Morgunblaðið - 14.01.1996, Page 12
12 SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
„Kaf“
kveður
Shin Bet
*
Israelar tóku nokkra áhættu með því að
ráða „Verkfræðinginn“, sprengjusérfræðing
Hamas-hreyfmgarinnar, af dögum segir í
grein Sveins Sigurðssonar en líklega mun
það ekki hafa nein áhrif á framkvæmd friðar-
samningsins við Palestínumenn.
T'IRMAÐUR ísraelsku leyni-
þjónustunnar, Shin Bet,
sagði af sér embætti í síð-
ustu viku, tveimur mánuðum eftir
morðið á Jitzhak Rabin, forsætis-
ráðherra ísraels. Hafði honum þá
borist til eyrna, að hann yrði fund-
inn sekur um vítaverða vanrækslu
í væntanlegri rannsóknarskýrslu
um morðið. Hann skildi þó ekki við
stuttan feril sinn sem yfirmaður
Shin Bet án þess að vinna sér nokk-
uð til frægðar í augum landa sinna.
Það hefur líklega verið eitt af
hans síðustu verkum að skipa fyrir
um og skipuleggja morðið á Palest-
ínumanninum Yahya Ayash, „Verk-
fræðingnum“, sem svo var kallað-
ur, en talið er, að hann hafí sett
saman sprengjumar, sem Hamas-
hreyfingin hefur notað til hryðju-
verka í ísrael.
í ísrael er yfirmaður Shin Bet
aldrei nefndur réttu nafni opinber-
lega og sá, sem nú hefur sagt af
sér, var aldrei kallaður annað en
„Kaf“. Eru það upphafsstafirnir í
skírnarnafni hans en á föstudag
upplýsti dagblað í ísrael að hið rétta
nafn þessa manns væri Karmi Gill-
on. Hafði það áður komið fram í
frétt frá fréttaritara bandaríska
dagblaðsins The Washington Post
í ísrael. Gillon hafði gegnt starfinu
í 11 mánuði og var skipan hans
mjög umdeild enda er hann aðeins
44 ára gamall. Það má líka kalla
það kaldhæðni örlaganna, að í loka-
ritgerð sinni frá Haifa-háskóla fjall-
aði hann einmitt um það, sem varð
honum að falli, öfgastefnur meðal
gyðinga.
Ekkert aðhafst þrátt fyrir
upplýsingar
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem þegar hafa verið birtar um
rannsóknina á morðinu á Rabin,
hófst klúðrið hjá Shin Bet löngu
áður en Yigal Amir skaut forsætis-
ráðherrann á útifundi í Tel Aviv
4. nóvember sl.
Nokkrum mánuðum áður höfðu
leyniþjónustunni borist nokkuð ná-
kvæmar upplýsingar um, að laga-
og guðfræðinemi af jemenskum
ættum við Bar Ilan-háskólann ætl-
aði að ráða Rabin af dögum. Lýs-
ingin átti nákvæmlega við Yigal
Amir, sem þá þegar var farinn að
fylgja Rabin eftir eins og skugginn,
en Shin Bet tók hann aldrei til yfir-
heyrslu og fór ekki fram á það við
heimildamann sinn, að hann gæfi
upp nafnið á væntanlegum tilræðis-
manni.
Þótt hægriöfgamenn meðal gyð-
inga hefðu gert nokkrar árásir á
ísraelska ráðherra, ráðist með
gijótkasti á bíl húsnæðisráðherrans
og reynt að neyða umhverfísráð-
herrann út af vegi á bíl sínum, greip
Shin Bet aldrei til neinna ráðstafana
með það í huga, að æðstu ráða-
mönnum þjóðarinnar gæti stafað
hætta af hatursfullum löndum sín-
um. Á útifundinum örlagaríka í Tel
Aviv var gæslan eingöngu miðuð
við hættuna af arabískum hryðju-
verkamönnum.
Játa hvorki né neita
Af þessum sökum hefur „Kaf“
sagt af sér en í afsagnarbréfínu
kvaðst hann mundu beijást gegn
hugsanlegum ásökunum um van-
rækslu í starfí og reyna að hreinsa
nafn sitt. Hvernig sem það tekst
er ljóst, að ferli hans á þessum
vettvangi er lokið. Hann getur þó
huggað sig við að hafa tekist það,
sem fyrirrennara hans hafði alltaf
mistekist, að ná til „Verkfræðings-
ins“, mannsins, sem er sagður hafa
staðið á bak við hryðjuverk Hamas-
hreyfíngarnar í ísrael en þau hafa
i - mm nnir i mmi i'ö m) T'» inin i
l'ji 'm njji *7ii ’3
íin m Tphm nnn?K3 m nnm isis 'M ;rt/2?öíi
nDrnn
j’jnxi
IWt TlVl? SU
•ftatmsaawKm
gtanjrlnsi-irssnw;
Tftsumœti jwiOin
JiYSXil I
♦vkt rx
tfrvz W 'vr&s
snry& vz
& r&tÞh mrw m
riVícs rtye ,tri
ícnntHa
I |T31‘1'N
rsjs nwssn
•> ý’sn' cnaýiön
3 *n’?x njan’ dk
> Kmi?v pn”
MYNDIR af yfirmanni Shin Bet eru ekki birtar' opinberlega
nema brenglaðar eins og hér á forsíðu dagblaðsins Maariv. Hér
er „Kaf“, sem rettu nafni heitir Karmi Gillon ef marka má frétt-
ir dagblaða í Israel og Bandaríkjunum á föstudag, við gröf
Yitzhaks Rabins viku eftir útför hans í nóvember.
UM 100.000 manns fylgdu Yahya Ayash til grafar. Hér er pal-
estínskur drengur með myndir af honum.
kostað tugi manna lífið. Að venju
hafa ísraelsk yfírvöld hvorki neitað
því né játað að hafa staðið á bak
við morðið á Ayash en ljóst er af
nákvæmum lýsingum á því í ísra-
elskum blöðum, að þau hafa fengið
fréttirnar beint frá Shin Bet. Shim-
on Peres, forsætisráðherra ísraels,
viðurkenndi það líka óbeinum orð-
um þegar hann sagði sl. mánudag,
að ef einhver teldi, að hann gæti
óáreittur myrt tugi ísraelskra borg-
ara, þá væri það misskilningur.
Yahya Ayash, sem var efnaverk-
fræðingur að menntun og Yitzhak
Rabin varð fyrstur til að kalla
„Verkfræðinginn", var í felum á
Gaza og þrátt fyrir margar tilraun-
ir hafði ísraelsku leyniþjónustunni
aldrei tekist að hafa hendur í hári
hans. Að þessu sinni tókst það þó
og nú með aðstoð palestínsks kaup-
sýslumanns á Gaza, Kamals
Hammads, en sagt er^ að hann
hafi verið á mála hjá ísraelum í
langan tíma.
Farsími að gjöf
Kamal Hammad vissi sem var,
að Ayash var í felum hjá frænda
hans, Usama Hammad, og dag einn
kom hann færandi hendi og gaf
honum farsíma, sem Usama þáði
með þökkum. Nokkru síðar bar svo
við, að síminn í íbúðinni varð sam-
bandslaus af einhverjum ástæðum
og þegar faðir Yahya Ayash, Abu
Ayash, vildi hafa tal af syni sínum
varð hann að hringja í farsímanúm-
erið.
„Pabbi, hvernig hefurðu það,“
sagði Ayash og síðan varð allt
hljótt. Örsmá en afar öflug
sprengja, sem leyndist í farsíman-
um, hafði sprungið.
Usama Hammad segir, að höfuð-
ið hafi tæst af Ayash í sprenging-
unni en rétt áður hafði hann veitt
athygli ísraelskri flugvél, sem flaug
fremur lágt yfír Gaza. ísraelsku
blöðin geta sér til, að sprengjan
hafi verið sprengd með merki frá
flugvélinni strax og ljóst var, að
Ayash var í símanum.
Faðir Ayash segir, að þegar sam-
bandið rofnaði hafi hann hringt
aftur og hafi þá verið svarað á
hebresku: „Því miður er númerið
upptekið í augnablikinu. Reynið
aftur.“
PLO, Frelsissamtök . Palestínu-
manna, hafa skipað, að Kamal
Hammad verði handtekinn hvar
sem til hann næst en ísraelsku og
palestínsku blöðin segja, að Shin
Bet hafí greitt honum 65 milljónir
króna fyrir og útvegað honum
falskt vegabréf. Telja sumir, að
hann sé nú þegar kominn til Banda-
ríkjanna þar sem sonur hans býr.
Útreiknuð
áhætta
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, lofaði Ayash sem fallna
hetju og margir þeirra 100.000
manna, sem fýlgdu honum til graf-
ar, sóru að hefna dauða hans
grimmilega. Á því áttu ísraelar líka
von og þeir vissu hvaða áhættu
þeir tóku þegar þeir réðust gegn
Ayash.
Gidon Ezra, sem varð undir í
baráttunni við „Kaf“ um yfirmanns-
embættið í Shin Bet, telur raunar,
að morðið á Ayash eigi sinn þátt
í, að „Kaf“ sagði af sér. Með tilliti
til friðarsamninganna við Palesínu-
menn hafi einfaldlega verið talið
betra, að maðurinn, sem réð Ayash
bana, væri ekki lengur við stjórnvöl-
inn í leyniþjónustunni.
ísraelskir sérfræðingar í hryðju-
verkum segja, að morðið á Ayash
hafí verið útreiknuð áhætta og telja,
að það muni í sjálfu sér ekki hafa
nein áhrif á fyrirætlanir Hamas-
hreyfingárinnar né á framkvæmd
friðarsamninganna við Palestínu-
menn. Arafat hefur líka gert það
lýðum ljóst, að haldið verði áfram
á sömu braut.
Samkvæmt fréttum í ísraelsku
dagblöðunum er nú Palestínumað-
urinn og Hamas-félaginn Mo-
hammed Deif óvinur ríkisins númer
eitt. Er hann sagður stýra hryðju-
verkahópi á Gazasvæðinu og dag-
blaðið Haaretz segir, að innan Shin
Bet sé þegar hafin „vinna í hans
máli“.
r r
Utsalan hefst á morgun • Utsalan hefst á morgun