Morgunblaðið - 14.01.1996, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1996 31
KARL HINRIK
ÁRNASON
+ Karl Hinrik
Árnason var
fæddur í Víkum á
Skaga hinn 15.
mars 1902. Hann
andaðist í sjúkra-
húsinu á Blönduósi
25. des. 1995. For-
eldrar hans voru
hjónin Árni Anto-
níus Guðmundsson
og Anna Lilja Tóm-
asdóttir í Víkum.
Systkini Karls
voru: Guðmundur,
Vilhjálmur, Fann-
ey, Sigríður, Hilm-
ar, Leó, Hjalti og Lárus.
Hinn 31. júlí 1936 kvæntist
Karl Margréti Jónsdóttur frá
Skrapatungu, f. 12. feb. 1910,
d. 19. nóv. 1986. Börn þeirra
eru Þórsteinn Finnur, f. 16.
júlí 1937, Lilja Sæbjörg, f. 26.
okt. 1938, Valgeir Ingvi, f. 11.
sept. 1943, Sigríður Björk, f.
23. apríl 1947 og Árni Sævar
f. 24. sept. 1950.
Karl var jarðsettur í heima-
grafreit í Víkum hinn 6. janúar
1996.
FYRSTA minning mín um Kalla í
Víkum, eins og við sveitungar hans
nefndum hann jafnan, er frá
bernskuárum mínum. Eg man hann
þar sem hann var að setja gluggann
aftur í stofuna heima á Tjörn, en
þannig stóð á brottnámi hans að
líkkista afa míns hafði verið tekin
þar út því bæjardyrnar höfðu reynst
of þröngar fyrir hana. Mér er vel
í minni að þegar Kalli hafði tokið
við að lagfæra gluggann steig hann
á bak hesti sínum og reið á eftir
líkfylgdinni. Hann hafði tvo til reið-
ar og það sópaði að honum enda
sat hann vel hest og var jafnan vel
ríðandi.
Kalli ólst upp í foreldrahúsum í
Víkum á umsvifamiklu myndar-
heimili í stórum systkinahópi þar
sem reglusemi og festa einkenndu
heimilisbraginn. Þar þekktist ekki
annað en að börn færu að vinna
gagnleg störf jafnskjótt og kraftar
þeirra leyfðu. Af því lærðist iðju-
semi og ungviðið fékk á tilfinning-
una að framlag þess skipti nokkru.
Víknabúið var stórt en jörðin frem-
ur erfið, fénaðarferð mikil og engja-
heyskapur langt sóttur. Vinnudag-
urinn mun því oft hafa orðið lang-
ur. Árni faðir Karls var trésmíða-
meistari að iðn og stundaði hana
jafnan ásamt búskapnum. Hann
mun ætíð hafa leitast við að verða
við bónum manna um smíðavinnu
eftir því sem kostur var og gekk
jafnvel úr verki sínu til að liðsinna
aðvífandi mönnum. Anna móðir
hans var einnig einstök að greið-
vikni og góðsemi, ekki síst við þá
sem minna máttu sín. Karl nam því
hjálpsemi og greiðasemi í ríkum
mæli í uppvextinum og gerði að
hætti sínum.
Kalli var einstakur hagleiksmað-
ur, jafnvígur á smíðar úr tré og
járni, og munu þeir hæfileikar hans
hafa komið snemma í ljós. Hann
naut leiðsagnar föður síns við smíð-
ar í æsku og minntist þess oft
hversu vel það veganesti hefði enst
sér. Á yngri árum vann Kalli við
smíðar á Akureyri og víðar um ára-
bil. Þá fór hann einnig að fást við
að leggja miðstöðvarlagnir í hús og
aflaði sér nauðsynlegra verkfæra
til þess sem hann pantaði sum beint
frá útlöndum. Varð hann fljótlega
eftirsóttur til þessara starfa svo
þeir urðu æði margir bæimir sem
hann lagði miðstöðvar í og rak með
því á braut híbýlakuldann, versta
óvin íbúanna í torf- og timburhús-
unum. Þá voru þeir ófáir bæirnir
sem Kalli lagði vatnsleiðslur í og
oft var þá settur vaskur og frá-
rennsli út úr bænum um leið. Eg
hygg að margoft hafi Kalli unnið
þessi störf fyrir efnalítið fólk án
nokkurrar greiðslu. En minnisstætt
var honum á efri árum hversu mik-
ið þakklæti hann hlaut
fyrir hjá fólki, ekki síst
hjá húsmæðrunum
enda munaði þær mest
um framfarir af þessu
tagi og gladdi þetta
hann mikið í ellinni,
enda órækur vitnis-
burður þess að störf
hans höfðu sannarlega
verið nytsamleg. Kalli
hélt smíðavinnu áfram
eftir að hann tók að
stunda búskap, ýmist
einn eða með öðrum,
enda hafði hann ætíð
mikla gleði af hvers-
kyns smíðum og ef til vill nutu eðlis-
kostir hans sín best á þeim vett-
vangi. Hann var afar fjölhæfur
smiður og óragur að takast á við
ný verkefni þótt hann hefði ekki
fengist við slíkt áður. Eg minnist
þess að þegar smíðar bar á góma
lagði Kalli í Víkum einkum áherslu
á tvennt. Mikilvægast taldi hann
að vanda öll verk til hins ítrasta
og hafði þá jafnan á orði að þegar
frá liði yrði þess ekki spurt hversu
lengi smíðin hefði staðið yfir heldur
hversu vel hefði verið vandað til
verksins. Hann fór líka sérstaklega
vel með allt smíðaefni, nýtti það
eins og best var kostur og hafði
óbeit á sóun og sóðaskap. Meðal
þeirra smíða sem hann sinnti voru
bátaviðgerðir, en meðan enn var
róið frá Kálfshamarsvík gerði hann
talsvert af því að lagfæra báta.
Hann smíðaði sér tveggja manna
far úr rekaviði heima í Víkum og
átti um langt skeið vélbátinn Svan
sem hann notaði bæði til fiskveiða
og aðdrátta fyrir heimilið. Kalli
hafði ánægju af að fara með bát
og vera á sjó.
Samgöngubætur voru Kalla hug-
leiknar. Sjálfur þurfti hann að fara
um langan veg og erfiðan til að-
drátta og hafði oft á orði hversu
ómetanlegar vegabætur væru.
Hann lagði sitt af mörkum til vega-
bóta og starfaði oft við erfið skil-
yrði með undraverðum árangri.
Hann stýrði meðal annars vega-
vinnu í svonefndum sneiðingum
beggja vegna við Digramúla þar
sem aðstæður til vegagerðar voru
. frámunalega erfiðar, yfir gijóturð
að fara og bratti mikill. Ekki var
þá um önnur verkfæri að tefla en
einföldustu handverkfæri og gijót-
gálga. Því vekur furðu nú hversu
stórum steinum vegagerðarmönn-
unum tókst að koma fyrir í veg-
hleðslunni. Brú smíðaði Kalli á
Fossá á Skaga fyrir Vegagerðina
fyrir um það bil hálfri öld, sem enn
er notuð. Ekki þurfti hann að nota
nema tvo þriðju hluta þess fjár sem
til verksins var ætlað og sýndi þar
sig sem oft fyrr og síðar hversu
verkhygginn hann var.
Þegar Árni faðir Kalla andaðist
árið 1931 varð hann fyrir framan
á búi móður sinnar uns hann kvænt-
ist Margréti Jónsdóttur árið 1936
og tók sjálfur við Víknabúinu. Hann
varð ágætur bóndi þó hugur hans
muni þá ekki hafa staðið til búskap-
ar umfram önnur störf. Hann fylgd-
ist ætíð vel með allri þróun sem
varð í þá átt að auðvelda og létta
hin daglegu störf og bjó sér margt
í haginn. Hann varð með fyrstu
mönnum hér um slóðir til að eign-
ast dráttarvél og hann kom upp
vindrafstöð í Víkum snemma á bú-
skaparárum sínum. Einnig byggði
hann upp útihús jarðarinnar með
nútímasniði. Meðal þeirra nytsemd-
artækja sem Kalli varð sér úti um
var sögunarbekkur sem dráttarvél-
in var látin knýja. í honum vann
hann rekavið í smíðavið og olli þetta
byltingu í nýtingu rekaviðar á
Skaga.
Þau Karl og Margrét í Víkum
urðu fyrir þeirri þungbæru reynslu
að horfa á bæ sinn brenna ásamt
nær öllum innanstokksmunum. Eg
mun vart nokkurntímann gleyma
rósemi þeirra og æðruleysi meðan
við horfðum á eldinn eyða húsinu
án þess að fá nokkuð að gert. Ekki
get eg gert mun á því hvort þeirra
var sterkara á þeirri stund. Er þetta
gerðist voru þau af léttasta skeiði
en einhuga um að reisa nýtt íbúðar-
hús í Víkum og nutu til þess ein-
dregins stuðnings barna sinna.
Víknabærinn brann að vori og um
sumarið dvaldi fjölskyldan hjá ná-
grönnunum í Ásbúðum. En skömmu
eftir brunann hófu Karl og synir
hans að hreinsa rústina, byggðu
yfir þá veggi sem eftir stóðu og
gerðu þar íverustað eftir því sem
föng voru á. Þar dvaldi Víknafólk
meðan nýtt hús var í byggingu. Þá
var hlutskipti Margrétar erfitt því
þetta bráðabirgðahúsnæði var lé-
legt og um þetta leyti tók heilsu-
fari hennar mjög að hraka þannig
að hún var sárlasin löngum stund-
um. Þau Víknahjón voru ætíð sam-
hent um uppeldi barna sinna og hag
heimilisins í Víkum. Margrét var
skarpgreind kona, ijóðelsk og bók-
hneigð. Hún naut ekki langrar
skólagöngu fremur en þorri kvenna
af hennar kynslóð en stundaði
sjálfsnám eftir því sem föng voru
á og varð læs á norræn tungumál
sér til gagns og gleði og átti tals-
vert safn bóka á þeim tungum.
Margrét hafði þó jafnan nauman
tíma til að sinna áhugamálum sín-
um. Heimilið var stórt og gesta-
gangur fjarska mikill, ekki síst
vegna smíðastarfa Kalla og sona
hans. Margrét stríddi við heilsu-
brest frá miðjum aldri og sjóndep-
urð kom í veg fyrir að hún nyti
bóklesturs síðustu árin en hún
heyrðist.aldrei harma hlutskipti sitt.
Hún naut þess að dvelja í skjóli
barna sinna heima í Víkum allt fram
undir andlátið.
Nú þegar stundaglas míns gamla
vinar er tæmt leita minningar frá
áratuga kynnum og samstarfi á
hugann. Eg rifja hér upp eina af
mörgum ferðum mínum til Kalla í
Víkum því mér þykir hún lýsa vel
viðhorfum hans og viðmóti. Eg mun
þá hafa verið nálægt fermingu og
túnasláttur stóð sem hæst. Það
óhapp varð á heimili minu að svo-
nefnd hlaupastelpa í hestasláttuvél
brotnaði og lemstraðist og varð þá
sláttuvélin ekki notuð meir. Eg var
nú sendur að Víkum með þennan
laskaða hlut að biðja Kalla að gera
við. Ekki var mér létt í huga að
þurfa að reka þetta erindi því ég
vissi að allir voru önnum kafnir við
heyskap. Þegar eg kom heim að
túnhliðinu í Víkum sá eg hvar Kalli
var að slá umskök upp með bæjar-
læknum með orfi. Eg batt hestinn
við hestasteininn, leysti pokann frá
hnakknum og gekk í átt að sláttu-
manninum. Þegar hann sá mig
nálgast strauk hann brýninu um
egg ljásins, lagði svo frá sér orfið
og kom í humáttina á móti mér.
Við heilsuðumst og áttum einhver
orðaskipti en fljótlega innti Kalli
mig að erindi. Ég rétti þá fram
pokann og sagði hvað væri. Hann
tók upp brotin og rýndi á nokkra
stund en eg sagði eins og til afsök-
unar að þetta væri illa brotið. Hann
svaraði því til að ekki þyrftu heil-
brigðir læknis við, kvaðst líta á
+
Móöir mín og systir okkar,
INGA ÓLÖF INGIMUNDARDÓTTIR,
Lyngbrekku 18,
Kópavogi,
lést í Borgarspítalanum föstudaginn 12. janúar sl.
Anna Jóna Baldursdóttir
og systkini hinnar látnu.
gripinn og hvarf á brott með pok-
ann en vísaði mér til bæjar. Ekki
sló Kalli meira daginn þann heldur
stóð við hefilbekk og í eldsmiðju
sinni. Komið var fram á nótt þegar
eg reið heimleiðis léttur í huga með
hinn bilaða hlut sem nýjan úr hönd-
um Kalla. Eg fór margar viðlíka
ferðir til Kalla og ætíð gerði hann
annað tveggja að leysa úr vanda
mínum sjálfur eða réð mér til um
úrlausn hans.
Karl í Víkum var afburða vand-
aður maður til orðs og æðis, átti
gott með að umgangast annað fólk
og naut virðingar þeirra sem kynnt-
ust honum. Ekki var honum síst
lagið að eignast vináttu og aðdáun
barna en þau hændi hann óðara að
sér. Hann var bindindismaður alla
sína ævi, það var lífsstíll hans.
Karl var einarður í skoðunum og
hafði nægjanlegt traust á sjálfum
sér til að takast á hendur erfið og
torleyst verkefni en hann var full-
komlega laus við yfírlæti og mikl-
aðist ekki af verkum sínum. Sjálfs-
bjargarviðleitni hans var sterk og
lagði hann jafnan mikla áherslu á
að búa vel að sínu og bjargast af
eigin rammleik. Hann var vel á sig
kominn líkamlega, ríflega meðal-
maður á hæð, þrekvaxinn en aldrei
feitur. Hann átti létt með að hreyfa
sig og gerði það óspart. Á efri árum
sínum gekk hann mikið sér til
skemmtunar og heilsubótar og er
ekki efamál að heilbrigðir lifnaðar-
hættir hans áttu mikinn þátt í því
að líf hans varð svo langt og far-
sælt sem raun var á. Hann hélt
lengi styrk sínum, jafnt andlegum
sem líkamlegum, helst var að
heyrnardeyfa bagaði hann, en var
farið að förlast nokkuð allra síðustu
árin sem hann lifði. Hann hélt þó
hinni næmu tilfinningu sinni fyrir
góðri umgengni og natni við að
halda hlutunum í lagi fram á efstu
daga.
Eg á hlýjar og góðar endurminn-
ingar um löng og heillarík kynni
við Karl í Víkum og nú þegar hann
er allur finn ég til eyðileika. Staður
hans er tómur, en minning um góð-
an mann lifir þótt leiðir skilji. Karl
varð aldraður maður og síðasti full-
trúi þeirrar kynslóðar manna sem
stóðu fyrir búi hér um slóðir þegar
eg man fyrst eftir mér. Hann dvaldi
hjá börnum sínum heima í Víkum
í elli sinni utan tvö síðustu æviárin
að hann var langdvölum á Héraðs-
sjúkrahúsinu á Blönduósi vegna
heilsubrests. Nú skömmu fyrir jól
var ljóst að dauðinn var í nánd. Eg
kom til hans daginn fyrir Þorlák
og þegar eg gekk frá sjúkrabeði
hans það sinn átti eg þá ósk eina
honum til handa að þessu stríði
mætti ljúka sem fyrst. Hann fékk
hvíld á annan jóladag. Blessuð sé
minning míns góða vinar.
Sveinn Sveinsson á Tjörn.
+
Maðurinn minn og bróðir okkar,
BIRGIR GUÐMUNDSSON
bryti,
Alakvfsl 112,
verður jarðsunginn frá Fossvogskrikju mánudaginn 15. janúar
kl. 15.00.
Ingileif Friðleifsdóttir,
Ólafur Guðmundsson,
Haukur Guðmundsson.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
ÞÓRUNN JÓNA ÞÓRÐARDÓTTIR,
elliheimilinu Grund,
verður jarðsungin frá Neskirkju mánudaginn 15.janúarkl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vildu
minnast hinnar látnu, er bent á líknarfélög.
Sigurmundur Guðnason,
Guðni Sigurmundsson, Edda Sveinbjörnsdóttir,
Garðar Guðnason,
Karólína Þórunn Guðnadóttir.
+
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
INGVELDUR GÍSLADÓTTIR,
Tjarnarbraut 29,
Hafnarfirði,
sem lést 6. janúar sl., verður jarðsung-
in frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn
16. janúar kl. 13.30.
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, Örn Forberg,
Margrét Jónína Guðmundsdóttir, Gísli Engilbertsson
og fjölskyldur.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar end-
urgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringl-
unni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akur-
eyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi í númer
691181. Það eru vinsamleg tilmæli blaðsins að lengd greinanna fari
ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega
línulengd — eða 3600-4000 slög. Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmark-
ast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein-
ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfrétt-
ir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali
eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Word-
perfect einnig auðveld í úrvinnslu.