Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 24
24 D FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Fegurðarsamkeppni Reykjavíkur verður haldin á Hótel íslandi þann 12. apríl næstkomandi. Þar keppa 15
stúlkur um titilinn Fegursta stúlka Reykjavíkur 1996. Keppnin í ár á að fara nýjar leiðir í framsetningu og
stíl miðað við fyrri ár, og er lögð áhersla á anda unga fólksins í tónlist, fatnaði og útliti keppninnar. Markmiðið
er að hún verði eftirminnilega nútímaleg og skemmtileg fyrir vikið.
AUÐUREDDA
BIRGISDÓTTIR
er 21 árs starfsmaður hjá
Eimskipi. Hún þykir velupp-
lýst og skynsöm en kveðst
taka sig heldur of alvarlega.
Hún trúir á hið góða afl.
ÁSTA
ANDRÉSDÓTTIR
er 20 ára MR-ingur. Hún
kveðst elska allt sem auðgar
andann. Hún les Shakespe-
are og Hallgrím Helgason
og talar 7 tungumál fyrir
utan latínu.
ERLA BJÖRK
GUÐMUNDSDÓTTIR
er 20 ára sálfræðinemi í
HI. Hún vinnur mikið með
skólanum, afgreiðir m.a. í
apóteki og skúrar. Hún
hræðist myrkrið því þá fer
ímyndunaraflið af stað.
KRISTÍN
PÉTURSDÓTTIR
er 20 ára hárgreiðslunemi
á Salon Veh. Hún þykir í
alla staði einstaklega ljúf í
fasi og hvers manns yndi er
hún spjallar við viðskiptavin-
ina á stofunni.
HARPA LIND
HILMARSDÓTTIR
er 19 ára nemi í Flens-
borg. Hún er hæglátur
píanósnillingur, trúir á guð
og hið góða í fólki. Hún hef-
ur ferðast mikið, meðal ann-
MARÍA HELGA
GUNNARSDÓTTIR
er 20 ára nemi í HI. Hún
lærði á blokkflautu og fiðlu
en kann ekkert á hljóðfæri
í dag. Hún hefur ferðast
mikið, er meðvituð og segir
fylgst með okkur.
BERGLJÓT
ÞORSTEINSDÓTTIR
er 22 ára stúdent. Hún
spilaði fótbolta í átta ár,
lærði á píanó í sex ár en man
ekki neitt að eigin sögn.
Finnst gott að sofa út og er
allfróð um myndlist.
er 18 ára Garðbæingur.
Hún er heiðarleg og skyn-
söm að eigin sögn og skamm-
ast sín ekkert fyrir neitt í
eigin fari. Henni kemur
heldur ekkert á óvart.
er 23 ára orkubolti. Hún
segist vera blátt áfram, lífs-
glöð og hreinskilin. Sonja
rekur sólbaðstofu á daginn
og leikur sér á kvöldin. Hún
óttast einsemd og skordýr.
EDDA RÚN
RAGNARSDÓTTIR
er 20 ára sálfræðinemi í
HI. Hún trúir á guð, geim-
verur og leikarann Gary Old-
man. Hún les og semur jafn-
framt talsvert mikið af ljóð-
um.
KATRÍN
GUÐLAUGSDÓTTIR
er tæplega 18 ára nemi.
Hún vinnur mikið með skól-
anum og þykir sjálfstæður
íslendingur. Hún telur
stærsta afrek sitt hafa verið
að flytja að heiman 16 ára.
SÓLEY SIGRÚN
INGÓLFSDÓTTIR
er 21 árs verslunarstjóri í
tískuvöruverslun. Hún er
einfari að sögn og lestrar-
hestur. Hún er með skírteini
upp á vasann frá Svíþjóð sem
stúdent í latínu.
ELSA LYNG
MAGNÚSDÓTTIR
er 22 ára nemi í KHÍ. Hún
segist vera nautnaseggur
með stærðfræðiáhuga, til-
finninganæm og félagslynd.
Hún segist tala stundum of
mikið og safna steinum.
SÆ V ARSDÓTTIR
er 23 ára stuðningsfulltrúi
á dagheimili. Hún segist
vera rómantísk og að ein rós
geti gert mikið. Hún hefur
farið til spákonu en neitar
að trúa á drauga.
ÞÓRUNN BJÖRK
HELGADÓTTIR
er 23 starfsmaður Eim-
skipafélags Islands. Hún
hefur lært sex tungumál, þar
á meðal ítölsku. Hún segist
vera glaðlynd, samviskusöm
og heiðarleg í alla staði.
HÓTEL ísland opnar
dyr sínar fyrir gest-
um Fegurðarsam-
keppni Reykjavíkur
klukkan 19 og verður þeim boð-
ið upp á fordrykk áður en borð-
hald hefst.
Þá koma keppendur fram í
fyrsta skipti, klæddar í fatnað
frá Spaksmannsspjörum, en þær
eru síðan kynntar í fatnaði frá
O’Neill. Benedikt Elfar syngur
þá gestum til skemmtunar áður
FEGURÐARSAMKEPPNI
REYKJAVÍKUR 1996
en boðið er upp á tískusýningu
frá versluninni Kjallaranum, en
keppendur sýna.
Þá verður dómnefnd kynnt og
sýnt myndband frá æfingum og
undirbúningi fyrir keppnina, en
hann fólst meðal annars í líkams-
rækt, heimsókn í frystihús, snjó-
sleðaferð og fyrirlestrum. Auk
þess verður boðið upp á ýmis
óvænt skemmtiatriði áður en
Ijóst verður hver stúlknanna
hreppir titilinn að þessu sinni.
Stúlkurnar eru klipptar og
greiddar hjá Hár-Expo með Se-
bastian hársnyrtivörum og snyrt-
ar með Face Stocholm lyá þeim
Súsönnu Heiðars og Þórunni
Högnadóttur. Einnig fá keppend-
ur andlitsbað og gerfineglur frá
Snyrtistofu Hönnu Kristínar.
Fegursta stúlkan keppir í Feg-
urðarsamkeppni íslands en auk
þess fær hún ferð til Parísar frá
Heimsferðum, fatnað frá
O’Neill, gjafapakka frá Face
Stockholm, sokkabuxur, sokka,
handsnyrtisett og íþróttaundir-
föt frá Oroblu, kjól frá Noi, þjálf-
un í World Class, Ijósatíma frá
Sólbaðstofu Grafarvogs og ýmis-
legt fleira.