Morgunblaðið - 05.05.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1996 19
LISTIR
„Lesið í ísinnu
SÝNISHORN af lofti úr fortíð er varð-
veitt í örlitlu holrými, sem myndast
smám saman eftir *því sem snjórinn
harðnar og verður að ís. Þegar menn
svo sundurgreina loftið geta þeir
ákvarðað innihald lofthjúpsins af ýms-
um efnum m.a. CO 2 mörg hundruð
þúsund ár aftur í tímann!
u s r og
HÖNNUN
Kctilhúsið - Akur-
cy ri
GRÆNLANDSJÖKULL
RANNSÓKNAVERKEFNI
Sýningunni lauk 28. apríl.
KETILHÚSIÐ á Akureyri er vett-
vangur sýningar er nefnist „Lesið í
ísinn“ og þótt hún skari ekki mynd-
list beint get ég ekki stillt mig um
að geta hennar að nokkru. Einkum
fyrir það að í kjarna sínum kemur
hún öllum listum við og þá ekki síst
sjónlistum.
Upplýsingarnar sem koma upp úr
ísnum við boranir, auka ekki síður
við þekkingarsvið mannsins á jörð-
unni sem hann býr á, mannkynssög-
unni um leið og til að mynda örtölvu-
tæknin. Fortíðin er á stöðugri hreyf-
ingu, nálgast okkur stórum skrefum
og tíminn því afstæðari en nokkru
sinni fyrr. Þetta skarar allar skap-
andi athafnir því hugsanaferlið
breytist, sömuleiðis viðhorf þeirra
sem vilja vera virkir í sínum tíma.
Rýnirinn fékk forsmekk af þessu
fyrir nokkrum árum er hann kom á
jarðfræðisafn í Osló þar sem gat að
líta sýnishorn af jarðlögum sem upp
komu við olíuboranir á sjávarbotni
við Norðursjó. í þeim leyndust marg-
háttaðar upplýsingar um loíMag,
gróðurfar og atburði á fyrri tíma-
skeiðum, sem höfðu bein áhrif á vist-
kerfið og náttúruna. Skyndilega geta
menn farið að lesa þetta allt úr bor-
kjörnum úr iðrum jarðar líkt og á
línuriti og um leið skýrist ýmislegt
sem áður voru getgátur einar og það
er sitthvað sem 250 þúsund ára
gamall ís hefur að segja okkur.
Skilvirkt dæmi þess hvernig upp-
lýsingar úr iðrum íslaganna breyta
mannkynssögunni og láta okkur líta
löngu liðna atburði frá nýjum sjón-
arhóli, er sagan af falli Rómarveldis.
Meðal þess sem komið hefur í Ijós,
er að gosið í Vesúvíusi árið 79, þeg-
ar tvær blómlegar borgir Pompei og
Herculeanum grófust í ösku og eðju,
var að öllum líkindum orsök þess að
myrkurskýið fræga lagðist yfir Róm.
Menn hafa tengt fyrirbærið morðinu
á Sesar, og Virgilius orti: „Við dauða
Sesars sólin yfir Róm/ syrgir og
myrkurský sitt andlit lætur/ hylja,
en þeir sem óttast alvalds dóm/ engj-
ast í kvíða morgunlausrar
nætur“. Þá kólnaði loftsiag
300 árum eftir Krist og
þurrkar sem fylgdu í kjölfar-
ið í Mið-Asíu, komu hreyf-
ingu á hirðingjaþjóðir svo
sem Húna, er hröktust úr
löndum sínum. Undir for-
ystu Atla Húnakonungs fóru
þeir með ófriði og komust
alla leið til Ítalíu. Þá má
lesa um sprengigosið í eld-
fjallinu Thera á grísku eyj-
unni Santonini, um 100 kíló-
metra norður af Krít, sirka
1643 f. Kr. er nánast hálf
eyjan sökk í sæ. Dýpi í gígn-
um er 400 metrar, gjósku-
fallið um austanvert Mið-
jarðarhaf var að minnsta
kosti -50 rúmkílómetrar.
Eyjan er hringlaga og er
raunar gígbarmur fjallsins.
Flatarmál eyjarinnar er 82
ferkílómetrar, ferfalt meira
en flatarmál gígsins í eld-
fjallinu Krakatá í Indónesíu.
Lýsingin á Atlantis á vel við Santon-
ini. Bæir, torg, götur og hús með
fögrum veggmyndum hafa komið í
ljós við uppgröft, en hrikalegir jarð-
skjálftar er riðu yfir fyrir gosið hafa
gert það að verkum að fólk hefur
haft ráðrúm til að yfirgefa eyjuna,
sem nánast hálf-sökk í sæ. Þó herm- -
ir sagan einnig að á einum hörmung-
arinnar degi og nóttu hafi allir vopn-
færir menn sokkið í jörðu niður og
eyjan Atlantis horfið í djúpið. A þeim
tíma var eyjan hluti hins blómlega
ríkis sem kennt er við konunginn
Minos og að sögn Hómers, heimsótti
hinn goðumlíki Ódysseifur þetta ríki
löngu síðar eða 700-800 f.Kr. Platon
færði munnmælasögur um Atlantis
f letur 360 f. Krist, en Grænlandsjök-
ull leiðréttir svo skrásetjarann 2350
árum seinna!
Þá eru yfirborðsflekar jarðar á
sífelldri hreyfingu, og fyrir 230 millj-
ónum ára var Grænland þannig á
það um bil 30 norðlægrar breiddar
pg loftslag líkt og við Persaflóa nú!
í Austur-Grænlandi finnast _ merki
um þurrt og hlýtt loftslag. Á fyrri
skeiðum jarðsögunnar mótuðu
hvassir monsúnvindar landslagið í
járnríkt, rauðleitt bergið og til eru
eyðimerkursetlög með fjölda af hvít-
um gipslögum, og fram koma lag-
skipt berg og myndbreytt vatnaset.
Af þessu má ráða, að Grænlandsjök-
ull og sagan sem hann geymir er
engu minna spennandi en ímyndaðar
geimferðir framtíðarinnar. Sýning-
unni er vel fyrir komið í Ketilhúsinu,
sem með nokkrum lagfæringum
gæti orðið framúrskarandi sýningar-
húsnæði og stolt bæjarfélagsins.
Samklippur
Tilvalið er að tengja heimsóknir á
listasafnið og Ketilhúsið innliti á
Kaffi Karólínu, þar sem iðulega eru
markverðar listsýningar. Það gerði
rýnirinn og sér tilefni til að minnast
á sýningu Helgu Bjargar Jónas-
ardóttur, er þar stendur yfir. Þetta
eru samklippur sem hún límir og
saumar á japanpappír á svipaðan
hátt og t.d. Valgarður Gunnarsson
er þekktur fyrir, en í nokkuð ann-
arri útfærslu þó. Hér er um að ræða
ýmsar gerðir af einstaklingum, einn
með fiðlu, einn með kontrabassa,
einn með lúður, einn með klarinettu
og einn við píanó. Svo er einn festur
upp á kross og loks fólk eitt sér í
mismunandi stellingum úti og inni.
Þetta er líkast stefi um innhverfa
einsemd, manninn sem alltaf er einn,
líf á mörkum vöku og draums. Ljúf
og ljóðræn stef um manninn og
umhverfi hans, og þótt ekki finnist
í þeim ýkja mikil átök við liti form
og efni er í þeim upprunalegur og
áleitinn undirtónn.
Bragi Ásgeirsson
Lokatónleikar
Norrænna vísnadaga
NORRÆNUM vísnadögum lýkur
með lokatónleikum í tónleikasal
Tónlistarskóla FÍH við Rauðagerði,
sunnudagskvöldið 5. maí kl. 20.30.
Það er Tónlistarfélagið Vísnavinir
sem stendur að baki Norrænum
vísnadögum í samvinnu við Nor-
ræna húsið, Norrænu félögin víðs-
vegar um landið og sendiráð Dan-
merkur og Noregs. Þar koma fram
allir norrænu gestir hátíðarinnar,
þau Jan-Olof Andersson frá Sví-
þjóð, Barbara Helsingius frá Finn-
landi, Pia Raug frá Danmörku og
Geirr Lystrup og godtfolk frá Nor-
egi. Auk þeiiTa Valgeir Guðjónsson,
Hörður Torfason og Anna Pálína
Ámadóttir ásamt félögum sínum
Gunnari Gunnarssyni og Tómasi
R. Einarssyni.
í kynningu segir: „Jan-Olof
Andersson er klassískur gítarleik-
ari og söngvari. Hann heimsótti
ísland síðast árið 1992. Barbara
Helsingius á marga aðdáendur
hér á landi, enda er hún einn af
máttarstólpum norrænnar vísna-
tónlistar eftir rúmlega þrjátíu ára
feril sem vísnasöngvari. Pia Raug
er fyrir löngu orðin einn hjart-
fólgnasti tónlistarmaður Dana.
Allt frá fyrstu tíð hefur hún verið
í fremstu röð danskra vísnasöngv-
ara og lagahöfunda. Geirr Lystrup
er í hópi þekktustu tónlistar-
manna Noregs. Hann kemur hing-
að með nafna sína tvo, þá Geirr
Otnæs sem leikur á harmoniku
og Geir Lovold sem leikur á túbu.
Þeir koma víða við í flutningi sín-
um, kitla hláturtaugar og snerta
hjartastrengi.
Spilverksmaðurinn og Stuð-
maðurinn Valgeir Guðjónsson er
nú með á Norrænum vísnadögum
í fyrsta sinn. En hann hefur sýnt
það í laga- og textasmíðum sínum
gegnum árin að í honum býr mik-
ill vísnamaður. Söngvaskáldið
Hörð Torfason þarf vart að kynna
fyrir íslenskum áheyrendum.
Hann er fyrir löngu búinn að taka
sér sæti með frémstu vísnasöngv-
urum landsins. Anna Pálína hefur
á undanförnum árum einbeitt sér
að flutningi vísnatónlistar og vak-
ið athygli fyrir líflegan flutning
og næma túlkun.“
Tónleikamir hefjast kl. 20.30.
Aðgangseyrir er 1000 krónur.
Miðasalan á óperuna Galdra-Loft
opnar 7. maí, ld. 15.00, sími 551 1475.
ÍSLENSKA ÓPERAN
__iiiii
SAI/ÍYO LASERFAXTÆKI
SANYO SPF 201
Venjulegur A4 pappír
vs
WÉ
.980.»
^ stgr. án vsk.
99.575.-
m/vsk.
inter.
Fulltrúi
fremstu
framleiöenda
Sigtún 9, 105 Reykjavík
Sími: 551 0230
Endurmenntun tyfjatækna
Fjölbrautaskólinn við Ármúla, í samvinnu við Lyfjatæknafélag íslands, heldur
námskeið í lyfhrifafræði 9.-15. maí nk. kL. 19.15 til 23.00. Fjallað verður um
geðlyf og sýklalyf. Kennari: Eggert Eggertsson, lyfjafræðingur.
Innritun á skrifstofu Fjölbrautaskólans við Ármúla í síma 581 4022.
Skólameistari.
Eggert Eggertsson