Morgunblaðið - 04.04.1996, Síða 38
38 D FIMMTUDAGUR 4. APRÍL1996
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIMMMMAI /r^/ Y^II\I(^AI?
Æm mr ■ ■^H ■ '■ vJ7L / O// N/vJ7/v/\
Vélstjóri
Vélstjóra vantar á frystitogarann Snæfell
SH 740. Vélarstærð 3000 hö.
Upplýsingar í símum 466 1666, 897 1540
í vinnutímum og 436 1485 yfir páskana.
AKUREYRARBÆR
Leikskólakennarar
Leikskóladeild Akureyrarbæjar óskar eftir
að ráða leikskólastjóra við leikskólann
Kiðagil.
Um er að ræða heila stöðu til eins árs.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. maí
eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar um starfið gefur deildar-
stjóri leikskóladeildar eða leikskólaráðgjafar
í síma 460 1450.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi STAK
og Akureyrarbæjar eða Launanefndar sveit-
arfélaga og Félags íslenskra leikskólakenn-
ara.
Nánari upplýsingar um kaup og kjör gefur
starfsmannastjóri Akureyrarbæjar í síma
462 1Ó00.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild
Akureyrarbæjar í Geislagötu 9 og í leikskóla-
deild Akureyrarbæjar í Glerárgötu 26
á 2. hæð.
Umsóknarfrestur er til 19. apríl.
Leikskóladeild Akureyrarbæjar.
Sveitarstjóri/
byggingafulltrúi
Laus er tii umsóknar staða sveitarstjóra
Kjalaraness ásamt starfi byggingafulltrúa
sém er hlutastarf.
Starfssvið sveitarstjóra:
1. Sveitarstjóri hefur með höndum daglega
framkvæmdastjórn sveitarfélagsins og
fylgir eftir samþykktum og ákvörðunum
sveitarstjórnar hverju sinni.
2. í starfinu felst m.a. gerð fjárhagsáætlana,
eftirlit með framvindu rekstrar og fjárfest-
inga, fjárreiðum, bókhaldi og uppgjöri.
3. Yfirumsjón með starfsmannahaldi.
4. Yfirumsjón með skipulags- og bygginga-
málum.
5. Sveitarstjóri gætir hagsmuna sveitarfé-
lagsins út á við og annast nauðsynleg
samskipti við stofnanir, fyrirtæki og sam-
tök.
Við leitum að hæfum einstaklingi í þetta
mikilvæga starf, sem hefur þekkingu á stjórn-
unarstörfum. Þekking á málefnum sveitarfé-
laga er æskileg. Viðkomandi þarf að hafa
frumkvæði og lifandi áhuga á stjórnun og
starfsemi sveitarfélagsins.
Vakin er athygli á þvíj að hægt er að sam-
eina starf sveitarstjóra og byggingafulltrúa
í eitt starf.
Upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar
„Sveitarstjóri/byggingafulltrúi Kjalarness"
fyrir 15. apríl nk.
Hagva ngurhf
Skeifunni 19 Reykjavík Sími 581 3666 Róöningarþjónusta Rekstrarróögjöf Skoöanakannanir
Vélskólamenn
Hefur þú lokið námi frá Vélskóla íslands með
mjög góðum árangri?
Hefur þú sveinspróf?
Hefur þú reynslu af vélstjórastörfum til sjós?
Hyggur þú á véltækninám?
Ef svo er, gætir þú hugsanlega tryggt þér
starf að námi loknu, að uppfylltum ákveðnum
skilyrðum. Einnig er nauðsynlegt að vera
samviskusamur, skapgóður, lipur íframkomu
og fær tæknimaður.
Ef þú hefur áhuga á að koma til viðtals,
leggðu þá inn umsókn á afgreiðslu Mbl.,
merkta: „S-96“, fyrir 1. maí.
Lausar stöður
hjá Reykjanesbæ
Leikskólafulltrúi
Starfssvið:
• Stafar á skólamálaskrifstofu Reykjanes-
bæjar.
• Skólamálaskrifstofa er hluti af mennta-
og menningarmálasviði sveitarfélagsins.
• Skólamálaskrifstofa fer með málefni
grunnskóla, leikskóla og innan tíðar mál-
efni tónlistarskóla.
• Starfar m.a. skv. lögum nr. 78/1994.
• Yfirmaður ieikskólafulltrúa er skólamála-
stjóri.
• Stöðuhlutfall er 100%.
Menntunarkröfur:
Umsækjendur skulu hafa leikskólakennara-
menntun, stjórnunarreynslu og hæfni í
mannlegum samskiptum.
Laun:
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Félags
íslenskra leikskólakennara og launanefndar
sveitarfélaga.
Ráðningartími:
Ráðning er miðuð við 1. júní nk., en æskilegt
er að viðkomandi geti hafið stöf nokkuð fyrr.
Fjármálastjóri
Starfssvið:
• Starfar á skrifstofum Reykjanesbæjar.
• Dagleg fjármálastjórn.
• Gerð fjárhagsáætlana.
• Umsjón með álagningu sveitarsjóðs-
gjalda.
• Umsjón með allri innheimtu.
• Ber ábyrgð á og annast innra eftirlit með
fjárreiðum bæjarstofnana.
• Hefur frumkvæði að reglulegri endurskoð-
un á skipulagi á meðferð og móttöku fjár-
muna bæjarstofnana.
• Annast útboð langtímalána.
• Hefur umsjón með eignaskrá og aðstoðar
við ársuppgjör.
• Gegnir störfum bæjarritara í forföllum og
sumarleyfum.
• Yfirmaður er bæjarstjóri.
• Stöðuhlutfall er 100%.
Menntunarkröfur:
Umsækjendur skulu hafa próf í viðskiptfræði
eða sambærilegri menntun, þekkingu á
tölvumálum, nokkurra ára reynslu á vinnu-
markaði við fjármálastjórn og hæfni í mann-
legum samskiptum.
Laun:
Laun eru samkvæmt kjarasamningum félags
bæjarstarfsmanna (S.T.R.B.) og Reykjanes-
bæjar.
Ráðningartími:
Ráðning er miðuð við 1. júlí nk. eða eftir
nánara samkomulagi.
Umsóknarfrestur
Skriflegar umsóknir um stöður leikskóla-
fulltrúa og fjármálastjóra skulu berast fyrir
kl. 12 á hádegi þriðjudaginn 23. apríl nk. til
undirritaðs, sem einnig veitir allar nánari
upplýsingar.
Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ,
Ellert Eiríksson.
Forritun - C
Fyrirtæki, sem vinnur að spennandi þróunar-
verkefni á sviði tæknibúnaðar, leitar eftir
áhugasömum starfsmanni.
Helstu verkefni:
Starfsmaður mun aðallega vinna við forritun
tæknibúnaðar á forritunarmálinu C og einnig
við forritun í Windows.
Kröfur um hæfni:
Starfsmaður þarf að hafa viðeigandi menntun
og reynslu. Viðkomandi þarf að vera skipu-
lagður í vinnubrögðum og einnig að vera
góður liðsmaður.
í umsókn þurfa að koma fram nákvæmar
upplýsingar um menntun og fyrri störf. Farið
verður með allar upplýsingar sem trúnaðar-
mál og öllum umsóknum verður svarað.
Þeim, sem telja sig uppfylla þær kröfur, sem
að ofan greinir, er boðið að senda umsókn
til KPMG Sinnu efh., fyrir 11. apríl 1996.
kpiwfe
Sinna
ehf.
Rekstrar- og stjórnunarráðgjöf
Vegmúla 3, Sími 588-3375.
108 Reykjavík. Myndriti 533-5550.
KPMG Sinna ehf. veitir ráðgjöf á sviði stjórnunar- og starfsmanna-
mála og einnig sérhæfða ráðningarþjónustu.
KPMG Sinna ehf. er í samstarfi við KPMG Management Consulting.
Veitingastjóri
óskast undir Jökul
Við leitum að metnaðarfullum og reyndum
aðila til að sinna veitingastjórn á Hótel Búð-
um í sumar og næstu sumur.
Menntun á sviði þjónustu ekki nauðsynleg
en góð reynsla, eðlislæg gestrisni, útsjónar-
semi og dugnaður nauðsynlegur.
Hótel Búðir er rekið í um sex mánuði á ári
frá maí og fram í október.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál.
Vinsamlega sendið umsóknir til afgreiðslu
Mbl., merktar: „Hótel Búðir 1996“, fyrir
17. apríl.
Laus störf
1. Skjalabókun hjá opinberri stofnun. Starfið
felst í bókun á skjölum í Lotus-Notes,
einnig í símavörslu, skrifstofu- og ritara-
störfum. Starf fram að áramótum, með
möguleika á framtíðarstarfi. Vinnutími
kl. 8.00-16.00.
2. Innheimtustarf hjá fyrirtæki í Reykjavík.
Leitað er að aðila sem á auðvelt með
mannleg samskipti og er vanur tölvu-
vinnslu. Óreglulegur vinnutími (síðdegis-
og kvöldvinna).
3. Klinikdama hjá tannlækni miðsvæðis í
Reykjavík. Leitað er að snyrtilegum aðila,
sem kemur vel fyrir. Vinnutími frá
kl. 8.00-12.30.
Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl
1996.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofu Liðsauka, sem opin er kl. 9-14.
Lidsauki @
Skólavörðustíg 1 a -101 Reykjavík - Sími: 562 1355
Fax: 562 1311 - Kt. 600182-0729