Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ WTÓskiptabann á erlend skM Nauðsyn eða tímoskekkjo? Opinn fundur verður miðvikudagsmorgun 8. maí kl. 8.30-10.00 í Húsi iðnaðarins, Hallveigarstíg 1. Stutt framsöguerindi flytja: Ágúst Einarsson, Stálsmiðjan hf. Geir A. Gunnlaugsson, Marel hf. Kristinn Björnsson, Skeljungur hf. Þórður H. Hilmarsson, rekstrarhagfræðingur. Steingrímur J. Sigfússon, formaður sjávar- útvegsnefndar Alþingis. Samtök iðnaðarins Útflutningsráð íslands Vinnuveitendasamband íslands ffl HEILBRIGÐISEFTIRLIT REYKJAVÍKUR Auglýsing um starfsleyfistillögur skv. gr. 70 í mengunarvarnareglugerð nr. 48/1994 í samræmi vð gr. 70 ofangreindrar reglugerðar liggja frammi til kynningar hjá upplýsingaþjónustunni í Ráðhúsi Reykjavíkur, frá mánu- deginum 6. maí til 3. júní nk., starfsleyfistillögur fyrir eftirtalin fyrirtæki: Félagsprentsmiðan ehf. Hverfisgötu 103,101 Rvk. Rétting og sprautun H. Jónssonar Smiðshöfða 14,112 Rvk. islenskar múrvörur hf. Viðarhöfða 1,112 Rvk. Miðbæjarmyndir, framköllun Lækjargötu 2,101 Rvk. Ljósmyndavinnustotan Suðurlandsbraut 4a, 108 Rvk. Tannlæknastofa Stigahlíð 44,105 Rvk. Tannlæknastofa Snorrabraut 29,101 Rvk. Tannlæknastofa Háteigsvegi 1,105 Rvk. Tannlæknastofa Síðumúla 25,108 Rvk. Tannlæknastofa Álfabakka 14,109 Rvk. Tannlæknastofa Mörkinni 6,108 Rvk. Tannlæknastofa Grensásvegi 44,108 Rvk. Tannlæknastofan Apex ehf. Snorrabraut 29,101 Rvk. Glitur, bílasprautaun og réttingar Suðurlandsbraut 16,108 Rvk. • SBS innréttingar Hyrjarhöfða 3,112 Rvk. Beyki hf. Tangarhöfða 11,112 Rvk. Gluggasmiðjan hf. Viðarhöfða 3,112 Rvk. Trésmiðja Snorra Hjaltasonar ehf. Vagnhöfða 7b, 112 Rvk. Sviðsmyndir ehf. Súðarvogi 4,104 Rvk. Kjörsmíði ehf. Draghálsi 12,110 Rvk. G.K. hurðirehf. Fosshálsi 9-11,110 Rvk. Stólpi ehf. Klettagörðum 7,112 Rvk. Trésmiðja Magnúsar F. Jónssonar Súðarvogi 54,104 Rvk. Jakob Þórhallsson, trésmiðja Tranavogi 5,104 Rvk. Sökkull sf. Dugguvogi 9-11,104 Rvk. Trévirki hf. Skeifunni 3d, 108 Rvk. Jón Guðmundsson, trésmíðav.st. Tranavogi 5,104 Rvk. Listasmíði sf. Súðarvogi 9,104 Rvk. Mávainnréttingar, trésmiðja Súðarvogi 20,104 Rvk. Sóló húsgögn ehf. Ármúla 21,108 Rvk. S.S. innréttingar Súðarvogi 32,104 Rvk. Eldhúsval sf. Sóltúni 20,105 Rvk. Albert Finnbogason, trésmíðav.st. Súðarvogi 20,104 Rvk. Guðmundur V. Guðmundsson, trésm. Selásbletti 15 a, 110 Rvk. Ingvar og Gylfi ehf., trésmíðav.st. Grensásvegi 3,108 Rvk. Alþrif, bón og þvottastöð Grensásvegi 7,108 Rvk. Emm-Offset, prentsmiðja Suðurlandsbraut 16,108 Rvk. Hvíta húsið ehf., efnaláug Kringlunni 8-12,103 Rvk. Vaka, bílapartasala Eldshöfða 6,112 Rvk. Drifás, bílapartasala Súðarvogi 28-30,104 Rvk. Rétt til að gera athugasemdir hafa eftirtaldir aðilar: 1. Sá sem sótt hefur um starfsleyfi svo og forsvarsmenn og starfsmenn tengdrar eða nálægrar starfsemi. 2. Ibúðar þess svæðis sem ætla má að geti orðið fyrir óþægindum vegna mengunar. 3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir sem málið varðar. Athugasemdir, ef gerðar verða, skulu vera skriflegar og sendast Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur, Drápuhlíð 14,105 Reykjavík, fyrir 4. júní nk. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. I DAG SKAK Umsjón Margeir Pétursson HVÍTUR leikur og vinnur STAÐAN kom upp í keppni skákmanna og tölvuforrita á Aegon mót- inu í Hollandi í vor. Það er ekki heiglum hent að bursta tölvumar á stór- sókn, en hér hefur banda- ríski stórmeistarinn Larry Christiansen (2.580) hvítt og á leik, en tölvuforritið Diogenes var með svart. 18. Hxd6! - Dxd6 19. Bb5+ - Bd7 (Eða 19. - Kd8 20. Dh4+ og vinnur drottninguna) 20. Hel+ - Kf8 21. Dc3 - Bxb5 22. Bxd6 - cxd6 23. Dc7 - Bc6 24. He7 - Be8 25. Dxb7 og með drottningu yfir og sókn vann Christ- iansen skákina auðveldlega. Þessi hvassi stíll hans gekk þó ekki alltaf upp, því hann tap- aði fyrir forritinu Rebel Aegon, mótshöldurum til mikillar gleði og gerði eitt jafntefli. Landi hans Yasser Seirawan vann hins vegar allar sex skákir sínar af tölv- unum og sýndi vel hversu langt þær eiga í land. Tölvur munu þó alltaf vinna eina og eina skák jafnvel af allra sterkustu mönnum, því þær eru lausar við mannlega veik- leika. Nú þegar stór- meistarar eru farnir að taka tölvurnar alvarlega má búast við verulegu bakslagi í árangri þeirra og hætt er við því að enn- þá séu a.m.k. 10 ár í að tölva geti unnið besta skákmann heims í einvígi. HOGNIHREKKVISI VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: lauga@mbl.is Vangaveltur VELVAKANDA barst eftirfarandi bréf: „Akranesi, 26. apríl. Velvakandi, heill og sæll, gleðilegt sumar. Mig langar til að biðja bílstjórana sem keyra að Reykjalundi að hægja á sér þegar þeir mæta göngunni sem er á ferð- inni um kl. 14. Það er eins og fjandinn sjálfur sé á hælunum á þessum bflstjórum, svei mér þá! Svo er ljóð dagsins. Mikið væri nú gaman að heyra börn og unglinga lesa þau. Ég segi nú eins og litla stúlkan sem skrif- aði þér fyrir einhveijum árum og vildi að einn fréttamaðurinn hjá Sjón- varpinu lærði að lesa. Ótrúlegt að hlusta á sumt af þessu fólki. Þetta mætti athuga næst fyrir Passíusálmalesturinn. Það er af nógu að taka hjá þessum myndarlegu og vel gerðu unglingum. Það mætti gera miklu mcira af því að láta þá koma fram. Karlakórinn Heimir í Skagafirði var hér 20. apríl sl. fyrir troðfullu húsi. Það var stórkost- legt. Þið Heimismenn, kærar þakkir fyrir kom- una og skemmtunina. Einn einsöngvarinn bað alla í húsinu að hugsa vel til hennar Lísu Páls. Hún hefði bara átt að vera með okkur þessa stund. Ágæti Velvakandi, ætli sé ekki komið nóg að sinni. Kærar þakkir. Agatha Þorleifsdóttir, Einigrund 4, Akranesi. Tapað/fundið Lyklakippa fannst EINN lykill sem hangir í lítilli grænni buddu fannst í Fossvogskirkju- garði sl. mánudag. Upp- lýsingar í síma 588-0494. Páfagaukur LÍTILL grænn páfa- gaukur fannst í Laufrima í Grafarvogi þriðjudag- inn 30. apríl sl. Upplýs- ingar í síma 555-1450. Páfagaukur HVÍTUR og blár páfa- gaukur fannst í garði í Hólastekk 4, 1. maí sl. Hann er hvítur að ofan en frá miðri bringu er hann bláhvítur. Eigand- inn er beðinn að vitja hans í síma 557-4195. Páfagaukur fæst gefins PÁFAGAUKUR án búrs fæst gefins. Upplýsingar í síma 587-6427 fyrir kl. 11.30 og eftir kl. 18. Með morgunkaffinu farin að stoppa í piiðjum setningum til að draga andann. ■ Víkveiji skrifar... HVAÐ vorum við íslendingar að bauka fyrir fimmtíu árum? Fyrir 50 árum, árið 1946, tveimur árum eftir stofnun lýðveldisins, stig- um við stórt skref inni í samfélag þjóðanna. Það ár samþykkti Alþingi með 36 atkvæðum gegn 6 aðild að Sameinuðu þjóðunum. Með þeirri samþykkt hertum við á þeirri þróun, sem var að ijúfa aldalanga einangrun þjóðarinnar. Með henni var og hlutleysisstefnan lögð til hliðar og raunar afsögð árið 1949 með inngöngu í Atlantshafs- bandalagið, vamarbandalag Vestur- landa. Aðildin að Atlantshafsbandalag- inu var eitt hatramasta deilumál þjóðarinnar, fyrr og síðar. Eftir á, í ljósi reynslunnar, eru nær allir sammála um, að mikilvægt og rétt skref hafi verið stigið með aðild- inni. Nú vildu allir Lilju kveðið hafa! XXX ETTA ÁR, 1946, voru bein listaskáldsins góða, Jónasar Hallgrímssonar, flutt heim til ís- lands, en þau höfðu þá hvílt rúm hundrað ár í danskri moldu. Okkur tókst að gera þennan gjörning að heilmiklu hávaðamáli. Fyrst voru jarðneskar leifar þjóð- skáldsins fluttar norður að Bakka í Öxnadal. En að fyrirskipan ís- lenzkra stjórnvalda voru beinin tek- in með fógetavaldi úr Bakkakirkju og flutt að Þingvöllum. Þar voru þau jarðsett í þjóðargrafreitnum. Heimflutningur beinanna og ýms- ir atburðir tengdir honum ollu miklu fjaðrafoki, deilum og blaðaskrifum. Fór þá margur mikinn. Víkveiji rek- ur deilurnar ekki frekar. Þær eru samt sem áður eitt sýnishom af mörgum um þrasgirni okkar, sem segir til sín með Jiæsta reglubundn- um hætti, rétt eins og hræringar jarðskorpunnar undir fótum okkar, sem á stundum bijótast út í eldgos- um og jarðskjálftum. x x x FYRIR fimmtíu árum, 1946, tóku íslendingar við allri flugstjórn á Norður-Atlantshafi, allt frá Shet- landseyjum til stranda Grænlands. Sá atburður hafði mikla þýðingu fyrir samstarf okkar og samgöngur við umheiminn og „flugsögu" þjóðar- innar. Fijálsar íþróttir stóðu með blóma á þessu löngu liðna ári. Gunnar Huseby vann það afrek að verða Evrópumeistari í kúluvarpi (varpaði kúlunni 15,56 metra). Finnbjöm Þorvaldsson setti nýtt íslandsmet í fímmtarþraut. Það var tíunda ís- landsmetið hans það árið. Margt fleira mætti til tína frá árinu 1946, sem eru í frásögur færandi, en hér verður látið staðar numið. FJÖLMARGT hefur breyfyt, flest til hins betra, á þeim fimmtíu árum sem liðin em frá þeim tíma sem Víkveiji hefur rifjað upp. Sumt er þó svipað og fyrrum. Þjóðarein- kennin breytast lítt. Þannig hefur þrasgirni okkar látið furðu lítið á sjá, þrátt fyrir allt! Engin stór deilumál raska þó ró okkar á þessu fagra vori. Ýmis þungavigtarmál eru að vísu í far- teskinu, þótt litlum öldugangi hafi valdið enn sem komið er: Evrópu- málin, auðlindaskatturinn og sam- keppnishæfni íslenzkra atvinnu- vega - og þar með atvinnuöryggið og kaupgreiðslugeta atvinnulífsins. Hin stóru framtíðarmálin setja ekki mark sitt á skraf og skrif Mörlandans annó 1996 að neinu ráði. Jafnvel forsetakosningar, sem fram undan eru, gára vart yfirborð þjóðarsálarinnar margfrægu. Það kann þó að breytast. „Islandsglím- an“ setur einna helzt svip sinn á þjóðkirkjuna. Þar er dulítið hnútu- kast. Þar virðast (stöku) menn hafa gleymt merkingu orðanna mikil- vægu, „fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum". Vonandi sitjum við sem þjóð og einstaklingar á sátts höfði sem lengst. Sumarið er framundan. Og það er ekki þörf að kvarta þegar blessuð sólin skín!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.