Morgunblaðið - 04.04.1996, Síða 20
20 D FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BRIAN Morgan, yfirhagfræðingur markaðsskrifstofunnar í Wales, WDA, á skrifstofu sinni.
Efnahags-
undrið
í Wales
Markaðsskrifstofan í Cardiff (Wales Development Agency) hefur
verið aflvaki mikilla erlendra fjárfestinga, sem gerbreytt hafa efna-
hags- og atvinnulífí í Wales á skömmum tíma. Björgvin Sighvats-
son ræðir við Brian Morgan, aðalhagfræðing hagfræðideildar WDA.
ISLAND hefur haft þá sér-
stöðu meðal Evrópuríkja, að
því sem næst engin bein
erlend fjárfesting hefur átt
sér stað í landinu um langt
árabil þar til nú, þegar hafnar eru
framkvæmdir við stækkun álvers
ÍSAL í Straumsvík. Sé litið til allra
síðustu ára þá meira að segja rýrn-
aði fjárfesting erlendra aðila á ís-
landi bæði árin 1990 og 1992 um
0,15% af landsframleiðslu hvort
árið og er skýringin sú, að taprekst-
ur varð þessi árin á fyrirtækjum
með erlendri eignaraðild, einkum í
rekstri ÍSAL þannig að eigið fé
erlendra fjárfesta á Islandi rýrnaði
milli áranna 1990 og 1993 um 2,7
milljarða kr., en tölur fyrir 1994
eru enn ekki tiltækar. Ef horft er
á erlendar fjárfestingar meðal fá-
mennari Evrópuþjóða á þessum
sama tíma má nefna, að erlendar
fjárfestingar í Hollandi í hlutfalli
af landsframleiðslu námu á árunum
1990-1992 3,91% fyrsta árið, 2,02%
annað árið og 1,71% þriðja árið og
í Sviss 2,01%, 1,3% og 0,45% sömu
ár.
Ástæður þess, hve erlend fjár-
festing á íslandi hefur verið lítil,
eru án efa margar. Ein þeirra er
þó efalaust sú, að stór hluti þjóðar-
innar var lengi þeirrar skoðunar,
að slík fjárfesting væri ekki æski-
leg. Því voru settar ýmsar skorður
við henni auk þess sem það viðhorf
hefur varla farið fram hjá útlend-
ingum, sem átt hafa samskipti við
íslensk stjórnvöld á liðnum árum,
að tortryggni gætti hjá þjóðinni í
garð erlendra fjárfesta.
Þar sem flestar aðrar þjóðir hafa
fyrir löngu gert sér grein fyrir því
að í heimi ört vaxandi alþjóðavið-
skipta sé eftirsóknarvert að fá al-
þjóðlegt fjármagn til uppbyggingar
atvinnulífs er ekki undarlegt þó val
alþjóðlegra fjárfesta hafi fremur
fallið á þau lönd, þar sem eftir þeim
var sóst, fremur en að leita til Is-
Iands, þar sem þjóðin leit þá hom-
auga. Á allra síðustu misserum
virðist hins vegar hafa orðið hugar-
farsbreyting hjá íslendingum.
Margir þeirra, sem áður voru ýmist
andvígir erlendri fjárfestingu í ís-
lensku atvinnulífi eða mjög efins
hafa breytt afstöðu sinni og sækj-
ast nú beinlínis eftir henni. Heilir
stjórnmálaflokkar hafa skipt um
skoðun.
Við þær aðstæður er eðlilegt, að
íslendingar afli sér upplýsinga um,
hvemig þjóðir. og landshlutar hafa
farið að, sem með skipulegum hætti
hafa sóst eftir erlendri fjárfestingu
og náð árangri. í þessu sambandi
er nærtækt að beina augum til
Bretlandseyja, en þar hefur sérstakt
átak verið gert til þess að laða er-
lenda fjárfesta til athafna á svæð-
um, sem lengi höfðu átt við miklar
þrengingar að búa; lág laun, mikið
atvinnuleysi, samdrátt og fyrir-
tækjaflótta. Þar má t.d. nefna Wal-
es og Skotland, en i samvinnu
stjórnvalda heima fyrir og ríkis-
stjórnarinnar í Lundúnum var
hmndið af stað átaki til þess að
laða erlenda íjárfesta til þessara
svæða og hefur það átak skilað
miklum árangri.
Stofnun sú í Wales, sem sér um
þróunaraðstoð við innlend fyrirtæki
og fyrirgreiðslu við erlenda fjár-
festa, nefnist Wales Development
Agency (WDA) og hefur aðalaðset-
ur í Cardiff. Árið 1994 störfuðu 370
manns hjá stofnuninni og velta
hennar var jafnvirði 3,5 milljarða
ísl. kr. Stofnun þessi á rætur að
rekja allt aftur til ársins 1974. For-
stöðumaður hagfræðideildar stofn-
unarinnar heitir Brian Morgan og
gekk greinarhöfundur á fund hans
á skrifstofu hans til þess að forvitn-
ast um starfsemi WDA.
Helstu viðfangsefnin
„WDA er opinber stofnun, sem
starfar samkvæmt lögum. Upphaf-
legt verkefni hennar var þríþætt
ráðgjöf. í fyrsta lagi að stuðla að
efnahagslegri framþróun í Wales. í
öðru lagi að draga úr umhverfis-
mengun af völdum fyrirtækja-
rekstrar og í þriðja lagi að gera
fyrirtæki í Wales samkeppnishæf-
ari. Árið 1983 var lögunum svo
breytt og okkur fengið það við-
fangsefni til viðbótar að laða að
erlent fjármagn," sagði Brian
Morgan.
„Hvert er svo þitt verkefni hjá
WDA?“
„Ég er aðalhagfræðingur stofn-
unarinnar og stjórna hagfræðideild
hennar. í hagfræðideildinni á aðal-
skrifstofunni hér í Cardiff starfa
10 starfsmenn í þremur starfshóp-
um. í einum starfshópnum fáumst
við m.a. við þau verkefni að taka
þátt í greiningu á efnahagsþróun í
Wales og afla upplýsinga um efna-
hagsmál, meta og skrá samkeppnis-
stöðu Wales og fyrirtækja í Wales
samanborið við önnur héruð í Stóra-
Bretlandi og önnur lönd í Evrópu-
sambandinu og að nokkru leyti aÖ
spá um framþróun efnahagsmála í
Wales. Við fáumst einnig við að
gera yfirlit yfir aðfangakosti innan
og utan héraðs svo við getum met-
ið hvaða framleiðslumöguleikar
bjóðast með samþættingu fram-
leiðslukosta í héraðinu sjálfu og
aðfangaöflun utan þess. Það mætti
orða þetta starf þannig, að við reyn-
um að hafa yfirlit yfir hver er að
kaupa hvað af hveijum og hversu
mikið. Ef t.d. stæði til að stofna
eða stækka verksmiðju þá höfum
við upplýsingar um hvaða aðföng
má fá innan Wales og hvers þurfí
að afla af aðföngum utan Wales
og getum þannig metið heildaráhrif
og heildarhagkvæmni af slíkri fjár-
festingu.
Þetta eru helstu viðfangsefni
hagfræðideildarinnar,“ sagði Brian
Morgan.
Upplýsingasöfnun og mat á
árangri
Um önnur viðfangsefni deildar-
innar sagði hann, að stofnunin hefði
yfír að ráða umfangsmiklu upplýs-
ingakerfí talnaefnis bæði innan
Wales og utan þess.
„Við höfum t.d. aðgang að mjög
ýtarlegum upplýsingum um vinnu-
markaðinn á hinum einstöku vinnu-
markaðssvæðum þannig að við get-
um séð í sjónhendingu hversu marg-
ir eru að störfum í framleiðsluiðn-
aði hvers konar vítt og breitt og
hvernig því er varið í öðrum héruð-
um Stóra-Bretlands. Við höfum
einnig yfír að ráða fullkomnum
upplýsingum pm stöðu fyrirtækja í
iðnaði, t.d. hvaða iðnfyrirtæki eru
í þróun og vexti og þær upplýs-
ingar ná ekkert síður til smárra
fyrirtækja en stórra. Þannig getum
við hæglega veitt ráðgjöf um hvern-
ig aðfanga má afla með samvinnu
margra smárra fyrirtækja. Þetta
er allt saman tiltækt á tölvutæku
formi, en auk þess höfum við að
sjálfsögðu miklar upplýsingar í
bókasafni, einkum er varða hvers
konar þróunarviðfangsefni. Sér-
stakur vinnuhópur í hagfræðinga-
deildinni sér um þessa þætti starf-
seminnar.
í þriðja lagi höfum við svo fá-
mennan starfshóp hagfræðinga,
sem fást fyrst og fremst við að
afla upplýsinga og aðstoða við mat
á fyrirtækjum og fyrirtækjaáætlun-
um. Þar koma til álita spurningar
eins og hvaða vandamál er verið
að fást við í fyrirtækjunum, hvað
er að gerast í efnahagslífinu á heild-
ina Iitið, hvaða árangri aðgerðir
okkar og ráðgjöf hafa skilað og
hvort við höfum náð markmiðunum,
sem við settum okkur. Einnig kem-
ur þar til álita hvernig við getum
komið árangri af starfsemi okkar á
afmörkuðum sviðum til skila í
markvissri uppbyggingu atvinnulífs
og svo, loks, hvernig koma megi
þeim árangri á framfæri í sam-
starfí og samruna fyrirtækja og á
stefnumörkun þeirra."
Klæðskerasaumaðar lausnir
„Hvað er það að þínu mati, sem
erlendir fjárfestar staðnæmast
einkum við þegar þeir taka ákvarð-
anir um að fjárfesta í Wales?“
„Flestir eru fyrst og fremst að
leita að lausnum á vandamálum,
sem mæta þeim á líðandi stundu í
fyritækjarekstri," svaraði Brian
Morgan. „Þessi vandamál geta t.d.
legið í þvi, að markaður fyrir fram-
leiðsluvöru þeirra heimafyrir er
mettaður svo þeir eru á höttunum
eftir stærri markaði og betra mark-
aðsaðgengi. Við reýnum þá að
mæta þörfum þeirra með viðskipta-
legri lausn á viðskiptava'nda þeirra
og bendum m.a. á, að ef þeir koma
til Wales hafa þeir aðgang að öllum
markaði Evrópusambandsins. Allt,
sem framleitt er í Wales, á greiðan
aðgang að þeim markaði án hindr-
ana.
Þetta skiptir miklu máli.
Við bjóðum hveijum og einum
svo það sem kalla má klæðskera-
saumaða lausn á þeim viðfangsefn-
um, sem hver og einn er að fást
við. Oft er um fyrirtæki að ræða,
sem eru í vexti og þurfa á mjög
góðu samskiptaneti að halda. Hér
í Wales höfum við yfir að ráða full-
komnum fjarskiptum. Síma- og
fjarskiptakerfi er mjög gott og nær
til alls umheimsins. Síma- og fjar-
skiptagjöld eru hér til muna lægri
en t.d. í Frakklandi og í Þýskalandi
þannig að fyrirtæki, sem þurfa að
standa í miklum samskiptum af því
tagi við umheiminn, eru mjög vel
sett hér. Þá höfum við einnig upp
á að bjóða gott og stöðugt vinnu-
afl, sem er fyrirtækjum mikils virði.
Loks má ekki gleyma því, að um-
hverfismál skipta stöðugt meira
máli. Miðað við meginland Evrópu
er umhverfismengun ekki á háu
stigi í Wales, mengunareftirlit er
hér mjög virkt og umhverfisstaðla-
kerfí virkt og gott. Slík atriði vega
stöðugt þyngra hjá viðskiptamönn-
um iðnfyrirtækja, ekki síst hinum
almenna neytenda, og þá um leið í
staðarvali fyrirtækjanna sjálfra.
Við veitum upplýsingar til er-
lendra fjárfesta um öll þessi atriði
og mörg fleiri, sem byggjast á þeim
víðtæku gagnasöfnum og mats-
gerðum, sem við ráðum yfir og
reynum að sníða upplýsingagjöfína
að þörfum hvers og eins,“ sagði
Brian Morgan.
Stöðugleiki á vinnumarkaði
„Þú nefndir gott og stöðugt
vinnuafl. Nú hafði Stóra-Bretland
og þá ekki síst Wales orð á sér fyr-
ir mikla ókyrrð á vinnumarkaði, tíð
verkföll og langvarandi vinnudeilur."
„Það er rétt að svo var hér á
árum áður en nú hefur þetta ger-
breyst. Miklar rannsóknir hafa ver-
ið gerðar, bæði af Háskólanum í
Cardiff og af Viðskiptaháskólanum
á vinnumarkaðsmálum og á sam-
skiptum aðila vinnumarkaðarins og
þær hafa leitt í ljós, að engar ástæð-
ur eru til þess að ætla að erfiðleik-
ar í samskiptum aðila vinnumarkað-
arins séu erlendum fjárfestum fjöt-
• ur um fót, miklu fremur hið gagn-
stæða. í upphafí áttunda áratugar-
ins -voru tapaðir vinnudagar vegna
verkfalla tíu sinnum fleiri hér í
Wales en nam meðaltalinu í Stóra-
Bretlandi. I upphafí níunda áratug-
arins urðu miklar breytingar hér
á, þannig að nú eru tapaðir vinnu-
dagar vegna vinnudeilna í Wales
talsvert færri en riemur landsmeðal-
tali í Bretlandi. Á árinu 1994 námu
tapaðir vinnudagar vegna vinnu-
deilna í Wales aðeins 14 dögum á
hveija 1.000 starfsmenn og aðeins
15% af þessum töpuðu vinnudögum
urðu í framleiðsluiðnaði. Það hafa
þvi orðið alger umskipti hér í vinnu-
markaðsmálum þannig að fyrirtæki
eins og t.d. Sony og Panasonic og
önnur slík alþjóðleg stórfyrirtæki
sjá af þeim ástæðum ekkert í vegi
fyrir því að flytja hluta starfsemi
sinnar hingað.
SJÁ NÆSTUOPNU