Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MAÍ1996 31 MINNINGAR HAFÞOR FERDINANDSSON + Hafþór Ferdin- andsson fædd- ist í Reykjavík 6. mai 1952. Hann lést í Kópavogi 7. nóvember síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni 17. nóvember. Ég var stödd um borð í skipi með stefn- una á Þórshöfn í Fær- eyjum og þaðan lá leiðin heim til íslands, eftir að hafa dvalið nokkra mán- uði erlendis. Þar sem ég sat í ká- etu minni og blaðaði í gömlum Morgunblöðum, var ég allt í einu spurð: „Hvers son er hann Haf- þór, vinur þinn?“ „Ferdinandsson,“ svaraði ég. „Hvað heitir mamma hans?“ „Bára Lýðsdóttir," svaraði ég aftur. „Hann er dáinn!“ - Allt varð svo undarlegt kyrrt. Ég get ekki sagt að mér hafi brugðið, en upp í hugann kom strax vers úr Davíðssálmum: „Ég hef augu mín til íjallanna, hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur frá Drottni, Skapara himins og jarð- ar.“ Síðastliðin þrjú ár talaði Hafþór oft við mig, einkum ef honum leið illa. Eins og hann sagði sjálfur: „Hver er sinnar gæfu smiður, en þó svo ég sé smiður hefur mér ekki tekist að smíða hana.“ Ég hitti Hafþór fyrst 1984, þegar hann kenndi eldri börnum mínum smíð- ar í Ölduselsskóla. Eitt sinn sat ég föst í skafli fyrir utan skólann, með tvö smábörn í aftursætinu á „glæsi“- jeppanum mínum (Lada Sport) þegar þessi myndarlegi maður kom skellihlæjandi og spurði hvort hann mætti ekki kippa mér úr skaflinum. Ég hélt nú ekki. Konur ættu ekkert með að keyra jeppa, ef þær gætu ekki bjargað sér sjálf- ar úr „smásköflum". Hann fylgdist með meðan ég var dágóða stund að spóla mig lausa. Klappaði svo og vinkaði þegar ég keyrði burt. Hafþór hafði yndi af börnum og unglingum og var vinsæll kenn- ari. Oft þegar illa viðraði fyllti hann stóra jeppann sinn af krökk- um og skutlaði þeim heim, einkum þeim er lengst bjuggu frá skólan- um. AÐALBJORG LÁR USDÓTTIR + Aðalbjörg Lár- usdóttir fædd- ist á Heiði á Langa- nesi 22. október 1916. Hún lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 25. apríl síðastlið- inn. Aðalbjörg var dóttir hjónanna Arnþrúðar Sæ- mundsdóttur og Lárusar Helgason- ar, bónda á Heiði. Hún átti 13 al- systkin og einn fósturbróður. Að- albjörg giftist Aðalsteini Kristinssyni frá Kerhóli í Eyjafirði, f. 3.1. 1906, d. 18.12. 1987. Þau eignuðust þrjú börn, Grétu, f. 12.11. 1943, Svein- björgu Sigurrós, f. 25.9. 1946, og Jónstein, f. 31.5. 1951. Fyr- ir átti Aðalbjörg soninn Vern- harð, f. 17.5. 1940. Utför Aðalbjargar fer fram frá Akureyrarkirkju mánu- daginn 6. maí og hefst athöfn- in klukkan 13.30. Hún Abba amma er farin upp til himna, þangað sem hún vildi fara — enda á hún þar marga kæra að. En sorgin og söknuðurinn er okkar en við höfum þó margs að minnast. A okkar yngri árum komum við systkinin að sunnan á hveiju sumri norður til ömmu og afa á Akur- eyri — enda alltaf velkomin, eitt, tvö jafnvel öll fjögurí feinu, alltaf var hægt að finna pláss fyrir alla, hjá þeim. Abba amma var ótrúleg — það var al- veg sama hve snemma var vaknað á morgn- ana — alltaf var amma vöknuð á undan okkur — byijuð að baka kleinur, brauð, kökur og svo var hitað kakó. Stundum reyndum við krakkarnir að halda okkur vakandi til þess að geta „vaknað“ á undan henni — en auð- vitað gekk það ekki og amma brosti bara daginn eftir er við skriðum fram úr. Alltaf var það spennandi að fara með afa upp í „gil“ — í hest- húsið, að setja niður kartöflur eða taka þær upp — en það verður nú að segjast að það var líka allt- af gott að koma heim til ömmu er líða tók á daginn. Amma sá okkur fyrir margri gleðistundinni, hún útbjó dúkkulís- ur, setti upp leiki á bak við hús, sendi okkur spennandi pakka að norðan — með alls kyns spennandi hlutum og góðgæti ér kætti barns- hjörtun, fyrir sunnan, en það allra besta var hún var þarna fyrir okk- ur — huggaði ef á reyndi, lét okk- ur dreifa huganum ef eitthvað kom upp á, t.d. skera út kleinur, hlaupa út í „Höfner“, jæja eða út í Brynju að kaupa „Brynjuís“. Elsku amma, við eigum þér margt að þakka enda berum við margar minningar í huga okkar og hjarta. Við kveðjum þig með söknuði. Vertu sæl. Jónína, Grétar, Anna og Svala. Skilafrestur minningargreina Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í miðvikudags-, fímmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf grein- in að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hef- ur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Tíminn leið og Hafþór varð á vegi mínum af og til. Hann hafði þá alltaf tíma til að spjalla við þessa „bíladellukonu" um fjalla- ferðir og útivist. Ég rakst á hann á sumardaginn fyrsta vorið ’92 og þá spurði hann mig strax um- búðalaust: „Ertu ekki til í að skella þér með mér norður nú um helg- ina?“ Tveimur dögum seinna fór- um við okkar fyrstu fjallaferð og þær áttu eftir að verða margar. Langjökull, Torfajökull, Mýrdal- sjökull, Þórsmörk, inn í Karlaríki o.fl. o.fl. Að eðlisfari var Hafþór hress og fyrirferðarmikill brandarakarl og mikill tónlistarunnandi, alltaf með nýjastu'uppáhaldslag sitt í geislaspilaranum. Hann var líka mikið snyrtimenni og hafði gaman af fallegum fötum, einkum litrík- um útivistarfötum. Bíllinn bar einnig merki um snyrtimennsku hans, alltaf orðinn tandurhreinn um leið og komið var úr fjallaferð. Hafþór var bæði mjög viðkvæm- ur og skapmikill í senn. Hann var oft gagnrýndur, átti sér óvildar- og e.t.v. öfundarmenn en einnig stóran og tryggan vinahóp. Oft sagði Hafþór mér að hans stærstu mistök í lífinu hefðu verið að skilja við Hrafnhildi eiginkonu sína og að hann hefði undanfarin ár þurft að gjalda fyrir það. Með henni átti hann tvö börn, Arnar og Auði. Hann hafði einnig á orði að hann saknaði „litlu músarinnar sinnar“ eins og hann kallaði yngsta barnið sitt, og án hennar gæti hann vart lifað. Hann sagði eitt sinn að mis- munurinn á örlögum og hlutskipti væri sá að örlögin eru þau spil sem við höfum á hendi en hlutskipti okkar er hvernig við spilum úr þeim. Þegar hann kvaddi mig rétt áður en ég hélt af landi brott hafði liann orð á því að það yrði erfitt að geta ekki náð til mín þegar sér liði illa. Skipið nálgaðist ísland. Það fyrsta sem ég sá var Mýrdalsjök- ull, baðaður í sól. Skyldi jökullinn ekki gráta? hugsaði ég. Jöklarnir hafa misst mikinn aðdáanda. „Landið var fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar.“ Sól- bráðin á jöklunum nú í vor verður í mínum huga og annarra vina Hafþórs tár jöklanna. Hafþór hefði orðið 44 ára nú 6. maí, ef hann hefði lifað. Sam- úðarkveðjur sendi ég öllum hans nánustu og öllum sem þótti vænt um hann. Elsku Bára mín, ég sam- hryggist þér út af sonarmissinum. Stundum koma dimmir tímar sem erfitt er að skilja, en varpaðu öllum áhyggjum þínum á Drottin. Hann ber umhyggju fyrir þér. Sigr. Ragnheiður. GuÖœimöm Rapi Gemöal væntanlegur forsetaframbjóðandi Þau rök hafa margoft komið fram að þingmenn séu of margir miðað við höfðatölu í samanburði við önnur lýðræðisríki og þeim þyrfti að fækka. Einnig hafa þau rök komið fram að vægi atkvæða kjósenda sé of mis- skipt og landið ætti jafnvel að vera eitt kjördæmi. Og síðan hafa komið fram sterk rök að þingmenn ættu ekki að hækka laun sín nteir en alþýðunnar einkum og sér í lagi þegar við erum rétt að stíga fyrstu skrefin út úr stöðnunarskeiði síðustu ára. Öll þessi rök styð ég og er tilbúinn að veita þeim brautargengi ef ég verð forseti. Er þetta eitthvab fyrir þig ? CISV eru alþjó&leg fri&arsamtök, óhá& stjórnmálum, trúarbrög&um e&a kynþætti, sem tengjast Sameinuðu þjoðunum í gegnum UNESCO. Ár hvert sendir CISV á íslandi böm, unglinga og fullorðib fólk víbs vegar um heiminn til þátttöku í hinni fjölbreyttu starfsemi sem CISV stendur fyrir á alþjóbavettvangi. Unglingaskipti verða í sumar vi& 12 -13 ára börn frá Noregi op enn er laust pláss í þau. Þú gætir verib ein(n) af þeim heppnu og komist i þann hóp. Einnig er enn laust pláss fyrir fararstjóra, 21 árs og eldri, sem vilja taka þátt í sjáifbo&aliðastarfi me& bömum á erlendru gmndu í 3 - 4 vikur í sumar. Ferðir og uppihald fyrir þá eru ókeypis. Nánari upplýsingar gefa: um unglingaskipti: Þórný Björk Jakobsdóttir S: 557 3447 jón Ví&is Jakobsson S: 581 4810 um fararstjóra: Valgerður Vigfúsardóttir S: 557 1993 -»- Ann Sigurjónsson S: 564 3404 -»- Edda Hrund Halldórsdóttir S: 557 3009 Heimasíða: http://www.apple.is/cisv )uim i mm múm Loxo-carpaccio meÖ furuhnetum blöndu&u saloti, piparrót og balsamico Rjómalöguð sjávarréttarsúpa með karrý og koníaki Grafið lamb ó salati meó jarðarberjum og hindberja vinaigrette mmm Glóðuð lúðo með skelfisks-risotto og humarsósu Létfsteikf lambafillet að austurlenskum hætti , Fylltar kjúklingobringur með appelsínusósu : Súkkulaðiterta með vanillusósu og jarðaberjasalati Volg peruterta með kanil-ís ÍÍIIWÍTTIÍ Val á einum forrétti, einum aðalrétti og einum eftirrétti fyrir aðeins kr: 24Q0.- Borðapantanir • Sími 551 124] • Fax 551 1420 ........................................... Ný sending af sportfatnaði frá raá Jakkar ásamt bermudabuxum, síðbuxum, kjólum munstruðum Nú sending af peysum og bómullarfatnaði stórum stærðum. RöysjarísuAugi 34 • Ha.ríaríirli Súv.i 5tE 1147

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.