Morgunblaðið - 14.01.1996, Page 24

Morgunblaðið - 14.01.1996, Page 24
24 SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYNDIR/SAMBÍÓIN eru að taka til sýninga kvikmyndina The Usual Suspects með Stephen Baldwin, Gabriel Byrne, Chazz Palminteri, Pete Postlethwaite og Kevin Spacey í aðaihlutverkum. Hver er Keyser Söse? GABRIEL Byrne og Kevin Spacey eru í tveimur aðalhlutverkum í myndinni. EGAR yfírvöld í New York handtaka í fram- haldi af nafnlausri ábend- ingu fímm þekkta glæpa- menn sem grunur leikur á að hafí tekið þátt í ráni koma þau af stað flókinni atburðarás þar sem ekki er allt sem sýnist. Keðjuverk- un ofbeldisverka nær há- marki í skotbardaga í Kali- forníu þar sem 27 manns falla í valinn í blóðugum bardaga um 91 milljón doll- ara. Meðan beðið er eftir sak- bendingunni fara fímm- menningamir að ræða sam- an. Þetta er ógeðfelldur hópur margbrotinna ein- staklinga. Þama er Dean Keaton (Gabriel Byme) fyrrverandi lögreglumaður sem sneri við blaðinu, svið- setti eigin dauðdaga en full- yrðir nú við fyrrverandi starfsfélaga sína að hann lifí heilsteyptu og fullgildu lífí með stuðningi kærustu sinnar, lögfræðingsins Edie Finneran (Suzy Amis). Ro- ger „Verbal" Kint er svika- hrappur. Þótt hann virðist ekki við fyrstu sýn ekki falla vel inn í hópinn býr hann yfír náðargáfu mikils skipuleggjanda. Þama er líka McManus (Stephen Baldwin) ungur og harð- skeyttur hrappur sem frem- ur sín afbrot í félagi við jafningja sinn Fenster (Benecio Del Toro). Loks fyllir hópinn vopnasérfræð- ingurinn Todd Hockney (Kevin Pollak). í huga starfsmanns al- ríkistollgæslunnar, sem kvaddur er að málinu, David Kujan (Chazz Pal- minteri) skiptir mestu máli að sanna sök á Keaton (Byme). Og það heldur hann áfram að reyna þótt lögrglan neyðist til að sleppa fímmmenningunum eftir að hafa leitt þá saman í fyrsta skipti. Árangur handtökunnar er sá einn að á lögreglustöðinni byija þeir félagar að skipuleggja rán. Þeir ætla að láta til skarar skríða gegn „leigu- bílastöð lögreglunnar", gróðavænlegu svikaneti spilltra lögreglumanna sem taka að sér að flytja ólög- legan vaming um borgina þvera og endilanga í merkt- um lögreglubifreiðum. Áætlunin tekst fullkomlega og fímmmenningamir kom- ast yfír stóra sendingu af óunnum emeröldum. Þeir fijúga til Los Angeles með þýfíð og þótt þeir séu fullir tortryggni hver í annars garð samþykkja þeir að frumkvæði þess sem kaupir emeraldana að taka að sér saman eitt ránið enn. Að þessu sinni tekst ekki eins vel til, auðugur skartgripa- sali í Texas og lífverðir hans láta allir lífíð og þá félaga fer að gruna að maðkur sé í mysunni. í ljós kemur að sá sem fékk þá til að fremja ránið var Eng- Iendingurinn Kobayashi (Pete Postlethwaite) sem sögur herma að sé hand- bendi hins sögufræga og dularfulla glæpasnillings Keyser Söse. Það kemur á daginn að það var Söse sem var átti frumkvæðið að því að kynni tókust með fímm- menningunum á lögreglu- stöð í New York og ástæðan var sú að hver og einn þeirra hafði óafvitandi gert á hlut foringjans með fyrri glæpaverkum. Nú telur Söse að hann eigi inni greiða hjá þessu þjófagengi og lætur Kobayashi gera þeim tilboð sem þeir geta ekki hafnað; þeir þurfa að vinna fyrir Söse í einn dag, í húfi er ágóðahlutur af 91 ÞAÐ eru engar stór- sljörnur í aðalhlutverk- um The Usual Suspects heldur þéttur hópur vandaðra leikara, sem eru kvikmyndahúsagest- um að góðu kunnir. STEPHEN Baldwin (McManus) er einn hinna þekktu Baldwin bræðra,. Alecs, Williams og þeirra. Stephen sló í gegn þegar hann lék hinn unga Buffalo Bill í sjónvarpsþáttunum Yo- ung Riders en hefur síð- an leikið í kvikmyndum á borð við Last Exit to Brooklyn, Born on the Fourth of July, Posse og 8 Seconds. Síðast lék hann á móti Jennifer Ja- son Leigh í Mrs. Parker and the Vicious Circle og í A Simple Twist og Fate á móti Steve Martin og Gabriel Byrne. GABRIEL Byrne og Stephen Baldwin hittast öðru sinni í The Usual Suspects þar sem Byrne milljón dala feng. Verkið er hins vegar hættulegt og framtíðarlífslíkur fímm- menninganna því óljósar. Eins og Kobayashi legg- ur málið upp er hópur Arg- entínumanna, keppinauta Keyser Söse, að undirbúa meiriháttar kókaínviðskipti um borð í bát í San Pedro í Kalifomíu. Með því að eyðileggja bátinn og farm- inn greiða fímmmenning- arnir skuld sína við Herra Söse að fullu. Fenster er tregur í taumi en þegar hann finnst dauður og sundurskotinn sjá félagam- ir að þeir eiga í raun ekki annars úrkosta en að spila með og gera það sem fyrir þá er lagt. Þess vegna mæta þeir þungvopnaðir á bryggjuna í San Pedro og þar brestur á mikill bardagi sem lýkur með mikilli sprengingu. Svo virðist sem fer með hlutverk Dane Keatons. Byrne er Breti, hóf feril sinn á leiksviði í The Abbey Theatre og lék fyrst í kvikmynd í mynd John Boormans, Excalibur. Costas-Gav- ras bauð honum hlutverk í Hannah og síðan lék hann á móti Gretu Scacc- hi í Defense of the Re- alm. Hans þekktasta hlut- verk er sennilega úr myndinni Miller’s Cross- ing eftir bræðurna Joel og Ethan Coen. Vinsæl- asta mynd sem Gabriel Byrne hefur komið.ná- lægt er þó sennilega myndin In the name of the Father, þar sem Daniel Day Lewis sló í gegn í hlutverki manns sem saklaus er dæmdur fyrir aðild að hryðju- verkum IRA. Byrne átti kvikmyndarétt þeirrar sögu, ætlaði upphaflega sjálfur að leika aðalhlut- verkið en var á endanum aðeins tveir hafi lifað af, alvarlega slasaður Ungveiji og Roger „Verbal“ Kint. Ekki er þó hægt að bera kennsl á marga hinna látnu; meðal þeirra sem saknað er er Keaton og orðrómur hermir að sjálfur Keyser Söse hafi fallið í valinn. Kujan og félagar hans yfirheyra Verbal og smám saman kemur hið sanna í ljós. Tvær ráðgátur eru hins einn framleiðenda mynd- arinnar, sem sló ræki- lega í gegn beggja vegna Atlantshafsins og hlaut nokkrar óskarsverðlaun- atilnefningar, þar á með- al fyrir leik Pete Postlet- hwaite í aukahlutverki. PETE Postlethwaite (Kobayashi) hefur um átatugaskeið verið virtur sviðs- og sjónvarpsleik- ari í Bretlandi, meðal annars fastur maður hjá The Royal Shakespeare Company. In the Name of the Father færði hon- um frægð utan heima- landsins en auk hennar hefur hann farið með smærri hlutverk í mynd- um á borð við Síðasta móhíkanann (þar sem Day-Lewis var einnig í aðalhlutverki), Aliens III og Treasure Island. CHAZZ Palminteri (David Kujan) er mörg- um eftirminnilegur úr Woody Allen myndinni Bullets over Broadway, vegar óleystar; er Keaton lífs eða liðinn og síðast en ekki síst hver er Keyser Söse og hvar er hann að fínna.? The Usual Suspects er afurð samvinnu æskufélag- anna Chris McQuarrie, handritshöfundar, og Bryan Singer, leikstjóra, 28 ára gamalla skólabræðra, sem verið hafa með kvikmynda- dellu frá unglingsárum. sem færði honum óskars- verðlaunatilnefningu sem hann þótti vel að kominn. Palminteri er ekki aðeins leikari held- ur einnig leikskáld og vakti fyrst athygli fyrir leik í eigin verki, A Bronx Tale. Robert De Niro valdi leikritið til að gera eftir sína fyrstu mynd og féllst á skilyrði Palminteris að hann fengi sjálfur að leika eitt aðalhlutverkanna. Sú ákvörðun reyndist báð- um farsæl. KEVIN Spacey (Verb- al Kint) lék síðast í Host- ile Hostages á móti Denis Leary og Judy Davis en er einnig eftirminnilegur úr myndum á borð við Consenting Adults, þar sem hann lék á móti Ke- vin Kline og Glengarry Glen Ross, með A1 Pac- ino, Jack Lemmon, Ed Haíris og Alec Baldwin, Henry and June og Work- ing Girl. Mynd þeirra Public Access vann til aðalverðlauna á Sundance kvikmyndahátíð- inni árið 1993 og í fram- haldi af því hófust þeir handa við gerð þessarar. Þótt svo virðist sem hér hafí söguþráður myndar- innar The Usual Suspects- verið rakinn í smáatriðum fer því fjarri að leyndar- dómar hafí verið afhjúpaðir. Þetta er ein þeirra mynda sem er uppfull af óvæntum atvikum og u-beygjum í söguþræði og einskis er lát- ið ófreistað að leiða áhorf- andann á villigötur. The Usual Suspects er í senn glæpamynd, og hálfd- ulrænn sálfræðitryllir. í því er aðdráttarafl myndarinn- ar fólgið fyrir þann fjölda sem lagðist í stórkostlegar pælingar á söguþræði og persónum myndarinnar á veraldervef Internetsins á sl. ári. Hinn dularfulli Keys- er Söse varð á skömmum tíma að þjóðsagnapersónu á veraldarvefnum og eftir- lætisumræðuefni áhuga- manna um kvikmyndir og samsæriskenningar. The Usual Suspects kost- aði aðeins 5,5 milljónir bandaríkjadala í framleiðslu sem þykja smáaurar í Hollywood og hún hefur þegar skilað þeim fjármun- um margfaldlega. Það sem maður gæti haldið að ynni helst gegn vinsældum myndarinnar, það hve sögu- þráðurinn er flókinn, hefur þvert á móti orðið aðals- merki hennar og það sem laðar að henni hörðustu aðdáendurna, sem margir hveijir fara á myndina aftur og aftur til að taka eftir einhveiju smáatriðinu sem fór fram hjá þeim síðast og gefur nýjar vísbendingar um svarið við gátunni sem hinir innvígðu og áhuga- sömu keppast um að svara: Hver er Keyser Söse? En hver er þá Keyser Söse? „Ég hef kenningu um það,“ segir leikstjórinn Bry- an Singer. „Því miður er mín kenning öðru vísi en kenning Chris McQuarrie og hann skrifaði söguna. Hvor hefur þá rétt fyrir sér? „Þú veist það örugg- lega miklu betur en ég,“ segir leikstjórinn. Gæði fremur en frægð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.