Morgunblaðið - 14.01.1996, Blaðsíða 40
tO SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
6RIDSSKÓUNN
(*) (*♦)
Námskeið á vorönn
Byrjendur: Hefst 23. janúar og stendur yfir í 10 þriðjudagskvöld frá kl. 20-23.
Framhald: Héfst 25. janúar og stendur yfir í 10 fimmtudagskvöld frá kl. 20-23.
Á byrjendanámskeiðinu eru sagnir helsta viðfangsefnið, enda sjálf spilamennskan
mest þjálfunaratriði fyrst í stað. Þegar upp er staðið kunna nemendur
grundvallarregturnar f Standard-sagnkerfinu.Vönduð kennslubók fylgir. Engrar
kunnáttu er krafist og ekki er nauðsynlegt að hafa með sér spilafélaga.
Á framhaldsnámskeiðinu er jafnframt lögð mikil áhersla á varnarsamstarfið og
spilamennsku sagnhafa. Það hentar fólki sem hefur nokkra spilareynslu en vill taka
stórstígum framförum.Vönduð kennslugögn fylgja og nokkuð er um
heimaverkefni.
Bæði námskeiðin fara fram í húsnæði BSÍ, Þönglabakka I f Mjódd.
Frekari upplýsingar og innritun
í síma 564 4247 milli kl. I4 og I8 virka daga.
í Jeep Grand Cherokee Laredo 4x4, árgerð '94 (ekinn
18 þús. mílur), Ford AerostarXL, árgerð '93, Chevrolet
Blazer S-10 4x4 (tjónabifreið), árgerð '89 og aðrar bifreið-
ar, er verða sýndar á Grensásvegi 9 þriðjudaginn
16.janúarkl. 12-15.
Ennfremur óskast tilboð í I.H.C. Cargostar vörubifreið
m/dieselvél, árgerð'81.
CATERPILLAR DIESELRAFSTÖÐVAR
Tilboð óskast í tvær Caterpillar dieselrafstöðvar,
200 kw. og 100 kw.
Vélarnarverða sýndará Grensásvegi 9 þriðjudaginn
16. janúarkl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.00.
SALA VARNARLIÐSEIGNA
Tímatafla - opnir tímar
Tlmi Mánud. Þriðiud. Miðvikud. Fimmtud. Fðstud. Laugard.
7.30- 8.30 Yoga Yooa Yoga
9.00-10.15 Yoga
12.10-13.10 Yoga Yoga Yoga Yoga Yoga
16.30-17.45 Yoga konur Yoga konur
17.10-18.10 Yoga Yoga Yoga Yoga
18.20-19.35 Yoga Yoga Yoga voga... Yoga
Ásmundur Gunnlaugsson Einar Bragl Isleifsson Heiðrún Kristjánsdóttir
Þökkum frábærar víðtökur fyrstu opnunarvikuna.
Við bjóðum upp á fullkomna aðstöðu til jógaiðkunar í
nýinnréttuðu og glæsilegu húsnæði, böð, sauna og nudd.
Vilt þú prófa?-1. tlmi er ókeypis gegn framv. auglýsingarinnar.
Næstu námskeið:
Grunnnámskeið 5. feb. (8 skipti) mán. & mið. kl. 16.30-18.00
Jóga gegn kvíða 6. feb. (8 skipti) þri. & fim. kl. 20.00-22.00
Grunnnámskeið 13. feb. (8 skipti) Þri. & fim. kl. 20.00-21.30.
Y0GA&
STUDIO
Hátúni 6A, 105 Reykjavík, I
símar 511 -3100 og 552-8550. J
^ Kripalujóga — Leikfimi hugar og líkama
I DAG
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
HVÍTUR leikur
og vinnur.
STAÐAN kom upp á stór-
mótinu í Groningen í Hol-
landi fyrir áramótin í viður-
eign tveggja ungra stór-
meistara. Rússinn Sergei
Tivjakov (2.625) hafði hvitt
og átti leik, en Hollendingur-
inn Loek Van Wely (2.585)
var með svart.
Hvítur lokkaði svart til að
hirða peð á c2 til að fá frjáls-
ar hendur í sókninni og nú
kom giæsilegur vinn-
ingsleikur:
21. Hf7! (miklu
sterkara en 21.
Dxe6+? - Kh8 sem
svartur hefur líklega
reiknað með) 21. -
Rf8 (Besta vömin,
21. - Kxf7 22.
Dxh7+ - Kf8 23.
Hfl+ er auðvitað
vonlaust með öllu.)
22. Hafl - Dc4 (Til
að geta svarað 23.
Dh6 með drottning-
arfóminni 23. -
Dxfl+) 23. Bd2 -
e5 24. Rd5 - Bxd5 25.
exd5 - h5 26. gxh6 - Kh8
27. Hg7 - Rh7 28. De6 og
svartur gafst upp og hætti
loksins þessari vonlausu bar-
áttu.
Fjórða umferðin á Skák-
þingi Reykjavíkur fer fram
í dag kl. 14 í félagsheimili
TR í Faxafeni 12.
Með morgunkaffinu
Ást er ...
að fara saman að tína
jarðarber.
TM Reg U.S. . — U righti rotorvod
(c) 19ÖS Lo® Angotes Timos Syndicato
MÉR kemur ekkert við
hver þú ert. Hér fá allir
vængi.
COSPER
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Skatturá
lífeyrisgreiðslur
hefurhækkað
SKÚLI Einarsson
hringdi og sagðist hafa
tekið eftir því að lífeyris-
sjóðsgreiðslur sem hann
fær mánaðarlega voru
lægri nú þennan mánuð
en hann átti að venjast.
Þegar hann hringdi í líf-
eyrissjóð sinn og spurði
hveiju þetta sætti, var
honum tjáð, að hann
borgaði hærri skatta
núna en hann hefði gert
hingað til. Skúla langar
til að vita hveiju þetta
sæti, því hann taldi sig
hafa lesið í blöðum að
skattur af lífeyrisgreiðsl-
um hefði lækkað um
15%.
Hann telur þetta lodd-
arabrögð aldarinnar og
vill vita hvort fleiri hafi
orðið fyrir þessu.
Gagnorðar og
skilmerkilegar
Ég þakka Jóni Sigurðs-
syni, forstjóra Járn-
blendifélagsins, fyrir
góða grein í Morgun-
blaðinu 10. janúar sl.
Greinar Jóns eru ávallt
gagnorðar og skilmerki-
legr. Það er því miður
alltof fáum gefið að
fjaila þannig um málefni
líðandi stundar að upp-
lýsandi sé. Ef tækifæri
gefst berið þá saman
efnistök Jón og þeirra
sem kunna að grípa til
andmæla. Þá sjáið þið
væntanlega hvernig
þokubakkinn tekur við
af heiðríkjunni.
RT
Tapað/fundið
Hjól tapaðist
BLÁTT fjallahjól af
gerðinni Trek hvarf frá
Hjallaskóla í Kópavogi
fimmtudaginn 30. nóv-
ember á milli kl. 12.40
og 13.30. Hafi einhver
orðið var við svona hjól
er hann beðinn að hafa
samband í síma
554-3518 eða skila því á
lögreglustöðina í Kópa-
vogi.
Seðlaveski
tapaðist
SVARBLÁTT seðlaveski
með öllum skilríkjum og
kortum tapaðist, líklega
fyrir utan Björninn í
Borgartúni eða fyrir utan
Kirkjusand, sl. fimmtu-
dag. Finnandi vinsam-
lega hringi í síma
567-8225 eða 560-8000.
Sigurbjöm.
HÖGNIIIREKKVÍSI
z/ Eriu QÍ h/aupast htíman?4'
Víkveiji skrifar...
LJÓMSVEITIN Jet Black Joe
er á leið til útlanda að leita
frægðar og frama. Víkverji hefur
nokkrum sinnum hlýtt á leik sveit-
arinnar, nú síðast á Gauk á Stöng
á fimmtudagskvöldið. Engum vafa
er undirorpið að þessi unga hljóm-
sveit á möguleika á velgengni er-
lendis, bæði vegna góðra lagasmíða
og framúrskarandi hljóðfæraleiks
og söngs. Björk hefur rutt brautina
og nú er um að gera fyrir ungt og
framsækið tónlistarfólk að freista
einnig gæfunnar úti í hinum stóra
heimi.
xxx
IBLAÐINU Fréttum í Vestmanna-
eyjum mátti nýlega lesa athygl-
isverða frásögn, sem höfð er eftir
manni að nafni Hilmar Nínon. Seg-
ist Hilmari svo frá, að hann hafi
farið í bíltúr suður í Stórhöfða. Á
leiðinni var hann tvisvar sinnum
næstum því búinn að keyra niður
göngugarpa sem voru á fullri ferð
og án endurskinsmerkja. Þegar
Hilmar var kominn langleiðina út á
Breiðabakka hægði hann ferðina því
hann vissi að rollumar hans Dadda
pabba voru á vappi í kringum veg-
inn. En áhyggjur Hilmars voru
óþarfar því búið var að festa á þær
endurskinsmerki svo ekki verði keyrt
á þær. „Meira að segja rollumar eru
mannfólkinu fremri hvað þetta
snertir," hefur blaðið eftir Hilmari.
BLAÐINU hefur borist eftirfar-
andi bréf frá Sigrúnu L. Jó-
hannsdóttur miðasölustjóra Þjóð-
leikhússins.
„í tilefni af skrifum Víkverja um
afgreiðslu miða út á gjafakort Þjóð-
leikhússins vill miðasala Þjóðleik-
hússins koma eftirfarandi upplýs-
ingum á framfæri:
Gjafakort Þjóðleikhússins gilda
út leikárið, sem þau eru keypt á
(lok leikárs miðast við 1. júlí ár
hvert) en ekki í eitt ár eins og stend-
ur í fyrrnefndum skrifum. Er þetta
skýrt tekið fram á kortinu sjálfu.
Verð leikhúsmiða hefur aldrei
verið hækkað á miðju leikári Þjóð-
leikhússins heldur í byijun leikárs
þegar hækkanir hafa verið svo sem
var sl. haust. Gjafakort það sem
um er rætt í grein Víkveija virðist
því vera kort sem hefur verið út-
runnið, þ.e. kort sem keypt hefur
verið á leikárinu áður og því á öðm
verði en þau kort sem seld em á
yfírstandandi leikári, en handhafa
þess samt sem áður verið leyft að
nýta kortið.
Þar sem við höfum ekki sýnt þá
stífni að halda fast við gildistíma
gjafakorta en liðkað til og leyft við-
komandi að nýta kort þótt útmnnið
væri, hefur það verið regla að mis-
munur sé greiddur, ef hækkun hef-
ur orðið á miðaverði eftir að kortið
féll úr gildi.
Hafi hér orðið einhver misbrestur
á, þykir mér það leitt og bið hlutað-
eigandi að snúa sér beint til mín
þar sem • ég kannast ekki við að
hafa fengið þetta mál á mitt borð.“