Morgunblaðið - 04.04.1996, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 D 33
AÐSENDAR GREINAR
Markaðssetj um ís-
land; en hvemig?
ÞESSI spurning hefur oft komið
upp í huga undirritaðs og þá sér-
staklega síðustu vikur. Sú umræða
sem átt hefur sér stað í fjölmiðlum
um auðlindir landsins og nýtingu
þeirra hlýtur að kalla á skilgrein-
ingu stjórnvalda á því hvar Island
eigi að staðsetja sig í framtíðinni.
Á ísland að.vera fremst í fisk-
veiðum?
Á ísland að vera vænlegasti kost-
urinn_ fyrir stóriðju?
Á ísland að véra fremst í ferða-
mannaþjónustu?
Flestum þessara spurninga hljót-
um við að svara játandi en það
eyðist sem af er tekið og ekki er
víst að íslendingar geti verið í for-
ystu á öllum sviðum. Einkum á
þetta við þegar rætt er um eflingu
stóriðju á sama tíma og við ætlum
að bjóða ferðamönnum upp á
óspillta náttúru, flytja út hreinasta
vatnið og besta fiskinn.
Er stóriðja bjargvættur
okkar íslendinga?
Landsvirkjun kemur ósjálfrátt
fyrst upp í hugann þegar rætt er
um stóriðjur. Stjórn hennar hefur
mikil áhrif á nýtingu vatnsorkuauð-
linda, hvernig þær eru nýttar og
hver nýtir þær. Virkjanir, há-
spennulínur og stóriðjur eru meðal
annars afleiðing ákvarðana hennar
og stjórnvalda, sem aftur hefur
áhrif á náttúru landsins og ásýnd
ferðamanna á íslandi. En hvert er
viðhorf Landsvirkjunar gagnvart
ferðaþjónustunni? Það má ef til vill
sjá í orðum Helga Bjarnasonar, yfír-
verkfræðings Landsvirkjunar, sem
birtust í Morgunblaðinu þann 15.
mars sl. en þar segir hann: „Áhrif
svona framkvæmda (þ.e. virkjana á
hálendinu, innsk.höf) á ferðaþjón-
ustu er flókið mál, og erlendis frá
er ekki mikla reynslu að fá. Helst
frá Noregi, sem sýnir að ferða-
mennskan breytist og flyst annað.
Hér á landi er ferðaþjónustan fyrst
og fremst sumaratvinnuvegur
fyrir skólafólk (breiðletrað innsk.
höf).“ Vonandi lýsa þessi orð ekki
almennu viðhorfi yfirmanna Lands-
virkjunar á ferðaþjónustunni á ís-
landi. Að halda því fram að ferða-
þjónustan sé fyrst og fremst sumar-
atvinnuvegur fyrir skólafólk er
hrein móðgun við þann fjölda fólks
sem síðustu ár hefur lagt allt sitt
í það að þjónusta ferðamenn en
skv. upplýsingum frá Ferðamála-
ráði störfuðu rúmlega 4.000 manns
við ferðaþjónustu á síðasta ári. Til
upplýsingar má geta þess að árið
1995 voru gjaldeyristekjur af ferða-
þjónustu 18,6 milljarðar (10 millj-
arðar í eyðslu á íslandi og 8 millj-
arðar í fargjöld til landsins) og
höfðu þær aukist um 11% frá árinu
á undan. Til samanburðar má benda
á að samkvæmt upplýsingum frá
Landsvirkjun var framreiknað verð-
mæti raforkukaupa ISAL um sein-
ustu áramót rétt rúmir 30 milljarð-
ar króna á 25 ára tímabili, á verð-
lagi ársins 1995. Það má því með
einfaldri margföldun sjá að ein aðal-
tekjulind Landsvirkjunar eru
tveggja ára gjaldeyristekjur Islend-
inga af ferðaþjónustu sem Helgi
telur sumaratvinnuveg skólafólks!
Ef þetta er almennt viðhorf stjórn-
enda Landsvirkjunar á ferðaþjón-
ustu á íslandi er ekki undarlegt þó
að hagsmunir hennar séu í auka-
hlutverki þegar fjallað er um eflingu
stóriðju hér á landi. Hér þarf því
að koma til viðhorfsbreyting.
Hverjir vilja stóriðjur?
Mikið hefur verið lagt í það að
markaðssetja ísland sem vænlegan
- kjarni málsins!
kost fyrir stóriðjur og
hafa nokkur fyrirtæki
sýnt landinu áhuga.
Eitt þeirra er Kaiser
aluminum. Forráða-
menn fyrirtækisins
komu hingað til lands
árið 1992 og áttu með-
al annars í viðræðum
við Jón Sigurðsson,
þáverandi iðnaðarráð-
herra og einnig við
Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra. í viðræðum
við forráðamenn KA-
ISER kom „ fram að
fyrirtækið íhugaði að
stofnsetja hér álver af
mikilli alvöru og vildu
forráðamenn þess helst kjósa að
samningur um það væri tilbúinn
innan eins árs svo hægt yrði að
hefja framkvæmdir og skipti þá
ekki máli hvort álverið yrði staðsett
norðan eða sunnan heiða. Ennfrem-
Stóriðja o g náttúru-
paradís eru, að mati
Huga Hreiðarssonar,
gagnstæðir pólar.
ur kom fram að KAISER væri að
skoða möguleika á uppsetningu ál-
versins annars staðar í heiminum
og þá í Venesúela, Mósambík, Rúss-
landi eða Kamerún! Var það tilviljun
að þessi fjögur lönd voru nefnd?
Hefðu þau allt eins getað verið
Austurríki, Þýskaland, Noregur eða
Svíþjóð? Undirritaður getur ekki
svarað því en samt læðist að sá
grunur að þau lönd sem við berum
okkur venjulega saman við sýni ál-
framleiðendum í heiminum ekki
jafnmikinn áhuga og við. Hvers
vegna ekki? Er það kannski vegna
mengunar? Er það kannski vegna
ímyndar? Er þetta kannski sá iðnað-
ur sem flest lönd vilja hafa innan
hóflegra marka? Ljóst er að þeim
löndum fer fækkandi
sem bjóða jafngott verð
á raforku og íslending-
ar og er ástæðan sú
að annar og hugsan-
lega minna mengunar-
valdandi iðnaður vill
greiða meira fyrir raf-
orkuna. í þessu sam-
bandi má benda á að
Noregur er ekki lengur
ekki samkeppnishæft
fyrir ný álver því Norð-
menn eru nú þegar
farnir að fá betra verð
með sölu á raforku til
meginlandsins.
__ Markaðsseijum
ísland en hvernig?
Jakob Björnsson orkumálastjóri
sagði á ráðstefnu Verkfræðingafé-
lags íslands á síðasta ári um virkj-
anir norðan Vatnajökuls, að íslend-
ingar þyrftu að nýta allar tiltækar
auðlindir í landinu til að halda hiut
sínum og dragast ekki aftur úr
nágrannaþjóðunum sínum efna-
hagslega. Hann sagði að tilgangur-
inn væri að styrkja til frambúðar
efnahagsgrundvöll okkar og búsetu
í landinu, annars gæti farið fyrir
okkur eins og Færeyingum og land-
fiótti brysti á (Mbl. lö.mars 1996).
Undir þessi orð tekur undirritaður
en minnir jafnframt á að nýting
auðlindanna þurfa að vera innan
skýnsamlegra marka þannig að
ekki sé fórnað minni hagsmunum
fyrir meiri. Grundvallaratriði er að
hlúa að þeirri ímynd íslands sem
segja má að nú sé til staðar en það
er óspillt náttúra_ og hreint loft.
Mikilvægt er að íslendingar hug-
leiði það alvarlega hvom kostinn
skal taka því stóriðja og náttúru-
paradís eru gagnstæðir pólar. Það
er hérna sem við verðum að staldra
við og hugsa um velferð komandi
kynslóða.
Höfundur starfar að sölu- og
markaðsmálum.
NÁMSMANNASTYRKIR
Umsóknarfrestur er til 1. maí.
Veittir verða 12 styrkir hver að
upphæð 125.000 krónur.
Styrkirnir skiptast þannig:
• Útskriftarstyrkir til nema í
Háskóla íslands.
• Útskriftarstyrkir til nema á
háskólastigi/sérskólanema.
• Styrkir til námsmanna erlendis.
Einungis aðilar í Námsmannalínunni eiga
rétt á að sækja um þessa styrki.
Umsóknareyðublöð eru afhent í öllum
útibúum Búnaðarbankans og á skrifstof-
um Stúdentaráðs, SÍNE og BÍSN.
Umsóknum skal skilað fyrir 1. maí til:
BÚNAÐARBANKA ÍSLANDS,
markaðsdeild, Austurstræti 5,
155 Reykjavík.
BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
NAMS ■
m
LÍNAN A
Hugi
Hreiðarsson
Núna er nýja ameríska
stafaparketið frá Bruce á
sérstöku tilboðsverði
ÍBYKO.
Sértilboð t
Costa del S
í sumar
frá kr.
29.96
Heimsferðir fljúga vikulega til Costa del Sol í allt
sumar og bjóða þér hagstæðustu sumarleyfisferðir
sumarsins á þennan yndislega áfangastað, sem hefur
aldrei verið vinsælli en nú, enda er hér úrval frábærra
gististaða sem tryggja þér toppaðbúnað í fríinu. Nú
höfum við fengið kynningarverð á nokkrum
gististöðum okkar í sérstakar brottfarir í júní og júlí
og ef þú bókar ferðina þína til Costa del Sol í
næstu viku, tryggjum við þér 5.000 kr. aflsátt
fyrir manninn.
Verð kr.
29.960
Flugsæti til Costa del Sol og skattar.
Gildir í brottfarimar 25. júní og 9. júlí.
Verð kr.
39.432
Vikulegt
flug alla
þriðjudaga
í sumar.
Vikuferð til Costa del Sol, hjón með 2 böm, 2-11 ára, með sköttum, La Nogalera.
Gildir í brottfarimar 25. júní og 9. júlí.
Verð kr.
44.532
2 vikur, La Nogalera, hjón með 2 böm,
2-11 ára, með sköttum. -
Gildir í brottfarimar 25. júní og 9. júlí.
Austurstræti 17,2. hæð. Sími 562 4600.
f