Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 28/4 - 4/5 ► REYKJAVÍK og Hafnar- fjörður ætla að taka upp samstarf til að flýta fyrir uppbyggingu orkuiðnaðar og þróunar iðnaðarsvæða á höfuðborgarsvæðinu. Bæj- arfélögin munu beita sér fyrir sérstöku átaki til rann- sóknar og öflunar jarðgufu frá Krísuvíkursvæðinu og stefna að uppbyggingu og rekstri hafnarmannvirkja við Straumsvík og Eiðisvík. ► BREYTTUR inflúensu- stofn er talinn geta gert usla hér á landi næsta vet- ur. Bólusett verður við þessu nýja afbrigði næsta haust, en líkur eru á að margir veikist. Inflúensan sjálf er hins vegar ekki al- varlegri en fyrri inflúensur. ► EKKI verða veitt fleiri ný vínveitingaleyfi til veit- ingastaða í miðborg Reylqa- víkur að sinni. Borgarráð telur að með tímabundnu banni við nýjum leyfum megi hafa áhrif á þá þróun, að veitingastaðir verði hlut- fallslega of margir í mið- bænum miðað við æskilega skiptingu þjónustufyrir- tækja, íbúðarhúsnæðis og veitingastaða. ► TALIÐ er að kuml, sem fannst í hóli rétt við bæinn Hraukbæ í Glæsibæjar- hreppi, sé af ungum ein- staklingi. Talið er að kuml- búinn hafi verið um 150 sm á hæð, en leifar hans verða fluttar til Reykjavíkur og rannsakaðar nánar. ► HAGNAÐUR Samskipa hf. af reglulegri starfsemi nam alls um 125 milþ'ónum króna á síðasta ári, sem er um 100 milljóna króna bati frá árinu 1994. Þessi bætta afkoma er rakin til mikillar lækkunar á fjármagns- kostnaði, sem var 44 millj- ónir á síðasta ári, en 173 milljónir 1994. Milljónatjón á Eiðistorgi TUGIR manna þurftu að flytja af heim- ilum sínum og um 20 fyrirtækjum var Iokað í nokkra daga, eftir að eldur kom upp í aðalrafmagnstöflu Eiðistorgs 13-15 síðastliðna helgi. Um 250 manns voru á skemmtistaðnum Rauða ljóninu þegar eldurinn kom upp og reyk lagði um stigagang, þar sem gengið er inn í 15 íbúðir. Engan sakaði, eo tjón íbúa og fyrirtækja við EiQistorg er talið í milljónum. Unglingar til fyrirmyndar EFTIR miklar umræður í fjölmiðlurn um að foreldrar og lögregla yrðu að vera á varðbergi við lok samræmdra prófa, þar sem unglingar væru líklegir til að hvolfa í sig áfengi til að fagna áfanganum, reyndust þessir sömu ungl- ingar til fyrirmyndar. Að vísu var fjöl- mennt í miðbænum á þriðjudagskvöld, en ekki þurfti að hafa afskipti af nema 20-30 drukknum unglingum. RÚV af auglýsinga- markaði? STARFSHÓPUR á vegum mennta- málaráðherra hefur skilað skýrslu, þar sem lagt er til að Ríkisútvarpið hverfí af auglýsingamarkaði fyrir 1. janúar 1999 og að RÚV verði bannað að láta „kosta“ dagskrárgerð. Þá er lagt til að hætt verði _ að innheimta afnota- gjöld og að RÚV fái tekjur með inn- heimtu nefskatts af öllum landsmönn- um 16 ára og eldri. Annar kostur er að RÚV verði sett á_A-hluta fjárlaga. Miðað við umsvif RÚV nú þyrfti nef- skattur að nema 9.000 krónum á mann á ári. Nú nemur afnotagjald 24 þúsund krónum á ári og er þá miðað við sjón- varpstæki á heimili, en ekki fjölda heimilismanna. Formaður þingflokks Framsóknar- flokksins sagði tillögumar hafa komið framsóknarmönnum í -opna skjöldu og þær samrýmdust ekki stefnu flokksins í málefnum RÚV. Fjöldamorð- inginn Fjöldamorð í Ástralíu ÁSTRALI á þrítugsaldri myrti 34 manns og særði 19 þegar hann hóf skothríð á ferða- mannastaðnum Port Arthur á eynni Tasmaníu á sunnu- dag. Fjöldamorð- inginn náðist eftir 18 klukkustunda umsátur er hann hljóp út úr alelda húsi þar sem hann hafði haldið þremur gíslum. í kjölfar þessara atburða hét John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, því að herða lög um skotvopnaeign. Enn einn ósigur íhaldsmanna BRESKI íhaldsflokkurinn beið mik- inn ósigur í bæjarstjórnarkosningum sem fram fóru á Bretlandi á fimmtu- dag. Um fjórðungur breskra kjósenda var á kjörskrá og hlaut flokkurinn um 27% atkvæða og tapaði 575 sæt- um í bæjarstjórnum. Árið 1992 hlaut flokkurinn 42% fylgi í bæjarstjórnar- kosningum í sömu kjördæmum. Nið- urstaðan er talin enn ein vísbending- in um óánægju kjósenda með stjóm íhaldsmanna. Jeltsín til Tsjetsjníju BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti stað- festi á fimmudag að hann hygðist halda til Tsjetsjníju um miðjan mán- uðinn. Hyggst hann reyna að blása nýju lífi í friðarviðræðurnar við upp- reisnarmenn og útilokaði ekki að hann myndi hitta leiðtoga þeirra að máli. ERLENT ►NORSKIR sjómenn lok- uðu á fimmtudag höfninni í Bátsfirði í Finnmörku til að koma í veg fyrir að fimm rússneskir togarar gætu landað þar. Vildu sjómenn- irnir með þessu mótmæla því að fiskvinnslufyrirtæki í Norður-Noregi kaupi fisk af Rússum en ekki norsk- um skipum. ► S AMKOMUL AG náðist á þriðjudag um að halda áfram viðræðum um sam- komulag um nýja skipan fjarskiptamála í heiminum til 15. febrúar á næsta ári. Upprunalegur frestur til að ná samkomulagi rann út á miðnætti á þriðjudag, en Bandaríkjastjórn sætti sig ekki við þann árangur sem þá hafði náðst. ►SAMKVÆMT nýjustu skoðanakönnunum sem gerðar hafa verið í Rúss- landi, sigrar Gennadq Zjúganov, frambjóðandi kommúnista, með yfirburð- um í forsetakosningunum sem fram fara i Rússlandi í júní nk. Er honum spáð um 38-47% atkvæða en Borís Jeltsín, forseta Iands- ins, er aðeins spáð 16-20% fylg'-. ► SKOG ARELD AR og flóð hafa valdið erfiðleikum víða um Bandaríkin. Undir lok vikunnar tókst að hefta útbreiðslu gróðurelda í suðvesturríkjunum en í miðvesturríkjunum hafa stór landsvæði farið undir vatn. FRÉTTIR Skiptum að ljúka í þrotabúi Miklagarðs HÆSTIRÉTTUR staðfesti á fímmtu- dag riftun skiptastjóra þrotabús Mik- lagarðs á um 37 milljóna króna greiðslum til annars vegar KEA og hins vegar Samyinnusjóðs íslands úr sjóðum Miklagarðs skömmu fyrir gjaldþrot fyrirtækisins. Mikligarður varð gjaldþrota . 10. júní 1993. Alls var lýst kröfum fyrir l. 778 milljónir króna í þrotabúið en hluta þeirra var hafnað. Samþykktar almennar kröfur námu 1.447 m.kr. og hafa skiptastjórar greitt 10% höf- uðstóls þeirra út. 20 riftunarmál Við uppgjör þrotabúsins voru höfð- uð um 20 riftunarmál. 7 gengu til Hæstaréttar. Með dómunum er fengin niðurstaða í öllum málunum og hafa kröfur þrotabúsins verið teknar til greina að nær öllu leyti. Gagnvart Samvinnusjóði íslands krafðist þrotabúið riftunar á 13,6 m. kr. greiðslu upp í skuld Miklagarðs við Samvinnusjóðinn á tímabilinu frá 20. apríl til 3. júní 1993. í dómi Hæstaréttar segir að gréið- salan hafí farið fram með kröfum á hendur þriðja manni. „Um þá tilhögun höfðu Mikligarður hf. og fSamvinnu- sjóður íslands] ekki 'samið við uppháf viðskipta sinna og er ekki að sjá, að hún hafl átt sér hliðstæðu á fyrri stig- um. Verður að telja greiðsluna innta af hendi með óvenjulegum gréiðslu- eyri,“ segir í dómi Hæstaréttar og jafnframt að Samvinnusjóðurinn hafí ekki sýnt nægilega fram á að greiðsl- unar hafl mátt virðast venjulegar eft- ir atvikum. Því var riftunarkrafa tek- in til greina og sjóðurinn dæmdur til að greiða að auki 600 þús. kr. í máls- kostnað. í málinu gegn KEA var gerð krafa um riftun um 25 miljóna króna greiðslna á fyrri hluta ársins 1993 frá Miklagarði til KEA. Skiptastjórar þrotabúsins töldu að með því að yfirfæra kröfur frá dótt- urfyrirtækjum sínum hafi KEA búið til inneign hjá Miklagárði og svo- skuldjafnað við inneign Miklagarðs hjá KEA. KEA greiði 23 m.kr. Hæstiréttur féllst á að KEA hafi verið heimilt að nota til skuldajafnað- ar nokkra þeirra víxla sem deiít var um en að langstærstu leyti var fallist á kröfu skiptastjóranna og KEA dæmt til að greiða þrotabúinu 23,1 milljón króna með dráttarvöxtum frá 1. júlí 1993 auk 900 þús. kr. í máls- kostnað. Ástráður Haraldsson, lögmaður, annar skiptastjóra þrotabúsins sagði í samtali við Morgunblaðið að nú þeg- ar niðurstaða væri fengin í öllum dómsmálum þrotabúsins væri útlit fyrir að skiptum yrði lokið fyrir árslok. Stefnír í a.m.k. 15% úthlutun Almennum kröfuhöfum hefur þeg- ar verið greiddur 10% höfuðstóls krafna. Eftir að dómsmál búsins hafa unnist bendir nú flest til, að sögn Ástráðs, að í heildina komi a.m.k. 15% af höfuðstóji almennra krafna til út- hlutunar. Ástráður sagði að vegna þess hve biðtími einkamála hefði styst í Hæstarétti yrði unnt að ljúka skipt- um í þessu stóra þrotabúi mun fyrr en talið var í upphafi. Dómsmálin hefðu aukið eignir búsins um á sjö- unda tug milljöna króna. ISÍSI? Morgunblaðið/Hilmar Siguijónsson BÖRNIN Sæmundur Óli, Vignir, Sigþór, Hjalti, Sigurður Óli, Anton og Friðrik. Umboðsmaður barna Vinnuskólmn verði skoðaður UMBOÐSMAÐUR bama hefur lagt til við Samband íslenskra sveitarfé- laga að settur verði á laggimar starfs- hópur til að taka málaefni vinnuskóla sveitarfélaganná til ítarlegrar skoðun- ar með hagsmuni, þarfír og réttindi bama að leiðarljósi. Umboðsmaður telur að hlutverk vinnuskóla sveitarfélaganna sé að aukast og sú starfsemi, sem þar sé rekin, verði sífellt mikilvægari ekki síst fyrir böm á aldrinum 13 til 16 ára. Hann telur að Samband íslenskra sveitarfélaga sé réttur vettvangur til að sinna ofangreindu verkefni þar sem telja megi að tengsl náms og vinnu grunnskólanema komi til með að verða ofarlega á baugi hjá sveitar- félögum á næstum árum. Minnt er á í því sambandi í frétta- tilkynningu að sveitarfélögin taki al- farið við rekstri grunnskólans hinn 1. ágúst næstkomandi. Umboðsmanni bama finhst tíma- bært að hlutverk og starfsemi vinnu- skóla sveitarfélaganna verði tekið til endurskoðunar og hefur m.a. lagt til að settar verði reglur um hæfriiskröf- ur leiðbeinenda, þ.e. hvaða skilyrði þeir þurfí að uppfylla til að teljast hæfir leiðbeinendur í vinnuskóla grunnskólabama. Þá telur umboðsmaður mikilvægt að sveitarfélögin velti fyrir sér nýjum leiðum í verkefnavali. I því sambandi er iögð sérstök áhersla á að bömin verði höfð með í ráðum, leitað verið eftir skoðunum þeirra og hugmyndum hvað þetta varðar. Sumarnámskeið Jafnframt hefur umboðsmaður bama lagt til við Samband íslenskra sveitarfélaga að það hafí forgöngu um að settar verði almennar lág- marksreglur um starfrækslu sum- arnámskeiða sveitarfélaga fyrir ung böm. Umboðsmaður barna hefur lagt til að settar verði reglur um hæfí leið- beinenda á þessum námskeiðum, ör- yggi bamanna og aðbúnað allan. Hann telur rétt að kannað verði hvort kröfur skuli gera til þess að umsækj- andi um starf leiðbeinanda leggi fram sakavottorð með umsókn sinni. Slík krafa sé gerð til þeirra sem stofni og reki sumardvalarheimili og sumarbúðir fyrir böm sem og þeirra sem sæki um leyfí til gæslu bama í heimahúsi í atvinnuskyni. Allir þessir aðilar eigi það sammerkt að bera mikla ábyrgð á velferð bama, and- legri sem líkamlegri. Bömin fá hjálma Reyðarfirði. Morgunblaðið. 1. maí sl. var stór stund í lífi fjög- urra ára Reyðfirðinga. Þann dag afhenti Slysavarnadeildin Ársól á Reyðarfirði þeim reiðhjólahjálma. Börnin mættu í Þórðarbúð, hús Slysavarnafélagsins, þar sem lög- regluþjónn afhenti þeim hjálmana og fræddi þau um ýmsar hættur umferðarinnar. Að því Ioknu var haldið á jeppa í söluskála Olís, þar sem var boðið upp á vel þeginn ís. Að sögn Fanneyjar Bóasdóttur, formanns deildarinnar, er þetta þriðja árið í röð sem fjögurra ára börn fá þessa gjöf og er ætlunin að þetta verði fastur þáttur í fé- lagsstarfinu næstu árin. Foreldrar voru hrifnir af þessu framtaki, en kviðu því að illa gengi að ná hjál- munum af þreyttum höfðum þeg- ar sofna skyldi um kvöldið. Messa í Vída- línskirkju GUÐSÞJÓNUSTA er í Vídal- ínskirkju í Garðabæ sunnudag- inn 5. maí kl. 11. Skólakór Garðabæjar, eldri og yngri deild, syngja, undir stjórn Guð- fínnu Dóm Ölafsdóttur og Ás- laugar Ólafsdóttur. Héraðsprestur þjónar fyrir altari. Organisti er Gunnsteinn Ölafsson. Séra Bragi Friðriksson. ) I í i : t

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.