Morgunblaðið - 14.01.1996, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1996 11
marki verið heimilað en ekki hvað
Reykvíkinga varðar. Ég get alveg
tekið undir að það er óeðlilegt að
við séum í rauninni, kannski vegna
eignaraðildar okkar að Landsvirkj-
un, í hálfgerðri gíslingu," sagði Ingi-
björg Sólrún ennfremur.
Hún sagði að höfuðatriðið væri
að finna leiðir til þess að Reykvíking-
ar myndu með einhveijum hætti
njóta þessarar eignar sinnar. Hins
vegar gerði hún sér grein fyrir því
að um svo stórar upphæðir og mikla
hagsmuni væri að ræða að niður-
staða í þessum efnum fengist ekki
eins og hendi væri veifað.
Heildarhagsmuna gætt
Halldór Jónatansson, forstjóri
Landsvirkjunar, varar mjög við því
að veikja fyrirtækið með því að
skipta því upp í smærri einingar.
Fyrirtækinu hafi verið gert að gæta
heildarhagsmuna þjóðfélagsins í sölu
og dreifingu raforku og verði því
skipt upp sé ekki lengur fyrir hendi
öflugt orkuöflunarfyrirtæki sem geti
borið ábyrgð á að næg raforka sé
fyrir hendi á öllum tímum til allra
almennra þarfa.
Hann sagði að það hafi verið mjög
íþyngjandi fyrir fyrirtækið að
Blönduvirkjun hafi verið of snemma
á ferðinni. Ákveðið hafi verið að
hækka ekki orkuverð þess vegna og
því hafi ekki verið hægt að greiða
arð síðan árið 1992, en arðgreiðslur
síðustu 17 árin nemi alls 583 milljón-
um króna, auk 883 milljóna króna
í greiðslu ábyrgðargjalda til eigenda,
sem líta megi á sem ígildi arðs. Þau
ár sem arður hafi ekki verið greidd-
ur hafi almenningur verið látinn
njóta þess í lágu raforkuverði og
þetta lága raforkuverð hafi til dæm-
is gert Rafmagnsveitu Reykjavíkur
kleift að greiða Reykjavíkurborg
meiri arð en ella.
Halldór benti á að skipulag orku-
mála hefði verið í stöðugri endur-
skoðun í nágrannalöndum okkar á
síðustu árum með það fyrir augum
að auka hagkvæmni. Einkum hafi
róttækar breytingar verið gerðar í
Noregi og Bretlandi, þar sem þær
hafi reynst vel og leitt til lækkandi
verðs. Æskilegt sé að hér fari einn-
ig fram, fyrr en seinna, mat á því
hvort og eftir atvikum hvaða breyt-
ingar séu æskilegár á skipulagi raf-
orkumála, bæði hvað snertir orku-
vinnsluna, dreifinguna og söluna.
Það sé hins vegar ekki sjálfgefið að
ákveðin leið í þessum efnum skili
jafngóðum árangri alls staðar. Komi
þar margt til eins og stærð markað-
arins og samtenging hans við aðra
markaði með frjálsri samkepppni
raforkufyrirtækja óháð landamær-
um.
Halldór sagði að við virkjun
Nesjavalla skipti miklu máli að stað-
ið yrði að málum með þjóðarhag í
huga, en það úrlausnarefni bíði
framvindu nýrra stóriðjusamninga
og umfjöllunar eigenda Landsvirkj-
unar, ekki hvað síst Reykjavíkur-
borgar sem sé eigandi jarðhitarétt-
indanna. „Óneitanlega hrýs mörgum
hugur við þeirri hugmynd að Reykja-
víkurborg .skeri sig úr leik með því
að yfirgefa Landsvirkjun og fórna
markmiðum fyrirtækisins og hlut-
verki fyrir lækkun rafmagnsverðs
til Reykvíkinga og/eða flýtingu arð-
greiðslna til borgarinnar sem óum-
flýjanlega hefði í för með sér hækk-
anir rafmagnsverðs til landsbyggð-
arinnar að öðru óbreyttu. Hvort
þetta er það sem koma skal verður
ósagt látið, en samkeppni af þessu
og öðru tagi þýðir að menn verða
að játast því lögmáli hennar að hafa
ekki á vísan að róa hvað rafmagns-
verðið snertir og sama máli gegnir
um afhendingaröryggi orkunnar,"
sagði Halldór.
Vantar heildarstefnumótun
Finnur Ingólfsson iðnaðarráð-
herra segir að það skipulag orku-
mála sem við búum við í dag sé að
mörgu leyti alveg stefnulaust. Það
vanti heildarstefnumótun á þessu
sviði og ef horft sé á uppbygginguna
á undanförnum árum telji hann að
þar hafi tilviljanir oft ráðið meiru
en meðvituð stefnumótun. Erlendir
ráðgjafar sem hafi skoðað þetta
skipulag orkumála hér hafi sagt að
það sé hægt að koma við mun meiri
hagkvæmni í þessum málum- Það
sem hann leggi megináherslu á að
komi út úr starfi þeirrar ráðgjafar-
nefndar sem hann sé að setja á lag-
girnar séu íjögur meginatriði. í
fyrsta lagi að það náist meiri hag-
kvæmni í raforkukerfinu. í öðru lagi
að það verði kannað hvort hægt sé
að auka samkeppnina á þessu sviði
með það að markmiði að lækka orku-
verðið. I þriðja lagi að ákveðinn
orkujöfnuður sé ti-yggður í landinu
og í fjórða lagi að orkuafhendingin
sé tryggð.
Finnur sagði að það þyrfti að at-
huga hagkvæmni orkuvinnsl.unnar
og orkudreifingarinnar. Aukin hag-
ræðing ætti síðan að geta orðið til
þess að lækka orkuverð. Þess utan
væri það alveg ljóst að eins og stað-
an væri nú eftir samninginn urh
stækkun álversins þá ætti orkuverð
til almenningsveitna að geta lækkað
um 3% að raunvirði árlega frá alda-
mótum samkvæmt upplýsingum
Landsvirkjunar að því tilskyldu að
það kæmi ekkert nýtt til, en aukin
eftirspurn eftir rafmagni á almenn-
um markaði og ef til vili ný stóriðja
gæti orðið tii þess að þær áætlanir
þyrftu endúrskoðunar við.
Finnur sagði að auðvitað væru
skiptar skoðanir um það hvort skyn-
samlegt væri í 260 þúsund manna
samfélagi að auka samkeppni í orku-
vinnslu. Spurningin væri sú hvort
samfélagið væri ekki of lítið til þess
að þar yrði komið við samkeppni.
Þetta væru sjónarmið út af fyrir sig.
Fyrirkomulagið hefði verið þannig
að stærstur hluti orkuvinnslunnar
hefði verið á einni hendi. Út af fyrir
sig væri hann ekki að halda því fram
að það fyrirkomulag hefði gengið
sérstaklega illa, en þó mætti koma
þar við aukinni hagræðingu.
Finnur sagðist aðspurður ekki
útiloka einkavæðingu. Hins vegar
væri hægt að koma við aukinni sam-
keppni án þess að grípa til einkavæð-
ingar. Fyrirfram útilokaði hann ekk-
ert, enda væri nefndin skipuð til
þess að móta tillögur um heppileg-
asta framtíðarskipulagið í þessum
efnum. Eitt af þeim atriðum sem
hann legði áherslu á væri verðjöfnun
orkunnar og hann teldi að hægt
væri að tryggja verðjöfnuð þrátt
fyrir einkavæðingu, þótt margir
væru á öndverðri skoðun.
Hann sagði að ríkisvaldið yrði að
sjálfsögðu við þeirri ósk Reykjavík-
urborgar að ræða um eignarhald og
rekstrarfyrirkomulag Landsvirkjun-
ar. Aðspurður hvort hann teldi koma
til greina að skipta Landsvirkjun upp
sagðist hann vilja skoða það.
Aðspurður hvort ekki væri eðlilegt
að Reykvíkingar nytu eignarhalds
síns á Nesjavallavirkjun í lægra
orkuverði þegar þar væri virkjað,
sagði Finnur að þetta væri eitt af
þeim atriðum sem hlyti að verða
mjög til athugunar í starfi nefndar-
innar, þegar framtíðarskipulag í
orkumálum væri til umræðu. Suður-
nesjamenn hefðu einnig óskað eftir
frekara virkjanaleyfi í Svartsengi.
Hann hefði ekki svarað þeirri ósk
vegna þess að með því væri hann
að opna ákveðna möguleika áður en
tillögur um framtíðarskipulag í orku-
málum lægu fyrir.
Finnur sagðist leggja áherslu á
að nefndin hraðaði störfum eins og
mögulegt væri. Það væri mikilvægt
vegna þess skipulagsleysis sem ríkti.
Skipulagsleysið lýsti sér í því að alls
konar óskir kæmu fram sem margar
hveijar gengju þvert á það litla
skipulag sem fyrir væri. Þau sjónar-
mið væru einnig mög eðlileg að
nauðsynlegt væri að hafa sterkt
orkufyrirtæki sem gæti boðið erlend-
um stórfyrirtækjum orku á hag-
stæðu verði. „Það er ekki nokkur
einasti vafi að styrkleiki okkar í að
ná samningum um stóriðju hefur
meðal annars og að mjög miklu leyti
byggst á því að Landsvirkjun hefur
verið í eigu þessara sterku aðila og
verið mjög sterkt fyrirtæki," sagði
iðnaðarráðherra að lokum.
Verðjöfnun fyrir róða?
Hér hefur ekki verið fjallað um
hvaða mynd samkeppni á orkusvið-
inu gæti tekið á sig. Forstjóri Lands-
virkjunar segir að verði samkeppni
í framleiðslu og sölu á raforku inn-
leidd hér á landi verði ekki fram hjá
því litið að verðjöfnun raforkuverðs
verði um leið varpað fyrir róða. Iðn-
aðarráðherra er á öðru máli. Hann
telur að hægt sé að innleiða sam-
keppni í orkugeiranum, en halda
jafnframt uppi orkujöfnun eins og
fyrr sagði. Um þetta skal ekkert
fullyrt en einungis á það drepið að
ef það viðmið er sett að tiltekinn
jöfnuður þurfi að vera í orkukostn-
aði landsmanna myndi samkeppni á
sviði orkuvinnslu ekki endurspeglast
í lægra orkuverði notenda nema að
því leyti sem verð lækkaði almennt.
Lægra verði eins aðila yrði mætt
með jöfnunargjöldum til að notendur
stæðu jafnfætis og það yrði því ekki
kappsmál fyrirtækjanna að geta
boðið orkuna til notenda á sem
lægstu verði. Lágt orkuverð myndi
því endurspegiast i hag fyrirtækj-
anna og þeim arði sem þau gætu
skilað eigendum sínum, til dæmis
sveitarfélögum.
Þá er þeirri spurningu einnig
ósvarað hvort fleiri og smærri orku-
fyrirtæki verði ekki til þess að
minnka möguleika okkar á að ráð-
ast í stórvirkjanir og semja við er-
lenda aðila um sölu orkunnar. Hafa
smærri fyrirtæki bolmagn til að ráð-
ast í stórvirkjanir eða hægir á upp-
byggingunni vegna þess að skamm-
tímasjónarmið fá aukið vægi á
kostnað langtímasjónarmiða. Þessi
og mörg önnur atriði þarf nefnd iðn-
aðarráðherra að taka afstöðu til í
starfi sínu. Hitt er ljóst að íslending-
ar standa nú á nokkrum krossgötum
í orkumálum og að tími virðist kom-
inn til að skoða og endurmeta skipu-
lag Landsvirkjunar eftir 30 ára starf.
^ nætur frá föstudegi til mánudags allar helgar
1 janúar, febrúar og mars. Valið stendur um
W. Úrvalshótelin Hospitality Inn og Central Hotel
■ ' ÆiMBBwSsem bjóða farþega Úrvals Útsýnar velkomna
-W áárinu 1996.
Verð frá
4 4
740,
Innifalið flug,
gisting í 3 nætur
og skattar.
ÚTSÝN
Lágmúla 4: st'mi 569 9300,
Hafnarfiröi: sími 565 2366, Keflavík: sími 421 1353,
Selfossi: simi 482 1666, Akureyri: sími 462 5000