Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MAÍ1996 41 I DAG BRIDS llmsjön (iuömundur l'áll Arnnrsun SYSTKININ Styttingnr og Stunga eru í vöminni gegn fjórum spöðum suðurs og hafa bæði í hótunum. Vestur gefur; enginn á hættu. Norður ♦ ÁK ¥ KD74 ♦ 863 ♦ ÁD76 Sudur ♦ DG8763 ¥ 965 ♦ DG4 ♦ 3 Vestur Norður Austur Suður 1 lauf 1 grand 2 tíglar 3 spaðar Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Útspil: Tígulás. Þrátt fyrir kall austurs í tígli, skiptir vestur_ yfir í spaða í næsta slag. Asinn er greinilega blankur og þar með er stunguhættan úr sög- unni í bili. En þegar sagn- hafi tekur síðari spaðann í borði, hendir austur tígli. Vegna þyngsla í samgangi skapar þessi tromplega hættu á styttingi. Hvað er til ráða? Við fyrstu sýn virðist í lagi að taka laufás, trompa lauf og aftrompa vestur síðan með DG í spaða. Næsta skref væri að spila hjarta að hjón- unum. Blindur fengi að eiga þann slag. Norður ♦ ÁK ¥ KD74 ♦ 863 ♦ ÁD76 Vestur ♦ 10954 ¥ ÁG2 ♦ Á ♦ KG954 Austur ♦ 2 ¥ 1083 ♦ K109752 ♦ 1082 Suður ♦ DG8763 ¥ 965 ♦ DG4 ♦ 3 Nú er ekki gott að spila tígli úr borði. Austur myndi drepa og spila banvænu laufi. Sagnhafi á aðeins eitt tromp eftir og kemst ekki hjá því að gefa slag á laufkónginn. Skásti möguleiki sagnhafa í stöðunni er að spila smáu hjarta úr blindum í þeirri von að vestur hafi byijað með ásinn annan. Vestur gæti átt skiptinguna 4-2-1-6. Hitt er þó sennilegra að vestur sé með þrjú hjörtu og fimm lauf. Til að vinna spilið í þeirri legu þarf að spila lauf- drottningu úr borði í fjórða slag! Vestur fær mjög óvænt- an slag á laufkóng og verst best með því að spila laufi áfram. Suður trompar, tekur DG í spaða og hendir tíglum úr borði. Síðan spilar hann hjarta á kónginn, trompar lauf aftur heim og spilar enn hjarta. Vestur fær síðasta slag varnarinnar á hjartaás, en sagnhafi hendir DG í tígli niður í laufás og frítt hjarta. Árnað heilla ur áttræð Ragnheiður Jó- hannsdóttir, húsfreyja, Bakka, Olfusi. Eiginmaður henar er Engilbert Hann- esson, bóndi, Bakka. Hjón- in taka á móti gestum í Hraunholti, Dalshrauni 15, Hafnai-firði, milli kl. 16 og 19 á afmælisdaginn. 75 ÁRA afmæli. í dag, sunnudaginn 5. maí, er sjötíu og fimm ára Ingi- björg Jónsdóttir, (Imma), Freyjugötu 9, Reykjavík. Hún tekur á móti gestum í sal Hjálpræðishersins, Kirkjustræti 2, milli kl. 14 og 17. 60 ÁRA afmæli. í dag, sunnudaginn 5. maí, er sextug Þórey Jónsdótt- ir, fótaaðgerðafræðingur, Flyðrugranda 2, Reykja- vik. LEIÐRÉTT Rangt farið með úrslit í GREIN Leifs Sveinsson- ar um fyrsta íslandsmót í knattspyrnu árið 1912 í blaðinu í gær var ekki rétt farið með úrslit leikja á mótinu. Rétt er setningin svo: KR og Fram gerðu jafntefli í fyrri leik sínum 1:1. Fram vann KV 3:0. KV gaf leik sinn gegn KR. KR sigraði Fram í aukaleik 3:1. Beðist er velvirðingar á þessu. Pennavinir BANDARÍSKUR háskóla- stúdent með áhuga á ís- lenskri sögu og menningu: Paul Rosenthal, 6955 Lena Avenue, West Hills, CA. 91307, U.S.A. pT/\ÁRA afmæli. Á t)v morgun mánudag- inn 6. maí, verður fimmtug- ur Guðmundur Pétursson, hæstaréttarlögmaður, Granaskjóli 12, Reykja- vík. ^riÁRA afmæli. í dag, ^xv/ sunnudaginn 5. maí, er fertugur Jakob Péturs- son (Kobbi-sprengiglaði), Frostaskjóli 26, Reylga- vík. ORÐABÓKIN ÉG BÝST við, að flestir kannist við ofangreint nafnorð, sem oftast mun notað í orðasambandinu að koma einhveiju í lóg. Enn fremur á ég von á, að merking þess sé mönnum almennt ljós, þ. e. eyðing, það að eyða e-u upp. Þá þekkist vel so. að lóga, sem merkir að losa sig við e-ð, farga e- u, en er einnig haft um að slátra, sbr. að lóga kind eða kú. Þess vegna kom mér það und- arlega fyrir sjónir, þegar fyrir nokkrum árum var talað um í blaði að koma Lóg knattspyrmipeningun- um í lóg í alveg gagn- stæðri merkingu. Samkv. frétt blaðsins var alls ekki um það að ræða að eyða pening- unum, heldur var átt við það að koma þeim í ör- ugga eign og tryggja um leið, að þeir yrðu ekki beint eyðslufé. Ekki verður neitt fullyrt um það, hvort þessi merking sé almennt þekkt - og trúlega er hún það ekki. Mig rekur að minnsta kosti ekki minni til að hafa séð henni bregða fyrir í annan tíma. Hins vegar bendir ofangreint dæmi til þess, eins og oft vill verða um ýmis orðasambönd, að frum- merking þeirra sljóvgast eða gleymist með öllu meðal þorra fólks - og þá einkum helzt, ef þau eru sjaldan notuð í mæltu máli. Samkv. orðabókum þekkist no. lóg í ýmsum öðrum sam- böndum, en ekki er víst, að þau séu öll algeng. Má þar nefna að leggj- ast í lóg = eyðast upp, gleymast. - J.A.J. glerskálinn fyrir íslenska verðráttu. Heildverslunin Smiðshús, Álftanesi, E. Sigurjónsdóttir, sími 565 0800. Það nýjasta Teinótt ullarefni Plast- og gúmmíefni Sumarefni í mörgum iitum Patronesblöðin komin Saumum á staðnum, breytum og gerum við. Vefnaðarvöruverslunin textilline Faxafen 12, sími 588 1160 STJÖRNUSPÁ Hrútur. (21. mars - 19. apríl) Þú finnur eitthvað áhugavert í heimsókn á útimarkað í dag. Þegar kvöldar þarf fjölskyldan að taka mikilvæga ákvörðun. Naut (20. apríl - 20. maí) Þú ert með margt f huga, og hugmyndum þínum er vel tek- ið. Lofaðu engu, sem þú getur ekki staðið við. Kvöldið verður ánægjulegt. Tvtburar (21. maí - 20. júní) 4» Þér verður brátt falið nýtt ábyrgðarstarf í vinnunni. Ef þú ferð út með ástvini í kvöld, þarft þú að gæta hófs í mat og drykk. Krabbi (21. júní — 22. júlf) HSfé Þér tekst að ljúka verkefni, sem opnar þér leið tii aukins frama í vinnunni. Horfurnar í fjármálum fara ört batnandi. Ljón (23. júlí — 22. ágúst) Þú þarft að gæta vel eigin hagsmuna f samskiptum við óprúttinn náunga. Málefni fjölskyldunnar verða efst á baugi í kvöld. Meyja (23. ágúst - 22. september) Varastu alla áhættu í peninga- málum. Tilboð, sem þér berst, getur verið stórgallað. Njóttu kvöldsins heima með ástvini. Vog (23. sept. - 22. október) Þú ferð hægt af stað, en tekur þig á þegar á daginn líður og átt skilið að slaka á í kvöld. Ferðalag er á næsta leiti. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Þú lýkur skyldustörfunum snemma, og þér gefst tími síð- degis til að sinna einkamálun- um. Fjármálin þróast til betri vegar. Bogmaóur (22. nóv. - 21. desember) Vinnan er þér ofarlega í huga í dag, og þér tekst að ljúka erfiðu verkefni síðdegis. Svo slakarðu vel á f vinahópi í kvöld. Steingeit (22.des.-19.janúar) Þeir sem komast frá nota tækifærið og skreppa i dags- ferð með fjölskyldunni. í kvöld bíður þín rómantískur kvöid- verður við kertaljós. Vatnsberi (20.janúar- 18. febrúar) ðh Smávegis misskilningur kem- ur upp heima í dag, en fljót- lega tekst að leysa málið. Það birtir til i fjármálunum. Fiskar (19.febrúar-20.mars) ’Sft Þú hefur nokkra tilhneigingu til að eyða of miklu í óþarfa. Ræddu málið við ástvin, sem getur gefið þér góð ráð. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ektí á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Skemmtifundur Félag harmonikuunnenda heldur skemmtifund í dag kl. 15 í Templarahöllinni viö Eiríksgötu. Fundurinn er til- einkaöur tónskáldinu og jass-geggjaranum Árna ísleifssyni, sem veröur heiöursgestur dagsins. Hljómsveit undir stjórn Reynis Jónassonar leikur lög Árna ásamt söngkonunni Hjördísi Geirs. Hljómsveit F.H.U.R. undir stjórn Þorvaldar Björnssonar leikur nokkur lög og hljómsveitin Léttir tónar undir stjórn Grettis Björnssonar. Fleiri góðir spilarar. Allir velkomnir. Skemmtinefndin. NAUT Afmælisbarn dagsins: Þú leggur mikið upp úr fjár- hagslegu öryggi og metur fjölskylduna mikils. Classica Þaktækni ehf. símar 565 8185 og 893 3693. Vinnum um land allt Kápuf oq úlpur frá valííielin 7duntv Jesveg, Seltjarnarnesi. Sími 561 1680.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.