Morgunblaðið - 04.04.1996, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. APRlL 1996 D 37
m a / ir~^f VC/K/PAP
JPm ■ w mwFmWPM%M/L\LJ{<j?L T O// X/v-^A\/v
Hjólbarðaverkstæði
Vanur maður óskast á gott hjólbarða-
verkstæði í Reykjavík.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl.,
merktar: „Vanur - 543“.
Leikskólakennarar
óskast í Hveragerði
Leikskólakennara eða starfskraft vantar í
hálfa stöðu eftir hádegi á leikskólann Undra-
land frá og með 1. júní nk.
Umsóknarfrestur er til 1. maí nk.
Allar nánari upplýsingar gefur leikskólastjóri
í.síma 483 4234.
Skandia
Störf hjá Skandia
Skandia er tryggingafélag og verðbréfafyr-
irtæki i' eigu tryggingafélagsins Skandia í
Svíþjóð, sem er langstærsta tryggingafélag
á Norðurlöndum.
Hjá Skandia starfa nú 55 starfsmenn.
Vegna ört vaxandi umsvifa vantar okkur
eftirfarandi starfsfólk:
★ Markaðsstjóri fyrir Skandia.
Starfið felst í umsjón með markaðsmálum
fyrirtækisins og sölustjórnun.
Hæfniskröfur: Háskólamenntun á sviði við-
skiptafræði. Starfsreynsla og góð tungu-
málakunnátta er æskileg.
★ Sérfræðingur í verðbréfamiðlun.
Starfið felst í kaupum og sölu verðbréfa.
Tölulegri greiningu og ráðgjöf til viðskipta-
vina.
Hæfniskröfur: Háskólamenntun á svíði við-
skiptafræði, verkfræði eða hagfræði.
★ Starfsmaður í verðbréfamiðlun.
Starfið felst í uppgjöri vegna verðbréfavið-
skipta.
Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera ná-
kvæmur og töluglöggur. Háskólamenntun
eða víðtæk starfsreynsla er nauðsynleg.
★ Verkefnastjóri.
Starfið felst í vöruþróun og markaðssetningu
á nýrri þjónustu til viðskiptavina.
Hæfniskröfur: Háskólamenntun á sviði við-
skiptafræði, hagfræði eða öðru hagnýtu
sviði.
★ Sjóðvarsla.
Rekstur verðbréfasjóða. Starfið felst í skrán-
ingu verðbréfa. Útreikningur á gengi verð-
bréfasjóða. Uppgjör og afstemmingar.
Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera ná-
kvæmur og töluglöggur. Háskólamenntun
eða víðtæk starfsreynsla er nauðsynleg.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir
einungis Katrín S. Óladóttir hjá
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf.
Með allar umsóknir verður farið sem trún-
aðarmál og þeim öllum svarað.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir
ásamt mynd til Ráðningarþjónustu Hag-
vangs hf. fyrir föstudaginn 12. apríl nk.
Noregur „au pair“
Við óskum eftir „au pair“ til að passa tvo stráka
og sinna heimilisstörfum frá og með maí, frí
í júlí. Búum í úthverfi Ósló. Þarf að hafa öku-
skírteini.
Umsóknir sendist til Fam. Steen, c/o Adek
As, Lilleakervn. 4, 0283 Oslo, Noregi.
Leikskólastjóri
Búðahreppur, Fáskrúðsfirði, auglýsir eftir
leikskólastjóra á leikskólann Kærabæ.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launa-
nefndar sveitarfélaga og Fél. ísl. leikskóla-
kennara.
Skriflegar umsóknir sendist skrifstofu Búða-
hrepps, Hafnargötu 12, 750 Fáskrúðsfirði.
Umsóknarfrestur er til 19. apríl 1996.
Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri Búða-
hrepps í síma 475 1220 eða leikskólastjóri
í síma 475 1223.
Sveitarstjóri.
Leikskólakennarar
Á Selfossi eru starfræktir fjórir leikskólar:
Álfheimar, Ásheimar, Glaðheimar og Árborg.
í þeim öllum blómstrar gott leikskólastarf,
en okkur vantar fleiri leikskólakennara til
starfa.
Nánari upplýsingar gefa Eygló Aðalsteins-
dóttir, leikskólastjóri Glaðheima, í síma
482 1138, Helga Geirmundsdóttir, leikskóla-
stjóri Ásheima, í síma 482 1230, Ingibjörg
Stefánsdóttir, leikskólastjóri Álfheima, í síma
482 2877 og Guðbjörg Þorsteinsdóttir, leik-
skólastjóri Arborgar, í síma 482 2337 eða
Heiðdís Gunnarsdóttir, leikskólafulltrúi,
í síma 482 1408.
Eftirlitsmaður
Loftferðaeftirlit Flugmálastjórnar óskar'eftir
að ráða eftirlitsmann til tímabundinna starfa
í flugrekstrardeild. Starfið er fólgið í eftirliti
með íslenskum flugrekendum og starfsemi
þeirra.
Nauðsynlegt er að umsækjendur séu eða
hafi verið handhafar skírteinis atvinnuflug-
manns og hafi góða þekkingu á flugrekstri.
Góð enskukunnátta áskilin.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist starfsmanna-
stjóra Flugmálastjórnar fyrir 26. apríl nk.
Tnq ORKUSTOFNUN
r~ GRENSÁSVEGI 9 . 108 REYK|AVfK
Tölvumaður
Orkustofnun óskar að ráða starfsmann tíma-
bundið til að annast daglegan rekstur á tölv-
um stofnunarinnar. Starfið felst einkum í
rekstri á nettengdum tölvum stofnunarinnar
og þjónustu við notendur.
Umsækjandi þarf að hafa reynslu af rekstri
UNIX-kerfa.
Laun samkvæmt kjarasamningi ríkisstarfs-
manna.
Skriflegar umsóknir skulu sendar Guðnýju
Þórsdóttur, starfsmannastjóra, eigi síðar en
19. apríl 1996.
Byggingamenn
Traust íslenskt byggingarfyrirtæki óskar að
ráða nokkra trésmiði, múrara, vana bygg-
ingaverkamenn og kranamann til starfa í
Þýskalandi.
Ráðningartími er um sex mánuðir.
Gerð er krafa um reynslu og góða fag-
mennsku ásamt reglusemi. Kunnátta í þýsku
er kostur, en ekki skilyrði.
Umsóknum, með venjulegum upplýsingum,
skal skila á afgreiðslu Mbl. þriðjudaginn 9/4,
merktar: „Þýskaland - 4140“.
Laus staða
Staða flugvallarvarðar á Sauðárkróki hjá
Flugmálastjórn er laus til umsóknar.
Umsækjendur hafi réttindi meiraprófs bif-
reiðarstjóra og réttindi í stjórnun þunga-
vinnuvéla. Laun samkvæmt launakerfi opin-
berra starfsmanna.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist samgöngu-
ráðuneytinu fyrir 19. apríl 1996.
Laus staða
Staða flugvallarvarðar hjá Flugmálastjórn á
Þórshafnarflugvelli er laus til umsóknar.
Umsækjendur hafi réttindi meiraprófs bif-
reiðastjóra og réttindi í stjórnun þungavinnu-
véla. Laun samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist samgöngu-
ráðuneytinu fyrir 26. apríl 1996.
Pípulagningadeild
Framsækin og traust byggingavöruverslun
óskar eftir að ráða deildarstjóra og sölu-
mann.
Leitað er eftir tæknimenntuðum mönnum
með þekkingu á sviði pípulagna.
Umsækjendur verða að þúa yfir hæfileikum
til að selja. Reynsla í sölumennsku æskileg
en ekki skilyrði.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl., merkt-
ar: „T - 77“, fyrir 12. apríl.
SJÚKRAHÚS
REYKJAVÍ KU R
Hjúkrunarfræðingar!
Loksins eru lausar stöður hjúkrunarfræðinga
á deild A-5.
Á deildinni eru tvö sérsvið við heila- og tauga-
skurðlækningarog háls-, nef- og eyrnaskurð-
lækningar.
Deildin er ein sinnar tegundar hér á landi.
Hjúkrunin er krefjandi og metnaður lagður í
að veita sem besta hjúkrun.
Skipulagsformið er hóphjúkrun.
Upplýsingar veita Bjarnveig Pálsdóttir, deild-
arstjóri, Lilja Guðmundsdóttir, aðstoðar-
deildarstjóri, í síma 525 1065 eða Margrét
Tómasdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri,
í síma 525 1306.