Morgunblaðið - 17.01.1996, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1996 19
LISTIR
Fyrsta menningarárshelgin
í Kaupmannahöfn
Iðandi líf og vel
sóttir listviðburðir
Kaupmannahöfn. Morgunbladiö.
KAUPMANNAHAFNARBÚAR og
gestir þeirra tóku vel við sér um
helgina, sem var sú fyrsta á kom-
andi menningarári. 150 þúsund
dagskrár fyrir janúarmánuð hafa
runnið út og einnig er mikil eftir-
spurn eftir dagskrá vorsins, sem
spannar fyrstu íjóra mánuði ársins.
Fjöldi manns var á rölti milli fjög-
urra tjalda í miðborginni, þar sem
spiluð var þjóðleg tónlist víðs vegar
að úr Evrópu, jafnvel þó hrollkalt
væri.
Evrópskar rætur var yfirskrift
tónlistarhátíðar um helgina. Hátíðin
stóð yfir frá fimmtudagskvöldi fram
á sunnudagskvöld í ijórum svoköll-
uðum speglatjöldum í miðborginni,
frá morgni til kvölds. Speglatjöldin
eru belgískar timburbyggingar eins
og víða voru notaðar í Evrópu í lok
síðustu aldar og fram á þessa sem
skemmtistaðir fyrir almenning.
Byggingarnar hafa líka þann kost
að tónlistina leggur frá þeim, svo
þeir sem ekki vildu greiða aðgangs-
eyri gátu reikað í kring og notið
tónlistarinnar, þótt það væri ögn
hráslagalegt í þokukaldri borginni.
Hátíðin stóð aðeins stutt yfir, enda
eiga borgarbúar að læra að nýta
tilboðin. þegar þau gefast, ekki bíða
og sjá til, því alltaf er eitthvað um
að vera og sumt ekki auglýstar
uppákomur. En hér er skipulags-
hyggjan í hávegum höfð og því
þegar farið að spyijast fyrir um
miða á viðburði sumarins.
Ein af fyrstu sýningum menning-
arársins er sýning á ljósmyndum
Man Rays í Kunstforeningen við
Gammel Strand, andspænis Thor-
valdsenssafninu við kanalinn. Á
Bymuseet, safni Kaupmannahafn-
ar, var opnuð sýning um bæjarlífið
fyrr á öldum. Safnið er stór-
skemmtilegt, eftir að því hefur ver-
ið breytt og það bætt í tilefni menn-
ingarársins. Um helgina voru sýn-
ingar á sígildri þögulli kvikmynd
þýska kvikmyndagerðarmannsins
Fritz Lang, er sýnd var við undir-
leik sinfóníuhljómsveitar í Turbin-
hallerne. Staðurinn er eins og nafn-
ið bendir til gömul túrbípustöð, sem
nú hefur verið dubbuð upp í menn-
ingarhús. Einn helsti akkur menn-
ingarársins er einmitt að sama hef-
ur verið gert við fleiri gamlar iðnað-
arbyggingar.
flaggskip
menningarársins
Næturbláa feijan Krónborg við
Amalíukajann, skammt fyrir neðan
Litlu hafmeyjuna, er nokkurs konar
flaggskip menningarársins. Þar eru
kaffihús og sýningar. Nú sem
stendur er þar sýning á evrópskum
andlitsmyndum og myndum fjög-
urra franskra ljósmyndara frá
Kaupmannahöfn. Um helgina komu
þar saman nokkrir framkvæmda-
stjórar evrópskra menningarhöfuð-
borga og ræddu reynslu sína. Rob-
ert Palmer, framkvæmdastjóri
menningarársins í Glasgow 1990,
var á því að einn helsti tilgangur
ársins væri að fá fólk til að tala
um menningu, jafnvel þótt það
væri ekki til annars en að býsnast
yfir umstanginu. Ef marka má
fyrstu undirtektir Kaupmannahafn-
arbúa virðast þeir þó fremur ætla
að láta hrífast með, eins og Mar-
grét Þórhildur Danadrottning hvatti
þá til, en að agnúast út í menning-
arfárið.
Tíminn soðinn niður
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
1996 plasthylkjum með mnihaldi
sem gefa á til kynna lífið um
þessar mundir verður safnað
saman á næstu mánuðum. Hug-
myndin er komin frá Banda-
ríkjamanninum Thornwell
Jacobs, sem kom upp safni tíma-
hylkja um miðja öldina. Dönsku
tímahylkin verða hluti af banda-
ríska safninu og verða opnuð
með hylkjum þess árið 8113. Það
er því um framtíðarverkefni að
ræða í orðsins fyllstu merkingu.
Klukkan 10 á föstudag fékk
Jens Kramer Mikkelsen borgar-
sljóri Kaupmannahafnar afhent
hylki. Síðan voru þúsund hylki
keyrð út til þeirra þijátíu bæjar-
félaga í Kaupmannahöfn og ná-
grenni, sem taka þátt í verkefn-
inu. I hverju bæjarfélagi eru
hópar, sem dreifa hylkjunum til
þeirra sem ætla að fylla þau.
Hylkin eru úr plasti og taka
fimm lítra, en eru ekki loftþétt.
Enn hefur aðeins fengist fé fyrir
þúsund hylki, en vonast er til
að með viðbótarfé fylli hylkin
að lokum þá táknrænu tölu 1996.
3-10 manns eiga að velja í
hylkin hluti, sem á einhvern hátt
lýsa lífi þeirra. Hugmyndin er
að hylkin geti gefið síðari kyn-
slóðum mynd af hvunndagslífi
almennra borgara. Eftir að áfyll-
ingu lýkur verða hylkin til sýnis
í Kaupmannahöfn og víðar.
Safn Jacobs, The Oglethorpe
Atlanta Crypt of Civilization, er
hvelfing er varðveitir hylki, sem
safnað var saman í seinni heims-
styijöldinni. Jacobs áleit að
heimsendir væri í nánd og það
væri skylda manna að varðveita
muni er gæfu hversdagslífið til
kynna. Safnið hefur skráð um
tíu þúsund tímahylki víðs vegar
um heiminn, en danska verkefn-
ið er það stærsta sinnar tegund-
ar hingað til.
Mikil þátttaka
í ljóðasamkeppni
MIKIL þátttaka var í Ljóðasam- veitt, 1. verðlaun kr. 150.000,
keppni Listahátíðar, en skila- 2. verðlaun kr. 100.000 og 3.
frestur rann út um áramótin. verðlaun kr. 50.000.
Alls bárust 525 ljóð í keppnina Dómnefnd skipa Silja Aðal-
frá um 200 skáldum. steinsdóttir rithöfundur, skipuð
Dómnefndin velur þijú verð- af framkvæmdastjórn Listahátíð-
launaljóð' ásamt fleiri ljóðum til ar, Vilborg Dagbjartsdóttir skáld,
útgáfu, en fyrirhugað er að gefa tilnefnd af Rithöfundasambandi
út ljóðabók á hátíðinni með úr- Islands, og Kristján Árnason dós-
vali ljóðanna. Úrslit verða kunn- ent, tilnefndur af Heimspekideild
gjörð við setningu hátíðarinnar Háskóla íslands.
31. maí. Þrenn verðlaun verða.
ur einroma
,Madama íiallcr/hj cfiir Paccini cr incóal bcsla aýninga
Islennkn ópcranncir, mjög vclgerð og áhrifainikil.“
Sigurður Steinþórsson, Tímanum
Askell Másson, DV
„Olöf ■KolbrúnJ laróardóllir bœlir þcirna heldnr belni
r iö ainn glcvHÍlega J'cril sci > i ópcrnsöi igkoi ici... “
Jón Ásgeirsson, Morgunblaðinu
Islenska óperan hvetur alla til að sjá þessa
einstaklega hrífandi sýningu.
Ólafur Árni Bjarnason tenór heldur senn utan til
annarra verkefna, þannig að einungis eru fáar
sýningar eftir.
ISLENSK4 OPERAN
Miðapantanir í síma: 551 1475