Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ______________________________________________________________________SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1996 7 FRÉTTIR Sjúkra- skrár ekki opnaðar ALMENNINGUR fær ekki aðgang að sjúkraskrám einstaklinga eða skýrslum sálfræðinga og félagsráð- gjafa, 80 árum eftir að þær upplýs- ingar urðu til, samkvæmt breyting- artillögu alisheijarnefndar Alþingis um frumvarp til upplýsingalaga sem nú liggur fyrir þinginu. Samkvæmt frumvarpinu fær al- menningur aðgang að upplýsingum um einkamálefni einstakiinga 80 árum eftir að þær upplýsingar urðu til. Hins vegar var það mat nefndar- innar, að sjúkraskýrslur og skýrslur sálfræðinga væru það viðkvæmar persónuupplýsingar að rétt væri að undanskilja- þær óheftum aðgangi almennings. Þetta er eina breytingartillagan. sem nefndin gerir við frumvarpið. I áliti sínu áréttar hún þó ýmis atriði, eins og að það sé skilningur nefndar- innar að afhenda eigi samdægurs þau gögn, sem beðið er um. En meginregla frumvarpsins er að stjórnvöldum sé skylt, sé þess ósk- að, að veita aðgang að gögnum sem varða tiltekið mál. Nefndin segir ljóst, að um sé að ræða mál sem þurfi að kynna ræki- lega áður en lögin taka gildi. Því sé mikilvægt að forsætisráðuneytið beiti sér fyrir því að haldin verði námskeið fyrir starfsfólk stjórnsýsl- unnar, sem ætlað er að starfa eftir lögunum. -------» ♦ ♦------ Allur afli seldur án samþykkis ALLUR afli um borð í litháíska tog- aranum Vidunas var seldur án sam- þykkis Úthafsafurða hf., sem var með skipið á leigu og telur sig hafa yfirráðarétt yfir aflanum. Að söjgn Jens Albertssonar, sem er einn Islendinganna sem voru um borð í Vidunas þegar skipinu var siglt til Litháens fyrir um fimm vik- um, fjallar^ dómstóll í London um ágreining Úthafsafurða og Búnað- arbankans í Litháen, sem er eigandi skipsins, en dómstóll í Litháen ijallar um mannréttindabrot sem íslending- arnir telja sig hafa sætt um borð í Vidunas. Jens segir óvíst hvenær niður- stöðu sé að vænta frá dómstólnum í London. Hann segir að Úthafsaf- urðir hafi lagt mikla íjármuni í að tækjavæða Vidunas auk þess sem margvíslegur annar búnaður hafi verið um borð í skipinu í eigu fyrir- tækisins. Verðmætin skipti tugum milljóna kr. Hann telur að eitthvað af búnaðinum hafi verið fjarlægður úr skipinu. Einn íslendinganna, Alfreð Stein- ar Rafnsson, var enn í Litháen í gær, en hann er væntanlegur á næstu dögum til íslands. íslending- arnir voru í um fimm vikur í Litháen til að reka mál sín fyrir þarlendum dómstólum. -------» ♦ ♦------ Mælt með Hildi Jónsdóttur Á FUNDI Jafnréttisnefndar Reykja- víkurborgar í vikunni mælti meiri- hluti nefndarinnar með Hildi Jóns- dóttur sem jafnréttisfulltrúa borgar- innar. Hún hlaut 3 atkvæði meiri- hlutans, en minnihlutinn mælti með Guðrúnu Hálfdánardóttur og fékk hún tvö atkvæði. Væntanlega verður gengið frá ráðningu jafnréttisfulltrúa á fundi borgarráðs á þriðjudag. Útboð á hafnaframkvæmdum hjá Vita- og hafnamálastofnun undanfarið Lægstu tilboð um 90% af áætlun LÆGSTU tilboð hafa verið um og rétt yfir 90% af kostnaðaráætl- un í tveimur útboðum hjá Vita- og hafnamálastofnun. í þriðja til- boðinu, sem er minna, var lægsta tilboð nokkuð innan við 80% af áætlun. Hagtak hf. átti lægsta tilboð í stáltunnur í Blönduóshöfn, 17,5 milljónir kr. sem- er 89,4% af kostnaðaráætlun. Verkið er m.a. fólgið í því að útbúa tvær stáltunnur með 13 metra þvermáli við enda bryggj- unnar tii þess að skýla viðlegu- bryggjunni fyrir haföldunni. Tunnurnar eru myndaðar með því að reka um 110 stálþilsplötur í hring og tengja þær saman. Fjögur önnur tilboð bárust í verkið, öll yfir kostnaðaráætlun. Fjórir verktakar buðu í stálþil í 1. áfanga bátahafnar á ísafirði. Eiríkur og Einar Valur hf. áttu lægsta tilboðið, 17,6 milljónir kr., sem er 93,5% af kostnaðaráætlun. Tvö önnur tilboð voru lítið eitt hærri en eitt yfir áætlun. Verkið er m.a. fólgið í því að steypa þekju við nýja stálþilið sem rekið var í bátahöfninni í fyrra. Oll boð undir áætlun Trésmiðja Ólafsfjarðar hf. átti lægsta tilboð í þekju og lagnir í höfninni á Árskógssandi, tæplega 5,6 milljónir kr. sem er 78,5% af kostnaðaráætlun. Þar á m.a. að steypa þekju á stálþil sem rekið var fyrir tveimur árum. Fjögur tilboð bárust í verkið, öll undir kostnaðaráætlun Vita- og hafnamálastofnunar. //'ff /' //< f/sss//tf/fs//</'<)//' oýf /zá/f/fjoöi/f//% ées/i /f//'f/ j/f ’/' ftf//'/ssf/e^ss ff/fffýyf/. ZZ^/f/f/f-js/fff/y//ZZýfo/Z, /e/fs/' y/ff /'f/f) sé' -J Zf/s'f /esy). /ef'/ff/Z f'f/'f)y/'/f/f' — //t f//'y/f;/f/fss/feyf/fs. • mestu listaslóðir Mið-Evrópu • 24. maí • 10 dagar um hvítasunnu (aðeins 5 vinnudagar) á fegursta árstínia þegar vorið blómstrar í hinu griena hjarta Þýskalands. *aBg Vppsprettur og hátindar barrokklistar, klassík, rómantík Þtí rekur slóð J.S. Bachs í Eisenach, Obrdruf Amstadt, Weirnar, Köthen og Leipzig, kemur í kastala Lúthers, Wartburg, sriœðir kvöldverð í Ricbard Wagner salnum og gistir á Flamberg Elephant hótelinu í Weimar, sem var frcegur gisti- og stefnumótsstaður mestu listamanna heimsins í tvcer aldir og býrð undir sama þaki og snillingamir Goethe, Schiller, Grillparzer, Tbotnas Mann, Richard Wagner, Liszt, Brabms, Schumann, Strauss, Rússlandskeisari, Napoleon og forsetar Þýskalands. Svo beldur ferðin áfram um rómantísk kastalahéruð til einnar mestu listaborgar heimsins, DRESDEN, sem kölluð hefur verið önnur Elórens, við Saxelfl í staðAmo, og drekkur íþigfegurð höfuðborgar barrokksins í ótal myndum, fögrum byggingum, lista- söfnutn, óperu og tónleikum. f LEIPZIG býrðu á yndislegu hóteli, Renaissance, rétt við eina frcegustu tónleikahöll heimsins, Gewandhaus, óperuna og kirkju Bachs, Tómasarkirkjuna og trifjar upþ sögu og list mesta tónskálds allra tíma. Síðan liggur leiðin um Halle, fceðingarborg Handels, Köthen og Potsdam til f BERI.ÍNAR, eintiar mestu listaborgar Evrópu, setn pérfinnst heillandi að " j kynnast, en hefur kannski ekki kotnið því í verk, en nú er tcekifœrið. Ferðin erfarin í tengslum við Endurmenntunárstofnun Háskóla fslands og Heimsklúbb Ingólfs undir leiðsögn Ingólfs Guðbrandssonar tónlistannanns og forstjóra. Ferðin er styrkt afVISA ÍSLAND og listasjóði Heimsklúbbs Ingólfs, ef pantað er fyrir 6. maí. Fá sœti laus. 10 ágúst • 15 heillandi dagar ■ það besta í landi listanna, fegurstu héruð ftalíu, Garda, Foscana, Umbria, og mestu listaborgir landsins, glcesilegasta óperusýning ársins ÍVERONA, Nabucco, sem gerði Verdi frœgan. MILANO - stœrsta gotneska dómkirkja í heimi, Scala-óperan og safnið, Sfðasta kvöldmáltíðin, frœgasta tnyndverk Leonardos da Vinci. Tvcer nœtur íVerona, borg elskendanna, Romeos ogjúlíu og hús peirra heimsótt. Tveir dagar í stíl hertoganna í Feneyjum og búið í höll inni við sjálft Markúsartorg, Markúsarkirkjan og Hertogahöllin, siglt á gondólutn utn síkin og Canal Grande. Ekið í lúxusvagni til Toscanahéraðs, stansað í PISA að skoða frcegar byggingar á leið til FLÓRENS, þar sem biíið er rétt við Ráðhústorgið í hjarta mestu listaborgar heimsins í 3 ncetur að skoða lífið og listina, áður en halclið er áfram til SIENA að sjá torgið frcega og fegurstu gotnesku kirkju í heitni. Síðan áfram um töfrandi landslag Toscana og Umbríu til PERUGIA og gist uppi í hinni heillandi háborg. Á leið til RÓMAR er ógleymanlég heimsókn í borg heilags Frans, A.SSISI. „Menning ítalfu nær suður til Rómar, síðan tekur Afríka við", segja ítalir. 4 ógleymanlegir dagar í „Borginni eilífu" er lágmark til að kynnast undrum hennar og töfrum.Alls staðar er búið á glcesilegum hótelum í miðborgunum, ekki í skuggahverfi ’ járnbrdutarstöðvarinnar í Róm, heldur við sjálfa Via Veneto. Á norðurleið er gist á heillandi hóteli í BOLOGNA og haldin stórveísla að ítölskum hcetti íferðalok, áður en haldið er heim á leið frá Milano. Fá sæti laus. Pantið og staðfestið núna, áður en verð hcekkar 6. maí. „ Vii5 höfum áður ferðast um Itaiíu, en ákváðum að kynnast benni betur í fylgd Ingólfs. f stuttu máli var leiösögn bans svo tifandi og einstök að við höfum atdrei kynnst öðru eins, ogferðin bar af öllu, sem við þekkjum á ferða- lögum, öll framkvæmd hennar var snilldarleg. “ A.R pRim Tnnrn Lto. AUSTURSTRÆTI 17 = 4. HÆÐ BOX 140 = 121 REYKIAVÍK SÍMI (354) 562 0400 --- , , FAX (354) 562 6564 HEIMSKLUBBUR INGOLFS KT. 540192-2279 TRAVEL AGENGY EXCOTIC TRAVEL SPECIAL GROUPS, INDIVIDUIALS, INCENTIVES

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.