Morgunblaðið - 17.01.1996, Side 20

Morgunblaðið - 17.01.1996, Side 20
20 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Ljósmynd/Atli Steinarsson ROBERT J. Sindelir, forsljóri listsýningadeildar Miami-Dade há- skólans, sem átti frumkvæði að þessari háskólakynningu lista- verka Louisu Matthíasdóttur milli tveggja verka listakonunnar; kyrralífsmyndar og sjálfsmyndar sem gerð var 1993. íslenskt sjávarloft og sveitailmur í sýningarsal í Miami Miami. Morgunblaðið. SÝNING á 46 verkum Louisu Matthíasdóttur, hinnar 78 ára gömlu og vel þekktu íslenzku listakonu í Bandaríkjunum, var opnuð í The Kendall Campus í Miami-Dade Community-háskó- lanum föstudaginn 5. janúar og verður opin þar til 26. janúar. ÖIl eru verkin máluð með olíu á striga. Elsta myndin er frá árinu 1937 en sú yngsta er gerð 1993. Þessi sama sýning verður í The American háskólanum í Wash- ington D.C. í október nk., í Wil- kes háskólanum í Pensylvaníu í janúar að ári, í The New York Studio School of Drawing, Paint- ing and Sculpture í New York í mars og apríl á næsta ári og loks í Norræna menningarsafninu í Seattle í júlí og ágúst 1997. Fleiri gestir voru við opnun sýningarinnar í Miami en búist var við og mátti þar bæði sjá unga og^gamla, konur jafnt sem karla - Islendinga sem annarra þjóða fólk. Þarna var Þórir Grön- dal ræðismaður íslands í S- Flórida ásamt konu sinni Erlu Ólafsson, þar var Úlfar Þórðar- son augnlæknir, ásamt dóttur sinni Eilen Klinger, sem býr í Miami, Benjamín Þórði syni hennar, tengdadóttur og sonar- syni. Þar voru líka Þorsteinn Steingrímsson fv. fasteignasali og Elísabet Kristjánsdóttir. Robert J. Sindelir, forstöðu- maður sýningardeildar Kendall háskólans, heilsaði gestum við opnunina. Hann sagði að gamall draumur sinn hefði ræst er samn- ingar tókust um þessa sýningu, því list Louisu Matthíasdóttur ætti erindi til allra er mætu mál- aralist. Verk hennar væru vel kunn öllum sem vel fylgdust með, en fólk á öllum aldri gæti notið listar hennar og yngra fólk gæti margt af henni lært. Það er ferskur blær yfir þess- ari sýningu og hin litsterku verk listakonunnar njóta sín vel í sýn- ingarsalnum ekki síst vegna frá- bærrar lýsingar. Hestar hennar og kindur í undurtærri íslenzkri náttúru, og götu- og sjávarmynd- ir hennar snerta sérstakan streng í bijósti fólks - ekki síst Islendinga. Það er eins og maður finni sjávarilm þegar staðnæmst er við eitt skemmtilegasta verk sýningarinnar, „Reykjavíkur- höfn“. Louisa Matthíasdóttir er óumdeilanlegur meistari í lit- byggingu verka sinna. Glæsileg sýningarskrá var gef- in út fyrir þessa sýningu og var hún kostuð af Scandinavian Am- erican Foundation. í henni eru litmyndir af 12 þeirra verka sem á sýningunni eru. Þar er og fræðileg grein um líf og list Lou- isu Matthíasdóttur eftir Steven Harvey. I sýningarskránni kem- ur fram að Louisa Matthíasdóttir hefur haldið 33 einkasýningar frá 1948 og tekið þátt í 32 sam- sýningum. Myndirnar á sýning- unni voru fengnar að láni frá átta almenningssöfnum, þar á meðal Listasafni Reykjavíkur- borgar og Listasafni Kópavogs, og einnig frá listasöfnum níu fyrirtækja, þar á meðal Flug- leiða. Kennslustund og Sápa SÝNINGAR á Kennslustundinni eftir Eugene Ionesco og Sápu þijú og hálft eftir Eddu Björgvinsdóttur eru að hefjast að nýju í Kaffileikhúsinu eftir jólafrí. Fyrsta sýning á Kennslu- stundinni verður sunnudaginn 21. janúar kl. 21 og á Sápu þijú og hálft föstudaginn 19. janúar kl. 21. Kennslustundin er einþáttungur í leikstjórn Bríetar Héðinsdóttur. Sápa þijú og hálft er nýtt íslenskt skop- leikrit og er það skrifað fyrir Kaffi- leikhúsið og gerist þar. Leikstjóri er Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, en hún hefur leikstýrt öllum Sápum Kaffileikhússins. SAMANTEKT FÉLAGSVÍSINDASTOFNUNAR Á SÖLU BÓKA FYRIR JÓLIN 1995. 1. NÓVEMBER-24. DESEMBER 1995. UNNIÐ FYRIR MORGUNBLAÐIÐ, RÍKISÚTVARPIÐ, FÉLAG ÍSLENSKRA BÓKAÚTGEFENDA OG FÉLAG BÓKA- OG RITFANGAVERSLANA. Bóksölulisti 1KARLAR ERU FRÁ MARS, KONUR ERU FRÁ VENUS Dr. John Gary: Útg. Bókaútgáfan Vöxtur 2MARÍA, KONAN BAK VIÐ GOÐSÖGNINA Ingólfur Margeirsson. Útg. Vaka-Helgafell hf. 3EKKERT AO ÞAKKA! Guðrún Helgadóttir. Útg. Vaka-Helgafell hf. 4AFREK BERTS A. Jacobsson og S. Olsson. Útg. Skjaldborg hf. 5PAULA Isabel Allende. Útg. Mál og menning SEX AUGNABLIK . Þorgrímur Þráinsson. Útg. Fróði 7ÁFRAM LATIBÆR! Magnús Scheving. Útg. Æskan 8HIN HUÓÐU TÁR Sigurbjörg Ámadóttir. Útg. Vaka-Helgafell hf. 9VILHJÁLMUR STEFÁNSSON LANDKÖNNUDUR William R. Hunt. Útg. Hans Kristján Árnason •§ A HRAUNFÓLKIÐ ■ Björn Th. Björnsson. Útg. Mál og menning 1MILLI VONAR OG ÓTTA Þór Whitehead. Útg. Vaka-Helgafell hf. 4 O ÚTKALL - ÍSLENSKA NEYÐARLÍNAN ■ Óttar Sveinsson. Útg. íslenska bókaútgáfan Æ HJARTASTAÐUR I Steinunn Sigurðardóttir. Útg. Mál og menning < V ÖRLÖG i Stephen King. Útg. Fróði ■f R UFSILON ■ Smári Freyr og Tómas Gunnar. Útg. Skjaldborg hf. Einstakir flokkar: Skáldverk 1 HRAUNFÓLKIÐ Bjöm Th. Björnsson. Útg. Mál og menning 2 HJARTASTAÐUR Steinunn Sigurðardóttir. Útg. Mál og menning 3 ÖRLÖG Stephen King. Útg. Fróði 4 MYRKRANNA Á MILLI Sidney Sheldon. Útg. Skjaldborg hf. 5 VETRARELDUR Friðrik Erlingsson. Útg. Vaka-Helgafell hf. 6 KONAN SEM MAN Linda Lay Shuler. Útg. Vaka-Helgafell hf. 7 MUNDU MIG Mary Higgins Clark. Útg. Skjaldborg hf. 8 Á HÆTTUSLÓÐUM Jack Higgins. Útg. Hörpuútgáfan 9 DYR VÍTIS Alastair MacNeill. Útg. Iðunn 10 SÆKJANDINN John Grisham. Útg. Iðunn Almennt efni 1 KARLAR ERU FRÁ MARS, KONUR ERU FRÁ VENUS Dr. John Gary. Útg. Bókaútgáfan Vöxtur 2 MARÍA, KONAN BAK VID GOÐSÖGNINA Ipgólfur Margeirsson. Útg. Vaka-Helgafell hf. 3 PAULA Isabel Allende. Útg. Mál og menning 4 HIN HUÓÐU TÁR Sigurbjörg Árnadóttir. Útg. Vaka-Helgafell hf. 5 VILHJÁLMUR STEFÁNSSON LANDKÖNNUDUR William R. Hunt. Útg. Hans Kristján Árnason. 8 MILLI VONAR OG ÓTTA Þór Whitehead. Útg. Vaka-Helgafell hf. 7 ÚTKALL - ÍSLENSKA NEYÐARLÍNAN Óttar Sveinsson. Útg. íslenska bókaútgáfan 8 ÞEIR BREYTTU ÍSLANDSSÖGUNNI yilhjálmur Hjálmarsson. Útg. Æskan 9 RAGNAR í SKAFTAFELLI Helga K. Einarsdóttir. Útg. Höpuútgáfan 10 ÓTTALAUS Jósafat Hinriksson. Útg. Skerpla Börn og unglingar 1 EKKERT AÐ ÞAKKA! Guðrún Helgadðttir. Útg. Vaka-Helgafell hf. 2 AFREK BERTS A. Jacobsson og S. Olsson. Útg. Skjaldborg 3 SEX AUGNABLIK Þorgrímur Þráinsson. Útg. Fróði 4 ÁFRAM LATIBÆR! Magnús Scheving. Útg. Æskan 5 UFSILON Smári Freyr og Tómas Gunnar. Útg, Skjaldborg hf. 6 POCAHONTAS Ævintýrabækur Disneys. Útg. Vaka-Helgafell hf. 7 SKORDÝRAÞJÓNUSTA MÁLFRÍÐAR Sigrún Eldjárn. Útg. Forlagið 8 EPLASNEPLAR Þórey Friðbjörnsdóttir. Útg. Vaka-Helgafell hf. 9 SIMBI ÆFIR SIG Walt Disney. Útg. Vaka-Helgafell hf. 10 RÖNDÓTTIR SPÓAR FUÚGA AFTUR Guðrún H. Eiríksdóttir. Útg. Vaka-Helgafell hf. TÖNLIST III jjó mdiskar BRÉF AÐ NORÐAN - ÍSLENSK SÖNGLÖG Már Magnússon (tenór), Gerrit Schuil (pianó). Hljóðritað á tónleikum í LLstasafni Akureyrar 7. ágúst 1995. Framleiðandi: List-Mynd Akureyri. mjóðritun: Kristján Edelstein. Útgef- andi: Már Magnússon MM 01 1995. HÉR ER á ferðinni allsérstæður hljómdiskur, ekki vegna efnis (ís- F allegnr og fágaður söngur lensk sönglög eru engin sérstök nýlunda) heldur vegna þess að hér er um konsertupptöku að ræða - í ákaflega skemmtilegum og vönduðum ytri búningi, sem hannaður er af Tengslum Akureyri. Hitt er svo annað mál Már að hljómdiskurinn Vill Magnússon ekki blanda geði við kollega sína í „diska- skápnum" vegna sköpulags umbúðanna, og þykir mér það galli. Engu að síður fallegt og frumlegt. Hvað svo um sjálfan flutninginn? Því er fljótsvarað: hann er í einu orði sagt fallegur, innilegur og fágaður. Már Magn- ússon er menntaður söngvari, með þann fína takt gagnvart við- fangsefninu sem á sér hliðstæðu í söng Einars Kristjánssonar og Gunnars Guðbjörnssonar, þótt röddin sjálf sé ekki jafn sérstök - þó góð sé. Mörg sönglaganna eru aldeilis yndislega sungin (t.d. Sofðu unga ástin mín, Sofnar lóa og mörg fleiri), aldrei oftúlkuð en flutt með sannri innlifun. Gerrit Schuil er enginn venju- legur „undirleikari", píanóleikur hans er mjög lifandi, karaktermik- 01 og nærfærinn í senn, lyftir og styður en truflar aldrei. Músík- alskur í besta lagi. Textar og upplýsingar um lista- mennina og höfunda eru á ís- lensku, þýsku og ensku. Hér er um ákaflega vel heppn- aða og skemmtilega útgáfu að ræða. Indæl eign og falleg gjöf. Oddur Björnsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.