Morgunblaðið - 04.04.1996, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. APRIL 1996
D 39
ATVIN N tMAUGL YSINGAR
Sölumaður
Við erum að leita að dugmiklum sölumanni
sem þarf að vera mjög áhugasamur og
gæddur mikilli lífsgleði. Hann þarf að geta
unnið sjálfstætt og vera frjáls til að ferðast,
vera snyrtilegur, með fágaða framkomu og
góða þjónustulund auk þess að geta unnið
undir álagi. Kostur væri ef viðkomandi byggi
yfir kunnáttu í ensku.
Handskrifuðum umsóknum skal skilað eigi
síðar en 15. apríl nk. og senda í pósthólf
1297. Fyrirspurnum er ekki svarað í síma.
David Pitt ehf.,
pósthólf 1297,
121 Reykjavík.
v3
BLINDRA
VINNUSTOFAN
Blindravinnustofan
Áhugaverð og krefjandi staða er laus til
umsóknar.
Um nýtt starf er að ræða og mun væntanleg-
ur starfsmaður hafa tækifæri til að móta það
að verulegu leyti.
í starfinu felst m.a. dagleg verkstjórn, skipu-
lagning og einstaklingsmiðuð starfsþjálfun í
framleiðsludeild.
Við leitum að þroskaþjálfa eða iðjuþjálfa með
starfsreynslu. Um hlutastarf er að ræða.
Umsóknir skal senda til Blindravinnustofunn-
ar, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík, fyrir 1. maí
nk. Öllum umsóknum verður svarað og farið
með þær sem trúnaðarmál.
Félagsmálastofnun Mosfellsbæjar
óskar að ráða félagsráðgjafa og sálfræðing
til starfa. Mosfellsbær er ört vaxandi sveitar-
félag þar sem barnafjölskyldur eru í meiri-
hluta. Náin samvinna er milli Félagsmála-
stofnunar og grunnskóla bæjarfélagsins.
í Mosfellsbæ er lögð áhersla á forvarnar-
starf í málefnum barna og ungmenna. Und-
anfarin ár hefur verið starfandi forvarnarhóp-
ur, sem í eiga sæti þeir aðilar í bæjarfélag-
inu, sem fara með málefni barna og ung-
menna.
Félagsráðgjafi
Um er að ræða hálft starf sem býður upp á
afar fjölbreytt starfssvið. Staðan er laus nú
þegar. Umsækjandi þarf að hafa reynslu af
starfi á félagsmálastofnun og þekkingu á fjöl-
skylduvinnu.
Laun eru skv. kjarasamningi Starfsmanna-
félags Mosfellsbæjar og Launanefndar sveit-
arfélaga.
Sálfræðingur
Um er að ræða hálft starf, þar sem megin
áhersla er á greiningarvinnu og úrvinnslu í
málefnum barna og fjölskyldna þeirra. Stað-
an er laus nú þegar. Umsækjandi þarf að
hafa reynslu af gerð sálfræðiathugana og
vinna með börnum.
Laun eru skv. kjarasamningi Starfsmanna-
félags Mosfellsbæjar og Launanefndar sveit-
arfélaga.
Til greina kemur að gera verksamning við
sjálfstætt starfandi aðila.
Umsókn, ásamt staðfestum upplýsingum um
nám og fyrri störf, sendist Félagsmálastofn-
un Mosfellsbæjar í síðasta lagi 22. apríl 1996.
Nánari upplýsingar veita yfirmaður fjölskyldu-
deildar og félagsmálastjóri í síma 566 8666 frá
kl. 10.00 til 11.00.
Félagsmálastjóri.
Kjötiðnaður
Verkstjóri/framleiðslustjóri
Nýtt kjötiðnaðarfyrirtæki á Austurlandi óskar
að ráða kjötiðnaðarmann til að stjórna fram-
leiðsludeild fyrirtækisins. Hér er um mjög
krefjandi starfa að ræða.
Óskað er eftir dugmiklum einstaklingi, sem
hefur áhuga á að taka virkan þátt í uppbygg-
ingu fyrirtækisins.
Starfið er mjög fjölþætt; verkstjórn, fram-
leiðslueftirlit, vöruþróun, starfamannastjórn-
un, gæðamál o.fl.
Umsóknarfrestur er til 14. apríl.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl., merkt-
ar: „AU - 67“.
Viðskiptafræðingur
Óskum eftir að ráða viðskiptafræðing til
starfa í fjármáladeild hjá einu af stærstu og
öflugustu þjónustufyrirtækjum landsins.
Starfssvið:
• Yfirumsjón og færsla bókhalds.
• Uppgjör, afstemmingar og frágangur bók-
halds.
• Vinna upplýsingar fyrir virðisaukaskatts-
uppgjör.
• Aðstoð við mánaðaruppgjör og ársupp-
gjör.
Við leitum að ungum viðskiptafræðingi af
endurskoðunarsviði sem tilbúinn er að tak-
ast á við krefjandi starf.
Æskileg starfsreynsla 2-3 ár.
Fyrirtækið býður góð starfsskilyrði og starfs-
umhverfi.
Upplýsingar veitir Gylfi Dalmann.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar
„Viðskiptafræðingur 098“ fyrir 15. apríl nk.
Hagvangur hf
Skeifunni 19
Reykjavík
Sími 581 3666
Róðningarþjónusta
Rekstrarróðgjöf
Skoðanakannanir
BYGGINGARVERKFRÆÐINGUR
BYGGINGATÆKNIFRÆDINGUR
Opinbert fyrirtæki óskar eftir að ráða
byggingarverkfræðing eða byggingatæknifræðing til
stjórnunarstarfa.
Starfið felst stjórnun á sviði verklegra framkvæmda
og skyldra verkefna.
Menntunar og hæfniskröfur
• Byggingarverkfræðingur eða
byggingatæknifræðingur.
• Reynsla af stjórnun verklegra framkvæmda.
• Góð kunnátta í ensku og Norðurlandamáli.
• Sjálfstæði í starfi ásamt samstarfshæfni.
Um er að ræða áhugavert stjórnunarstarf fyrir hæfan
og metnaðarfullan einstakling.
Nánari upplýsingar veitir Auður Bjarnadóttir hjá
Ráðgarði frá kl. 9-12. Vinsamlegast sendið umsóknir til
Ráðgarðs á eyðublöðum er þar liggja frammi merktar:
“Byggingarverkfræðingur - tæknifræðingur” fyrir
13.apríl nk.
RÁÐGARÐURhf
SiyígtlSOvlAR(XSREKS]EARR^Xl)Œ
FURUQERÐI S 108 REYKJAVÍK SlMI 5S3-1800
netfang: radgardurflitn.lt
&
Félagsmálastofnun
Mosfellsbæjar
óskar eftir stuðningsfjölskyldum. Hlutverk
stuðningsfjölskyldu felst fyrst og fremst í því
að taka á móti barni til vistunar nokkra daga
í mánuði í því skyni að létta álagi af barni
eða fjölskyldu þess.
Umsækjendur þurfa að hafa hæfni og reynslu
af uppeldi barna.
Nánari upplýsingar eru veittar af yfirmanni
fjölskyldudeildar og félagsmálastjóra í síma
566 8666 kl. 10.00-11.00 virka daga.
Yfirmaður fjölskyldudeildar.
Tjónauppgjör
N.H.K. International Ltd. hefur verið beðið
um að auglýsa eftir framkvæmdastjóra fyrir
sjálfstætt starfandi tjónauppgjörsfyrirtæki,
sem annast mun uppgjör slysa- og muna-
tjóna vegna væntanlegrar starfsemi erlends
vátryggingafélags á íslandi. Óskað er eftir
aðila sem hefur umtaisverða reynslu á þessu
sviði og sem getur annast samskipti við hinn
erlenda aðila á a.m.k. ensku.
Allar fyrirspurnir verða meðhöndlaðar í full-
um trúnaði og eru áhugasamir aðilar beðnir
að hafa samband við Gísla eða Halldór í síma
588 3200 á skrifstofutíma fyrir 13. apríl nk.
N.H.K. International Ltd.,
alþjóðleg vátryggingamiðlun,
Suðurlandsbraut 46, 108 Reykjavík,
sími 588 3200, fax 588 3201.
Sviðsstjóri
umhverfissviðs
Laust er til umsóknar starf sviðsstjóra um-
hverfissviðs hjá Skipulagi ríkisins. Umhverfis-
svið hefur umsjón með afgreiðslu og mati á
umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr.
63/1993. Vegna fyrirhugaðra breytinga á
stjórnskipulagi stofnunarinnar gæti orðið um
útvíkkun á starfssviði að ræða.
Helstu verkefni:
Starf sviðsstjóra er stjórnunarstarf og felur
í sér ábyrgð á eftirfarandi þáttum:
• Daglegum rekstri sviðsins, þ.m.t. áætl-
anagerð og starfsmannastjórnun.
• Afgreiðslu mála samkvæmt ofangreindum
lögum.
• Þróunarverkefnum í mati á umhverfis-
áhrifum.
• Ráðgjöf og samskiptum við viðskiptavini.
Kröfur um hæfni:
Starfið er fjölbreytt og krefjandi. Frumkvæði
og sjálfstæði í vinnubrögðum er nauðsyn-
legt. Þekking og reynsla af framkvæmdum,
skipulagi og/eða mati á umhverfisáhrifum
er æskileg. Askilin er háskólamenntun á sviði
skipulagsfræði, verkfræði, lögfræði, náttúru-
fræði, arkitektúr eða önnur sambærileg
menntun.
I umsókn þurfa að koma fram nákvæmar
upplýsingar um menntun og fyrri störf.
Frekari upplýsingar verða veittar á skrifstofu
KPMG Sinnu ehf. Farið verður með allar
upplýsingar sem trúnaðarmál og öllum um-
sóknum verður svarað. Þeim, sem telja sig
uppfylla þær kröfur, sem að ofan greinir, er
boðið að senda inn umsókn til KPMG Sinnu
ehf. fyrir 20. apríl 1996.
kfeiwb
Sinna ehf.
Rekstrar- og stjórnunarráðgjöf
Vegmúla3, Sími 588-3375.
108 Reykjavík. Myndriti 533-5550.
KPMG Sinna ehf. veitir ráðgjöf á sviði stjórnunar- og starfsmanna-
mála og einnig sérhæfða ráðningarþjónustu.
KPMGSinna ehf. er í samstarfi við KPMG Management Consulting.