Morgunblaðið - 17.01.1996, Síða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ALAN
BOUCHER
+ Alan Estcourt
Boucher fædd-
ist í Frolesworth í
Leicester-skíri á
Englandi 3. janúar
1918. Hann lést á
Borgarspítalanum
10. janúar síðastlið-
inn. Faðir hans var
Robin Estcourt Bo-
ucher, deildarstjóri
í breska flotamála-
ráðuneytinu í Lond-
' on, sonur Charles
Estcourt Bouchers,
sóknarprests í Frol-
esworth. Móðir
hans var Katherine Veronica
Manton de Rable, barónessa,
dóttir Thomasar Burns, bryta
hjá P&O-gufuskipafélaginu í
Lightwater, Surrey.
Hinn 28. febrúar 1942 kvænt-
ist Alan eftirlifandi eiginkonu
sinni, Aslaugu, dóttur Þórarins
skipstjóra frá Ananaustum í
Reykjavík Guðmundssonar og
konu hans, Ragnheiðar Jóns-
dóttur. Eignuðust þau þrjú
börn: 1) Alice Kristínu, f. 7.5.
1944. 2) Robin Gunnar, f. 15.9.
1947, d. 26.3. 1992. 3) Antony
Leif, f. 8.5. 1956.
Alan stundaði nám til stúd-
entsprófs í Winchester College,
Winchester, Hampshire
1932-36 og las að því búnu til
embættisprófs í enskri tungu
og bókmenntum við Trinity
College í Cambridge næstu þijú
árin. Utskrifaðist hann frá há-
skólanum í Cambridge 1939 og
hlaut magistertitil
þaðan 1941. í síðari
heimsstyijöldinni
gegndi hann her-
þjónustu í stór-
skotaliði breska
hersins 1939-46,
síðast sem kapteinn
við herforingjaráð-
ið, og dvaldist þá
m.a. á Islandi árin
1940-42.
Eftir að hafa
fengið lausn úr her-
þjónustu kenndi
Alan við Ample-
forth College i Jór-
vík 1946-47, var stundakenn-
ari við Námsflokka Reykjavík-
ur 1948-50 og Háskóla íslands
1949- 50, hafði umsjón með
kennslu í íslenskum fræðum við
háskólann í Cambridge
1950- 51, og kenndi útlending-
um ensku við West London
College í Lundúnum 1958-60.
Jafnframt var hann við fram-
haldsnám _ og rannsóknir við
Háskóia íslands 1948-50 og
Cambridge-háskóla 1950-51
og lauk doktorsprófi frá slðar-
nefnda skólanum 1951, með rit-
gerð um Hallfreðarsögu vand-
ræðaskálds.
Alan starfaði sem dagskrár-
stjóri og leiksljóri við skólaút-
varpsdeild breska útvarpsins
(BBC) 1951-64, en fluttist til
Islands ásamt fjölskyldu sinni
1962 og gerðist síðar íslenskur
ríkisborgari. Gegndi hann
stundakennslu við Kennara-
♦.„MANNERS Makyth Man“.
Þessi vísu einkunnarorð valdi
William of Wykeham, biskup í Win-
chester' og ríkiskanslari tveggja
Englandskonunga þeim tveim
menntastofnunum sem hann kom á
fót til hagsbóta fyrir fátæka skóla-
sveina og stúdenta og varði til
mestum hluta eigna sinna, þ.e. New
College í Oxford (1379) og Win-
chester College (1382). Orðskviður
þessi hefir þótt stinga nokkuð í stúf
við einkunnarorð flestra sambæri-
legra menntastofnana á Bretlandi
sem yfirleitt særa æðri máttarvöld
sér til veraldlegs fulltingis og fram-
dráttar. Hefir hann orðið öðrum
slíkum frægari og yfirleitt talinn
-. merkja að betra sé drenglyndi og
siðfágun til orðs og æðis en eftir-
sókn eftir völdum og frægð.
Sá er hér er kvaddur hlaut ein-
mitt í æsku framhaldsskólamennt-
un sína við hinn síðarnefnda latínu-
skóla, hinn elsta meðal frægustu
„public schools" á Englandi. Ætla
ég að flestir sem kynntust Alan
Boucher geti tekið undir það með
mér að þar fór háttprúður mann-
kostamaður sem í allri framgöngu
og viðkynningu bar með sér margt
hið besta úr menningu og siðum
stéttar sinnar og ættlands.
Líklegt má telja að Alan hafi
fyrst haft kynni af íslandi og íslend-
ingum við lestur frásagna og þýð-
inga landa sinna á fornum og nýjum
bókmenntum sögueyjarinnar á
mennta- og háskólaárum sínum, en
forsjónin hagaði því svo, að hingað
til lands kom hann fyrst 1940 sem
þátttakandi í hrikalegum hildarleik
heimsstyijaldarinnar síðari. Mun
raunar hafa hvarflað að honum að
gerast atvinnuhermaður fyrir stríð,
en menntunarþráin og bók-
menntaáhuginn varð yfirsterkari
þeirri fyrirætlan. Sem betur fór
slapp Alan við meiri háttar kárínur
af völdum stríðsins, ef frá er talið
að heyrn hans skaddaðist að marki.
Hernámsárin á Islandi verða
naumast talin neinn dans á rósum
fyrstu árin. Veturinn 1940-41 var
óvenju kaldur og snjóþungur, og
hafðist Alan þá við í tjaldi á Álfta-
nesi innan um loftvarnarbyssur og
snjóskafla við þröngan kost. Hefir
hann Iýst þessu að_ nokkru í sjón-
■* varpsþáttum um ísland í síðari
heimsstyijöld. Ekki voru viðhorf
ýmissa landa vorra til samskipta -
sér í lagi kvenna - við hernámslið-
ið alltaf ýkja hlýleg, en af framan-
nefndum þáttum og viðtölum við
Alan má ráða, að hann hafi sýnt
þeim mun meiri skilning en ýmsir
vopnabræður hans munu hafa gert.
En hér kom fleira til: eins og fram
kemur að ofan kynntist hann um
þessar mundir konuefni sínu, Ás-
laugu, og kvæntist henni áður en
hann hélt af landi brott.
Tilviljun réði því að snemma sum-
ars 1947 vorum við Alan viðstaddir
athöfn í hátíðasal ráðhússins í
Leeds, er Sigurður Nordal var gerð-
ur þar að heiðursdoktor við Leeds-
háskóla, sá fyrrnefndi þá orðinn
ráðsettur menntaskólakennari við
Ampleforth College í Jórvík og í
þann veginn að hefja doktorsnám
sitt - undirritaður hins vegar „busi“
að ljúka fyrsta námsári sínu í ensku
við háskólann. Hvorugur vissi af
hinum, enda tókust kynni okkar
löngu seinna. Við þetta tækifæri
mun Sigurður hafa hvatt Alan til
að leita fanga á sviði íslenskra forn-
bókmennta og sögu, þar sem enn
væri mikið verk að vinna' fyrir
fræðimenn, og mun það hafa orðið
kveikjan að doktorsritgerð Alans
um Hallfreðarsögu vandræða-
skálds.
Þá munu starfsár Alans við
skólaútvarpsdeild BBC hafa átt
dijúgan þátt í því að hann gerðist
afkastamikill kynnir íslenskra forn-
sagna og ævintýra bæði á þeim
vettvangi og í fjölda endursagna í
formi unglingabóka, þar sem efni
þetta var uppistaðan, og margar
eru skrifaðar af miklum hagleik og
ást á viðfangsefninu, enda hafa þær
notið verðskuldaðra vinsælda og
hlotið lofsamlega dóma.
Það mun einkum hafa verið eftir
4ð Alan Boucher fluttist til íslands
að hann haslaði sér völl sem af-
kastamikill, vandvirkur og oft af-
burðasnjall þýðandi íslenskra bók-
mennta, fornra og nýrra, á enska
tungu. Var þar jöfnum höndum um
að ræða bundið sem óbundið mál,
sögur og ævintýri, leikrit, ljóð og
aðrar ritsmíðar. Ætla ég að honum
hafi látið sérstaklega vel að þýða
ljóð, enda skáldmæltur í besta lagi
á móðurmáli sínu. Mega sumar
MINNIIMGAR
skóla íslands 1962-63 og
1964-66, og við Háskóla ís-
lands 1965-66, auk þess að
kenna á sumarnámskeiðum fyr-
ir íslenska enskukennara. Hann
var dósent í hlutastarfi við há-
skólann 1967-70, lektor í fullu
starfi 1970-72, uns hann var
skipaður prófessor í ensku við
heimspekideild síðla árs 1972.
Gegndi hann því embætti þar
til hann lét af störfum fyrir
aldurs sakir í árslok 1988.
Jafnframt kennslu- og
fræðastörfum stundaði Alan
umfangsmikil ritstörf og liggur
eftir hann fjöldi frumsaminna
ritverka í bundnu og óbundnu
máli, bókmenntaverka, fræði-
og kennslurita, auk fjölda þýð-
inga aðallega úr íslenskum bók-
menntum, fornum og nýjum, á
ensku.
Alan var deildarritari í sam-
tökum starfsmanna breska út-
varpsins á starfsárum sínum
þar, sat um hríð í stjórn Anglíu
(formaður 1974), var um tíma
í stjórn Félags enskukennara á
íslandi og starfaði I Félagi kaþ-
ólskra leikmanna á Islandi.
Forseti heimspekideildar var
hann árin 1979-81 og var fyrsti
forstöðumaður Rannsókna-
stofnunar í erlendum tungu-
málum 1982-85. Jafnframt
sótti hann fjölda ráðstefna og
funda í fræðigrein sinni eriend-
is. Var hann sæmdur íslenskum
og breskum heiðursmerkjum
fyrir störf sín að menningar-
tengslum íslendinga og ensku-
mælandi þjóða.
Utför Alans Bouchers verður
gerð frá Landakotskirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan
13.30.
ljóðaþýðingar hans teljast falla und-
ir það besta sem gert hefur verið
á þessu sviði og vænti ég að fáir
hafi staðið honum þar á sporði.
Eiga íslendingar honum ómælda
þakklætisskuld að inna fyrir þá fá-
gætu kynningu á bókmenntum sín-
um á erlendum vettvangi.
Við Alan Boucher vorum sam-
kennarar í ensku við heimspekideild
Háskóla íslands frá því í ársbyijun
1973, þar til hann lét af störfum
fyrir aldurs sakir í árslok 1988. Var
hann eini prófessorinn í fræðigrein
sinni og jafnframt „höfuðsmaður"
hennar og í fyrirsvari fyrir hana á
tímabili þegar segja má að náms-
skipan, kennsluhættir og efnistök
hafi í aðalatriðum færst í það horf
sem þar er að finna nú, þótt að
hluta til_ hafi verið byggt á eldri
grunni. Á þessu skeiði bættist m.a.
nám til kandídatsprófs (nú M.A.-
prófs) ofan á grunnnám til B.A.-
prófs, námsval jókst til muna, stór-
efla tókst sérbókasafn í greininni
og kennurum fjölgaði til muna enda
þótt fáliðaðir væru í samanburði
við aðrar veigamestu fræðigreinar
í heimspekideild. Enska varð ein
þeirra greina sem mestan stúdenta-
ijölda höfðu. Að frumkvæði Alans
var komið á fót Rannsóknastofnun
í erlendum tungumálum við heim-
spekideild og tengsl við enskukenn-
ara í öðrum skólum efldust, m.a.
með því að auðvelda þeim að sækja
framhaldsmenntun í grein sinni.
Var Alan fyrsti forstöðumaður
stofnunarinnar. Undirritaður var
kennari í ensku við HI að mestu á
árunum 1950-67 og síðan frá 1973
þar til á síðasta ári og hefir því
öðrum fremur yfirsýn yfir þær stór-
stígu framfarir sem þar hafa orðið
síðan á „frumbýlisárum" greinar-
innar. Á engan er hallað þótt hlut
Alans hér verði einna helst líkt við
Grettistak, ekki síst í háskóla þar
sem fjárveitingar hin síðari ár virð-
ast hafa tilhneigingu til að verða í
öfugu hlutfalli við fjölgun í röðum
kennara og stúdenta.
Hér er ekki rúm til að gera skil
þeim margvíslegu fræðiritum sem
Alan samdi og gaf út, að hluta
handa nemendum sínum við háskól-
ann. Eru þar veigamestar sýn-
isbækur bókmennta og yfirlitssöfn
kveðskapar með skýringum, svo og
handbækur og kennsluefni í stíl-
fræði. Rétt er að geta þýðinga hans
á ensku á Lilju og Sólarljóðum, með
formála hans og skýringum sem
Stofnun í erlendum tungumálum
gaf út, og úrvals hans úr ferðaminn-
ingum enskumælandi gesta sem
ísland sóttu heim á 18. og 19. öld
og út kom eftir að hann lét af störf-
um við háskólann.
Alan var farsæll háskólakennari
óg vinsæll jafnt af stúdentum sínum
og samkennurum. Þótt hann fengist
við að kenna flestar tegundir enskra
bókmennta, mun áhugasvið hans
einkum hafa verið enskur kveð-
skapur, stílfræði og þýðingar, og
raunar undir lok kennsluferils hans
barnabókmenntir. Hygg ég að á
þessum vettvangi hafi hann talið
sig ná hvað bestum árangri með
kennslu sinni. Hann rækti vel tengsl
við erlendar háskóladeildir og há-
skólakennara í fræðigrein sinni,
m.a. á ráðstefnum og fundum við
háskóla í enskumælandi löndum,
svo og í rannsóknaleyfum sínum frá
HÍ, og hafði forgöngu um að fá
hingað rómaða upplesara og fyrir-
lesara, og nægir að nefna þar John
Betjeman, Iris Murdoch og Margar-
et Drabble.
Alan Boucher var fremur smá-
vaxinn maður, fíngerður og fríður
sýnum, kvikur á velli og yfir honum
aðlaðandi heiðríkja og mildur höfð-
ingsbragur. Hann var alþýðlegur
og alúðlegur í viðmóti, laus við alla
tilgerð og stærilæti. Hann var af-
burða ritfær og sérdeilis vel máli
farinn á tungu feðra sinna, og náði
alhliða tökum á íslensku, þótt nokk-
urs ensks hreims gætti í tali hans.
í einkalífi sínu var Alan Boucher
gæfumaður, enda þótt síðustu
æviárin yrðu honum næsta erfið
vegna sonarmissis og þungbærra
veikinda. Hér sem endranær naut
hann afburðagóðrar umhyggju og
stuðnings hinnar ágætu eiginkonu
sinnar, Áslaugar, sem mjög létti
honum síðustu sporin.
Ég tel það til forréttinda að hafa
notið samfylgdar og vináttu þessa
mæta manns og góða drengs og
kveð hann klökkur í hug með djúp-
um söknuði að leiðarlokum. Ás-
laugu og eftirlifandi börnum þeirra
votta ég dýpstu samúð mína og
hluttekningu í harmi þeirra.
Heimir Áskelsson.
Elsku afi.
Ég vil þakka þér allar góðu
stundirnar sem við áttum saman.
Það var tómlegt á aðfangadags-
kvöld án þín. Það vantaði afa í
sætið þar sem þú varst vanur að
sitja. Það var gaman að heimsækja
þig og ömmu þegar þið voruð í
Englandi, en þar dvölduð þig alltaf
á sumrin. Þar fórum við í ferðalög
og var mjög gaman þegar við fórum
í ferðalög um England.
Þegar ég var yngri fórum við
stundum í sund saman og oft kom
ég í heimsókn til ykkar á Tjarnar-
götuna áður en ég fór á fótboltaæf-
ingu út í KR. Þá drukkum við sam-
an te og fengum okkur ristað brauð.
Þegar pabbi dó fyrir fjórum árum
var það mikið áfall fyrir okkur öll,
því enginn hefði trúað því að pabbi
skyldi veikjast og deyja ungur. En
nú tekur hann á móti þér og þið
verðið saman á ný. Það verður tóm-
legt að koma á Tjarnargötuna og
horfa á auða stólinn þinn, en við
mamma munum hugsa vel um
ömmu. Mamma þakkar þér einnig
fyrir þær stundir sem við áttum öll
saman.
Elsku afi, ég ætla að kveðja að
sinni og þakka þér fyrir allt.
Kristófer.
Þegar gamla árið kveður og nýtt
gengur í garð leitar hugurinn
gjarnan til baka. Á þessum tíma-
mótum blandast saman söknuður
og eftirvænting og ég fyllist þakk-
læti fyrir öll árin sem eru að baki
og hlakka til að takast á við nýtt
ár sem framundan er. Á síðastliðnu
gamlárskvöldi þegar ég horfði á
flugeldana fylla loftið öllum regn-
bogans litum leitaði hugurinn til
góðs vinar sem lá fársjúkur á
sjúkrahúsi, en mér var þá orðið ljóst
að kveðjustundin nálgaðist óðum.
Alan Boucher er látinn 78 ára
gamall. Hann lést í Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 10. janúar sl. Það var
eins og almættið hefði valið honum
ferðaveður til þessarar hinstu ferð-
ar, með hliðsjón af persónuleika
hans, því fegurra janúarveður var
ekki hægt að hugsa sér, hlýtt og
stillt eins og hann jafnan var sjálf-
ur.
Hann hafði átt við veikindi að
stríða síðastliðin ár, en einhvern
veginn hvarflaði það ekki að manni
að tíminn væri svo stuttur.
Minningarnar streyma fram og
ég sé myndina skýra. Virðulegur
eldri maður, rólegur í fasi, glettinn
í augum og með alveg sérstaklega
skemmtilega kímnigáfu. Það eru
ákveðin forréttindi að hafa fengið
að kynnast slíkum manni sem Alan
var. Hann bar með sér birtu og yl
hvar sem hann fór.
Ég kynntist fyrst Alan og Ásu
þegar ég ásamt Álice dóttur þeirra
stundaði nám í Söngskóla Reykja-
víkur. Þar urðum við mjög góðar
vinkonur og hefur sú vinátta okkar
haldist síðan þrátt fyrir að langt
sé á milli, en hún flutti til Eng-
lands skömmu eftir að námi lauk.
Það var mjög notalegt að koma
í heimsókn til Alans og Ásu á Tjarn-
argötuna og ræða um lífið og tilver-
una. Alan var mjög fróður og
skemmtilegur maður og hafði gott
lag á því að sjá hinar spaugilegu
hliðar lífsins og skreyta þær réttum
búningi. Alan var hamingjusamur
maður. Hann kvæntist yndislegri
konu og eignaðist þijú mannvæn-
leg börn.
Og árin liðu. Eftir að Alan hætti
kennslu við Háskóla íslands sat
hann ekki auðum höndum. Hann
notaði tíma sinn vel við þýðingar
og skriftir sem veittu honum mikla
ánægju. En svo dró ský fyrir sólu.
Fyrir tæpum fjórum árum lést Rob-
in sonur þeirra úr hvítblæði. Það
er mikið áfall að missa son sinn í
blóma lífsins langt um aldur fram.
Þetta markaði djúp sár og mér
fannst sem Alan'yrði aldrei samur
eftir.
Að leiðarlokum er mér efst í
huga þakklæti fyrir allar samveru-
stundirnar bæði hérna heima og
eins úti í Linton.
Elsku Ása, Alice og Antony. Ég
veit að söknuður ykkar er mikill,
en minningin um einstakan eigin-
mann og föður mun ylja ykkur um
ókomin ár.
Þóra Einarsdóttir.
Frá stofnun heimspekideildar
árið 1911 - þegar Háskóli íslands
leit dagsins ljós - hafa margir
fræðimenn og kennarar lagt gjörva
hönd á plóg. Hlutverk deildarinnar
er að dýpka skilning okkar á menn-
ingarfyrirbærum og miðla þeim
skilningi til annarra. Alan Boucher
var einn ötulasti kennari deildar-
innar í því að rækja þetta hlutverk.
Deildin naut krafta hans um ára-
bil. Hann kom fyrst til starfa við
deildina árið 1967 sem dósent í
ensku, en var skipaður prófessor í
ensku árið 1972 og gegndi því
embætti til ársins 1988 er hann lét
af störfum. Á árunum 1979 til
1981 var hann forseti heimspeki-
deildar og innti það starf af hendi
af stakri natni og samviskusemi.
Alan Boucher naut mikillar virð-
ingar bæði sem fræðimaður og
kennari. Um leið og hann byggði
upp kennslu og rannsóknir í sinni
grein, enskunni, skapaði hann mik-
ilvæg menningartengsl á milli Bret-
lands og íslands. Hér bera verk
hans öll vitni vandvirkni og glögg-
skyggni. Hann var góður kennari,
hugmyndaríkur og hvetjandi og
þeir eru margir nemendur hans -
sumir nú starfsmenn deildarinnar
- sem hugsa ævinlega til hans með
þakklæti í huga. Kostir hans nutu
sín í öllum samskiptum við aðra:
Hann var traustur, hógvær og hlýr
- sannur heiðursmaður og drengur
góður. Fyrir hönd heimspekideildar
þakka ég honum fyrir það sem
hann gaf deildinni og sem lifir
áfram í starfi hennar. Áslaugu-, eig-