Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Menntamálaráðherra vísar gagnrýni Framsóknarmanna á bug Engir afarkost- ir og engu leynt KAPPARNIR Cantona og Beardsley verða á Stöð 3 í dag, en ekki í Ríkissjónvarpinu. RÚV vildi senda út undir merki Stöðvar 3 MENNTAMÁLARÁÐHERRA segir að sér komi ekki sérstaklega á óvart að talsmenn Framsóknarflokksins telji að bera hafí átt hugmyndir starfshóps, sem ráðherra skipaði til að vinna að endurskoðun útvarps- laga, undir þá en önnur leið hafí verið farin til að fá fram þau sjónar- mið sem eru uppi í því efni. „Vinna starfshópsins er ágæt og hún birtist nú öllum til umræðu og skoðunar. í mörg ár hafa legið fyr- ir hugmyndir um að endurskoða útvarpslög og frumvarp verið samið um það, og þessi ríkisstjórn þarf að taka á því efni eins og aðrar,“ segir hann. Viðræður um málið samþykktar „Mér fínnst hins vegar óþarfi að láta eins og að það sé verið að gera eitthvað á hlut framsóknar- manna með þessu, og engu hefur FIMMTÍU fleiri námsmenn hafa lagt inn umsókn hjá Atvinnumiðlun námsmanna en á jafn mörgum dögum á sama tíma í fyrra. Eyrún María Rúnarsdóttir framkvæmda- stjóri segir fjölda atvinnurekenda hafa spurst fyrir um starfsmenn á föstudag, sem lofí góðu, en þeir hafí farið seint að stað í ár, líkt og hin fyrri. Sumir leiti ekki eftir fólki fyrr en í júní. Það er dálítið um það að fólk verið haldið leyndu fyrir þeim. Hug- myndirnar voru birtar um leið og þær komu og ég var búinn að skýra frá því opinberlega að þessi vinna væri í gangi og að niðurstöður hennar yrðu kynntar þegar að þeim kæmi. Eg get hins vegar ekki gert að því að mönnum bregði við ein- hveijar hugmyndir sem þar birt- ast,“ segir ráðherra. Bjöm segir að hann hafi lagt til að teknar verði upp um viðræður á milli stjómarflokka um málið, þann- ig að hvorki sé verið að setja fram- sóknarmönnum né öðmm afarkosti í málinu. Hafí framsóknarmenn lýst sig fúsa til að ganga til viðræðna um málið. „Mín afstaða birtist hins vegar í verkefnaáætlun menntamálaráðu- neytis og hún hefur legið fyrir lengi. Margt í hugmyndum starfshópsins er hins vegar ágætt og fellur að mínum skoðunum,“ segir Bjöm. hringi og vilji fá starfsmann helst í gær,“ segir Eyrún en leggur áherslu á að fjöldi atvinnurekenda hafí hringt á föstudag, einkum í hótel- og ferðamannaþjónustu auk ýmiss konar verktaka. „Það má segja að orðið hafi nokkurs konar sprenging," segir hún. Atvinnumiðl- unin er opin námsmönnum frá 16 ára og í ár bættist Iðnnemasamband íslands í hóp námsmannahreyfmga sem standa að starfseminni. VIÐRÆÐUR f óru fram milli Úlf- ars Steindórssonar, útvarpsstjóra Stöðvar 3, og Ríkisútvarpsins á föstudagskvöld um að hið síðar- nefnda sendi út leik Manchester United og Middlesborough í ensku úrvalsdeildinni sem fram fer í dag. Hugmyndin var sú að RÚV sendi leikinn út í gegnum sitt dreifikerfi en birti merki Stöðvar 3 á skjánum og greiddi helming kostnaðar við útsendinguna að sögn Ingólfs Hannessonar íþrótta- stjóra. Ulfar Steindórsson segir að menn hafi ekki orðið ásáttir um framkvæmdina. „Við settum fram þá kröfu að útsendingin yrði algerlega okkar og vildum ekki láta þeirra þul lýsa leiknum. Þeim fannst okkar hugmyndir hins veg- ar ekki aðgengilegar," segir Úlf- ar. Ingólfur segir að Stöð 3 hafi sett „slíka afarkosti" að RÚV hafi ekki reynst unnt að samþykkja þá. Tveir leikir fara fram í síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag en RÚV hefur aðeins rétt til að sýna útsendingar á leikjum sem fram fara á laugardögum. Stöð 3 hefur sýningarrétt á leikj- um sem háðir eru á sunnudögum. Segist Ingólfur líta svo á að fyrir- tækið sem samið er við, CSI, sé að selja sama hlutinn tvisvar. Hann segir jafnframt að TV2 í Noregi hafi rétt til útsendinga á laugardegi líkt og RÚV en fái að senda út samantekt á leikjun- um tveimur sem um ræðir að kvöldi sunnudags og því virðist sem RÚV hljóti aðra meðferð en sjónvarpsstöðvar annars staðar varðandi túlkun samnings við CSI. 750 námsmenn á skrá Heimir Steinsson útvarpsstjóri Tryggjíi þarf fjárhag og sjálfstæði RÚV HEIMIR Steinsson útvarpsstjóri segir að sér þyki jákvætt að starfs- hópur um endurskoðun á útvarps- lögunum skuli líta svo á að RÚV eigi áfram að vera stofnun í eigu ríkisins; menningarstofnun og opin- ber þjónustustofnun. Slík skilgrein- ing sé í samræmi við arfleifð RÚV, vilja Alþingis og líklega þjóðarinnar allrar. Heimir segir að ákaflega mörg álitamál sé að fínna í skýrslunni, en róttækust sé sú hugmynd, að RÚV hverfí af auglýsingamarkaði. „Þessi afstaða er þó álitamál innan starfshópsins, þótt einlitur sé, því Tómas Ingi Olrich, þingmaður og formaður útvarpslaganefndar, skil- ar séráliti og dregur í efa að þessi leið sé fær. Því hlýtur manni að verða hugsað til þess hvaða af- greiðslu þessi hugmynd fær hjá öðrum flokkum á þingi." Heimir segir að RUV veiti ekki af því ráðstöfunarfé sem stofnunin hafi. „Ég bendi einnig á, að það er 66 ára hefð fyrir auglýsingasölu ríkisútvarpsins. Þar þarf ekki ein- göngu að líta til fjárhags, heldur einnig strjálbýlisins. Ég er sjálfur stijálbýlisbam og mín hugmynd um Reykjavík þegar ég var barn austur á fjörðum tengdist í ríkum mæli auglýsingum í ríkisútvarpinu. Auglýsingar eru upplýsingar og upplýsingar eru menning, svo það er hluti af verkefni RÚV sem menn- ingarstofnunar að flytja auglýsing- ar um það sem efst er á baugi hveiju sinni.“ Hlynntari nefskatti en A-hluta Útvarpsstjóri er hlynntari hug- myndum um nefskatt en að RÚV verði flutt á A-hluta fjárlaga. „Að- alatriðið er að tryggja fjárhag stofnunarinnar og sjálfstæði og ef RÚV verður A-hlutastofnun gæti þetta sjálfstæði verið í hættu. Út- varpslaganefnd mælti með því í fyrra að afnotagjald yrði áfram, en ef annar tveggja kosta, sem fram koma í skýrslu þessa starfshóps yrði tekinn, þá fínnst mér hugmynd um nefskatt vænlegri." Heimir segir að það sé eðlileg niðurstaða að skipta RÚV í tvær megindeildir. „Ég sé heldur ekkert athugavert við þá hugmynd, að RÚV bjóði út þáttargerð. Lögleiðing öryggisbelta í rútum á Evrópska efnahagssvæðinu Kemur á óvart og verð- ur erfitt í framkvæmd ÞORVARÐUR Guðjónsson, formaður Félags sér- leyfíshafa, segir að íslenskum sérleyfíshöfum komi á óvart að heyra af ákvörðun fnjmkvæmda- stjórnar ESB um að fólksflutningabíla í löndum ESB, eigi að útbúa með öryggisbeltum fyrir far- þega í áföngum á árunum 1999-2001. Þorvarður kveðst óttast að það verði dýrt og erfítt í fram- kvæmd að fyigja ákvörðuninni eftir en segir sér- leyfíshafa í sjálfu sér ekki andmæla ráðstöfunum sem gripið sé til í þágu öryggis farþega. í frétt Morgunblaðsins um ákvörðun fram- kvæmdastjórnarinnar kom fram að nokkuð sé um liðið frá því að ákvörðun um lögleiðingu bíl- belta í fólksflutningabílum í löndum ESB var tekin en síðan hafí verið deilt um tímasetningar þar til nú að framkvæmdastjómin hafi tekið af skarið í málinu með fyrrgreindum hætti. Þorvarður segir að á fundi með fulltrúum ís- lenskra stjómvalda fyrir um mánuði hafí fulltrú- ar sérleyfís- og flutningabíla spurt hvort vænta mætti einhvers frá Brussel sem snerti rekstrar- umhverfi þeirra á næstunni og hafí þeim verið svarað að næsta mál sem þá varðaði yrði líklega reglur um flutning eiturefna. Þess vegna kæmi það á óvart að heyra fyrst nú af þessari stöðu málsins og því að ákvörðun um lögleiðingu hefði verið tekin fyrir nokkru. Þorvarður kvað það e.t.v. skýrast af því að dómsmáiaráðuneytið væri eina íslenska fagráðu- neytið sem ekki hefði mann á sínum snæmm í Bmssel til að fyigjast með málum á sínu sviði og kynna þau íslenskum hagsmunaaðilum. Þorvarður sagðist óttast að því fylgdi óskapleg- ur kostnaður að koma þriggja punkta öryggis- beltum í alla eldri fólksflutningabíla á íslandi, auk þess sem málið yrði erfitt í framkvæmd, m.a. vegna þess að um þriðja punkt fyrir belti væri ekki að ræða í sætum við ganga. Þessi vandamál ættu framleiðendur yfírbygg- inga fyrir fólksflutningabíla eftir að leysa því að Þorvarður kvaðst ekki vita til að komnar væru á markað yfirbyggingar með þriggja punkta beltum fyrir farþega. Hann sagði að þrátt fyrir kostnað og erfíð- leika í framkvæmd væri erfitt að mótmæla ákvörðun um að setja þriggja punkta belti í fóiksflutningabíla enda væri ákvörðunin tekin í því skyni að standa vörð um og efla öryggi far- þega. Hins vegar sagði hann mega setja spurn- ingarmerki við það sjónarmið, m.a. út frá því að farþegum í flugvélum væru ætluð tveggja punkta belti. „Það er svo spurning hvort stjórnvöld ákveða að ríkissjóður skuli hagnast á þessu aukna ör- yggi eða hvort þau fáist til að gefa eftir eða endurgreiða virðisaukaskatt þegar þar að kem- ur,“ sagði Þorvarður Guðjónsson. Rannsóknir styðja ald- ur Vínlandskortsins ►Vínlandskortið vakti mikla at- hygli er það var kynnt 1965. /10 Hagur Færeyinga vænkast ►Mikil umskipti hafa átt sér stað í færeysku efnahagslífi á skömm- um tíma. /12 Árangursrík lyfjameðferð ►Á læknaráðstefnu í Reykjavík var sagt frá nýrri lyfjameðferð við stækkun blöðruhálskirtils. /18 Á sinni syllu í fugla- bjargi heimsviðskipta ►Rætt við Jón Sigurðsson aðal- bankastjóra Norræna fjárfestinga- bankans. /20 Seiðkonan í Pottagöldrum ►í Viðskiptum/Atvinnulífi á sunnudegi er rætt við Sigfríði Þór- isdóttur í Pottagöldrum. /22 B ► l-28 Leikstjóri á ekki að setja upp verk sem hann trúir ekki á ► Helgi Skúlason, leikari, hefur sett upp fjölda leiksýninga hjá LR og Þjóðleikhúsinu. /1 Reynst best að hætta við ►Kristleifur Þorsteinsson bóndi í Húsafelli hefur byggt upp viða- miklaferðaþjónustu. /4 Að fanga augnablikið ►Óskar Páll Sveinsson heldur senn til London að vinna við tón- listarupptökur. /8 FERÐALÖC ► 1-4 Skortur á gögnum háir íslenskri ferðaþjón- ustu ►Hjá Ferðamálaráði er unnið að undirbúningi viðhorfskönnunar meðal erlendra ferðamanna. /1 Rómantík og leyni- stræti ►Kaupmannahöfn hefur upp á margt að bjóða. /2 BÍLAR_____________ ► 1-4 BMW 520i sportlegur og fágaður ►B&L frumkynnir um helgina 1997 árgerð BMW 5. /1 Reynsluakstur ►Nissan Vanette vinnubíll með dísilvél. /4 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/8/bak Leiðari 26 Helgispjall 26 Reykjavíkurbréf 26 Skoðun 28 Minningar 32 Myndasögur 38 Bréf til blaðsins 38 ídág 40 Brids 40 Stjömuspá 40 Skák 40 Fólk í fréttum 42 Bíó/dans 44 íþróttir 48 Útvarp/sjónvarp 49 Dagbók/veður 51 Mannllfsstr. 6b Kvikmyndir lOb Dægurtónlist 12b INNLENDAR FRÉTTIR- 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR; 1&6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.