Morgunblaðið - 17.01.1996, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1996
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Markaðs-
setning
hafnarinnar
að skila sér
AKUREYRARHÖFN hafa bor-
ist tilkynningar um 36 komur
skemmtiferðaskipa næsta sum-
ar en sl. sumar voru skipakom-
umar 38. Á bak við skipakom-
umar standa 18 skemmtiferða-
skip.
Fyrsta skipið kemur 30. maí
og er það óvenju snemma á ferð-
inni. Síðasta skipið sem hefur
boðað komu sína til Akureyrar
kemur 15. september og er það
einnig óvenju seint á ferðinni.
Fyrsta skemmtiferðaskipið
sem heimsækir Akureyri á þessu
ári heitir Victoria og er 28.000
tonn að stærð. Stærsta skipið
sem kemur í sumar heitir Royal
Princess, það er 45.000 tonn og
230 m að lengd og kemur til
hafnar þann 9. ágúst nk.
Stærsta skipið sem heimsótti
Akureyri sl. sumar heitir Oriana
og er 69.000 tonn að stærð.
„Það gæti enn átt eftir að
bætast við þessa tölu og ég
reikna með að skipakomumar
verði jafn margar og í fyrrasum-
ar. Skipakomum hefur verið að
fjölga síðustu ár og þetta er
virkilega ánægjuleg þróun,“
segir Gunnar Arason, yfirhafn-
arvörður.
Árið 1993 voru skipakomum-
ar aðeins 18 en þeim hefur ver-
ið að fjölga síðustu ár. Gunnar
segir að unnið hafí verið að því
sl. 5 ár að markaðssetja höfnina.
Dalvíkurbær
Samningur
við fjögur
félög
DALVÍKURBÆR hefur gert
rammasamning við fjögur fé-
lagasamtök á sviði íþrótta- og
æskulýðsstarfs og eru þeir til
næstu þriggja ára.
Um er að ræða fram-
kvæmdastyrki til félaganna
samtala að upphæð 7,1 milljón
króna. Félögin eru Skíðafélag
Dalvíkur sem er að greiða niður
nýjan skíðaskála og snjótroð-
ara, Golfklúbburinn Hamar,
sem er að byggja golfvöll ‘ í
Svarfaðardal, Hestamannafé-
lagið Hringur sem er að útbúa
reiðvöll við Hringsholt og loks
Ungmennafélag Svarfdæla sem
staðið hefur í umfangsmiklum
framkvæmdum á íþróttavelli.
Rögnvaldur Skíði Friðbjörns-
son bæjarstjóri sagði að gerð
rammasamnings við íþróttafé-
lög væri nýmæli, en auk þess
sem kveðið er á um styrki til
félaganna næstu þijú árin.
HEILSA®
HEILSUVERND
ertu búinn
að sjá það?
Heilbrigði
Líkamsrækt
Viðtöl
Þolfimi
Lækningar
Æfingar
Uppskriftir
tímarit sem
á erindi til þín...
og hefur eitthvað
að segja á næsta
blaðsölustað...
áskriftarsími
4612828
Áhugi fyrir sameiningu hafnanna á Akureyri, Grenivík og Svalbarðseyri
Æskilegt að sveitarfélög
vestan fjarðar verði með
DRÖG að stofnsamningi hafnasamlags hafnanna á Akureyri, Grenivík
og Svalbarðseyri voru kynnt á fundi bæjarráðs Akureyrar í síðustu viku.
Ráðið fól hafnarstjórn að kanna málið, en telur að ef til stofnunar hafna-
samlags kæmi væri æskilegt að sveitarfélög vestan fjarðar, Glæsibæjar-
hreppur og Arnameshreppur, yrðu þátttakendur í stofnun þess.
Morgunblaðið/Kristján
Einar Sveinn Ólafsson, formað-
ur hafnarstjórnar Akureyrar, sagði
að um nokkurn tíma hefði verið
rætt um stofnun hafnasamlags og
væri áhugi fyrir hendi á Akureyri,
í Grýtubakkahreppi og Svalbarðs-
hreppi á stofnun slíks samiags.
„Menn telja það álitlegan kost að
skoða þetta en telja jafnframt
æskilegt að sveitarfélögin tvö
norðan Akureyrar verði með í þeim
viðræðum sem framundan eru,“
sagði Einar Sveinn.
Nú á næstunni verður efnt til
fundar með fulltrúum sveitarfélag-
anna tveggja þar sem áhugi þeirra
á að gerast þátttakendur í slíku
samlagi verður kannaður.
Peningamir betur nýttir
„Ég tel að stofnun hafnasam-
lags á þessu svæði verði til þess
að menn standi þéttar saman og
liðki jafnvel fyrir því að af samein-
ingu sveitarfélaganna verði,“ sagði
Einar Sveinn og einnig að tii lengri
tíma litið gæti slíkt samlag haft
hagræðingu og sparnað í för með
sér. Fé til uppbyggingar yrði hægt
að nýta betur þar sem hægt væri
að byggja upp sérhæfðar hafnir.
Forsvarsmenn Grýtubakka-
hrepps hófu þessa umræðu fyrir
nokkrum misserum, en eftir að
Utgerðarfélag Akureyringa tók við
rekstri frystihúss Kaldbaks varð
hafnarsjóður af umtalsverðum
fjármunum þar sem afla er jafnan
ekið frá Akureyri þar sem skipin
landa og til Grenivíkur. Með stofn-
un hafnasamlags skiptir ekki höf-
uðmáli hvar aflanum er landað.
Skíðatíðin
fer rólega
Morgunblaðið/Margrét Þóra
af stað
TÍÐ skíðamanna í Hlíðarfjalli
fór rólega af stað, en skíðasvæð-
ið var opnað um liðna helgi.
Þokkaleg aðsókn var á laugar-
dag en færri voru á ferðinni á
sunnudag.
ívar Sigmundsson, forstöðu-
maður í Hlíðarfjalli, sagði að
mikil hálka hefði verið á vegin-
um upp í fjallið og einhverjir
þurft frá að hverfa af þeim sök-
um. Fremur lítill snjór er í Hlíð-
arfjalli og sagði Ivar að ekki
myndi saka að fá svo sem eins
og einn metra af snjó ofan á,
einkum skortir snjó á neðri
hluta skíðasvæðisins. Færið er
hins vegar hið ákjósanlegasta.
„Við ætlum að hafa opið áfram,
svo framarlega sem ekki fari
að rigna kynstrin öll,“ sagði
Ivar.
ATVINNUÞRÓUNARSJOÐUR
Dalvíkurbæjar seldi töluvert af
hlutabréfum í eigu bæjarins á síð-
asta ári.
Hlutabréfaeign bæjarins í Sölt-
unarfélagi Dalvíkur að upphæð 50
milljónir króna var seld Samheija
hf. á Akureyri. Þá seldi bærinn
hlutabréf sín í Hamri hf. fyrir 7
milljónir. Sjóðurinn keypti húseign-
ina Hafnarbraut 7 á Dalvík fyrir
21 milljón króna á liðnu ári en hef-
Gunnarsbraut 4 í skiptum fyrir
Grundargötu 9-11 og Sandskeið 26.
Eignir björgunarsveitanna voru
teknar á 7,5 milljónum króna hærra
verði en Gunnarsbraut 4. Bærinn
tók Sandskeið 26 undir rekstur
veitna Dalvíkurbæjar en fyrirhugað
er að selja húseignirnar að Grundar-
götu 9-11, þegar hefur reyndar
verið gengið frá sölu á húsinu núm-
er 9 og var það selt á 4 milljónir
króna.
Tvö óhöpp
Tvö óhöpp urðu í Hlíðarfjalli
á fyrstu skíðadögum ársins.
Ungur maður á skíðabretti féll
og lenti á steini. Hann var á
ferðinni utan hefðbundinna
skíðaslóða. Þá meiddist kona
sem skíðaði um neðri hluta
svæðisins, hún datt út úr braut-
inni og lenti úti í þúfum. Þau
voru bæði flutt á slysadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Ak-
ureyri.
ur síðan selt 60% eignarinnar til 5
fyrirtækja og nemur andvirði söl-
unnar 12,6 milljónum króna. Sá
hluti húsnæðisins sem enn er í eigu
sjóðsins er leigður Hreini hf. sem
rekur þar sápugerð.
Skipt á fasteignum
Dalvíkurbær gerði makaskipta-
samning við björgunarsveitirnar í
bænum á síðasta ári sem fólust í
því að bærinn afhenti húseignina
Flugfélag
Norðurlands
Um 22 þús-
und farþeg-
ar í áætlun-
arflugi ’95
FLUGFÉLAG Norðurlands
flutti um 22 þúsund farþega
í áætlunarflugi innanlands á
liðnu ári.
Sigurður Aðalsteinsson
framkvæmdastjóri félagsins
sagði að fjöldi farþega hefði
verið svipaður og á undanförn-
um árum. Nokkuð dró úr
fragtflutningum, en alls var
181 tonn af fragt flutt í áætl-
unarflugi á síðasta ári. „Þetta
er heldur minna en verið hefur
sem kemur einkum til af því
að samgöngur á landi eru betri
en verið hefur, t.d. er veginum
milli Akureyrar og Egilsstaða
haldið opnum yfir vetrarmán-
uðina en svo var ekki fyrir
fáum misserum," sagði Sig-
urður.
Mikið um sjúkraflug
Alls voru fluttir 6.500 far-
þegar í ieiguflugi innanlands
á síðasta ári og 2.000 farþegar
í millilandaflugi. Þá flutti
Flugfélag Norðurlands 135
tonn af pósti í áætlunarflugi
sínu á liðnu ári.
Óvenju mikið var að gera í
sjúkraflugi hjá félaginu á síð-
asta ári, en samtals var farið
í 120 sjúkraflug.