Morgunblaðið - 04.04.1996, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 04.04.1996, Qupperneq 42
42 D FIMMTUDAGUR 4. APRÍL1996 MORGUNBLAÐIÐ RAÐAUGÍ YSINGAR TILKYNNINGAR Styrkirfrá Norrænu Atlantsnefndinni Norræna Atlantsnefndin (NORA) hefur það að markmiði að hvetja til samstarfs milli Grænlands, Færeyja, íslands og Noregs. Sérstök áhersla er lögð á samstarf á sviði atvinnumála; nýtingu auðlinda sjávar, ferða- mál og samgöngur, landbúnaðarmál, um- hverfismál, viðskipti og iðnað. Rannsókna- og samstarfsverkefni, sem snerta atvinnuþróun á svæðinu, hafa forgang umfram önnur verkefni. Stuðningur nefndarinnar við einstök verkefni getur að hámarki verið til þriggja ára og er háður fjármögnun verkefna að öðru leyti. Umsóknum á dönsku, norsku eða sænsku skulu fylgja: ★ Verkefnislýsing. ★ Fjárhagsáætlun. ★ Tilgreind þarf fjárhæð sem sótt er um. ★ Upplýsingar um fjármögnun. ★ Upplýsingar um ábyrgðarmann eða sam- skiptaaðila. Umsóknir skulu berast skrifstofu nefndarinn- ar í Færeyjum fyrir 1. maí næstkomandi. Umsóknirnar sendist til: Nordisk Atlantsamarbejde, Hoyvíksvegur 51, Postboks 1287, 110 Tórshavn, sími 00 298 14028, fax 00 298 10459. Húseigendur - húsfélög - verkkaupar Samtökum iðnaðarins berast reglulega kvartanir vegna óprúttinna viðskiptahátta verktaka, sem hafa hvorki fagréttindi né fag- þekkingu, bjóða nótulaus viðskipti og leggja ekki fram verklýsingu eða gera verksamning. Að gefnu tilefni vilja Samtök iðnaðarins leggja áherslu á eftirfarandi: • Skiptið við fagmann. Samkvæmt iðnlög- gjöfinni skulu verktakar í löggiltum iðn- greinum hafa meistararéttindi. • Forðist ólöglega þjónustu. Nótulaus við- skipti eru ólögleg og gera kaupanda verks eða þjónustu réttlausan gagnvart verktaka. • Gerið ráð fyrir endurgreiðslu virðisauka- skatts. Virðisaukaskattur af vinnu við ný- byggingar, endurbætur og viðgerðir á íbúðarhúsnæði fæst endurgreiddur hjá skattstjórum. Eyðublöð þess efnis fást hjá skattstjóra og á skrifstofu Samtaka iðnaðarins sem jafnframt veita aðstoð við útfyllingu. • Girðið fyrir hugsanlegan ágreining við uppgjör. Mikilvægt er að fá verklýsingu með tilboði og gera verksamning, að öðr- um kosti hefur kaupandi ekkert í höndun- um yfir það sem hann er að kaupa. Stöðl- uð verksamningsform fást á skrifstofu Samtaka iðnaðarins. Samtök iðnaðarins ráðleggja fólki að leita upplýsinga um verktaka áður en samningur er gerður. Hjá Samtökum iðnaðarins og meistarafélögum fást upplýsingar um hvaða meistarar og verktakar eru félags- bundnir. SKIPTIÐ AÐEINS VIÐ FAGLEGA VERKTAKA! SAMTÖK IÐNAÐARINS IHafnarfjörður Matjurtagarðar Leigjendum matjurtagarða í Hafnarfirði til- kynnist hér með að þeim ber að greiða leig- una fyrir 20. apríl nk. ella má búast við að garðlöndin verði leigð örðum. Bæjarverkfræðingur. Ferðastyrkur til rithöfundar Ráðgert er að af fjárveitingu til norræns sam- starfs í fjárlögum 1996 verði varið 90 þús. kr. til að styrkja rithöfund til dvalar á Norður- löndum. Umsókn um styrk þennan skal hafa borist menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 30. apríl. Umsóknum skal fylgja greinargerð um hvern- ig umsækjandi hyggst verja styrknum. Menntamálaráðuneytið, 28. mars 1996. Heyrnatækja- notendur athugið Um páskahelgina verða rafhlöður í heyrnar- tæki til sölu í Borgarapóteki, Álftamýri 1, Reykjavík. Félagið Heyrnarhjálp. Hafnarfjarðarbær FUNDIR - MANNFAGNAÐUR Aðalfundur Heilsuhringsins verður haldinn í Norræna húsinu miðvikudag- inn 10. apríl 1996 kl. 20.00. Að loknum aðalfundarstörfum kl. 21.00 verða flutt tvö erindi. Ævar Jóhannesson talar um nýjar hugmynd- ir um ráð við ótímabærri hrörnun heilans. Hallgrímur Magnússon talar um fæðuóþol. Öllum velkomið að koma og hlusta á erindin. Heilsuhringurinn, sími 568 9933. Lóðir Hafnarfjarðarbær hefur til úthlutunar lóðir í Mosahlíð skv. breyttu deiliskipulagi. Um er að ræða 15 lóðir undir einnar hæðar einbýlis- hús. Lóðirnar eru bygginarhæfar nú þegar. Einnig er laus til úthlutunar lóð fyrir þjónustu og íbúðir við Háholt. Um er að ræða 1.400 m2 hús á fjórum hæðum. Á annarri og þriðju hæð má gera 4 til 8 íbúðir. Lóðin er bygging- arhæf. í framtíðinni tengist leikskóli bygging- unni. Umsóknarfrestur um þessar lóðir er til 16. apríl nk. Eldri umsóknir þarf að endurnýja eða staðfesta. Einnig eru lausar byggingarhæfar lóðir fyrir sérbýli í Mosahlíð, Setbergshverfi og Hval- eyrarholti. Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu bæjarverkfræðings, Strandgötu 6. Bæjarverkfræðingurinn í Hafnarfirði. IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK Námskeið AUTO-CAD teikniforrit, grunnnámskeið 36 kennslustundir. Kennt miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga kl. 18-21. Námskeiðið hefst 10.4. Námskeiðsgjald kr. 18.500. Hlífðargassuða I. MAG Undirstöðuatriði í hlífðargassuðu. 20 kennslustundir (5 kvöld kl. 18-21). Kenn- ari Steinn Guðmundsson. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 16.4. Námskeiðsgjald kr. 10.000. Rennismíði II Framhald námskeiðsins Rennismíði I. 12 kennslustundir. Haldið laugardagana 13.4. og 20.4. kl. 8-13. Námskeiðsgjald kr. 6.000. Rennismíði III Undirstöðuatriði í rennismíði. 18 kennslu- stundir. Haldið laugardagana 27.4., 11.5. og 18.5. kl. 8-13. Námskeiðsgjald kr. 10.000. Windows 3.11 Undirstaða í notkun tölva. 10 kennslustundir (3 kvöld). Haldið miðvikudag, fimmtudag og föstudag kl. 20-22. Námskeiðið hefst 10.4. Námskeiðsgjald kr. 6.000. Kennsla fer fram í Iðnskólanum í Reykjavík. Skráning og upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 552-6240. iBarnaheill Aðalfundur Aðalfundur Reykjanesdeildar Barnaheilla verð- ur haldinn í safnaðarheimili Fríkirkjunnar í Hafnarfirði fimmtudaginn 11. apríl nk. kl. 20.30. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður lögð fram á fundinum tillaga að skiptingu deildar- innar upp í Kópavogsdeild, Mosfellsbæjar- deild, Seltjarnarnesdeild og deild í Hafnar- firði, Garðabæ og Bessastaðahreppi. Stjórnin. Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. verður hald- inn laugardaginn 13. apríl 1996 kl. 14.00 í Hótel Egilsbúð, Neskaupstað. Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf skv. samþykkt- um félagsins. 2) Tillaga um aukningu hlutafjár. 3) Önnur mál, löglega upp borin. Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu þess, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Stjórn Síldarvinnslunnar hf. Aðalfundur Sláturfélag Suðurlands svf. Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn í félagsheimilinu á Laugalandi í Holtum föstudaginn 12. apríl og hefst kl. 14.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 24. gr. sam- þykkta félagsins 2. Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins. 3. Tillaga um útboð B-deildarhlutabréfa. 4. Önnur mál, löglega upp borin. Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.