Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Árni Sæberg SEJÐKONAN íPOTTAGÖLDRUM VEDSFQFTIAIVINNULÍF Á SUNNUDEGI ►Sigfríð Þórisdóttir fæddist í Reykjavík 23. apríl 1953. Hún varð gagnfræðingur frá Yogaskóla 1969, dýrahjúkrun- arfræðingur frá Royal College of Veterinary Surgeons, Englandi, 1976, stúdent frá Öldungadeild MH 1982 og iðn- rekstrarfræðingur af markaðssviði Tækniskóla íslands 1993. Hún var forstöðumaður Dýraspítala Watsons 1977- 1983, sölumaður hjá Plastprenti hf. 1983-84, stofnandi Duus-húss 1985 og eigandi að Krákunni, Laugavegi 22, 1985-1988. Sigfríð stofnaði Pottagaldra 1. febrúar 1993. eftir Hidi Friðriksdóttur YRIRTÆKIÐ Pottagaldr- ar er hvorki stórt í snið- um né með raikla veltu, enda ekki nema rétt þriggja ára. Aftur á móti hefur verið uppgangur að undanförnu, veltan fyrstu fjóra mánuði ársins hefur tvöfaldast miðað við árið á undan og magnaukning rúmlega tvöfaldast. Kveðst Sigfríð Þóris- dóttir, eigandi Pottagaldra, vera búin að ná 15% markaðshlutdeild af innlendu framleiðslunni. Eins og bjartsýnum ísiendingi sæmir er hún einnig farin að reyna fyrir sér erlendis og fór tilraunasending af kryddblöndum til heilsubúða í Kanada fyrir skömmu. „Ég veit að blöndurnar mínar eru sérstakar og þær höfða til þeirra sem leggja upp úr hreinum og náttúrulegum vörum,“ segir hún. Söluaukninguna má aðallega rekja tii breytinga á umbúðum, því auk kryddpokanna, sem nú verða aðallega notaðir til áfylling- ar, er hún farin að selja krydd- blöndur í glösum. Hún segist hafa séð fram á, eftir tveggja ára starf- semi, að hún væri að ná hámarks- sölu með pokunum. „Það var flöskuhálsinn, þó að ég hefði brot- ið upp mynstrið á sínum tíma og vakið áhuga með bréfumbúðum." Hún segir jafnframt að meiri kostnað þurfi við markaðssetn- ingu á pokum en glösum. Með því að draga úr þeim kostnaði geti hún gefið oftar út fréttabréfið, sem hún kallar Galdrabók Potta- galdra. Engar tilviyanir Aðspurð hvort segja megi að hún sé galdrakonan í Pottagöld- rum kemur blik í augun og hún svarar í senn sposk og snögg upp á lagið: „Kannski! Ég var búin að skrifa hjá mér að hringja í Mogg- ann mánudaginn 29. apríl. Þú hringdir í mig sama dag.“ í ljós kemur þegar líður á sam- talið að Sigfríð er forlagatrúar og telur ekkert vera tilviljunum háð. Það hafi iðulega komið í ljós og hún nefnir sem dæmi að þegar erfiðlega gekk i rekstrinum brást ekki að viðskiptavinur hringdi og lýsti ánægju með kryddblöndurn- ar. „Þar með fékk ég hvatningu og hélt ótrauð áfram,“ segir hún. Margir kannast við Sigfríði síð- an hún barðist fyrir stofnun dýra- spítala Watsons, þá 26 ára gömul og nýkomin frá Bretlandi. „Það var köllun, ég sé það nú þegar ég lít yfir farinn veg. Öll þjónusta og menning í sambandi við dýrin voru á lágu plani. Þessu þurfti að breyta og forlögin völdu mig,“ segir hún með því yfirbragði eins og ekkert hafi verið sjálfsagðara en að ung kona tæki að sér að beijast gegn „heilu ráðuneyti“. Þá hefur Sigfríð rekið tvo veit- ingastaði, Duus-hús sem hún rak í hálft ár og Krákuna í tæp þrjú ár. „Þar fékk ég að gera það sem mig langaði til, þ.e. matargerð. Ég lærði mikið á þeim árum því ég fór í nauðasamninga. Ég var með of margt starfsfólk í bytjun, var óörugg og á fyrstu sex mánuð- uðum varð gífurlegt tap sem ég náði mér aldrei upp úr. Síðan hef ég farið mjög varlega. Þetta var míkill skóli og ég lærði af mistök- unum,“ segir hún. Bætir síðan við eitilhress: „En ég lærði líka að búa til pottagaldrablöndur, svo að þrátt fyrir allt er ég þakklát fyrir þessa reynslu." Blandað í púnsskál Tilurð fyrirtækisins segir Sig- fríð vera nokkuð skemmtilega, enda færist ljúft bros yfir andlitið þegar hún lýsir aðdragandanum. „Ég hafði fyrir löngu skráð Potta- galdra sem vörumerki. Svo varð ég atvinnulaus árið 1989 en um svipað leyti var Kolaportið að byija. Þá greip mig einhver hugs- un, ég reiddi fram púnsskálina, keypti lítið af kryddi í einu og blandaði þær blöndur sem höfðu þróast á veitingahúsinu Krákunni. Þetta voru sex blöndur og með þær mætti ég í Kolaportið. Þær voru í mjög frumstæðum en fal- legum pokum með áprentuðum miða. Auk þess lét ég ljósrit af uppskriftum fylgja með. Þar fyrir utan bjó ég til alls kyns súrsætar sósur í krukkum sem ég seldi líka,“ segir hún. Þar með var sjálfstraustið kom- ið aftur, sem hún hafði verið farin að glata á atvinnuleysistímabilinu. Þegar hún sá auglýsingu frá bresku sendiherrahjónunum um stöðu matreiðslumanns sótti hún um. „Ég fékk stöðuna og hjá þeim var ég í tvö ár. Einn af uppáhalds- réttum þeirra var kryddleginn lambavöðvi með villijurtablönd- unni eða Lamb Islandia.“ Fékk sér titil Eftir árin tvö hjá sendiherra- hjónunum fór hún í iðnrekstrar- fræði í Tækniskólanum. Hún seg- ist hafa verið mjög móðguð út í samfélagið „að svona kjarnorku- kona fengi ekki framkvæmda- stjórastöðu" og fann út að það hlyti að vera vegna menntunar- innar. „Ég fór því og fékk mér titil,“ segir hún kankvís. „A loka- önninni hafði ég sent inn upp- skriftir og kryddblöndur í sam- keppni um besta lambakjötsrétt- inn. Þar hlaut ég þrenn verðlaun, sem samtals voru 140 þúsund krónur og mér þótti mikið fé. Þar sem ég var að útskrifast tók ég þetta sem tákn, fann 20 fermetra húsnæði í Sigtúni og stofnaði fyr- irtækið 1. febrúar 1993.“ Hún hefur alla tíð haft starfs- mann í rúmlega hálfri stöðu, sem nú er reyndar að teygjast í fulla stöðu. Sjálf segist hún gegna starfi forstjóra, markaðsfræðings, sölustjóra, dreifíngastjóra, sendils, ritara og lagerstjóra. „Við handpökkum og merkjum allt sjálfar. Mér finnst ástæða til að gera fyrst það sem ég get í hönd- unum og að finna framleiðslulínur áður en ég fer að fjárfesta í tækj- um,“ segir hún um leið og hún tekur upp eitt af nýju glösunum og lýkur við að líma á það miða. Henni finnst handverksfram- leiðsla af hinu góða, því hún hafi sérstöðu og ákveðinn sess í hugum fólks. Flytur inn kryddið Fyrirtækið er ekki plássfrekt í fermetrum og kryddilmurinn ligg- ur í loftinu, enda fer öll starfsem- in fram á þessum 100 fermetrum. Skrifstofan er afstúkuð, lagerinn er við hliðina á og í bakherbergi fer blöndunin fram. Þarna eru sekkir af kryddi og nokkur box, ekki mjög stór, sem í eru tilbúnar kryddblöndur. Sigfríð segist vera farin að flytja sjálf inn kryddið sem kemur frá Hollandi. „Ég blanda aldrei mikið í einu, ef til vill í 140 glös,“ segir hún. Af og til í samtalinu segir hún berum orðum eða það skín í gegn að hún hafi innsæi og þekki krydd- tegundirnar út og inn, enda sé það nauðsynlegt. „Stundum blanda ég saman þungu kryddi við léttari laufblöndur, sem er vandaverk. Maður þarf að passa blöndunina, alveg eins og í lista- verki gætir maður þess að nota ekki of mikið af svörtum lit eða rauðum." Hún bætir við að allar kryddblöndurnar hafi tekist í fyrstu tilraun, en vinkonur hennar eru þær sem prófa kryddblöndurn- ar áður en hún setur þær á mark- að. Sigfríð leggur mikið upp úr hvorki séu notaðir kadmiumgeisl- ar né gas við hreinsun á kryddinu heldur sé það gert með gufu, sem er ný aðferð. „Fyrrgreindar tvær aðferðir drepa bæði gott og vont,“ segir hún og bætir við til útskýr- ingar að sé þeim beitt sé ekki hægt að nota kryddjurtir í seyði, smyrslagerð eða sem heilsute. „Ég legg áherslu á að líforkan haldist í kryddjurtunum, því það er hún sem gefur orkuna,“ segir hún. Aðspurð um líforkuna segist hún gera sér grein fyrir að fólk almennt viti ekki um hvað hún sé að tala. Hún virðist samt ekki hafa neinar sérstakar áhyggjur af því. „Það verða kannski tíu ár þangað til hægt verður að mæla hana vísindalega. Það má ef til vill segja að líforka sé útgeislun. Við finnum þetta þegar við borð- um grænmeti og mat sem hefur ekki verið meðhöndlaður mikið þá verðum við orkumeiri. Aftur á móti verðum við syfjuð af því að borða þungt kjöt,“ segir hún. Sjálf kveðst hún ekki vera grænmetis- æta en haldi sig við lambakjöt og kjúklinga. Engin aukefni Hún segir að kryddblöndur sín- ar séu öðruvísi en gengur og ger- * > > I I I í. I ; I !

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.