Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir »tEFUSZDU \ÆRIE> AO LEICA /HEÐLÍMlPElNUSlHNI ENN T 'vÁ! PÓ l/ERPUR (AÐ-S'J'Nfl Mél? HVERNlfi t?U ' , RfeSTADþeSSU Smáfólk EMILY? IS IT REALLV VIT 5 PR08ABLY A YDU?5URE,I REMEM0ER..] WR0N6 NUMBER. FROM DANCE CLA55.. / JU5T HAN& UP.. HOW COULD I F0R6ET? ■ ^TUE SDEETHEART BALL? YOU’RE A5KIN6 ME TO 60 TO THE ^SWEETHEART BALL? IT MU5T BE A WR0N6 NUMBER.. JU5T HAN6 UP. Emelía? Ert þetta virkilega Þetta er sennilega Paraballið? Ertu að bjóða Þetta hlýtur að þú? auðvitað, ég man eftir rangt númer... mér á paraballið? vera rangt núm- þér úr dansskóianum. Hvern- ieggðu bara á. er ... leggðu bara ig gæti ég gleymt því? á... BREF TLL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Við Austurvöll Frá Steingrími St.Th. Sigurðssyni: ÞÁ KOM vorið og sólin hellti geisl- um sínum yfir allt. Austurvöllur varð snarlifandi. Eitt sinn skrifaði Kjarval um Austurvöll og byrjaði ritsmíðina á þessa leið: „Þar gengur stúlkan, sem eg elska ..Hann hefur greinilega þorað að detta í ástina. Meistari Kjarval - kannski oftar en einu sinni. Það sést á verk- um hans. Hótel Borg með sína stóru sál og þetta mest töfrandi andrúmsloft veitingahúsa á íslandi blikkar til manns og dregur mann til sín eins og segull. Og Café Paris á horninu, Póshússtrætis og Vallarstrætis, er líka áningarstaður og minnir óneit- anlega á útikaffihús á meginland- inu. Hressó gamla var aldrei gætt þokka, hvernig sem á því stóð. Andrúmsloftið á bistróinu hans Ketils að vestan (athafnamanns, sem gefur aldrei skýringar) fer allt- af batnandi. Sagt er að Monsieur le proprie Ketill Axelsson (löngum kenndur við verslunina London) geri æ meiri listrænar kröfur til staðarins, sem hann þekkir frá blautu bamsbeini. Maímánuður er hafínn. Halldór Blöndal sást troða gegnum Austur- völl. Þegar hann var nemandi í gamla M.A. var hann tíður gestur á öldurhúsi og kaffíshúsum. Honum Blöndal ráðherra færi betur að þegja og leggja blessun sína yfír áningar- stað í umferð götunnar en stór- hættuleg jarðgöng, sem geta rústað fjárhag þjóðarinnar og valdið vá. STEINGRÍMUR ST.TH. SIGURÐSSON, listamaður. Ottaslegnir æðabændur Frá Þorgeiri Samúelssyni: í GREIN í Morgunblaðinu dagséttu 17. apríl 1996, heldur formaður Æðaræktarfélags Vesturlands, Sig- urður Helgason, því fram að grá- sleppukarlar úr Breiðafirði séu á hröðum flótta suður á Mýrar vegna dóms sem féll fyrir Héraðsdómi Vesturlands 28. mars 1996. Mér er mjög til efst um að áðurnefndur formaður hafi kynnt sér dómsniður- stöður Héraðsdóms Vesturlands, með tilliti til sektar eða sýknu. I Morgunblaðsgreininni telur Sigurð- ur að grásleppukarlar hafi verið dæmdir frá Breiðafjarðareyjum, með veiðarfærin, og stefni nú allur skar- inn með „gunnfána" í stafni fyrir Snæfellsnes og inn á Mýrar til að drepa æðarfugl Mýrabænda, en svona teí ég að lesendur sem ekki þekkja til muni túlka þessa grein Sigurðar. I Héraðsdómi Vesturlands voru mál fimm aðila tekin til dóms þann 28. mars 1996. Tveir aðilar voru sýknaðir af öllum kröfum ákær- anda, með öðrum orðum, dómarinn féllst ekki á að flæðisker tilheyrði varplöndum æðarfugls, þrátt fyrir að sækjendur í málinu héldu hinu gagnstæða fram. Hinir þrír aðilarnir voru dæmdir til fjársekta og dæmd- ir eftir 11. gr. tilskipunar um veiði á íslandi frá 20. júní 1949 og 1. mgr. 19. gr. laga nr. 64/1994, „um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum". Ekki er tekið fram í framan- greindri tilskipun um veiðar á fiskum né öðrum botnlægum dýrum, og verður það að teljast harla undarlegt í ljósi þess á hveiju dómsniðurstaða er byggð. Ár hvert gefur Fiskistofa íslands út veiðileyfi til handhafa er hafa leyfi til hrognkelsaveiðar og fyrir það ber. að greiða veiðileyfa- gjald samkvæmt lögum. Veiðileyfin eru gefin út fyrir ákveðin tímabil og taka yfir 90 daga á hveiju svæði fyrir sig. Undirritaður er einn þeirra þriggja manna, sem dæmdur var til fjársektar fyrir Héraðsdómi Vestur- lands, fyrir það að leggja net í sömu fjarlægð frá varphólma og landráða- maður varphólmans hafði gert. Nú langar mig í framhaldi af þessu að fá upplýsingar hjá æðar- bændum um eftirfarandi atriði. 1. Hafa landráðamenn æðar- varps, sem einnig stunda hrogn- kelsaveiðar, óskylgreint leyfi til að stunda veiðar innan 115 metra línu frá fjöruborði varphólma? 2. Greiða landráðamenn æðar- varps gjald til ríkisins vegna nytja af viltum fuglum og spendýrum í samræmi við það sem fískimenn mega greiða fyrir veiðiheimild á fisk- stofnum? 3. Hvaða tekjustofnar eru notaðir til að standa straum af kostnaði við eyðingu vargfugls og minks í varp- löndum. 4. Hvernig eru hlunnindi æðar- varps skilgreind gagnvart skattalög- um? 5. Hvaða gjald þarf grásleppu- karl að greiða fyrir netalögn innan 115 metra línunnar? Ég held að ég geti fullyrt, að enginn okkar „nefndra sakamanna11 úr Breiðafirði hafi í hyggju að stunda veiðar á æðarfugli í grásleppunet suður á Mýrum og geti því æðar- bændur sofið rólegir þess vegna, enda eru grásleppuveiðar ekki stundaðar í þeim tilgangi að drepa æðarfugl, þvert á móti. ÞORGEIR SAMÚELSSON, Hellisbraut 42, Reykhólum. Allt efni sem birtist I Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.