clinton-
hjónin og aðstoðarmenn þeirra
gengið eínkennilega langt í að
leggja steina í götur rannsóknar-
manna Whitewater- og Madison-
málanna, sama er að segja um
könnun á brotthvarfi skjala Vinc-
ents Fosters.“
Blaðið rekur Travelgate-málið.
Minnt er á að í minnisblöðum frá
1993 úr fórum Thomas McLarty,
sem þá var skrifstofustjóri forset-
ans, sé haft eftir David Watkins,
er var háttsettur ráðgjafí í Hvíta
húsinu, að menn muni „fá að
kenna á því“ ef „við grípum ekki
til skjótra og áhrifaríkra aðgerða
til að uppfylla óskir forsetafrúar-
innar“.
Blaðið segir að málið virðist
fremur vera dæmi um klaufalega
hagsmunagæslu en ólöglegt at-
hæfí. Á hinn hljóti það að auka
grunsemdir Whitewater-nefndar-
innar á þingi um að forsetafrúin
hafi ekki hreint mjöl í pokanum
í öðrum málum.
„Sem dæmi má nefna að árið
1994 staðhæfði frú Clinton að
aðstoðarmaður hjá Rose Law-lög-
mannastofunni [sem Hillary
Clinton starfaði hjá í Arkansas]
hafi að mestu séð um lögfræðileg
störf fyrir Madison-sparisjóðinn.
Sl. haust kom fram í vitnaleiðsl-
um fyrir nefndinni að störf frú
Clinton voru meiri að vöxtum.
Hún annaðist meðal annars hluta
af vafasömum fasteignaviðskipt-
um sem flýttu fyrir hruni spari-
sjóðsins. Rannsóknarmönnum var
sagt að vinnuskýrslur - þar sem
gera mátti ráð fyrir að fram kæmi
hvað Clinton hefði verið að gera
- hefðu horfið. Er yfirheyrslur
öldungadeildarinnar voru yfirvof-
andi birtust afrit af vinnuskýrsl-
unum eins og fyrir töfra.“
Fleiri dæmi eru nefnd um
undarleg viðbrögð og túlkun
starfsmanna forsetans á gögnum
í málunum; mestu skipti að mikil-
væg skjöl hafí ekki komið í leitirn-
ar.
„Ráðvilltur almenningur hefur
því kosningaárið án þess að vera
mikið betur upplýstur en hann var
í fyrra. Þetta veldur því að rep-
úblikanar standa mun betur að
vígi en ella, það sem veldur eru
tilraunir Clinton-hjónanna til að
rugla fólk í ríminu", segir að lok-
um í leiðaranum.
Föst í lygavef
William Safíre starfaði á sínum
tíma fyrir Nixon í forsetatíð hans.
Safire er vægðarlaus í grein sinni
og gefur í skyn að Hillary Clinton
sé að festast í eigin lygavef.
„Bandaríkjamenn úr öllum hlut-
um hins pólitíska litrófs eru að
komast að þeirri dapurlegu niður-
stöðu að forsetafrú þeirra - kona
sem hefur ótvíræða hæfileika og
er fyrirmynd margra af sinni kyn-
slóð - sé fæddur lygari,“ segir
Safire. Hann telur upp nokkur
mál sem valdi þessari niðurstöðu.
Hillary Clinton hafí skrökvað
því að hún hafí hagnast á kaup-
hallarbraski 1979 þar sem ágóð-
inn virðist hafa verið 10.000%.
Hún hafi ekki þorað að viður-
kenna að raunverulega hafi hún
misnotað aðstöðu sína. Lögfræð-
ingur hagsmunaaðila í kjúklinga-
rækt í Arkansas hafí í samvinnu
við verðbréfasala með skuggalega
fortíð séð um viðskiptin, í reynd
hafi verið um mútur að ræða, allt
að 100.000 dollara eða yfír 6,5
milljónir króna.
Safire nefnir einnig Travelgate
þar sem forsetafrúin hafi misk-
unnarlaust notað sér hollustu
starfsmanna sinna til að ljúga að
fulltrúum rannsóknaraðila alríkis-
lögreglunnar, FBI, um framferði
þeirra sem rekið höfðu ferðaþjón-
ustuna fyrir Hvíta húsið. Mark-
miðið hafi verið að ekki kæmi fram
að Hillary Clinton væri hefnigjam
pólitíkus sem notaði FBI til að
traðka á fólki er verið hefði fyrir
þegar hygla þurfti vinum.
Um mál Fosters segir dálkahöf-
undurinn að nánustu vinir og ráð-
gjafar forsetafrúarinnar hafi verið
staðnir að ótrúlegu minnisleysi,
jafnvel eiðsvarnir. Þeir geti hafn-
að í fangelsi fyrir að styðja blekk-
ingarnar. Þær hafí ekki verið
ástæðulausar; rannsóknarmenn
telji að gögn frá Rose Law-stof-
unni hafi verið á skrifstofu Fost-
ers er hefðu getað sýnt fram á
þátttöku frú Clinton í glæpsam-
legu athæfi, þ. á m. fasteigna-
braski er kostað hafi skattgreið-
endur stórfé.
Reynt hafí verið að fela hættu-
legustu skjölin en ástæðan fyrir
því að embættismenn Hvíta húss-
ins hafi afhent sum þeirra siðar
hafí verið að FBI hafi fundið af-
rit af þeim annars staðar, þess
vegna hafi menn ekki þorað sýna
meiri mótþróa. Sumum skjölum
hafi verið leynt nógu lengi til að
lagaheimildir til að krefjast þeirra
hafi verið fyrndar.
Önnur ástæða fyrir afhending-
unni sé að ýmsir fornvinir og við-
skiptafélagar forsetafrúarinnar
séu að snúast gegn henni. Þeir
hafí breitt yfir lygar hennar í eig-
inhagsmunaskyni en nú ætli þeir
að hlíta ráðum lögfræðinga sinna
er bendi þeim á hættuna sem fylgi
meinsæri.
Enginn þurfi að furða sig á því
að forsetinn vilji ekki ræða málið
til fulls á blaðamannafundi til að
hreinsa andrúmsloftið. „Forsetinn
og forsetafrúin hafa verið yfír-
heyrð af rannsóknarlögmanni
hvort í sínu lagi, það væri skyn-
samlegt hjá forsetanum og eigin-
konu hans að hafa hvort sinn
veijanda,“ segir Safire að lokum.
• Heimildir: The New York
Times og fl.
Farið að hitna undir í forkosningabaráttu repúblikana
Hver verður keppi-
nautur Bob Doles?
Des Moines. Reuter.
NÍU frambjóðendur í forkosningum
repúblikana vegna forsetakosning-
anna í Bandaríkjunum í haust ætl-
uðu að taka þátt í sameiginlegum
sjónvarpsumræðum í gær í Des
Moines í Iowa. Talið var hugsan-
legt, að þá fengist úr því skorið
hver þeirra yrði helsti keppinautur
Bob Doles í forkosningunum en
hann ber enn höfuð og herðar yfír
aðra í skoðanakönnunum.
Sigraði í Iowa 1988
Sjónvarpa átti umræðunum um
öll Bandaríkin en fyrstu forkosning-
ar repúblikana verða í Iowa eftir
mánuð. Dole, sem sigraði í Iowa
þegar hann tók síðast þátt í for-
kosningum 1988, hefur langmest
fylgi þar nú samkvæmt könnunum
en keppinautar hans segja, að fylgi
hans sé ótraust.
„Eg hef tekið þátt í mörgum
kosningaslag af þessu tagi en aldr-
ei vitað jafn lítinn spenning fyrir
þeim, sem þó hefur forystuna,“
sagði öldungadeildarþingmaðurinn
Phil Gramm frá Texas. „Fólk hefur
af því vaxandi áhyggjur, að hann
geti ekki sigrað Clinton og muni
hvort er eð engu breyta þótt hann
gerði það.“
Kosningastjórar Doles hafa um
þessar mundir mestar áhyggjur af
áróðri milljónamæringsins Steve
Forbes en hann hefur auglýst
grimmt í sjónvarpi og aðallega beint
spjótunum að Dole. Forbes er nú í
öðru sæti í Iowa samkvæmt skoð-
anakönnunum en fréttaskýrendur
segja, að hann hafi nógu góð sam-
bönd við grasrótina í flokknum en
í forkosningum er það yfirleitt harð-
asti kjarninn, sem kýs.
Snúist til varnar
Stuðningsmenn Doles hafa þó
áhyggjur af áróðri Forbes, sem
berst fyrir róttækum breytingum á
skattakerfínu, og hafa snúist til
varnar með því að benda á, að hann
hafí enga reynslu af stjórnmálum.
Þeir Phil Gramm og Pat Buchan-
an beijast um annað sætið í Iowa
við Forbes en aðrir frambjóðendur
að Dole slepptum eru þeir Richard
Lugar, Bob Dornan, Alan Keyes og
Morry Taylor.
Lítið varð
úr bylnum
Washington. Reuter.
MINNA snjóaði á austurströnd
Bandaríkjanna í fyrradag en óttast
hafði verið en þó nóg til að auka
enn á erfiðleikana. Munaði mestu
um, að lægðin gekk mjög hratt yfir.
Ymiss konar starfsemi stöðvaðist
á föstudag vegna snjókomunnar og
kannski ekki síst vegna þess, að
búist var við meira fannfergi en
raunin varð á. Var nýfallni snjórinn
aðeins átta sm og síðan rigndi.
Veðrið hefur valdið dauða 85
manna að minnsta kosti og hafa
allmargir látist vegna hjartaáfall,
sem þeir fengu við snjómokstur. Þá
eru dæmi um, að fólk hafi látist úr
kolsýringseitrun. Hafa þá bílar,
fastir í skafli, verið hafðir í gangi
og snjóað fyrir útblásturinn.