Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1996 21 vægi. íslendingar geta lært af raun- um nágranna okkar, þar sem lands- fólkið skiptist í tvær þjóðir, annars vegar þeir sem eru á vinnumarkaðn- um og hafa það gott og svo þeir sem eru utan hans. Það er frumskylda hvers þjóðfélags að búa svo um hnút- ana að allir fái að njóta hæfileika sinna og þroska þá. Þar með komum við að miklu stærra máli en sveigjanlegri umgjörð um vinnumarkaðinn. Velferðarríkin eru í kreppu, sem þarf að ráða bót á. Lausnarorðin sem oft heyrast eru lægri skattar á vinnu, en hærri skatt- ar á umhverfisgæði. í þeim felast sannleikskorn, en það væru ekki tutt- ugu milljónir manns atvinnulausir í Evrópu ef svarið væri svona skýrt og einfalt." Frumkvæðiskraftur og sjálfsbjargarviðleitni Bæði í Danmörku og Svíþjóð er Evrópusambandinu haldið á lofti sem lausn á atvinnuleysisvandanum. Hverjum augum lítur þú þá skoðun? „Þá er kannski fyrst að spyija hvers vegna þessar þjóðir líta í átt til ESB og þá komum við aftur að þeim gjörbreytingum, sem ný tækni og samgöngur yfír landamæri hafa leitt til, því þær fela líka í sér að svigrúm einstakra þjóðríkja til að bregðast við aðsteðjandi efnahags- vanda hefur minnkað. Áður var til dæmis stundum gagnlegt að grípa til gengisfellingar til að bæta efna- hagsástandið, en nú þegar allar efna- hagsaðgerðir eru dæmdar umsvifa- laust á alþjóðlegum fjármagnsmark- aði, þá getur gengisfelling verið vís- vinnuna og einnig þetta sjónarmið leiðir hugann að samanburði við önn- ur lönd. Rekstrarskilyrði fyrirtækj- anna þurfa að vera samkeppnisfær við það sem gerist í nágrannalöndun- um hvað varðar skattakjör, vexti og gengisáhættu. Þá erum við enn kom- in að EES og ESB án þess að ætla okkur það. Þetta er veruleikinn að baki aðildinni að EES. Það er mjög ánægjulegt að sjá að um hana skuli naumast lengur deilt á íslandi og líka ánægjulegt að sjá að það hefur þegar borið góðan árangur að opna mark- aði og viðskiptalífið almennt og láta gengi og vexti ráðast á mörkuðum. Það tekur tíma að koma á stöðugleika í efnahagslífinu og aðgerðir í þá átt eru ekki alltaf vinsælar, en það hefur skilað góðum árangri að fylgja slíkri stefnu í næstum áratug. En það sem ræður miklu um aðlög- unarhæfni íslenska vinnumarkað- arins er að frumkvæðiskraftur og sjálfsbjargarviðleitni einstaklinga er snar þáttur í atvinnulífnu úti um allt land. I því liggur styrkur okkar og þetta er jákvætt afl í byggðum lands- ins. Það eru heimafyrirtæki, ekki fjarlæg stórfyrirtæki, sem ráða hög- um fólks. Þetta þjóðlífseinkenni er fjarska mikilvægt, þótt það sé erfitt að mæla á vogarskálum hagfræðinn- ar. Ég ætla mér ekki þá dul að fella stóra dóma yfir íslensku efnahagslífí úr fjarlægð, en mér finnst mörgu hafa brugðið til betri vegar í íslensk- um efnahagsmálum síðustu árin. Ég þakka þetta ábyrgri afstöðu verka- lýðshreyfingarinnar ekki síður en skynsamlegum aðgerðum stjóm- asta leiðin til glötunar og haft gagn- stæð áhrif, fjármagnið streymir úr landi og vextir hækka. Þess vegna þarf samkomulag yfir landamæri í mörgum mikilvægum efnahagsmál- um. Hvert þjóðríki er samfélag um menningu, bæði gamlan menningar- arf og nýsköpun, en það er líka sam- komulag um safn af reglum, lögum, um samskipti þegnanna á sviðum mannlegrar tilveru. Á sumum sviðum, til dæmis á markaðssviðinu, er ekki vafi á að nú á dögum er oft skynsam- legt að hafa reglusvæðið stærra en einstök þjóðríki. ísland á aðild að Evrópska efnahagssvæðinu, sem er í meginatriðum efnahags- og markaðs- þáttur Evrópusambandsins að mynt- sambandinu slepptu. Af þessum ástæðum er reynandi að leysa at- vinnuleysið með samstilltri stefnu Evrópuríkja, til dæmis með innviða- framkvæmdum og samræmdri efna- hagsstefnu. En hvort sem atvinnu- aukandi aðgerðir verða beinlínis tekn- ar með í ESB-samstarfið eða ekki þá er þungt um stuðning almennings við það fyrr en menn koma auga á ljósg- lætu í því myrkri atvinnuleysis, sem nú grúfir yfir álfunni. Þetta er ein hlið vandans, ekki all- ur sannleikurinn. Lausnina á atvinnu- leysisvandanum verður ekki síður að fínna heima fyrir í hverju landi fyrir sig. Atvinnustig á íslandi er hátt, meðal annars af því að vinnumarkað- urinn er tiltölulega sveigjanlegur. Miklu skiptir að skattar á vinnu og launatekjur eru mun lægra hlutfall í fjáröflun hins opinbera en annars staðar í Evrópu. Nærri lætur að þetta hlutfall sé tvöfalt hærra í ESB en á íslandi. En margir sjá þó frekar rang- hverfu á þessu, þar sem á íslandi sé lægra velferðarstig og iaun lægri í mörgum starfsgreinum en til dæmis á öðrum Norðurlöndum. Það er skilj- anlegt en kannski ekki einhlítt. En ekki er hægt að tala um at- vinnumál, án þess að víkja að starfs- umhverfi fyrirtækjanna, sem veita valda. Þetta fer ekki eftir stjórnar- tímabilum, heldur er þetta langtíma- þróun, þar sem forystumenn verka- lýðshreyfíngarinnar og vinnuveit- enda hafa gengið á undan, meðal annars í skilningi á gildi alþjóðasam- vinnu og þá líka á gildi EES.’“ Samkeppnisstaða er lausnarorð í umræðum um eflingu atvinnulífs og mikið af kröftum ESB fer í að fylgj- ast með eðlilegum samkeppnishátt- um innan ESB. Hvernig horfa þau mál við á íslandi? „Samkeppnin er auðvitað breytileg milli starfsgreina og fjarlægðar- verndin er mismunandi. Fjöldi fyrir- tækja í hverri grein segir þó ekki alla söguna, heldur skiptir mestu máli að það sé opin leið fyrir erlenda samkeppni inn á islenska markaðinn. Samkeppni er hugarástand. Samfara aðildinni að EES var sett ný sam- keppnislöggjöf, sem tekur mið af þessu. Samkvæmt henni geta íslend- ingar átt málskotsrétt til evrópskra úrskurðaraðila og í stað verðlagseft- irlits kom samkeppniseftirlit. Eg er ekki í vafa um að óbein áhrif af þessum breytingum koma fram í bættum lífskjörum." EES hefur þannig haft aðhalds- áhrif á íslandi. Veitti aðild að ESB þá ekki bæði aðhald og áhrif? „Vafalaust. Til gamans og saman- burðar má benda á að íslendingar taka þátt í Evrópukeppni í knatt- spyrnu og vegna hvatningar, sem þetta felur í sér, þjálfa íslensk fé- lagslið sig án alls efa betur og leika betri knattspyrnu en ella. Þrátt fyrir aðstöðumun þá verða þau að sætta sig við að það gilda engar sérreglur um knattspyrnu á íslandi. Það segir sig líka sjálft að til þess að hafa áhrif á sameiginlegar leik- reglur þurfa Islendingar að taka þátt í samstarfi knattspyrnufélag- anna í Evrópu og reyndar um allan heim. Á þessum vettvangi hafa þeir kannski ekki mikil áhrif en eru þó með, geta fylgt sínum sjónarmiðum eftir - og gera það...“ Sí co z UJ 2 —> UJ > Z> z z 5 Q Q Z tz UJ > Hvað heitir þú? - hverra manna ertu? Er ættarmót i UPPSIGLINGU? Á stóru ættarmóti er tilvalið að næla nöfn þátttakenda í barm þeirra. í Múlalundi færð þú barmmerki fyrir þetta eða önnur tilefni. Einnig fást þar plastmöppurnar þægilegu fyrir Ijósmyndirnar. Hafðu samband við sölumenn okkar í síma 562 8501 eða 562 8502. Múlalundur Símar. 562 8501 og 562 8502 komnir aftur Verd kr. 1 98.00 stgr. Suðurlandsbraut 54 - Sími: 568 2866 EUertB. Schram og 9 “771025^956009*

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.