Morgunblaðið - 14.01.1996, Side 38
38 SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Ferdinand
Er hinn heimsfraegi lögfræðingur á leið til dóms- Já, herra dórnari, við skulum sanna að skjólstæð-
hússins? Mjög mikilvægt mál. ingur minn ætlaði sér aldrei að fara inn i garðinn
hans Guðmundar.
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Miðhúsasjóður og
vísindafrelsi
Frá Birgi Guðjónssyni:
SKOÐANIR sem ganga þvert á
skoðanir ráðamanna hafa í íslensku
máli verið nefndar trúvilla (á ensku
heresy). Trúvilla gat varðað dauða-
sök. Alllangt er síðan trúvilluaftökur
voru aflagðar í hinum vestræna
heimi en virðast nú aftur uppteknar
á íslandi.
Dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
hefur fengið áminningu frá þjóð-
minjaverði með fullri blessun þjóð-
minjaráðs. Áminning er fyrsta stigið
í brottrekstri úr opinberu starfi og
atvinnulegri aftöku. Sök dr. Vil-
hjálms virðist vera sú, að hafa haft
þá skarpskyggni til að bera að sjá
að eitthvað væri bogið við Miðhúsa-
silfrið, og kjark til að halda því fram.
Samkvæmt blaðafregnum hafa
erlendir sérfræðingar staðfest að við
smíði hluta sjóðsins hefur silfursmið-
ur notað tækni sem eingöngu var til
staðar eftir iðnbyltingu. Hluti sjóðs-
ins er því ótvírætt fabrikeraður.
Dr. Vilhjálmur Orn reyndist þann-
ig hafa á réttu að standa. Slíkt virð-
ist vera dauðasök þegar forsvars-
menn íslenskra fornleifa hafa talið
það meðal merkustu fomleifafunda
á íslandi og helgidóm hinn mesta.
Erlendu sérfræðingarnir hafa hins
vegar ekki verið sammála um hversu
mikið af sjóðnum gæti verið forn og
safnið hefur ekki gert tilraun til að
fá endanlega úr því skorið.
Þjóðminjasafnið ætti að vera
áreiðanleg miðstöð vísindalegra
rannsókna á íslenskum fomminjum.
Þjóðminjavörður telur það hafa orðið
fyrir ómaklegu aðkasti. Vísindavinna
getur aldrei verið hafín yfír gagnrýni
eða endurskoðun, hún verður einfald-
lega að standast hana. Áminning sú
sem dr. Vilhjálmi Emi er veitt er
ósæmiieg aðför að vísindaiðkun og
skoðanafrelsi. Hún verður vart til að
bæta ímynd Þjóðminjasafnsins.
BIRGIR GUÐJÓNSSON,
sérfræðingur í lyflækningum.
Falleg mynd
um vættir lands
Frá Baldri Hermannssyni:
ÞAÐ ER full ástæða til að þakka
Sjónvarpinu fyrir athyglisverða
heimildarmynd, sem sýnd var á
sunnudagskvöldi og fjallaði um vætt-
ir landsins. Þetta var falleg mynd
og fróðleg. Myndataka var mjög
óvenjuleg á köfluhi - landið ýmist
sveipað dvínandi dagsbirtu, tungls-
Ijósi eða snjómuggu og sýnist mér
að þar hafi Sigurður Grímsson farið
inn á nýja slóð í myndatöku fyrir
sjónvarp, og á hann heiður skilinn
fyrir það.
Eftirminnilegar voru frásagnir
manna, sem höfðu reynslu af huldu-
heimi; einkum minnist ég þess
gáfaða og góða drengs, Steingríms
Bjamasonar, sem var hagorður mað-
ur um sína daga. Mjög hefur honum
verið hugleikið að færa okkur íslend-
ingum að gjöf söguna af huldukon-
unni í steininum heima, og hjartnæm
var sú frásögn, þegar hann gerði
ráðstafanir til að forða steininum frá
glötun. Steingrímur mun hafa andast
fáeinum klukkustundum eftir að
upptöku viðtalsins lauk. Nú er sagan
þjóðareign og það verður hlutverk
Bolvíkinga að sjá til þess að sæmi-
iega verði að steininum búið, heim-
kynnum huldukonunnar.
Þá var merkilegt að heyra gagn-
orða skilgreiningu séra Rögnvalds
Finnbogasonar á afstöðu huliðs-
heima og kirkjukenninga. Sýndi sá
fróði maður, að vel hefur honum tek-
ist að sameina í sjálfum sér traustan
kristindóm og tryggð við rammís-
lenska þjóðtrú. En séra Rögnvaldur
er nú ekki lengur meðal vor, frekar
en Steingrímur Bjarnason.
Það er fengur að myndum sem
þessum. Hafi þau hjón, Angelika
Andrees og Sigurður Grímsson, kæra
þökk fyrir notalega kvöldstund.
BALDUR HERMANNSSON,
Krummahólum 8, Reykjavík.
Hákarlar og krókódílar
tákn samkeppninnar
Frá Ingólfi Guðbrandssyni:
í DAG lýkur hér í Surabaya á eynni
Jövu 15. árlegri ferðakaupstefnu
Suðaustur-Asíu. Er hún haldin til
skiptis i aðildarlöndunum sex, sem
hafa með sér bandalag um kynningu
á menningu og ferðaþjónustu. Tákn-
rænt fyrir síharðnandi samkeppni er
merki kaupstefnunnar að þessu sinni
í formi bardaga milli hákarls og
krókódíls.
Hvergi er vöxtur ferðamennsk-
unnar jafnör og hér. Flugferðum
fjölgar og ný glæsihótel spretta upp
með þjónustu, sem ekki á sinn líka
annars staðar í heiminum. Hvorki
Evrópulöndin né Ameríka standast
þeim snúning hvað þetta varðar.
Fjöldi viðtala við kaupstefnugesti
víðs vegar að hefur birst í ferðablað-
inu TTG - Travel Trade Gazette
undanfarna daga, þar sem viðmæl-
endur láta óspart í ljós undrun sína
og aðdáun á yfírburðum ferðaþjón-
ustunnar og gestrisninni í Suðaustur-
Asíu. Tæland, Malaysía og Indónesía
eru leiðandi enn sem komið er. Al-
þjóðlegu hótelhringarnir færa út
kvíamar og reisa ný hótel í löndum,
sem voru áður lokuð en keppast nú
við að opna dyr sínar fyrir erlendum
ferðamönnum, sýna sérkenni sín,
sögu og menningu, svo sem Víetnam,
Kambódía og Burma, sem nú heitir
Myanmar og heldur upp á árið 1996
sem sérstakt boðsár ferðamanna.
INGÓLFUR GUÐBRANDSSON,
Surabaya, Indónesíu.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.